Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 36
44 MÁNUDAGUR 17. MARS 1997 J* - li íslenskir karlmenn „íslenskar konur virðast vita fátt skemmtilegra en að gagn- rýna íslenska karlmenn. Þeir eru ókurteisir, vitlausir, rudda- legir og yfirgangssamir, eru reyndar ágætir til undaneldis en ónýtir til uppeldis." Kolbeinn Stefánsson, í Alþýöu- blaðinu. Bjarnargreiði „Fólki er raunverulega enginn greiði gerður með þvi að senda því tékka í byrjun sumarleyfis." Páll Pétursson, um vaxtabæt- ur, í Degi-Tímanum. Ummæli Skrifað upp á byssuleyfi „Hvað gerir yfirmaður fikni- efnadeildarinnar þegar einn stærsti eiturlyfjasali landsins biður hann um meðmæli með byssuleyfi? Hann skrifar upp á. Nema hvaö.“ Hrafn Jökulsson ritstjóri, í Al- þýðublaðinu. Aumingja Júróvision „Aumingja Júróvisjónkeppnin heldur pínulítið að það sé 1986. Ég ætla aö leiðrétta þann mis- skilning.“ Páll Óskar, tilvonandi Júró- visjónkeppandi, i Degi-Tíman- um. Mannsheilinn er ávallt mikiö rann- sóknarefni enda eru hlutar hans ókannaöir. Mannlegt minni Mönnum er gefið ákaflega mis- jafnt minni og það eru til miklir afreksmenn í því að muna sem hinn venjulegi maður á erfitt með að skilja. Einn slíkur er Bhand- anta Vicitsara sem þuldi 16.000 blaðsíður úr helgibókum Búdd- hatrúarmanna í Rangoon í Burma í maí 1974. Gon Yang-Li var aðeins 25 ára gamall þegar hann hafði lagt á minnið meira en 15000 síma- númer í Harbin í Kína. Til eru dæmi um sjónminni manna sem geta horft einu sinni á mynd og síðan þulið alia myndina upp, smáatriði fyrir smáatriði. Banda- ríkjamaðurinn Frost McKee lagði á minnið spilaröð úr níu spila- stokkum eftir að spilin höfðu öll verið stokkuð saman. Hann sá spilaröðina aðeins einu sinni en skeikaði samt aðeins þrisvar sinn- um. Þetta átti sér stað í Mansfield í Texas í nóvember 1988. Blessuð veröldin Mannlegur reikniheili Heimsmet í að draga 13. rót af hundrað stafa tölu er 1 mínúta 28,8 sekúndur. Það met setti Hol- lendingurinn Willem Klein 7. apr- íl 1981 í Tsukuba í Japan. Hinn 18. júní 1980 margfaldaði frú Sha- kuntala Devi frá Indlandi tvær 13 stafa tölur 7.686.369.774.870 x 2.465.099.745.779, sem tölvudeild Imperial College í London valdi handa henni af handahófi. Þetta dæmi leysti hún á 28 sekúndum og svar hennar reyndist rétt. Sumir reiknisérfræðingar hafa neitað að taka afrek frú Davi trú- anlegt. Telja þeir það taka öðrum svipuðum afrekum svo fram að eftirliti hljóti að hafa verið áfátt. Slydda og síðar rigning í dag verður austankaldi eða stinningskaldi og él sunnan- og austanlands fram eftir degi en úr- komulítið norðan- og vestanlands. Veðrið í dag Síðdegis hvessir af austri og norð- austri með slyddu og síðar rigningu suðaustanlands, snjókomu á Aust- urlandi en éljum norðan- og norð- vestanlands. Víða ætti að sjást til sólar og hitinn verður rétt undir frostmarki nema á Suður- og Suð- austurlandi þar sem gert er ráð fyr- ir að hitinn verði tvö til þrjú stig yfir daginn. Sólarlag í Reykjavík: 19.35 Sólarupprás á morgun: 07.35 Síðdegisflóð í Reykjavík: 