Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Page 6
6 MÁNUDAGUR 3. MARS 1997 Fréttir Samningur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og Félags íslenskra stórkaupmanna: Mælir ekkert gegn því aö samningurinn marki stefnuna - segir Magnús L. - 70 þúsund kr. lágmarkslaun og 13,4% launahækkanir „Það mælir ekkert á móti því að þessi samningur mcirki stefnuna í þeim samningum sem eftir eru og við ætlum að sjá til hvort ekki takast samningar á breiðari grund- velli áður en við berum hann undir atkvæði í félaginu. Við erum að semja við VSÍ, Bónus, 10-11 og Stöð 2 og ætlum að reyna að afgreiða þennan og aðra samninga í heild innan félagsins þegar þar að kem- ur,“ sagði Magnús L. Sveinsson við DV í gær. Helstu atriði og nýmæli hins nýja kjarasamnings Félags ísl stórkaup- manna og Verslunarmannafélags Reykjavíkur, sem undirritaður var á laugardagskvöld, eru þau að samningurinn gildir til og með 29. febrúar 2000. Lágmarkslaun verða 70 þúsund krónur á mánuði frá og með 1. júlí 1998. Launahækkanir verða við undir- skrift 4,7%. Næst hækka laun 1. jan- úar 1998 um 4%, 1. janúar 1999 um 3,5% og 1. janúar 2000 um 1,2%. Sér- hver starfsmaður á þó rétt á þvi að launakjör hans skuli endurskoðuð minnst einu sinni á ári með tiiliti til vinnuframlags, hæfhi, menntunar, fæmi, ábyrgðar og innihalds starfs og gæta skal ákvæða jafnréttislaga við launaákvarðanir. Opnað er á gerð fyrirtækjasamn- inga með það að markmiði að auka ávinning fyrirtækis og starfsmanna. Heimilt er að víkja frá ákvæðum kjarasamnings um vinnutíma, álag fyrir yfirvinnu, um töku orlofs og að taka upp ábataskiptakerfi, allt eftir því sem hentar á hverjum stað. Enn fremur verða ákvæði kjara- samnings um hvíldartíma og ráðn- ingarsamninga aðlöguð ákvæðum Evrópusambandslaga. Samningsaðilar em ásáttir um að skoða sameiginlega réttindi lífeyris- þega á almennum vinnumarkaði annars vegar og hjá opinberum starfsmönnum hins vegar með það að markmiði að jafna lífeyrisrétt. Jafnframt eru samningsaðilar ásátt- ir um að krefjast þess að rekstrar- umhverfi verslunarfyrirtækja hér á landi verði samhærilegt við það sem best gerist í nágrannalöndunum. -SÁ Vinningar sem dregnir voru út í HAPPI í HENDI síðastliðið föstudagskvöld komu í hlut eftirtalinna aðila. Birt með fyrirvara um prentvillur. Anna María Bjarnadóttir, Hjallabraut 82, Hafnarfirði Elvar Gunnarsson, Grænumýri 15, Akureyri Jón Jónsson, Borgarholtsbraut 64, Kópavogi AuOur Vigdís Jóhannesdóttir, Austurgötu 10, Hofsósi Helga Helgadóttir, Vaðnesi, Grímsnesi Júlíus Ó. Ásgeirsson, Smyrlahrauni 24, Hafnarfirði Birkir Rafn Stefánsson, Ásvegi 7, Breiðdalsvík Hólmtríöur Margrét, Aðalgðtu 1, íb. 2b, Blönduósi Magnús Tindri Sigurðsson, Stekkar 23, Patreksfirði Björg Jónasdóttir, Bláskógum 15, Egilsstöðum Hbskuldur Marinósson, Koltröð 14, Egilsstöðum María Jensdóttir, Flétturima 24, Reykjavík Davíð Örn Friðriksson, Brattholti 1, Mosfellsbæ Ingibjörg Jónsdóttir, Rauðsgili, Reykholti Særún Björnsdóttir, Jórufelli 10, Reykjavík Elín Dungal, Grensásvegi 58, Reykjavlk Jolta F. Jensen, Laugavegi 49, Reykjavík Unnur Jóhannesdóttir, Fornósi 12, Sauðárkróki Vinnhi^shafat vitjd«> vmnino.i hja Happdt\vHi HáskúU ivlands. TjatnAroótu *. »o* Revkjavik. Mini soí 8ujo Þ R I N II » K Hverfafundur * með borgarstjóra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri heldur hverfafund með íbúum í Efra Breiðholti: í Gerðubergi mánudaginn 3. mars kl. 20.00. Á fundinum mun borgarstjóri m.a. ræða um áætlanir og framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og fyrirspurnir með þátttöku fundarmanna og embættismanna borgarinnar. Jafnframt verða settar upp teikningar af fyrirhuguðuin framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru fróðlegu og myndrænu efni. Allir velkomnir. Skrifstofa borgarstjóra. Óvæntur kjarasamningur VR og Félags ísl. stórkaupmanna hleypti fjöri í samningaviöræöur annarra aðila vinnumarkaðarins og voru stíf fundahöld ■ Karphúsinu í gær. Hér eru forystumenn VSÍ meö Þóri Einarsson ríkissátta- semjara á milli sín fyrir miöri mynd. Lengst til hægri er Ólafur Ólafsson, for- maður VSÍ, þá ríkissáttasemjari, Viglundur Þorsteinsson og Þórarinn V. Þór- arinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. DV-mynd Pjetur Náðum þunga- miöjunni - segir Magnús L. Sveinsson, formaður VR „Miðað við þær kröfur sem við settum fram höfum við náð þung- amiðjunni í okkar markmiðum. í fyrsta lagi verður lágmarkstaxti 70 þúsund krónur á miðju næsta ári eins og við kröfðumst og launa- hækkanir á þriggja ára samnings- tímabili verða rúmlega 14%. Þetta er innan þeirra marka sem opinber- ar tölur sýna að þjóðfélagið þoli án þess að stöðugleikanum sé raskað, þannig að við erum að semja um kaupmátt. Þeir hnýta helst í þennan samning sem telja að enginn megi gera samning á undan þeim,“ sagði Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavík- ur, þegar DV spurði hann um nýjan kjarasamning VR og Félags ísl. stór- kaupmanna. Magnús sagði að VR ætti samn- ingsaðild við nokkur samtök og stór fyrirtæki sem stæðu utan Vinnu- veitendasambandsins eins og FÍS, en þeirra á meðal eru 10-11 búðim- ar, Bónus, Stöð 2 og fleiri. Aðspurður hversu stefnumark- andi þessi samningur yrði i öðrum samningaviðræðum VR og annarra félaga sagði Magnús L. Sveinsson að ekkert mælti gegn því að þessi samningur opnaði á aðra samninga. Taka þyrfti þó með í reikninginn að hér væri um að ræða samning inn- an ákveðinnar starfsgreinar og að- stæður og umhverfi innan hennar væri sjálfsagt að einhverju leyti ólíkt því sem væri innan annarra starfsgreina. í hinum nýja kjara- samningi VR og FÍS væri opnað á fyrirtækjasamninga, sem hefðu ver- ið ein af kröfum VR. Þá séu ýmis ákvæði í samningnum um að stuðla að aukinni framleiðni fyrirtækj- anna til að stuðla þannig að betri launum og betri afkomu þeirra. „Við ætlum að ná 8-10% kaup- máttarauka út úr þessum samningi og trúum því að það sé hægt. Hann undirstrikar þá grundvallarkröfu sem við höfum barist fyrir í mörg ár, að færa samningsformið yfir í starfsgreinamar og taka meira mið af afkomu og umhverfi hverrar starfsgreinar en setja þetta ekki allt í einn og sama pottinn og ganga út frá því að öll laun í landinu eigi að miðast við hvað fiskvinnslan í land- inu þolir,“ sagði Magnús L. Sveins- son, formaður VR. Stefán Guðjónsson framkvæmda- stjóri Félags íslenskra stórkaup- manna kveðst geta tekið undir það að 70 þúsunda lágmarkslaun skipti ekki máli fyrir samningsaðila, hins vegar sé önnur gagnrýni ekki á rök- um reist, samningurinn feli í