Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1997, Side 7
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1997
7
I>V
Fréttir
Keflavíkurflugvöllur:
Kmahverfið hverfur
rústirnar flokkaðar í Straumsvík
Nú er unnið að því að rífa svo-
kallað Kínahverfi sem er húsaþyrp-
ing innan Keflavíkurflugvallar, rétt
innan við aðalhliðið inn á flugvall-
arsvæðiö, sem ekið er um í átt að
gömlu flugstöðinni. Húsin eru brot-
in niður og rústunum ekið að bæki-
stöð Gáms hf. í Straumsvík þar sem
þær eru flokkaðar og það sem til
einskis er nýtanlegt er flutt á ösku-
hauga Suðurlands að Kirkjuferju í
Ölfusi.
Húsin voru að sögn Ólafs Gunn-
arssonar, skrifstofustjóra hjá Gámi
hf., að mestu úr timbri og þiljuð að
innan með gifsi. Að utan voru þau
klædd með asbesti en sérstakur
vinnuflokkur á vegum islenskra að-
alverktaka fjarlægði ashestið og var
það urðað í haugum á Stafnesi áður
en hafist var handa við að rífa hús-
in og flytja í sorpflokkunarstöð
Gáms hf.
Mikið af jámi er í húsunum og er
það flokkað frá og tekur Hringrás
hf. við því sem brotajámi. Allt timb-
ur er flokkað og verður það kurlað
síðar og flutt í jámblendiverk-
smiðju íslenska jámblendifélagsins
á Grundartanga. Það litla sem eftir
verður og er óendurnýtanlegt verö-
ur svo flutt austur að Kirkjuferju
sem fyrr segir.
Að sögn Ólafs er Gámur hf. sorp-
hirðingar- og sorpflokkunarfyrir-
tæki sem er sérhæft í iðnaðarúr-
gangi. Fyrirtækið hefur gert samn-
ing við Sorpstöð Suðurlands um að
urða sorp að Kirkjuferju. Ástæðan er
lægri gjaldskrá þar eystra þannig að
það borgar sig betur að aka sorpinu
austur en í bækistöðvar Sorpu. -SÁ
Kolbrún Sverrisdóttir:
Vill hífa upp
Æsuflakið
„Ég vil með þessu reyna mitt
ýtrasta til þess að vekja menn til at-
hugunar um rannsóknir sjóslysa al-
mennt og vil að Æsan verði hífð af
hafsbotni. Við þurfum að fá svör við
því hvað fór úrskeiðis þegar Æsan
sökk í blankalogni og ég er þess fufl-
viss að lík mannanna tveggja era
enn um borð í flakinu,“ segir Kol-
brún Sverrisdóttir sem missti eigin-
mann og foður þegar skelbáturinn
Æsa fórst á Amarfirði.
Kolbrún hefur skrifað þingmönn-
um og ráðherrum bréf þar sem hún
fer fram á að þessi mál verði skoð-
uð og að meira verði lagt í að rann-
saka sjóslys. Hún segist hafa mikið
reynt til þess að fá botn í Æsumálið
en alls staðar komið að lokuðum
dyrum.
„Öryggi sjómanna er stefnt í
hættu því hér er fullt af bátum eins
og Æsan. Menn þurfa að fá að vita
hvað geti farið í þeim sem fór í Æs-
unni,“ segir Kolbrún.
-sv
Kristján Ibsen Ingvarsson, vélstjóri á Bárunni, sæll og glaöur yfir því aö vera
byrjaður á línu aftur. DV-mynd RS
Suöureyri:
Smábátarnir rótfiska
DV, Suðuieyri:
Fiskiðjan Freyja hefur tekið línu-
bátinn Báruna á leigu af Spilli á
Suðureyri. Leigutími er rúmir þrír
mánuðir. Skipstjóri er Bjami Ás-
grímsson. Við útgerðina skapast 10
störf á staðnum og munar um
minna.
Að sögn Óðins Gestsonar, for-
stjóra Freyju, verður einblint á
steinbítinn næstu mánuðina en lítill
steinbítur er í afla smábáta eins og
er. Smábátar hafa rótfiskað þegar
gefið hefúr á sjó, en steinbítsaflinn
lítill sem engin. Aðeins fáeinir tugir
kílóa úr 4-5 tonna afla.
-RS
Vestfirskur skelfiskur hf.:
Byggðastofnun gefur
grænt Ijós
- málið nú hjá
Byggðastofnun hefur samþykkt
lánveitingu til fýrirtækisins Vest-
firsks skelfisks hf. á Flateyri. Málið
er nú hjá Fiskveiðasjóði en þar
verður ákveðið í næstu viku hvort
lánveiting verður veitt til fyrirtæk-
isins sem er að reyna að hefja aftur
kúfiskvinnslu.
