Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Blaðsíða 14
14 Frjálst, óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaéur og útgáfustjéri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoöarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, simi: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblaö 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds. 77Iraunarinnar virði Úrslitatilraun verður nú gerð til þess að halda áfram útgáfu Alþýðublaðsins. Þeirri tilraun ber að fagna enda blasti ekki annað við en að Alþýðublaðið, dagblað sem á sér langa og merka sögu, hætti ella að koma út. Alþýðu- blaðsútgáfan, sem er í meirihlutaeigu Frjálsrar fjölmiðl- unar, tekur við útgáfunni af Alþýðuflokknum. Aðilar samningsins gefa sér tíma til ársloka og skoða þá gang útgáfunnar. Dagblaðaflóran hefði orðið fátækari ef Alþýðublaðið hefði hætt að koma út. Það er að sönnu ekki stórt blað en það hefur undanfarin misseri verið frísklega skrifað og áhrif þess sennilega meiri en ætla mætti af stærð þess og útbreiðslu. Rekstur blaðsins, í þeirri mynd sem það var, gekk hins vegar ekki upp. Formaður Alþýðuflokks- ins lýsti því svo í viðtali um helgina að nú kæmu að út- gáfunni aðilar sem vel þekktu til útgáfumála og því væri von til þess að reksturinn kæmist á réttan kjöl. Hörð samkeppni er og hefur verið á íslenskum fjöl- miðlamarkaði og það er vel. Samkeppnin hvetur menn til dáða og skilar notendum Qölmiðlanna betri afurðum. Samkeppnin er ekki aðeins á dagblaðamarkaðnum held- ur keppa blöðin við fréttastofur útvarps- og sjónvarps- stöðva. Tvö stór dagblöð, Morgunblaðið og DV, hafa lengi haft langmesta útbreiðslu dagblaða. Minni dagblöð- in hafa átt í vök að verjast. Útgáfu Þjóðviljans var hætt. Tíminn var í andarslitrunum þegar útgáfufélagið Tíma- mót, í eigu Frjálsrar Qölmiðlunar, tók við útgáfunni. Tíminn og Dagur á Akureyri sameinuðust síðan í fyrra og úr varð öflugra og útbreiddara dagblað en þau tvö blöð sem fyrir voru. Hefðu þessir aðilar ekki komið að útgáfunum er lík- legt að bæði Tíminn og Alþýðublaðið heyrðu sögunni til. Svo er ekki sem betur fer. Þessi blöð lifa áfram og auka fjölbreytnina á blaðamarkaðnum. Frjálsri fjölmiðlun hefur verið lýst sem eins konar regnhlíf yfir Qölbreyttri útgáfu. Þau dagblöð sem eru undir þeirri regnhlíf eru DV, Dagur-Tíminn og Alþýðublaðið. Forsenda þess að útgáfa þessara ólíku dagblaða luk- kist er algerlega sjálfstæð og aðskilin ritstjómarstefna. Svo er og mun verða. Blöðin eiga í samkeppni hvert við annað um leið og þau keppa að sjálfsögðu við aðra fjöl- miðla. Hagurinn við útgáfuna er síðan aukin hagræðing sem næst með samþættingu í rekstrinum, þekkingu og sérhæfingu þeirra sem að koma. Framkvæmdastjóri Frjálsrar Qölmiðlunar sagði í viðtali á laugardag að hjá félaginu væri aðstaða, tækjabúnaður og mannskapur til þess að gefa út dagblöð hagkvæmar en flestir aðrir geta gert. Hagurinn felst m.a. í samnýtingu skrifstofustarfa og dreifingu. Sú tilraun sem nú er gerð með útgáfu Alþýðublaðsins er þess virði að hún sé gerð. Flestir sem að blaðinu hafa komið halda vinnu sinni líkt og var þegar ákveðið var á sínum tíma að gefa Tímann áfram út. Rödd Alþýðublaðs- ins heyrist áfram, með sína sérstöðu og ólík öðrum fjöl- miðlum, hvort sem þar um ræðir DV, Morgunblaðið, Dag-Tímann eða ljósvakamiðlana. Það er rétt sem fram kom í Reykjavíkurbréfi Morgun- blaðsins í gær að þeir sem standa að útgáfu dagblaða hafa ekki áhuga á því að þeim