sér umtalsverðar launahækkanir. Stjórn FÍS kemur saman til fundar í hádeginu í dag til að taka afstöðu tO hins nýja samnings. Stjóm VR sam- þykkti hann hins vegar einróma á sérstökum fundi í gær. -SÁ Sandkorn i>v Ekki aftur ósigur Nokkur skjálfti er að byrja að grípa um sig vegna kosninga til sveitarstjórna sem fram fara á næsta ári. Hvergi er þó skjálftinn meiri en í höfuðborginni enda ekki ljóst hvemig framboðsmál muni þróast þar. Ingibjörg Sólrún borgar- stjóri er orðuð við hugsanlegt sameiginlegt framboð jafnað- armanna til al- þingiskosninga árið 1999 sem gæti dregið úr trúverðugleika hennar sem borgarstjóraefnis R-list- ans í kosningunum á næsta ári. Ámi Sigfússon, oddviti sjálfstæðis- manna, er ákveðinn í að leiða lista síns flokks og virðist hafa til þess góðan stuðning. Ekki viröast þó all- ir einhuga um Árna og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi flokksins, sagði t.d. í síðustu viku að vonandi veldu menn sigurstrang- legasta kostinn því ekki vildu sjálf- stæðismenn tapa aftur. Þetta er talið „létt skot“ á Áma sem leiddi listann einmitt þegar borgin „tapað- ist“ áiið 1994. Kolbeinn á toppinn? Samkvæmt skoðanakönnun sem gerð hefur verið opinber virðist sem helstu forsvarsmenn íþrótta- mála í landinu vilji flestir nýjan mann i toppsæti hreyfingarinnar þegar íþrótta- sambandið og Ólympíunefnd verða formlega sameinuð. Könnunin var gerð áður en Júlíus Hafstein var settur af sem formaður Ólympíunefhd- ar og Ellert B. Schram, forseti íþróttasam- bandsins, tók við. Nú heyrast þær raddir sem telja að Kolbeinn Pálsson, fyrrum formaður Körfuknattleikssambands íslands, sé „heitur" sem nýr leiðtogi hinnar sameinuðu íþróttahreyfingar og er það ekki talið honum vera- lega til trafala að vera yfirlýstur sjálfstæðismaður eins og þeir Július og Ellert. „Halló" aftur Fullvíst má telja að „hagsmuna- aðilar“ hyggist aö nýju blása til há- tíðarinnar „Halló Akureyri" um verslunarmannahelgina þrátt fyrir reynsluna á síöasta ári. Bæjaryfir- völd á Akur- eyri hafa af og til allt fram á þennan dag verið að skoða áhtsgerðir og gögn vegna há- tíðarinnar í fyrra þegar þúsundir ung- menna „mál- uðu bæinn rauðan" og allt fór á annan endann vegna ölvunar og óspekta. Bæjaryfirvöld hafa falið félagsmála- stjóra sínum og íþrótta- og tóm- stundafulltrúa að móta tillögur um á hvem hátt Akureyrarbær geti komið að hátíöinni í ár og jafn- framt leitað til héraðslæknis um að hann starfi að tillögugerðinni. Nú á sem sagt að vanda til verka, von- andi með þeim árangri að betur takist til en í fyrra. Var það ástæðan? Formaður Júdósambands Islands opnaði á það í Mogganum í síðustu viku aö sú ákvörðun Vemharðs Þor- leifssonar júdókappa frá Akureyri að gerast norskur rikisborgari hefði eitthvaö með Júdósambandið að gera. Á Ak- ureyri er það einmitt altalað að sú sé einmitt raunin þótt eng- inn hafi haft á því orð opinber- lega áður en for- maöur Júdósam- bandsins fór að tala í gátum. Vemharð sjálfur var m.a. svo hógvær í sjónvarpsvið- tali að svara því ekki beint hvort sú afstaða Júdósambandsins að krefjast fjórðungs af þeim fjánnunum sem safnað yrði honum til styrktar hafi fyllt mælinn en það er einmitt álit margia sem til þekkja. Umsjón: Gylfi Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.