Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997
Utlönd
Stuttar fréttir i>v
Svíar rannsaka útflutning til Þriöja ríkis nasista:
Taldir hafa smíðað í
eldflaugar nasista
Fergie gerir
upp skuldir og
minnkar viö sig
Sarah Ferguson eða Fergie,
hertogaynjan af York og fyrrum
eiginkona Andrésar Bretaprins,
hefur greitt upp nærri 500 millj-
óna króna yfirdráttarskuldir í
viðskiptabönkum sínum og
hyggst flytja í minna húsnæði svo
hún geti greitt um 18 milljóna
króna skattaskuld. Fergie gaf út
yfirlýsingu þessa efnis eftir fréttir
um að hún hefði gert upp yfir-
dráttarskuldir sínar á einungis
fjórum mánuðum í kjölfar ábatas-
amra auglýsingasamninga sem
sumir hverjir hafa þótt heldur
neyöarlegir fyrir hertogaynjuna.
Samkvæmt fréttum The Sunday
Times undirbýr Fergie róttækan
niðurskurð í lifnaðarháttum. Hyggst
hún flytja úr sex svefnherbergja
sveitasetri, sem hún hefúr leigt, í
minna húsnæði fyrir sig og dætum-
ar. Þá segir hún upp einhverju af
starfsfólki en alls vinna 10 manns
fyrir hana, þar á meðal ritarar,
barnfóstrur og þernur. Reuter
Sænska utanríkisráðuneytið ætl-
ar að hefja rannsókn á ásökunum
þess efnis að iðnfyrirtæki í Svíþjóð
hafi smíðað hluti í V-2 eldflaugar
nasista í seinni heimsstyrjöldinni
sem urðu þúsundum íbúa í Belgíu
og Englandi að bana. Alheimsþing
gyðinga opinberaöi á föstudag bréf
þar sem starfsmaður hafnarinnar í
New York tilkynnti þáverandi utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, Ed-
ward Stettinius, að bandarískt skip
hefði fundið hluta í V-2 sprengjur
sem merktir höfðu verið „Made in
Sweden" eða Framleitt í Svíþjóð.
Talsmaður sænska utanríkis-
ráðuneytisins sagði ásakanimar
litnar mjög alvarlegum augum og
að farið yrði í saumana á málinu.
Farið yrði í gegnum gömul sænsk
gögn og nýframkomin skjöl.
V-2 eldflaugarnar eru taldar hafa
orðið um 2700 manns að bana í Eng-
landi og sært um 6500 manns á sjö
mánaða tímabili 1944. Um 1300 V-2
eldflaugum var skotið á England á
þessum tíma og nokkram hundruð-
um á Belgíu.
Svíar, sem vora hlutlausir í sið-
ari heimsstyrjöldinni, voru í nánu
viðskiptasambandi við nasista í
Þýskalandi og leyfðu þýskum her-
sveitum að fara um landið í lestum
á leiðinni frá Noregi, sem þá var
undir stjóm nasista. Svíar seldu
nasistum einnig jámgrýti sem not-
að var við hergagnaframleiðslu.
Alheimsráð gyðinga opinberaði
einnig skjöl þar sem vitnað er í
áreiðanlegar heimildir sem segja
nokkra starfsmenn sænska Rauða
krossins hafa flutt leynileg skilaboð
milli nasista í Þýskalandi og stuðn-
ingsmanna þeirra í Svíþjóð eftir
stríð. í skjölunum, sem eru frá 1946,
kemur fram að umræddir starfs-
menn hafi keypt silfurborðbúnað og
ýmis listaverk ódýrt í Þýskalandi,
sem var í rústum eftir stríðið, og
selt á margföldu verði í Svíþjóð.
Alheimsráð gyðinga hefur varið
meira en ári í að kemba bandariska
þjóðskjalasafnið í von um að sjá
hvað hafi orðið af eignum fómar-
lamba helfararinnar. Eftir að hafa
fundið skjöl sem sýna fram á tengsl
svissneskra banka við þýska seðla-
bankann á stríðsárunum hefur
spjótunum nú verið beint að Svíum.
Reuter
...ef þú átt ski doo
Það jafnast fátt á við vélsleðaferð í góðum hópi,-
einkum á Ski-doo,- vinsælasta vélsleða í heimi!
Skoðaðu eftirtektarverðustu sleðana í dag.
Opið um helgina, lau. 10-16 og sun. 13-16.
Ski-doo - Fyrstir og fremstir!
Cm JÓNSSON ehf
Bíldshöfða 14 112 Reykjavík S. 587 6644
Við skorum á vélsleðafólk að aka aldrei, aldrei undir áhrifum áfengis.
Börn sem tóku þátt í mótmælaaðgeröum í Belgrad, höfuðborg Serbíu, í gær
mynda hér þriggja fingra merki serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar. Eftir dag-
leg mótmæli frá því í haust og harða gagnrýni frá Vesturlöndum tilkynnti
Slobodan Milosevic í síðustu viku að hann mundi biöja þingiö um að viöur-
kenna úrslit kosninga í bæjum og borgum þar sem stjórnarandstaðan haföi
sigur. Sósíalistar munu eiga aö samþykkja lög þar aö lútandi á þriöjudag.