13.33 Árdegisflóð á morgun: 02.16 Veðrið kl. 12 í gær: Akureyri léttskýjað -10 Akurnes snjókoma -3 Bergstaöir léttskýjaö -8 Bolungarvík heiðskírt -2 Egilsstaðir skýjaó -6 Keflavíkurflugv. alskýjaó -2 Kirkjubkl. snjókoma -2 Raufarhöfn snjóél -4 Reykjavík snjókoma -2 Stórhöfði snjókoma -1 Helsinki léttskýjað -2 Kaupmannah. skýjað 3 Ósló léttskýjað 3 Stokkhólmur skýjað 0 Þórshöfn snjókoma 1 Amsterdam þokumóða 10 Barcelona heiðskíri 17 Chicago heiðskírt -11 Frankfurt skýjað 13 Glasgow súld 11 Hamborg skýjað 4 London skýjað 13 Lúxemborg þokumóða 9 Malaga mistur 18 Mallorca léttskýjaö 21 París skýjað 15 Róm heiöskírt 18 New York skýjað -2 Orlando heiðskírt 14 Nuuk skýjað -4 Vín skúrir 10 Washington hálfskýjað 0 Winnipeg heiðskírt -17 Petur Johannsson, hafnarstjóri Hafnasamlags Suðurnesja: Líkar vel að vera nálægt sjónum DV, Suðurnesjum: „Horft er til framtíðar með stofn- un þessa hafnasamlags, bæði hvað varðar framkvæmdaáætlun næstu 4 árin, svo og nýframkvæmdir við nýjar hafnir í tengslum við stóriðju sem er spennandi verkefni ef af verður. Þá er verið að tala um að byggja tvær nýjar hafnir, í Sandvík I tengslum við magnesíumverk- smiðju og Keilisnes," sagði Pétur Jóhannsson, hafnarstjóri Hafna- samlags Suðurnesja, sem hefur haft í mörgu að snúast síðan samlagið var stofhað 20. janúar sL Svæðið nær frá Garðskagatá að landamær- um Hafnarfjarðar. Með stofnun samlagsins er það von margra að önnur sveitarfélög á Suðumesjum komi þar inn í framtíðinni. Maður dagsins „Til framtíðar litið þá sjáum við að álver rísi á Keilisnesi og í tengsl- um við það verður byggð höfn. Það er búið að hanna höfnina og hafnar- svæðið að mestu leyti og munu framkvæmdir kosta yfir milljarð. Einnig erum við búnir að gróf- hanna staðsetningu nýrrar hafnar i Sandvík fyrir magnesíumverk- smiðju og hljóðar gróf kostnaðará- Pétur Jóhannsson. ætlun upp á 800 milljónir." En fyrir utan fyrirhugaðar nýjar hafnir í tengslum við stóriðjur hafa verið miklar hafnarframkvæmdir á und- anförnum árum á hafnarsvæði Pét- urs og verður á næstu árum. „Við erum að fullklára höfhina í Helgu- vík og munum auka umsvifin þar enn frekar en nú er. Þar verður hægt að taka léttilega á móti stóru gámaskipi og verður malbikað gámasvæði. Þá verða framkvæmdir við grjótvarnargarð við Voga og á næsta ári verða siðan framkvæmdir við höfnina í Garði. Þá hafa verið miklar framkvæmdir við höfhina í Keflavík." Það er óhætt að segja að Pétur hafi mikla reynslu í hafnarmálum. Hann byrjaði sem skrifstofustjóri hjá Landssöfnuninni Kefla- vik-Njarðvík 1976. Árið 1987 tók Pétur við starfi hafnarstjóra og hef- ur sinnt því starfi síðan og er í dag orðinn hafnarstjóri Hafnasamlags Suðurnesja. „Þetta er mjög krefj- andi, fjölbrevtt og spennandi starf. Það felur meðal annars i sér að sjá um stjórnun, daglegan rekstur, byggingareftirlit og sjá um fram- kvæmdir á hafnarmannvirkjum.