Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 40
f 33 ( Fjöldi Vinningar I vinninga '* Njb,, aJ 35 ,,a<l Vinning&upphœð
l-sals „L 1 2.029.980 e
2. 4 a(s*Y EÖ 2 542.290 N
3-4“ts 50 9.470
4-3atS \ 1.561 700
Heildarvinningsupphœð
4.680.760
> a <=> FRÉTTASKOTIÐ
“= C=3 í_í_i S O =3 S LT3 <C SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
S
LO ' ' I— LO !—
550 5555
HH
Talsvert
frost
Á morgun er gert ráð fyrir að
það verði norðaustan gola eða
kaldi. É1 norðanlands en annars
þurrt. Viða verður léttskýjað og
talsvert frost verður á öllu land-
inu, mest inn til landsins þar sem
frostið getur farið í 20 stig. Við
ströndina verður frostið 6 til 8
stig.
Veðrið í dag er á bls. 44
mán. þri. mið. fim. fös.
Úrkoma - «12 tíma bw
18 mm _. __
24 mm
16
14
12
10
8
llll.lll
mán. þri. miö. fim. fös.
ÆTLI FORYSTAN SE
BÚIN AÐ FYLLA Á
JEPPANA!
Vindhraði
12stlg
2 NNA ANA
Samningaviöræöurnar eins og púðurtunna:
Mikill ótti um að
allsherjarverkfall
verði að veruleika
- allir sammála um aö úrslitastundin sé runnin upp
„Því miður er ég ekki þjartsýnn
eins og staðan er. Ég tel að ögur-
stundin sé upprunnin í þessum
samningum og að þessi sólar-
hringur ráði úrslitum," sagði
Grétar Þorsteinsson, forseti AI-
þýðusambands íslands, í samtali
við DV í gærkveldi.
Þórarinn V. Þórarinsson var
sömu skoðunar um að þessi sólar-
hringur skipti sköpum. Ef lengur
drægist að semja yrðu menn of
uppteknir við að framkvæma
verkfall og það sem því tilheyrði.
Samningaviðræðurnar voru á
afar viðkvæmu stigi í gærkveldi
og þorðu menn litlu að spá. Hins
vegar voru allir sammála um að
úrslitastund væri runnin upp.
Seint í gærkvöldi, rétt áður en
DV fór í prentun, voru samninga-
menn verkalýðshreyfingarinnar
með einhverjar smávonir um að
vinnuveitendur ætluðu að leggja
eitthvað nýtt til. Þar var meira
um grun að ræða en vissu.
Ef upp úr samningaviðræðum
slitnar í þessari lotu eru miklar
líkur á að allsherjarverkfall verði
að veruleika en það er boðað frá
og með næsta sunnudagskvöldi.
Samningamenn, sem DV ræddi
við í gær, voru upp til hópa
hræddir við að upp úr viðræðum
væri að slitna. Menn komu aftur
saman í gær til sáttafunda sem
var slitið með hvelli á laugardag
vegna frumvarpsdraga um lifeyr-
ismál sem ríkisstjórnin er með á
sinni könnu. Mjög lítið gerðist á
fundinum í gærdag en eftir kvöld-
verðarhlé hófst fundur aftur og
áttu menn von á því að einhver
hreyfing kæmist á málin þegar
kæmi fram á nóttina.
Það sem harðast er deilt um eru
kaupliðirnir en landssamböndin
og Dagsbrún/Framsókn vilja
meiri kauphækkun en samið var
um i VR, Iðju og rafíðnaðarsamn-
ingunum fyrir viku. Þá setja
menn það sem skilyrði að í samn-
ingunum verði rauð strik, sem
kallað er. Loks vilja landssam-
böndin ekki semja til lengri tíma
en ársins 1999.