fækki. Þvert á móti sé æskilegt að samkeppni á dagblaðamarkaðnum aukist. Þess vegna skal tekið undir það álit höfundar Reykjavík- urbréfsins að það væri ánægjuleg þróun ef þessi tilraun til endumýjunar lífdaga Alþýðublaðsins tækist. Jónas Haraldsson MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997 Mengun lofthjúpsins af svo- nefndum gróðiu-húsalofttegund- um er alvarlegasta vandamálið á sviði umhverfismála sem nú blas- ir sameiginlega við mannkyni. Svar umhverfisráðherra við fyrir- spurn minni um losun slíkra loft- tegunda hérlendis, sem lagt var fram á Alþingi nýlega, verðskuld- ar mikla athygli. Það leiðir í ljós að nú þegar stefnir í að íslending- um takist ekki að standa við skuldbindingar rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um lofts- lagsbreytingar sem undirritaður var í Ríó 1992. Með staðfestingu hans af íslands hálfu undirgeng- ust stjómvöld þær skuldbinding- ar að auka ekki losun gróður- húsalofttegunda hérlendis á yfir- standandi áratug. Nú stefnir í það samkvæmt út- reikningum stjómvalda og án þess að reiknað sé með frekari stóriðju að við förum sem svarar 5-10% fram úr þessum þjóðréttar- Frá ráöstefnunni í Ríó 1992, þar sem m.a. íslendingar staðfestu skuld- bindingar rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Loftslagsbreytingar og hlutur íslands eðileg stefna af íslands hálfu þar eð loftslags- breytingar af manna- völdum gætu haft hrikalegar afleiðingar fyrir lífsafkomu þjóðar- innar. Við þurfum því að búa okkur undir það hér og nú að axla með öðium verulegan sam- drátt í losun koltví- oxíðs og annarra gróð- urhúsalofttegunda. Sprenging með nýrri stóriðju Stóriðjustefna ríkis- stjórnarinnar gengiu- þvert gegn þeim mark- miðum sem nú er unn- ið að með fullri þátt- „Nú stefnir í þaö samkvæmt út- reikningum stjórnvalda og án þess aö reiknaö sé meö frekari stóriöju aö viö förum sem svarar 5-10% fram úr þessum þjóöréttar- legu skuldbindingum.u Kjallarinn Hjörleifur Guttormsson alþingismaður legu skuldbinding- um. Gert er ráð fyrir að losunin verði um 3 milljón- ir tonna árið 2000 að teknu tilliti til mótvægisaðgerða sem vissulega er óvíst að skili sér. Það þýðir nær 200 þúsund tonna meiri losun en við- miðunarárið 1990. Lagalegar skuldbindingar í vændum Frá árinu 1995 hafa aðildarríki rammasamnings- ins unnið að gerð nýs samnings sem á að tryggja sam- drátt í losun gróð- urhúsalofttegunda í áföngum. Talið er að draga þurfi úr losun þeirra um sem svarar 50% frá því sem nú er í heiminum til að náð verði markmiðum rammasamnings- ins. Lofthjúpurinn er sameiginlegt andrými og hér má enginn sköpum renna, svo að notað sé fornt orðalag. Hins vegar er gert ráð fyrir að vel stæðar þjóðir efnahagslega leggi hér mun meira af mörkum en þróunarriki. Markvisst er að því stefnt að ganga frá nýjum skuldbindingum fyrir lok þessa árs á ráðstefnu að- ildarríkja samningsins sem hald- in veröur í Kyoto í Japan fyrri hluta desember 1997. Yfirgnæfandi meirihluti ríkja hefur lýst fylgi við lagalega skuld- bindandi samning, þar á meðal ís- lensk stjómvöld sem taka fullan þátt i samningaferlinu. Þetta er töku íslands á alþjóðavettvangi. Ný 180 þúsund tonna álbræðsla á Grundartanga myndi auka losun gróðurhúsalofttegunda hérlendis um 373 þúsund tonn eða um rösk 12% af áætlaðri heildarlosun árið 2000. Stækkun járnblendiverk- smiðjunnar um 50 þúsund tonn myndi bæta viö 167 þúsund tonn- um og hækka hlutfall aukningar í um 18 %! Ef litið er á þau tvö stóriðjuver