Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Blaðsíða 40
8.2.’97
18
HeildarvinningsupphæÖ
4.087.740
Aðal- 1Q tölur 1 ® 35 9
Vinningar Fjöldi vinninga Vinningsupphæð
l.SqfS rfasa2 1.009.420
2. 4 qf5 + 3 102.540
3. 4qf5 65 8.160
4. 3qf5 2.198 560
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
i3550 5555
Frjá!st,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997
Alvarlegt vinnuslys:
Piltur missti
framan af
hendi
17 ára piltur slasaðist alvarlega
þegar hann festi höndina í vélsnigli
í loðnubræðslu Hafnarmjöls í Þor-
lákshöfn í gær.
Pilturinn missti framan af hend-
inni og var honum ekið i skyndi á
Sjúkrahús Reykjavíkur þar sem
hann fór í aðgerð á gjörgæsludeild.
Hann var enn í aðgerð í gærkvöld
og að sögn lækna þar átti að reyna
að bjarga hendinni.
Verið er að gangsetja nýja mjöl-
bræðslu hjá Hafnarmjöli og var til-
raunakeyrsla í gangi þegar slysið
varð rétt fyrir hádegi. D
-KK
PAÐ ÆTTI PA AÐ VERA
MÖGULEIKI Á KLAKA í
GLÖSIN Á KRÓKNUM!
Flóðahætta á suðurströndinni vegna óvenjuhárrar sjávarstöðu:
Búumst við
hinu versta
- sagði vaktmaður í Grindavíkurhöfn í gærkvöld
„Okkur hefúr verið sagt að búast
við hinu versta og þannig höfum við
undirbúið okkur. Það versta sem
getur komið fyrir í fyrramálið er að
loftþrýstingur verði lágur og vindur
hvass af suðvestri. Þá erum við ekki
í góðum rnálurn," sagði Sverrir V0-
bergsson, vaktmaður í Grindavíkur-
höfn, við DV í gærkvöld, en Veður-
stofa Islands sendi út viðvaranir
vegna hvassviðris og óvenjuhárrar
sjávarstöðu á suðurströndinni í gær-
kvöld og gerði ráð fyrir enn meiri
sjávai-hæð nú í morgun.
Verulega var farið að hvessa í
gærkvöld og reiknaði Haraldur Ei-
riksson veðurfræðingur með því að
veðurhæðin næði hámarki í nótt.
Hann sagði að þótt líklega yrði farið
að lægja á háflóðinu nú í morgun
mætti búast við töluverðri öldu.
Reiknað var með mjög lágmn loft-
þrýstingi, samtímis því að stór-
streymt yrði. Haraldur sagöi að gera
yrði ráð fyrir hástreymi frá Suður-
nesjum til Hafhar í Homafirði og
hvatti menn til hafa allan varann á.
„Vesturbryggjumar gætu farið á
kaf en við höfum í raun engar sér-
stakar áhyggjur af þeim. Ef áttin
verður austlæg erum við nokkuö ör-
uggir. Við höfum áhyggjur af því
einu að bátamir verði of fast bundn-
ir og slitni frá. Þeir gætu þá endað
uppi á bryggjum,“ sagði Lúðvík Lúð-
víksson, vaktmaður hjá Reykjavík-
urhöfn, viö DV í gærkvöld, en þá var
sjávarstaða komin í 4,47 metra í
höfninni. Reiknað er með að á há-
flóðinu nú 1 morgun geti staða sjáv-
ar farið yfir fimm metra en það hef-
ur ekki gerst frá því að mælingar
hófúst.
„Við erum ekki famir að hafa
áhyggjur af því núna en góðir sjó-
menn huga að bátum sínum svo ég
er hvergi smeykur," sagði Lúðvík í
gærkvöld.
