Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1997, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1997
11
DV
Útlönd
Norton
sandpappír
fyrir vandláta
ionaðarmenn
Þegar gæðin skipta máli
Skeifan 11 D • Sími 568 6466
Sex daga þjóðarsorg í Kína vegna fráfalls Dengs Xiaopings:
Ekki búist við valda-
Þjóöarleiötogar minnast Dengs
Fánar voru dregnir í hálfa stöng á
Nýr líkbrennslu-
ofn í notkun fýr-
ir Deng Xiaoping
Lík Dengs Xiaopings, æðsta leið-
toga Kína, sem lést í gær, verður
brennt í splunkunýjum ofni sem
var sérstaklega keyptur fyrir hann
til að koma í veg fyrir að aska
hans blandist ösku óæðri manna,
að því er kínverskir heimildar-
menn sögðu í morgun.
Babaoshan líkbrennslustofnun-
in, þæ' Sem lík nær allra kín-
verskra leiðtoga eru brennd eftir
að þeir „fara á fund Marx“, hafði
þegar pantað ofninn og komið hon-
um fyrir, sögðu heimildarmenn.
Starfsmaður stofnunarinnar
kannaðist hins vegar ekkert við
kaup á nýjum ofni og sagöi að
ekki heföu enn borist fyrirmæli
um hvernig ætti að fara með jarð-
neskar leifar Dengs. Reuter
leiðtoganna
baráttu
Sex daga þjóðarsorg hófst í Kína í
morgun vegna fráfalls Dengs Xiaop-
ings, æðsta leiðtoga landsins, sem
lést í gær, 92 ára að aldri. Deng hafði
ráðið ríkjum í átján ár og á þeim
tima hafði hann breytt Kína úr van-
þróuðu stalínísku ríki í efnahagslegt
stórveldi.
í bréfi frá Kommúnistaflokknum,
ríkisráðinu og yfirstjóm hersins til
1,2 milljarða íbúa Kína var lýst yfir
djúpri sorg við dauða „mikils marx-
ista, mikils byltingarmanns, stjórn-
málamanns, herfræðings og erind-
reka“.
Kínverska utanríkisráðuneytið
lýsti yfir sex daga þjóðarsorg sem
bendir til að útfórin fari fram 25. fe-
brúar.
Opinbera fréttastofan Xinhua
sagði að hinn aldni leiðtogi hefði gef-
ið upp öndina klukkan 21:08 að stað-
artíma eða 13:08 að íslenskum tíma.
Deng þjáðist af Parkinsonsveiki á
háu stigi en hann lést þegar öndunar-
færi hans hættu að starfa. Ekki tókst
að lífga hann við þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir lækna.
Kínverskir heimildarmenn, sem
standa nærri flokknum, sögðu að
læknar hefðu gert barkaskurð til að
reyna að bjarga Deng, að því er talið
er í Zhongnanhai stjórnarbygging-
unum steinsnar frá Torgi hins him-
neska friðar. En það var einmitt á
því sama torgi sem mótmæli lýðræð-
issinnaðra námsmanna vom brotin á
bak aftur árið 1989, að fyrirskipan
Dengs. Mikill fiöldi óbreyttra borg-
ara féll í þeim átökum.
Ferillinn spannaöi mestalla
öldina
Deng haföi ekki sést opinberlega í
þrjú ár, eða frá því hann heimsótti
Shanghaí í tilefni hátíðahaldanna
vegna nýs tunglárs og var hann þá
mjög veiklulegur að sjá.
Ferill Dengs spannaði mestalla
tuttugustu öldina, allt frá síðasta
keisaranum til þess er Kína varð
kjamorkuveldi. Hann komst til valda
árið 1978 en hafði áður lent þrisvar
sinnum í hreinsunum fyrirrennara
sinna. Hann dró sig ekki í hlé fyrr en
árið 1990.
Deng leiddi Kína til meiri stöðug-
leika og velmegunar en hefur þekkst
í sögu landsins í nærri tvö hundruð
ár og áhrifa hans gætti hvarvetna
allt til dauða hans. Hann lést þó án
þess að fá einn draum sinn uppfyllt-
an, að vera viðstaddur þegar Kínverj-
ar fá aftur yfirráð yfír Hong Kong,
sem Bretar lögðu undir sig i ópíum-
stríðunum. Það gerist á miðnætti 30.
júní næstkomandi.
Kínversk sfiómvöld sögðu að eng-
um erlendum ráðamönnum yrði boð-
ið til útfararinnar.
