Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Side 13
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997
13
Fréttir
Minna drukkið
og minna reykt
DV, Akranesi:
Útibú ÁTVR á Akranesi seldi á
síðasta ári áfengi fyrir 119,4 milljón-
ir króna sem er 1,70% af landssölu.
Sala tóbaks fyrir sama ár er 95,4
milljónir eða 2,11% af landssölu.
Ef miðað er við árið 1995 þá var
áfengi selt fyrir 124 milijónir og var
það 1,56% af landssölu. Hefur hækk-
að miðað við landssölu um 0,14% í
sölunni á áfengi milli ára.
Ef miðað er við tóbakið nam sal-
an árið 1995 á því 99,4 milljónum
króna eða 2,17% og lækkar útibúiö
sig miðað við landssölu um 0,6%
„Aðalskýringin á því að áfengis-
sala minnkar á árinu 1996 hjá útibú-
inu á Akranesi og á flestum stöðum
er sú að í desember 1995 varð gerð
sú breyting að ÁTVR er ekki einka-
sala lengur og stór hluti allra vín-
kaupa vinveitingahúsanna fer fram
hjá innflytjendum," sagði Guðný
Ársælsdóttir, útibústjóri ÁTVR á
Akranesi, í samtali við DV. -DVÓ
Stepen með eina krabbann sem hann fékk í Keflavíkurhöfn á dögunum.
DV-mynd ÆMK
Fékk einn krabba í
frostinu í Keflavíkurhöfn
DV, Suðurnesjuin:
„Fiskiríið er lítið yfir vetrartím-
ann. Ég býst ekki við að fá meira en
þennan eina krabba á þessum árs-
tíma. Ég kem hingað þegar ég er ör-
væntingarfuiiur og veiðiblöðin eru
farin að gera lítið gagn. Þá verð ég
að koma hingað og láta línuna alla
vega blotna. Þá er ég ánægður,“
sagði Bandaríkjamaðurinn Stephen
J. Elliot í samtali við DV í miklu
frosti á bryggjusporðinum í Kefla-
vík nýlega.
Stephen lætur veðráttuna lítið
hafa áhrif á sig enda með mikla
veiðidellu. Hann fer ekki oft að
veiða yfir vetrartímann en á sumr-
■in fer hann þrisvar eða oftar í viku
ásamt veiðifélaga sínum sem vinn-
ur á dagblaði hersins á Keflavíkur-
flugvelli. Þeir félagar veiða í Helgu-
vík og Keflavíkurhöfn ásamt að fara
í veiðivötn.
Stephen er venjulegur borgari og
umboðsmaður nokkurra fyrirtækja
í Bandarikjunum sem selja vörur í
verslun Varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. Eiginkona hans er í sjóher
Bandaríkjanna og vinnur á Vellin-
um. Þau hafa búið á íslandi á þriðja
ár ásamt þremur drengjum sínum.
„Ég elska að veiða og elska nátt-
úrufegurðina hér á landi. Mér þykir
mjög vænt um landið og þeir staðir
sem ég fer að skoða veröa að vera
þannig að þar sé hægt að veiða. Á
sumrin hef ég farið í sjóstangaveiði
og veitt meira en við þurfum í mat-
inn. Við höfum síðan eldað aflann á
marga vegu. Mér þykir ýsan afskap-
lega góð, það er ekkert sem jafnast á
við hana. Hún er frábær matur.
Ég hef stundum tekið drengina
mína með í veiðiferðir. Þeir eru 5-8
ára en mér illa við að láta þá veiða
á bryggjunni. Ef þeir gera það eru
þeir með björgunarvesti," sagði
hinn eldhressi Stephen.
-ÆMK
íSifSÍI
Stór, vönduð
reiknitölva, í hulstri,
með blokk og penna.
Ath! Engar rahlöður,
auðveld og skýr
j í t gnmtilM
íjI •jJíMaa-
VERSLUNARHUSIÐ
DALVEGI 2 • KÓPAVOGI • S: 564 2000
FLUGFÉLAG AKUREYRAR
1937-1997
I tilefni 60 ára flugafmælis bjóða Flugleiðir
6.000 kr. afslátt af verði allra pakkaferða"
í 6 daga til laugardagsins 16. febrúar.
Söluskrifstofur Flugleiða eru opnar
laugardaginn 16. febrúar til kl. 16.
FLUGLEIDIR
'Afslátturinn bætist ekki við afsláttartilboð í ferðabæklingum Flugleiða.
Traustur tslenskur ferðafélagi