Sveinn Halldórsson, vaktmaður í
Vestmannaeyjum, sagði ástandið
skikkanlegt í Eyjum, sjávarstaða
væri í meðallagi há og þrátt fyrir 11
vindstig sagöist hann ekki óttast um
báta í höfhinni. Hann sagöi aust-
lægu áttina ágæta í Eyjum og því
kviðu menn ekki morgninum. -sv
Sjávarstaöa er afar há og í gærkvöld óttuðust menn flóö í morgunsáriö á nokkrum stöðum, einkum á Suðurnesjum.
Veöurstofa íslands sendi út viðvaranir þar sem ioftþrýstingur er mjög lágur og vindur hvass af suðvestri.
Grindvíkingar bjuggust viö hinu versta og viðbúnaöur var talsverður annars staðar á Reykjanesskaganum. í
Reykjavík bjóst vaktmaöur við höfnina við því að vesturbryggjurnar færu í kaf á morgunflóðinu. Hætta var því á að
bátar slitnuðu frá. Myndin sýnir togarann Snorra Sturluson í Reykjavíkurhöfn í gærkvöld. DV-mynd s
Veðriö á morgun:
Stinningskaldi
og slydduél
sunnan til
Á morgun verður austan stinn-
ingskaldi, snjókoma eða él á norð-
anverðu landinu en sunnankaldi
eða stinningskaldi og skúrir eða
slydduél sunnan til.
Veðrið í dag er á bls. 44
16 ára piltur tekinn:
Skar stúlku
og skallaði
aðra
16 ára piltur réðst á unglingsstúiku
með hnífi og skar hana í höndina í
heimahúsi í Grafarvogi í gærmorgun.
Gleðskapur stóð yfir í húsinu og
skyndilega dró pilturinn fram hníf og
ógnaði öðrum ungmennum á staðn-
um. Stúlkan reyndi að taka hnífinn af
piltinum en þá skar hann hana í
höndina. Einnig réðst hann á bams-
móður sína og skallaði hana í höfúð-
ið. Lögregla var kölluð til og handtók
hún piltinn en hann mun oft hafa
komið við sögu lögreglu vegna árás-
armála og fíkniefnaneyslu.
Báðar stúlkumar voru fluttar á
slysadeild og gert að sárum þeirra
þar. -RR
Borgarísjaki
á Skagafirði
Stór borgarísjaki er nú skammt
norðan við Málmey á Skagafirði. Að
sögn Rögnvalds Steinssonar, bónda
á Hrauni í Skefilsstaðahreppi, hefur
mikið molnað úr jakanum. „Hann
er ekki svipur hjá sjón miðað við
það sem hann var og hugsanlega
þurfa sjófarendur að vara sig á brot-
um úr honum,“ sagði Rögnvaldur.
Hafís er ekki einungis á ferðinni
á Skagafirði heldur er varhugavert
að sigla fyrir Hom vegna hafíss,
samkvæmt upplýsingum Landhelg-
isgæslunnar. -JHÞ
Akureyri:
Tekinn á 166
km hraða
DV, Akureyri:
Átján ára ökumaður var staðinn
að því aðfaranótt laugardags að aka
á 166 km hraða á Hörgárbraut á Ak-
ureyri þar sem leyfður er 70 km há-
markshraði.
Lögreglumenn mældu hraða bíls-
ins í útjaðri hæjarins að norðan-
verðu og reyndi ökumaðurinn að
stinga lögregluna af. Hann slökkti
ljós bifreiðarinnar og ók heim að
bænum Sílastöðum þar sem hann
faldi bifreiðina bak við útihús. Lög-
reglan fann hana þó og kom I ijós að
fjórir farþegar voru í bifreiðinni.
Ökumaðurinn, sem var með tveggja
ára reynsluökuskírteini, var svipt-
ur því á staönum og á yfír höfði sér
nokkra mánuði án ökuleyfis, auk
sektar fyrir ofsaaksturinn. -gk
Opel Vectra
Caravan
ífyrstaslnn
á íslandl
Bílheimar ehf.
H El O ©
5œvarhöfba 2a S!mi:S2S 9000