Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 3. MARS 1997
31
Þegar sjúklingar koma nær
dauöa en lífi inn á slysavarð-
stofu eru þeir sjaldnast í
ástandi til að svara nákvæm-
um spurningum um heilsufar
sitt. Þetta getur leitt til þess
að þeir fá ranga meðferð og
þá er voðinn vis. Bandaríska
fyrirtækið EMX LLC hefur
því hannað sérsakt „heilsu-
kort“ sem lítur út eins og
greiðslukort. Með því að
renna því í gegnum „posavél"
geta læknar fengið fullkomn-
ar upplýsingar um sjúkrasögu
sjúklingsins. Til þess að forð-
ast að óviðkomandi aðilar fái
aðgang að svo viðkvæmum
upplýsingum er hver sjúk-
lingur með sitt eigið aðgangs-
númer.
Vísindamenn eru of ákafir í að
finna lif á öðrum plánetum. Það
veldur því að þeir hafa mistúlkað
rannsóknamiðurstöður svo unnt sé
að fullyrða að plánetur eins og jörð-
in hafi fundist í öðrum sólkerfum.
Þetta er skoðun stjameðlisfræð-
ingsins David Gray. Hann segir að
nýlegar fullyrðingar um að aðrar
plánetur hafi fundist í öörum sól-
kerfum séu ekki studdar nægilega
traustum vísindalegum athugun-
um. Vísindamenn hafa haldið því
fram að „flökt“ í ljósinu sem sólir
gefi frá sér sýni að pláneta (eða
plánetvu’) séu á sporbaug um þær
eins og plánetumar í okkar sól-
kerfi. Skýringin á þessu flökti er sú
að þyngdarafl plánetanna „togi“ í
sólina. Gray telur hins vegar að
„flöktið" stafi af því sem er að ger-
ast i sólinni sjálfri. Til dæmis segir
Stjörnukikirinn Hubble getur ekki staöfest hvort það eru til fleiri plánetur en jörðin í okkar vetrarbraut.
hann að sól geti haft „bjarta“ og
dimma hlið.
I þessum deilum öllum hafa
menn sól sem heitir 51 Pegasi í
huga. Hún er lík sólinni sem jörðin
hringsólar um og því hafa menn
leitt líkum að þvi að plánetur sem
fari í kringum hana geti verið líkar
móður jörð. Vísindamenn sem eru
á öndverðum meiði við Gray segja
að slík sól „flökti" ekki á þann hátt
sem Gray segir að sólir geri.
Lausnin á þessu vandamáli virð-
ist augljós: Sefja öflugan sjónauka
út í geiminn (eins og Hubble-sjón-
aukann) og einfaldlega sjá hvort
einhver reikistjama sé á sporbaug
um plánetuna. „Það er eins og að
standa tvöhundruð kílómetra frá
kjamorkusprengingu og reyna að
sjá flugu sem er þrjá metra frá
sprengingunni," segir Paul Butler
frá Kaliforníuháskóla. Svo mörg
voru þau orð.
Býflugum fækkar stöðugt
um allan heim og hafa skor-
dýrafræðingar miklar áhyggj-
ur af þessu enda engin hald-
bær skýring á því hvers
vegna þetta er að gerast. Til
að reyna að fræðast um afdrif
býflugna hafa skordýrafræð-
ingar í Bretlandi fest örsmá
senditæki, sem vega einungis
þrjú millígrömm, á þarlendar
býflugur. Nú má fýlgjast ná-
kvæmlega með ferðum þess-
ara dýra sem gegna lífsnauð-
synlegu hlutverki fyrir
plöntulíf á plánetunni jörð.
J a p a n s k i
Á rafeindaris-
j inn Toshiba
(og brautryðj-
I andi í þróun
DVD-diska) hefur tilkynnt að það
hafi hannað og smíðað DVD-tæki
sem gefi betri myndgæði en þau
DVD- tæki sem era þegar til sölu.
Nýju tækin geta geymt um 133
mínútur af háskerpumynd en það
er 1,6 sinnum meira en þau DVD-
tæki sem eru þegar komin á mark-
aðinn. Að sögn talsmanns Toshiba
munu nokkur ár líða þangað til
nýju tækin koma á markað.
Ætlunin er að DVD-diskar komi
í staðinn fyrir hefðbundna CD-
geisladiska og VHS-myndbands-
spólur. -JHÞ
í Bandaríkjunum eru hafn-
ar tilraunir með að fræða tíu
ára börn um skaðsemi fikni-
efna. Þar, eins og hér á landi,
færist aldur þeirra sem nota
eiturlyf sífellt niður á við og
því telja kennarar og sérfræð-
ingar vestanhafs réttlætanlegt
að vara svo ung böm við
hættum sem fylgja eiturlyfja-
neyslu.
í kennslustundum er rætt
jöfnum höndum um skaðsemi
neyslu á koffini, sterum, tó-
baki og kókaíni.
enda er verdid hlægilegt!
Full búð af hágæða
heimilis og raftækjum
á verði sem þig grunaði
ekki að væri til!
Milljón konur látast af
barnsförum árlega. Flestar
þessara ógæfusömu kvenna
eru frá Asíu og Afríku. Verst
er ástandið í Sómalíu þar sem
ein af hverjum sjö konum,
sem fæða börn, látast af
bamsförum. Margar þessara
kvenna eru of ungar til þess
að ganga með eða fæða böm.
Talið er að helmingur þeirra
kvenna sem deyja á þennan
hátt hafi ekki ætlað sér að
eignast böm. Stundum láta
þær lífið þegar þær eða ætt-
menni þeirra reyna að eyða
fóstrinu.
Wð erutn'
- AN NO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
á íslandi
Stærsta heimilis*og raftækjaverslunarkeðja í Evrópu
VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR
Petta sérðu ekki á hverjum degi
29" PHILIPS
sjónvarpstæki
með 70W heima-
bíomagnara
og 5 liátölurum.
Super black Line
tlatur skjár með
Comb-filter.
Nicam stereo.
Allar aðgerðir
á skjá, valmynda-
kerfi o.fl.
Yfir 60 nýjar vörutegundir
Allt heimsþekkt merki!
SIEMENS - AEG - GRUNDIG - BRAUN - SAMSUNG
PANASONIC - JVC - PHILIPS - SONY - VESTFROST