Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 17. MARS 1997 óháð Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformafiur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstiórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVlK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: jSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverö 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Hagkvæmni sameiningar Ákveöið hefur verið að hefja formlegar viðræður um sameiningu Reykjavíkur og Kjalameshrepps. Sú ákvörð- un er skynsamleg. Náisi samkomulag ætti það að verða báðum sveitarfélögunum til hagsbóta. Fram hefur kom- ið hjá borgarstjóra Reykjavíkur að með sameiningu sveitarfélaganna séu tryggðir framtíðarhagsmunir borg- arinnar í byggðaþróun. Byggðin getur með því móti haldið áfram að þróast meðfram strandlengjunni en óþarft verður að teygja byggð í austurátt og upp í hæð- ir. Hagur Kjalameshrepps er fólginn í bættri þjónustu við íbúana. Sveitarfélagið er fámennt og hefur tæpast bolmagn til þess að veita þá þjónustu sem önnur sveitar- félög á höfuðborgarsvæðinu geta veitt. Sveitarfélögin tvö hafa skipað menn í samstarfsnefnd um sameininguna. Með þeirri nefndarskipan er málið úr höndum stoöiana sveitarfélaganna og fer ekki til at- kvæðagreiðslu þar. Það er síðan nefndarinnar að gera tillögu um það hvort sameina skuli Reykjavík og Kjalar- neshrepp og þá með hvaða hætti það gerist. Málið fer síðan í tvennar umræður í hreppsnefnd Kjalameshrepps og borgarstjóm Reykjavíkur. Endanlega tækju síðan íbúar beggja sveitarfélaganna afstöðu til málsins í alls- herjaratkvæðagreiðslu. Borgarstjóri Reykjavíkur hefur bent á þá staðreynd að sveitarfélagamörk á höfuðborgarsvæðinu eru hamlandi í sambandi við byggðaþróun. Sameinist Reykjavík og Kjalameshreppur verður Mosfellsbær sem eyland þar á miili. Bein tengsl nást hins vegar milli Reykjavíkur og Kjalamess með fyrirhugaðri Kleppsvíkurtengingu þar sem aðalumferðaræðar liggja fram hjá Mosfellsbæ. Fari svo að samkomulag takist milli Reykjavíkur og Kjalameshrepps ætti það að verða öðrum sveitarstjóm- armönnum á höfúðborgarsvæðinu hvatning til þess að huga að stöðu svæðisins í heild. Segja má að byggð á höfðuborgarsvæðinu sé samfelld frá Mosfellsbæ að Bessastaðahreppi. Auk Kjalameshrepps, Mosfellsbæjar og Reykjavíkur eru á þessu svæði Seltjamames, Kópa- vogur, Garðabær, Hafnarfjörður og Bessastaðahreppur. Þegar er umtalsverð samvinna milli þessara sveitarfé- laga en hún mætti vera miklu meiri og verulega hlýtur að koma til álita að sameina þau. Fari ókunnugur milli sveitarfélaga á höfðuborgarsvæðinu er útilokað að segja til um hvenær farið er yfir bæjarmörk. Bæimir em sam- vaxnir og mynda í reynd eina borg. Verulega mætti spara í yfirstjóm með sameiningu þessara sveitarfélaga. Nú er borgar-, bæjar-, eða hrepps- stjóm á hverjum stað. Þá reka sveitarfélögin tvö aðskil- in almenningsvagnakerfi, tvö rafveitukerfi, vatnsveitu- kerfi og slökkvilið svo dæmi séu tekin. Deilur em með- al annars um verðlagningu á vatni á höfúðborgarsvæð- inu og hugmyndir um nýja vatnsveitu. Með sameiningu væri hægt að leysa þessi vandamál auk annarra og auka þannig rekstrarhagkvæmni. Til þess að ná árangri á þessu sviði þurfa sveitar- stjómarmenn að horfa á hagsmuni heildarinnar. Sam- eining raskar valdahlutfollum og smákóngar á hverjum stað geta tapað stöðu sinni. Þá getur gamall hrepparígur reynst erfiður þótt hagkvæmni blasi við. Það verður því fróðlegt að sjá hver niðurstaða samein- ingamefndar Reykjavíkur og Kjalamess verður. Hún gæti orðið fordæmi öðrum sveitarstjómum á svæðinu. Hagkvæmni sameiningar er augljós hafi menn kjark til þess að stíga þau skref sem nauðsynleg eru. Jónas Haraldsson Olíugasi safnaö úr fyrstu borholunni viö Skógarlón í Öxarfiröi. Á myndinni eru Björn Benediktsson, fyrrv. odd- viti í Öxarfjaröarhreppi, og Magnús Ólafsson, jaröefnafræðingur á Orkustofnun. Olían og Island Nokkuð hefur verið rætt um hugsanlegar ol- íuauðlindir íslands í kjallaragreinum DV að undanfórnu. Finnst mér ástæða til að skerpa að- eins þessa umræðu með því að fullyrða einfald- lega að olía og gas hafa myndast hér í ungum set- lögum og eru auk þess að myndast á þessari stundu og það beint fyrir augum okkar. Ástæðan er ein- fóld og tengist jarðhita- virkni. Jafnframt má upplýsa alla mn að til eru dæmi frá Indónesíu um að olía hafi myndast og sé unnin úr setlögum á svipuðum