Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Page 10
10 MÁNUDAGUR 3. MARS 1997 Fréttir Tugmilljóna tjón þegar fiskverkunarhús í Keflavík brann til kaldra kola: Bjargaði lífi mínu að vera með reykköfunartæki - segir Haukur Ingimarsson slökkviliðsmaður sem hrapaði 5 metra DV, Suðurnesjum: „Það eina sem ég man eftir þess- um atburði er þegar ég var að sprauta inn um glugga á annarri hæð. Síðan rankaði ég aðeins viö mér þegar verið var að stumra yfir mér. Ég var með reykköfunartæki á mér sem bjargaði lífi mínu þar sem ég lá ósjálfbjarga eftir fallið. Ég fékk súrefni frá tækinu sem varð mér til bjargar í reykjarmekkinum. Varð- stjóri minn kom stuttu síðar og stumraði yfir mér allan tímann. Hann þurfti einnig á súrefninu að halda en við skiptumst á,“ sagði Haukur Ingimarsson, slökkviliðs- maður hjá Brunavörnum Suður- nesja, í samtali við DV í gær. Hauk- ur var hætt kominn eftir að hafa fallið niður í brunastiga í 5 metra hæð þegar mikil reyksprenging varð í eldi sem kom upp í fiskverk- unarhúsi Maríss í Keflavík aðfara- nótt laugardags. Haukur var fyrstur á vettvang ásamt varðstjóra sínum, Gylfa Ármannssyni, og byrjuðu þeir að berjast við eldinn. Tugmilljóna tjón varð þegar fisk- verkunarhúsið, sem stendur við Hrannargötu í Keflavík, brann til grunna aðfaranótt laugardags. Auk Hauks slasaðist annar slökkviliðs- maður og tveir lögreglumenn fengu snert af reykeitrun og þurftu allir mennimir að leita læknisaðstoðar. Lögreglumaður var að stumra yfir Hauki þegar önnur sprenging varð og lagði ský af eiturgufum yfir mennina. „Aðstæður voru mjög erfiðar við slökkvistarfið. Það var mikið hvass- viðri og hörkugaddur. Það fraus allt vatn sem fór frá okkur og myndað- ist mikil ísing. Þegar við komum á vettvang var mikill eldur í húsinu og það mjög illa farið. Þá var hætta á að eldurinn myndi breiðast út í næstu byggingu. Við náðum að rjúfa tengiskúr sem var á milli og Haukur Ingimarsson, slökkviliösmaður í Keflavík, var hætt kominn þegar fiskverkunarhús Maríss í Keflavík brann. Hann hrapaöi 5 metra úr bruna- stiga og segir að reykköfunartækin hafi bjargað lífi sínu. Hér er hann með eiginkonu sinni, Kristínu Sigurðardóttur, og Erlu Sylvíu, þriggja ára dóttur þeirra hjóna. DV-myndir ÆMK. Geysileg loðnuveiði DV, Akureyri: Ekkert lát er á loðnuveiðinni og geysilega mikil veiði var inn helg- ina. Segja má að veiðisvæðið sé allt frá Homafirði og vestur fyrir land og skipin era á siglingu til löndunar á allar hafnir landsins þar sem tekið er á móti loðnu. Bjami Bjamason, skipstjóri á Súlunni EA, sagði linnulaust loðnustreymi vera með Suður- og Vesturlandinu. Súlan landaði í fyrrinótt í Neskaupstað og á leið- inni á miðin út af Homafirði sagð- ist Bjarni hafa mætt 11 bátum á norðurleið með fullfermi. Þegar Súlan var út af Horna- firði í gærmorgun lóðaði strax á miklar torfur og Súlan fékk strax gott kast. „Þetta gengur mjög vel, en vandamálið er bara að það er alls staðar allt geymslurými fullt í landi. Þetta er að vísu jákvætt vandamál," sagði Bjami. Hann sagði loðnuna sem nú veiðist fara að langmestu leyti til bræðslu, en eitthvað væri þó ver- ið aö frysta fyrir Rússlandsmark- að, og að það styttist í aö hægt væri að hefja hrognatöku úr þeirri loðnu sem vestast er. -gk Barnamenningarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóönum. Meginhlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði barna- menningar. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og /eða með virkri þátttöku barna. Á yfirstandandi ári hefur sjóðurinn 1.500.000 kr. til ráðstöf- unar. Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, Sölvhóls- götu 4, 150 Reykjavík, fyrir 2. apríl 1997. Stjórn Barnamenningarsjóös, 28. febrúar 1997 Eins og sjá má af myndinni eru aðeins útveggirnir uppistandandi af fiskverkunarhúsinu sem brann aðfaranótt laug- ardags. Tveir slökkviliðsmenn og tveir lögregiumenn slösuöust við slökkvistarfið. hefta þannig útbreiðslu eldsins," sagði Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri Brunavama Suður- nesja, i samtali við DV en allt fasta- og varalið Brunavarna Suðumesja var kallað út og stuttu síðar var ósk- að eftir aðstoö frá slökkviliði Kefla- víkurflugvallar. Haukur var fyrst fluttur á slysa- varðsstofu Sjúkrahúss Suðurnesja og síðan á Sjúkrahús Reykjavíkur. Hann fékk að fara