“ Pétri líkar stórvel að vera nálægt sjónum. Áður en hann hóf störf hjá Landhöfninni var hann á sjó, loðnu- bát, vertíðabát og togara ásamt því að ljúka sínu námi í Verslunarskól- anum. Pétur hefur einnig pungapróf á bát. Pétur á sér nokkur áhugamál fyr- ir utan vinnuna og fjölskyldu. „Ég hef gaman af að fara á skíði og stunda útiveru. Þá hef ég gaman af að fara á sjó.“ Eiginkona Péturs er Sólveig Ein- arsdóttir, bókari hjá Reykjanesbæ og er hún fæddur Akureyringur. Þau eiga þrjú böm, Jóhann 14 ára sem á að fermast á næstu dögum, Sunnu 10 ára og Einar 8 ára. -ÆMK Myndgátan Lausn á gátu nr. 1761: EYÞcíR- Maurapúkar Haukar og Stjarnan sem hér eig- ast við fyrr í vetur eru í eldlínunni í kvöld. Úslitakeppnin í handbolta og körfubolta Úrslitakeppnin hjá körlum í handboltanum er hafin og er þegar lokið tveimur leikjum í átta liða úrslitunum. Keppnin heldur áfram í kvöld, en þá leika Haukar, sem urðu í öðru sæti í deildinni, gegn Val og fer leikur- inn fram í íþróttahúsinu i Strandgötu. Haukar þykja sigur- stranglegri, en þess má geta að það mun vanta tvo af máttar- stólpum liðsins í lið þeirra í kvöld. Hinn leikurinn er á Akur- eyri þar sem KA leikur gegn Stjörnunni og verður sá leikur örugglega jafh og spennandi, KA er sterk á heimavelli og er því sigurstranglegra. íþróttir í kvöld verður einnig leikið í undanúrslitum í 1. deild kvenna í körfuboltanum. í fyrri leiknum sem hefst kl. 20 leika Grindavík og Keflavik og korteri síðar eða kl. 20.15 leika ÍS og KR. Bridge Einn af þekktustu kennurum í bridge í Bandaríkjunum er Bill Root sem búsettur er í Boca Raton í Flór- ída. Hann hefur kennt þúsundum manna bridge og fáir sennilega af- kastameiri í þeim efnum en hann. Root er ekki bara góður kennari, heldur einnig fyrirtaks spilari eins og eftirfarandi spil sýnir. Hann sat í suður í þessu spili og hafnaði í fjög- urra hjarta samningi. Sagnir gengu þannig, suður gjafari og allir á hættu: « KG7 w 10987 ■f KD75 * KD ♦ 10964 . W 5 ♦ 1082 * Á7542 é ÁD85 W DG643 f Á9 * 103 Suður Vestur Norður Austur 1 w pass 4 * pass 4 w p/h Fjögur lauf norðurs var ákveðin sagnvenja sem sýndi hjartastuðning og opnunarstyrk, en kontróla- snauða jafnskipta hendi. Hendi suð- urs bauð ekki upp á nein tilþrif og sagnir enduðu í fjórum hjörtum. Jafnvel fjögurra hjarta samningur- inn virtist vera of mikið lagt á spil- in því vömin lagði strax grunn að því að sækja sér stungu í spaðalitn- um. Útspil vesturs var spaðaþristur sem Root drap heima og spilaði hjarta. Vestur drap á kóng og spil- aði spaðatvistinum og útlitið ekki bjart. Ef Root hefði haldið áfram að spila hjarta, hefði vestur drepið á ásinn, austur gefið kall i laufi, feng- ið næsta slag á ásinn og gefið austri stungu í spaöa. En Root sá leið til að koma í veg fyrir stunguna. Hann tók einfaldlega þrjá hæstu i tígli og henti laufi heima. Síðan kom loka- hnykkurinn, fjórði tígullinn og sið- ara laufinu hent heima. Vestur fékk slag á tígul sem hann hvorki bjóst við, né hafði áhuga á að fá. Innkoma austurs á laufásinn var nú horfm og vestur fékk aldrei stunguna sína í spaða. ísak Öm Sigurðsson f 32 W ÁK2 f G643 * G986

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.