Deng Xiaoping, æðsti leiðtogi Kína, sem lést í Peking í gær, sést hér með Ghou Lin, eiginkonu sinni. Myndin var tek-
in í Shanghaí fyrir þremur árum en Deng kom ekki fram opinberlega eftir þá heimsókn. Símamynd Reuter
manna væri ólíkleg á næstunni þar
sem erfingi Dengs, flokksformaður-
inn Jiang Zemin, héldi fast um
valdataumana. Jiang gegnir embætt-
um flokksformanns, forseta ríkisins
og yfirmanns hersins. Hann er hins
vegar orðinn sjötugur og því ekki
langt í að hann þurfi að fara að huga
að eftirmanni sínum.
í opinberri minningargrein um
Deng eru Kínverjar hvattir til að
fylkja sér um erfingja hans.
Rólegt var á götum Peking í morg-
un en lögreglan var þó með aukinn
viðbúnað fyrir utan Zhongnanhai
sfiórnarbyggingarnar og herbílar
óku með blikkandi ljósum um aðal-
götur borgarinnar. Reuter
Deng Xiaoping tekur um öxl byltingarforingjans Hos Chis Minhs, leiðtoga
Víetnama, þegar hann kom í heimsókn til Peking. Ekki er vitað hvenær
myndin var tekin. Simamynd Reuter
ros Hashimotos, forsætisráðherra
Japans, vottuðu Deng virðingu sína í
morgun og hlóðu hann lofi fyrir að
opna dyr þessa fiölmennasta þjóðfé-
lags heimsins til vesturs.
Clinton kallaði Deng „stórkostleg-
an mann á vettvangi heimsmálanna í
tvo áratugi".
Hashimoto sagði að hann væri
ákaflega hryggur og bætti við að
samskipti Japans og Kína yrðu sífellt
mikilvægari fyrir frið og stöðugleika
í Asíu og heiminum.
Viðbrögð íbúa Peking voru blend-
in.
„Ég finn til mikillar hryggðar,"
sagði götusölumaðurinn Xie Weicai
sem var að gera hlóðir sínar klárar
fyrir morgunviðskiptin.
Öðru máli gegnir um leigubflsfióra
einn. „Ég mundi telja það að tapa 100
júan (840 krónum) miklu hryggilegri
atburð en dauða Dengs Xiaopings,"
sagði leigubílsfiórinn. „Þetta kemur
mér ekki við.“
Hjólreiöamaður fer hjá opinberum
bústaö Dengs Xiaopings í Peking í
morgun. Fánar hafa hvarvetna í
Kína verið dregnir í hálfa stöng.
Símamynd Reuter
Torgi hins himneska friðar, við höll
alþýðunnar og á kínverskum sendi-
ráðum um allan heim til að votta
hinum látna virðingu.
Leiðtogar þjóða heims, allt frá Bill
Clinton Bandarikjaforseta til Ryuta-
Rólegt á götum Peking
Sfiómarerindrekar sögðu að innri
valdabarátta meðal kínverskra ráða-
Albright ræðir við Rússa
um stækkun NATO í austur
nesk stjómvöld segja að
innganga fyrram ríkja
Varsjárbandalagsins í
NATO muni ógna öryggi
Rússlands.
Meðal þess sem Al-
bright mun leggja til er
stofhun sameiginlegrar
hersveitar Rússa og
NATO sem einkum yrði
notuð til friðargæslu. Þeirri hug-
mynd hefur ekki enn verið svarað.
Einnig mun hún leggja til að NATO
og Rússar haldi fund með væntan-
legum nýjum ríkjum fyrir júlímán-
uð en þá verða send út boð til ríkja
um inngöngu. Reuter
Madeleine Albright,
utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, kemur til Rúss-
lands í dag með tillögur
sem ætlað er að fá Rússa til
að láta af andstöðu sinni
við stækkun NATO til
austurs.
Albright, sem er i fyrstu
ferð sinni til útlanda eftir
að hún tók við embætti, hefur verið
í London og Brassel til að reyna að
stilla saman strengi vesturveldanna
fyrir viðræður við Rússa.
Búist er við að hún leggi fram
nokkrar mikilvægar nýjar tillögur í
viðræðum sínum í Moskvu en rúss-
Veiting hundaleyfa: 21. febrúan á Skuggabarnum
Reykvíkingar!
Munið borgarstjórnarfundinn
í dag kl. 17:00,
sem útvarpað er
á Aðalstöðinni FM 90.9.
Skrifstofa
borgarstjóra
Tveir hand-
teknir vegna
sprengju-
árása IRA
Tveir írar hafa verið úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald eftir að
sprengiefni fannst í fórum
þeirra. írskir fiölmiðlar segja að
skyndileit lögreglunnar hafi
komið upp um fyrirhugaðar
árásir írska lýðveldishersins,
IRA. Tveir aðrir hafa verið
handteknir og era nú yfirheyrð-
ir. Lögreglan herti eftirlit sitt
eftir að sprengiefnið og búnaður
til sprengjugerðar faimst í fór-
um mannanna. Reuter