sem ætlunin er að hefja fram- kvæmdir við þegar á þessu ári sést að þau myndu gefa til sam- ans frá sér 540 þúsund tonn gróð- urhúsalofttegunda. Til saman- burðar má nefna að átakið í land- græðslu og skógrækt, sem kostar 450 milljónir króna, bindur að- eins 22 þúsund tonn! Af svari umhverfisráðherra má einnig ráða að ekki þarf frekar að hugsa um magnesiumverksmiðju hérlendis á þeim grunni sem ráð- gert hefur verið. Stöldrum viö fram yfir Kyoto Ráðherrar ríkisstjórnarinnar ættu hver um sig og sameiginlega að leggjast yfir það dæmi sem hér liggur fyrir. Þar blasir við að ís- lendingar sem aðrar þjóðir þurfa að breyta sínum efnahags- og at- vinnuþróunaráætlunum mjög rót- tækt á næstu árum. Hvemig á að jafna niður þeim samdrætti í los- un gróðurhúsalofttegunda sem líklegt er að við verðum að axla lögum samkvæmt í framhaldi af Kyoto-ráðstefnunni? Núverandi losun skiptist í nokkum veginn jafna þriðjunga milli samgangna, fiskveiða og iðnaðar. Á að ráðast hér og nú í stóriðjuframkvæmdir sem auka munu losun af íslands hálfu um nær fimmtung og ætla í staðinn fiskveiðum, samgöngum og öðrum iðnaði að taka þeim mun meira á sig í niðurskurði? Umhverfisráðherrann gælir að vísu í svari sínu við það að ís- landi muni þegar upp verður staðið í árslok bjóðast einhver sérkjör en viðurkennir þó að þar er ekki á visan að róa. Menn munu líka spyija á hvaða gmnni, hagrænum og siðrænum, eigi að reisa slíkar kröfur. Lágmarkskrafa, sem flestir sem skoða málið hljóta að taka undir, er að doka við með frekari stór- iöjuframkvæmdir þar til fyrir liggur hvað komi út úr þeim samningaviðræðum sem nú standa yfir með þátttöku tslands á vettvangi þjóðanna. Hjörleifur Guttormsson Skoðanir annarra Birtir upp um síðir „Það ætti að vera almenn vitneskja að öll él birtir upp um síðir. Aðeins þarf að bíða mislengi eftir því ... Ef hægt væri að venja sig af óðagotinu kæmi í ljós að það verður enginn héraðsbrestur þótt fjallaskörð lokist í nokkra daga. Menntakerfið myndi ekki versna til muna þótt kennsla félli niður í mestu af- tökum. Og atvinnulífið myndi áreiðanlega ekki skað- ast hið minnsta þótt fyrirtækjum yrði lokað þegar ekki er hundi út sigandi." OÓ í Degi-Tímanum 7. febr. Sökudólgurinn, ríkið „Mikil umskipti til hins betra hafa orðið í rekstri bankanna á undanfömum árum. Það em ánægjuleg tíðindi enda endurspeglar bankareksturinn oftar en ekki atvinnulífið ... Til skamms tima fór lítið fyrir samkeppni á milli bankanna og enn er langt í land að samkeppnin verði eðlileg á milli þeirra. Söku- dólgurinn er ríkisvaldið sem hefur svo lengi sem miðaldra menn muna haft meirihluta bankastarf- semi í landinu í sínum höndum ... Af hverju skyldi aukin samkeppni og hagræðing ekki einnig eiga við í bankakerfinu?" KjM í Viðsk. og atvinnulíf Mbl. 5. febr. Samvinnuverkefni „Það unga fólk sem kom Grósku á laggimar er löngu búið að átta sig á því að ef þróuninni verður ekki snúið við og byröunum dreift, þá verður at- gervisflóttinn að verulegu vandamáli ... Það eru margir sem gleðjast yfir því að ungu Gróskufólki hafi tekist að grafa stríðsaximar og ætli ekki að láta liðin átök hafa áhrif á ætlun þeirra um sameiningu jafnað- armanna og þar með framkvæmd fyrrgreindra grund- vallarbreytinga á íslensku samfélagi. Þeir sem gleðj- ast em hins vegar ekki bara unga kynslóðin, heldur er þetta samvinnuverkefni allra þeirra sem era okk- ur sammála. Þóra Amórsdóttir í Alþbl. 7. febr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.