Engu að síöur fóru 10 þúsund mótmælendur um götur Belgrad í gær.
Símamynd Reuter
Vantar skáparými?
Nýja fataskápalínan hjá
Innval nýtir rýmið til fulls
Þetta er í boði:
• Hver skápur sniðinn eftir máli án aukakostnaðar
• Sérsniðnir skápar og hurðir að hallandi þaki
• Hurðarammar á hjólabraut, fjölbreytt úrval,
m.a. gull, silfurog 180 litir
• Margvislegt útlit og speglar
• Nýjar hurðir fyrir gamla skápinn
Nýja fataskápalínan leysir vandann
. Tilboðsdagar
SERVERSLUN MEÐ INNRETTINGAR OG STIGA
HAMRABORG 1, SÍMI 554 4011,200 KÓPAVOGI
Fundi lauk á já-
kvæðum nótum
Á fundi Yassers Arafats, forseta
Palestínu, og Benjamins Netanya-
hus, forseta ísraels, í gær var ákveð-
ið að sameiginlegar nefndir mundu
útkljá þau deilumál sem enn standa
vegna samninga um borgina Hebr-
on á Vesturbakkanum. Netanyahu
sagði fundinn í gær lofa góðu um
framhaldið þar sem sterkur vilji
væri fyrir að leysa öll ágreiningsat-
riði.
Leiðtogarnir hittust á tæplega
tveggja stunda fundi á landamæram
ísraels og Gazastrandarinnar. Fyrir
fundinn var sagt að hann mundi
snúast um aukna sjálfstjóm Palest-
ínumanna og stjórn þeirra á höfn-
um og flugvöllum.
Yasser Arafat sagði eftir fundinn
að nefndir aðilanna mundu hittast í
vikunni og halda áfram á þeirri
braut sem mörkuð var með samn-
ingi sem tryggði Palestínumönnum
yfirráð yfir 80 prósentum af Hebron.
Reuter
Sjö særðust
Sjö ísraelskir heimenn særðust
i átökum við skæruliða Hisbollah-
hreyfingarinnar í Líbanon.
Efla gæslu
Spænskar friðargæslusveitir í
Mostar í Bosníu juku viðbúnað
sinn í bænum Mostar eftir
sprengingar og aukna spennu
þar.
Kohl gagnrýndur
Helmut Kohl,
kanslari Þýska-
lands, varð fyr-
ir haröri gagn-
rýni vegna
efnahagsstjóm-
ar sinnar sem
verkalýðsleið-
togi sagði hafa
valdið mesta
atvinnuleysi frá
Einn lét lífið
Einn lét lifið og 36 særðust þeg-
ar mótmælendum og lögreglu
lenti saman í albönsku hafnar-
borginni Vlore.
Hægrimenn vinna
National Front, eða Þjóðfylk-
ingin, flokkur hægriöfgamanna í
Frakklandi, vann sigur í bæjar-
stjórnarkosningum í Vitrolles í
Suður-Frakklandi. Er það fjórða
borgin sem þeir stjórna í þeim
landshluta.
Sigurviss
Söngkonan Madonna segist viss
um að fá ósk-
arsverðlaun fyr-
ir hlutverk sitt i
kvikmyndinni
Evita. Tilnefn-
ingar til ósk-
arsverölaun-
anna verða birt-
ar á morgun.
Breyting í Punjab
Kongressflokkurinn tapaði í.
þingkosningum í ríkinu Punjab á
Indlandi en sjíta-múslímar fóru
með sigur af hólmi.
Vilja hjálpa
Frammámenn í svissnesku við-
skiptalífi hafa lýst sig reiðubúna
að gefa fé til sérstaks sjóðs þriggja
stærstu banka landsins sem stofn-
aður hefur verið til minningar
um fórnarlömb helfarar nasista.
í yfirheyrslu
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísra-
els, verður yfir-
heyrður af lög-
reglu vegna
meints spilling-
armáls þar sem
hann skipaði
umdeildan sak-
sóknara.
Vill vera með
Gerry Adams, leiðtogi stjóm-
málaarms írska lýðveldishersins,
IRA, hvatti John Major, forsætis-
ráðherra Breta, tii að hleypa sin-
um mönnum að samningaborðinu
um Norður-írland fyrir bresku
þingkosningamar.
Deilt um vopn
Harðar deilur um frjálsleg
vopnalög hafa sprottið upp á
Nýja- Sjálandi í kjölfar
fjöldamoröa þar sem maður er
grunaður um að hafa skotið sex
manns til bana.
Myntbandalag?
Malcolm Rifkind, utanríkisráð-
herra Breta, segist efast um að
sameiginlegur evrópskur gjald-
miöill verði að veruleika 1999.
Viðræður
Alberto Fujimori, forseti Perú,
vonast til að viðræður við skæra-
liðana sem halda 72 gíslum í
sendiráði Japana geti hafist á ný
á morgun. Verulegar áhyggjur
eru yfir heilsufari gíslanna.
Reuter