Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1997, Síða 40
\
cwl
Vinningitölur laugardaginn
■V
f 7
V...
21
30
Fjöldi
Vinningar vinninga Vinning&upphœð
1. 5<>tS ^ 0 6.895.520
2. 4 at 5*' 3 179.470
3- 4 ats m 8.360
4- 3 “ts 3.678 580
—
1.3/97
HelldarvlnningAupphœð
,0-495',M
FR ETTAS KOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 3. MARS 1997
Margrét Frímannsdóttir:
Ég sofna glöö
„Ég er auðvitað mjög ánægð með
þessar niðurstöður. Þetta sýnir að Al-
þýðubandalagið er með stöðugt og
i*aukið fylgi, nokkuð sem ég skynja á
samtölum við fólk. Ég sofha glöð,“
sagði Margrét Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalagsins, í gær-
kvöld þegar niðurstöður nýrrar könn-
unar DV á fylgi flokkanna voru born-
ar undir hana.
Um niðurstöður varðandi viðhorf á
sameiginlegu framboði á vegum
Grósku sagði Margrét þær ekki koma
sér svo mikið á óvart.
„Það eru þarna ákveðnar sveiflur
sem sýndu sig t.d. við stofnun Þjóð-
vaka. Að vísu hefði ég haldið að hlut-
fallið yrði hærra hjá okkur,“ sagði
Margrét en tæp 37 prósent kjósenda
Alþýðubandalagsins sögðust myndu
breyta afstöðu sinni. -bjb
L O K I
Fjölskyldubíllinn ónýtur eftir að flutningabíll þvingaði hann út af veginum:
Formaður Dagsbrúnar:
Stefnir í
verkföll
Arni Edwinsson slapp naumlega ásamt eiginkonu sinni eftir aö jeppabifreiö hans valt í Hvalfiröi á laugardag. Árni
segir aö flutningabílstjóri hafi þvingaö hann út af veginum meö glæfraakstri og bílstjórinn hafi veriö mjög heppinn
aö drepa engan á veginum. Árni, sem slapp meö minniháttar meiösl á hendi, hyggst kæra flutningabílstjórann.
DV-mynd Pjetur
Kjarasamningaviðræður aðila
vinnumarkaðarins stóðu í Karphús-
inu fram á kvöld í gær. Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSl,
sagði í samtali við DV að vel hefði
miðað í samningsátt. Viðræður
myndu halda áfram i dag og byijað að
ræða launatölur. Halldór Björnsson,
formaður Dagsbrúnar, var svartsýnni
og sagði ekkert benda til annars en
verkföli skyllu á eftir viku. Báðir
sögðu að í sjónmáli væri samkomulag
milli Dagsbrúnar og VSÍ um fyrir-
tækjaþátt kjarasamninga. Þær hug-
myndir hefðu hins vegar fallið í
grýtta jörð hjá VMSÍ og fleiri sérsam-
böndum ASÍ. Sjá nánar á bls. 6. -SÁ
Rændur á salerni
Maður var rændur í fyrirtækinu
Firmasalan hf. á Skúlagötu í gær-
morgun. Maðurinn var að mæta til
virrnu þegar hann kom aö tveimur
þjófum. Voru þeir að stela málverki
og tölvubúnaði. Annar lagði á flótta
en hinn réðst á manninn og þvingaði
hann inn á salemi. Þar rændi hann af
honum veski, peningum og GSM-
síma. Þjófanna er leitað. -RR
Hann var heppinn
að drepa engan
- segir Árni Edwinsson sem ásamt konu sinni lenti í bílveltu
„Þetta var algert brjálæði og við
erum þakklát fyrir að stórslasast
ekki. Ökumaður flutningabílsins
var mjög heppinn að drepa engan
þama því glæfi’alegt aksturslag
hans ofli mörgum mikilli hættu,“
segir Ámi Edwinsson en hann og
eiginkona hans sluppu með lítfls
háttar meiðsl þegar stór flutninga-
bífl þvingaði þau út af veginum í
Hvalfirði á laugardag. Árni varð
að sveigja jeppabifreið þeirra út af
veginum til að lenda ekki framan á
flutningabílnum sem var á öfugum
vegarhelmingi að sögn Árna og
annarra vitna. Jeppabifreið þeirra
hjóna valt og stórskemmdist en
þau sluppu giftusamlega.
Skelfingu iostin
„Við vorum á norðurleið og
komin fram hjá Ferstiklu í Hval-
firði þegar við sáum stóran flutn-
ingabíl nálgast á ógnarhraða í
beygju og hann var á öfugum veg-
arhelmingi. Hann stefndi beint á
okkur og við hjónin urðum auðvit-
að skelfingu lostin. Mér tókst að
sveigja bílnum út af veginum rétt
áður en hann lenti á okkur. Jepp-
inn okkar valt og lenti á þakinu en
það bjargaði málum að ég var á
frekar lítilli ferð. Við náðum með
herkjum að skríða út úr bílnum og
síðan nam staðar rúta sem var rétt
á eftir okkur og ökumaður hennar
hjálpaði okkur. Bílstjóri flutninga-
bílsins stöðvaði ekki einu sinni til
að athuga hvernig við hefðum það
þó að hann þvingaði okkur svona
út af veginum. Það munaði engu
að hann keyrði á rútuna sem var á
eftir okkur en hún var fúll af böm-
um. Rútubílstjórinn náði að af-
stýra slysi með því að aka út í veg-
kant.
Sleppur ekki
Ég er mjög reiður yfir þessu og
ætla að kæra þetta til lögreglunnar.
Fjöldi vitna varð á leið þessa öku-
manns og rétt slapp við árekstur.
Ég veit að lögreglan hefur haft uppi
á ökufantinum og hann mun ekki
sleppa. Þessir flutningabílstjórar
eru oft undir pressu í akstri sínum
og þeim eru sett ströng tímamörk i
löngum og erfiðum keyrslum. Það
afsakar þó ekki svona glæfraakstur
og sérstaklega ekki þegar atvinnu-
bílstjórar með aukin ökuréttindi
eiga í hlut,“ segir Ámi.
DV fékk staðfest hjá lögreglu aö
að minnsta kosti tveir aðrir öku-
menn, rútubílstjórinn og ökumað-
ur annars fólksbíls, staðfesti
glæfraakstur flutningabílstjórans.
-RR
Veðrið á morgun:
Slydda eða
rigning
Á morgun má búast við hvassri
suðaustanátt og slyddu eða rign-
ingu. Hiti verður á bilinu 1-5 stig.
Snýst síðan í allhvassa eða hvassa
suðvestanátt með éljum sunnan-
og vestanlands og kólnandi veðri.
Veðrið í dag er á bls. 44
&ENDIEllL.AðTÖC
1
533-1000
7
Kvöid- og
helgarþjónusta
MERKILEGA MERKIVELIN
brother
Islenskir stafir
5 leturstærðir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prenttxirðar
Prentar í tvær linur
Verð kr. 6.995
Nýbýlavegi 28 Slmi 554 4443