„Það hefur frestast fundur hjá
Fiskveiðasjóði
okkur en málið verður tekið fyrir í
næstu viku. Þeir hafa sótt um há-
markslán út á kúfiskskipið sem þeir
áætla að kaupa með breytingum á
um 100 milljónir króna. Okkar lán
yrði um 60 prósent og því um 60
milljónir miðað viö þessa upphæð,"
segir Hinrik Greipsson hjá Fisk-
veiðasjóði. -RR
Kínahverfið svokallaöa á Keflavíkurflugvelli er sem óöast að hverfa en rúst-
irnar eru fluttar Inn í Straumsvík þar sem þær eru flokkaðar í endurnýtanleg-
an og óendurnýtanlegan úrgang. DV-mynd ÆMK
Vestmannaeyjar:
Bergur VE stækk-
aður um helming
í Póllandi
DV, Vestmaimaeyjum:
Loðnuskipið Bergiu VE, sem
verið hefur í gagngerum breyting-
um í Póllandi, kom til heimahafn-
ar í Eyjum í fyrrakvöld. Svava
Friðgeirsdóttir útgerðarstjóri seg-
ir aö nánast sé um nýtt skip að
ræða og á Bergur að bera helm-
ingi stærri farm en áður.
„Bergur var bæði lengdur og
breikkaöur og ætti að bera um
1.100 tonn af loðnu nú en gat tek-
ið mest áður 540 tonn. Það er allt
nýtt fyrir framan brú og svo var
skipið breikkað aftur. Það eina
sem í raun er eftir af gamla skip-
inu er brúin, vélin og íbúöir skip-
verja," sagði Svava. -ÓG
Aðalfundur Flugleiða hf.
verður haldinn fimmtudaginn
13. mars 19 9 7 í efri þingsölum
Hótels Loftleiða og hefst kl 14.00.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu
vera komnar í hendur stjómarinnar eigi síðar en 7 dögum
íyriraðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til
sýnis 7 dögum íyrir aðalfund.
Stjóm Flugleiða hf.
Flugleiða
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlarog
fundargögn verða afhent á
aðalskrifstofu félagsins,
Reykj a víkurfl ugvell i. hlutahréfadeild á
1. hæðfrá og með 6. mars kl. 14.00.
Dagana 10. til 12. mars verðagögn
afgreidd ffá kl. 09:00 til 17:00 og
fundardag til kl. 12:00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að
vitja fundargagna sinna fyrir kl. 12:00
á fundardegi.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskurferðafélagi
Vetrarútsölunni lýkur á laugardag!
Vegna loka útsölunnar höfum við opið til kl. 16 laugardag
Rokcy, reimaðir háir
leðurskór, vatnsvarð-
ir, thinsulate einangr-
un, stærðir 41-48.
Verð áður kr. 9.990.
Verðnúkr. 6.990.
Asolo, léttir ítalskir
gönguskórf. dömur
úr leðri og cordura,
stærðir 37-42.
Verð áður kr. 6.900.
Verð nú kr. 4.900.
Adidas switchback
"Hiker", léttir göngu-
skór, stæðir 41-45.
Verð áður 9.359.
Verð nú kr. 6.545.
s.
Herraskíðasamfestingar,
stærðir S-XXL.
Verð áður 9.800.
Verð nú kr. 6.900.
Beatle kid snjóbretta-
jakki.
Verð áður kr. 8.700.
Verðnúkr. 4.900.
Fóðraður gallajakki.
Verð áðurkr. 11.600.
Verðnúkr. 4.900.
Dömuskíðasamfest-
ingar í ýmsum litum.
Verð áður 12.900.
Verð nú kr. 8.900.
Dömumittisjakki frá Nevica, fjólublár og dökkblár. Verð áður 15.790. Verð nú kr. 2.990. Síðar dömu-
úlpur meðtoðkraga, þrír litir rauður, brons og orange, stærðir 38-44. Verð áður kr. 9.980. Verð nú
kr. 7.980. Barnagallar, aðallega stærðirl 64—176. Verð áður kr. 8.900. Verð nú 5.900. Adidas Stripes
lite þolfimiskór, stærðir 37,5-41. Verð áður kr. 8.996. Verð nú kr. 6.297. Nike Air Base hlaupaskór,
stærðir 41-44. Verð áður kr. 7.980. Verð nú kr. 5.586. Matinbleu gallar, fullorðinsstærðir. Verð áður
kr. 12.780. Verð nú kr. 8.950. Stuttermabolir, ýmis félagslið. Verð frá 1.490-1.990 kr.
SSIS ÚTILÍF? Sffl
Ts
Glæsibæ - Sími 5812922