Vinnuveitendur stóðu fastir
fyrir í gær um að fara ekki upp
fyrir né út fyrir þá samninga sem
gerðir voru fyrir viku. -S.dór
Örtröö var á öllum bensínafgreiðslum á höfuöborgarsvæöinu í gær. Fyrir utan aö fylla tanka bifreiða sinna hömstr-
uöu menn bensín og settu á brúsa og önnur ílát.
DV-mynd S
Veðrið á morgun:
Sophia Hansen:
Ummæli Halims
hreint ótrúleg
„Þetta voru hreint ótrúleg ummæli
en komu mér í sjálfu sér ekki á óvart.
\Hann haíði áður sagt mér að hann
hefði undirbúið að koma mér fyrir
kattamef. En að hann skyldi segja
þetta frammi fyrir alþjóð í Tyrklandi
skil ég ekki. Almenningsálitið hefur
snúist mér í hag og vonandi að þetta
hafi áhrif á afstöðu dómarans í for-
ræðismálinu," sagði Sophia Hansen í
samtali við DV i gærkvöldi um umæli
Halims Als í tyrkneskum sjónvarps-
þætti fyrir helgi þess efnis að hann
hefði áformað að láta myrða Sophiu
til að komast með dæturnar frá ís-
landi. Vonast er eftir éndanlegri nið-
urstöðu Hæstaréttar í forræðismálinu
á næstu dögum. Vegna brota á um-
gengnisrétti Halims verður réttað í
lok mars og byrjun april nk. -bjb
Vikartindur:
Svartollunni
dælt í dag
Búið er að dæla töluvert miklu af
glussa- og dísilolíu úr Vikartindi að
sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. í gær-
kvöld og í nótt var verið að kynda
undir svartolíunni, sem er í tönkum í
skipinu, og stefnt var að því að byrja
að dæla henni úr skipinu í dag.
Einar Hjartarson, lögreglumaður á
Hvolsvelli, sem hefur-verið á vakt á
strandstað, segir að enn liggi töluvert
af farmi skipsins eins og hræviði í
fjörunni. Einar segir að eftir sé ein-
ungis drasl en það litla sem enn hafi
verið nýtOegt úr farminum hafi verið
fjarlægt. -RR
Ólafsíjörður:
Á104 km
hraða
í göngunum
DV, Akureyri:
Lögreglan á Ólafsfirði stöðvaði
um miðjan. dag í gær ungan öku-
mann sem ók á 104 km hraða í jarð-
göngunum í Ólafsfjarðarmúla.
Þar er einungis leyfður 50 km
hraði og ók ungi maðurinn því á 54
km hraða yfir hámarkshraða á
þröngum veginum í göngunum.
Lögregla færði manninn fyrir sýslu-
mann og var fastlega reiknað með
að sýslumaður myndi svipta öku-
manninn ökuskírteini sínu. -gk
Verkfall:
Ekkert bens-
ín nema á
sjálfsölum
Á miðnætti í gærkvöld hófst
verkfall bensínafgreiðslufólks í
Dagsbrún og Hlíf í Hafnarflrði. Þar
með verður ekkert bensín afgreitt
á bíla frá Hafharfirði um Garðabæ,
Kópavog, Seltjarnames, Reykjavík,
Mosfellsbæ, Kjalarnes og Kjós. Um
leið munu birgðaflutningar til Suð-
urnesja og um Suðurland falla nið-
ur því þeir fara fram frá Reykja-
vík.
Fólk getur fengið bensín af sjálf-
sölum meðan birgðir endast en
ekki verður bætt á tankana þegar
þeir tæmast. Gert er ráð fyrir að
birgðir sjálfsalanna endist ekki
nema í 3 til 4 daga.
í gær var mikið að gera á öllum
bensínsölum höfuðborgarsvæðis-
ins. Var salan um miðjan dag sums
staðar orðin meiri en hún verður
fyrir allan daginn þegar mest er að
gera.
-S.dór
Kvöld- og
helgarþjónusta
MERKILEGA MERKIVELIN
brother
(slenskir stafir
5 leturstærðir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar í tvær Imur
Verð kr. 6.995
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443