heim í gær en er marinn og tognaður í baki en mikil mildi var að ekki fór verr. Um 25 manns tóku þátt í slökkvi- starfinu. Boðin um eldinn komu klukkan 1.15 og var búið að ráða niðurlögum eldsins rúmum tveimur tímum síðar en slökkviliðsmenn voru að slökkva í glæðum fram und- ir laugardagsmorgun. Húsið sem brann var tvílyft á rúmum 700 fer- metrum. Að sögn Sigmundar var mikill eldsmatur í húsinu en allt brann sem brunnið gat. í húsinu voru 6 tonn af fiski, lyftari, ásamt tækjum og tólum sem notuð voru til fiskvinnslu. „Ég finn enn til í bak- inu þar sem ég tognaði. Þá fékk ég vott af reykeitrun. Ég man raun- verulega ekkert eftir mér fyrr en ég fékk morgunmatinn á spítalanum á laugardaginn," sagði Haukur. Ekki er enn vitað hver eldsupptökin voru en málið er i rannsókn. -ÆMK Könnun Félagsvísindastofnunar fyrir ASÍ: Yfirgnæfandi meirihluti — gegn framsali veiðiheimilda DV, Akureyri: I könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla íslands sem unnin var fýr- ir Alþýðusamband íslands í síðasta mánuði á afstöðu almennings til framsals veiðiheimilda kom í ljós að 73,1% þeirra sem afstöðu tóku em andvígir framsali en 26,9% fylgj- andi. Þetta kom fram í ræðu Sævars Gunnarssonar, formanns Sjómanna- sambandsins, á fundi um sjávarút- vegsmál á Akureyri um helgina. í könnuninni var tekið „slembi- úrtak“ úr þjóðskrá og voru 1500 manns í úrtakinu á aldrinum 18-75 ára. Af þeim svöraðu 1101 sem er 73,4% svöran og var meðalaldur svarenda tæp 43 ár. í könnuninni var spurt þriggja spuminga. Þar var spurt hvort við- komandi væri hlynntur eöa andvíg- ur framsali veiðiheimilda í ein- hverri mynd og niðurstaðan var af- gerandi, eins og sagði hér að fram- an. Einnig var spurt hvort viðkom- andi væri hlynntur varanlegri sölu veiðiheimimilda. Af þeim sem af- stöðu tóku lýstu sig 76% andvígir en 24% samþykkir. í þriðja lagi var spurt hvort við- komandi væri hlynntur eða andvíg- ur því að útgerðarmenn geti leigt öðrum veiðiheimildir sem þeir noti ekki sjálfir á veiðiárinu, svöraðu 60,1% játandi en 39,9% neitandi. Sævar Gunnarsson gerði þessa könnun að umtalsefni á Akureyri og sagði niðurstöðurnar efla launa- fólk enn í baráttu sinni gegn því að útgerðarmenn hafi frjálsan fram- salsrétt á veiðiheimildum sem þeir fái úthlutað úr sameiginlegri auð- lind þjóðarinnar. -gk Útvegsmenn innheimta hundruð milljóna króna af sjómönnum - sagði Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins DV, Akureyri: „Það hefur því miður sífellt auk- ist síðastliðin fimm ár eða svo að út- gerðarmenn hafa komist upp með það að láta sjómenn borga sér auð- lindaskatt. Útgerðarmenn fá auð- lindina úthlutaða til afnota án end- urgjalds og því er það algjört sið- leysi, svo ekki sé meira sagt, að þeim skuli, í skjóli þess að við búum við liðónýtt verðmyndunar- kerfi á sjávarfangi, líðast að inn- heimta auðlindaskatt af sjómönnum fyrir hundruð milljóna á ári hvequ.“ Þetta sagði Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins, á ráðstefnu Stafnbúa um fiskveiði- stjórnun, arðsemi og byggðastefnu sem fram fór á Akureyri um helg- ina. Sævar veittist mjög að útgerð- armönnum í ræðu sinni á ráðstefn- unni og sagði í upphafi að nú væri svo komið að varla væru nokkrar takmarkanir á framsali veiðiheim- ilda, skilyrði sem voru fyrir fram- sali hafi verið afnumin og allt væri þetta í nafni svokallaðrar hagræð- ingar. „Ég segi svokölluð hagræðing, vegna þess að stór hluti af aflatil- færslum er ekkert annað en brask með veiðiheimildir og á ekkert skylt við hagræðingu. Á sjónarmið sjó- manna hafa stjórnvöld ekki hlustað. Þess í stað hefur hagræðingaráróð- ur útvegsmanna verið hafður að leiðarljósi og sífellt er verið að gera framsalið frjálsara og útgerðinni þóknanlegra.“ Sævar sagði að krafa þjóðarinnar um að settur verði auðlindaskathn- á sjávarútveginn verði sífellt harð- ari og nú sé svo komið að 70% þjóð- arinnar vilji að skatturinn verði tekinn upp. „Sjómenn og útvegs- menn hafa verið samstíga um að hafna auðlindaskatti. Það er því kaldhæðnislegt að brask útvegs- manna með veiðiheimildir á stærst- an þátt i því hvernig komið er i auð- lindaskattsumræðunni. Þeir geta þvi sjálfum sér um kennt, ef og þeg- ar auðlindaskattur verður lagður á greinina," sagði Sævar Gunnarsson. -gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.