aldri og þeim sem finnast á landgrunn- inu okkar. Spurningin er því ekki hvort olía og gas hafi myndast heldur hvort það finnst ein- hvers staðar í vinnan- legu magni. Um það rík- ir mikil óvissa. - draumsýn eöa veruleiki Kjallarinn Guðmundur Ómar Friðleifsson jaröfræöingur á Orku- stofnun örlítið magn af jarðolíu við sér- stakar aðstæður í surtarbrandslagi í gömlu jarðhita- kerfi. Önnur vís- bending um olíu fannst svo í Öxar- firði ári síðar en þar háttar svo til að olíu- og gas- myndun virðist vera í gangi í virku jarðhita- kerfi. Með tilraunaholu, sem boruð var 1991, átti að reyna að komast að því hvort olíugas- myndunin ætti sér stað í efstu setlög- Hvernig myndast olía og gas? Til olíumyndunar þarf einungis lífrænar leifar, dálitiö af vatni og hæfilegan hita í nokkurn tíma. Tíminn er þeim mun styttri sem hitinn er hærri en sé hitinn of hár brennur súpan einfaldlega viö og olían brotnar niður í einfoldustu gerð af kolagasi (metan) sem út af fyrir sig er ágætisorkugjafí. Von íslands um olíufund tengist jarðhitanum þvi við lágan hita eins og víðast á olíusvæðum erlendis tekur olíumyndun milíjónir ára við 30- 40°C hita. Hér tekur hún ör- skamman tíma við 90-130°C hita. Þekking á jarðhita, gömlum sem virkum, ætti því að gagnast okkur við olíuleit. Fyrsti olíufundurinn á ís- íandi Fyrsti olíufundurinn á íslandi var í Lóni 1985. Þar hafði myndast „Með tilraunaholu, sem boruð var 1991, átti að reyna að komast að því hvort olíugasmyndunin ætti sér stað í efstu setlögunum eða hvort hún væri ættuð neðar úr jarðlagastaflanum. “ unum, eða hvort hún væri ættuð neðar úr jarðlagastaflanum. Rann- sókninni er ólokið þar sem holan misheppnaðist. Augun opnast Báðir ofangreindir olíu- og gas- fundir opnuðu augu margra hér fyrir því að olíumyndun við ísland er ekki fjarstæða, bæði vegna auð- ugs lífríkis í höfunum umhverfis landið og svo alls jarðhitans. Við höfum meðal annars reynt að fá djúpar rannsóknarholur boraðar i gegnum setlagastaflann úti fyrir Norðurlandi í tengslum við alþjóð- legt hafsbotnsverkefiii sem íslend- ingar eiga aðild að. Þó að þar væri alls ekki um neina olíuleit að ræða sóttumst við eftir alhliða upplýs- ingum um setlagagerð, umhverfis- og veðurfarsbreytingar, eldvirkni- sögu o.fl. í leiðinni hefðum við þó komist að því hversu mikiö magn lífrænna efna væri að finna i set- lögunum og hvort þar er eitthvert gasstreymi því að strangar öryggis- kröfur eru viðhafðar þegar opnar rannsóknarholur eru boraðar í set- lagastafla. Umsóknin var ekki samþykkt, og það m.a. vegna þess að spum- ingamar um setlagatrogið þóttu of staðbundnar. Kannski eru það skilaboð til íslendinga um hverjum beri að rannsaka hvað en jafnframt var ljóst að talsvert vantaði á að undirbúningsrannsóknir væra nógu viðamiklar. Úr því er verið að bæta, m.a. með stuðningi Rannís, en betur má ef duga skal. Hvað ber að gera? í grein Guðmundar Hallvarðs- sonar, 10. þingmanns Reyk- víkinga, 7. mars síðastliðinn er nokkuð rætt um dýpkun 554 m djúprar rannsóknar- holu I Flatey. Er sú hugmynd góðra gjalda verð og hefur Guðmundur ásamt fleiri þing- mönnum flutt þingsályktunar- tillögu þess efhis að ríkis- stjórnin stuðli að því að nú þegar verði hafhar markviss- ar rannsóknir á því hvort olía eða gas finnst í landgrunni íslands. Undir þessa tillögu tek ég heils hugar og auðvitað er sjálfsagt að fara sem ódýrastar leiðir að því að glæða áhuga erlendra leitarfyrir- tækja. Þannig gæti t.d. 1 km djúp hola í Grímsey verið jafii áhuga- verð og dýpkun Flateyjarholunnar en Grímsey er úrvals borpallur. Of langt mál yrði að ræða skyn- samlegustu rannsóknaráætlunina hér en nokkuð samstíga hugmynd- ir um markvissar rannsóknir liggja fyrir hjá þeim Islendingum sem olíurannsóknum hafa tengst til þessa. Því fagna ég þessu frum- kvæði þingmannanna og er það von min að stjómvöld taki á mál- inu með opnu hugarfari og stuðli að markvissum grunnrannsókn- um. Guðmundur Ómar Friðleifsson. Skoðanir annarra Tvö skattþrep „í þvi samningaferli sem nú stendur yfir um kjör launafólks, hefur Alþýðusambandsforustan gert til- lögu um að sett verði á tvö skattþrep, þessu hefur ríkisstjómin tekið þunglega og telur því allt til for- áttu, því spyr sá sem ekki veit, hveijir em aðal- þröskuldamir þar í vegi? Á þeirri tækni- og tölvuöld getur það varla verið stórt mál að búa til „pró- gramm“ þar sem haframir eru síaðir frá sauðunum ... Ég teldi það veröug verkefni löggjafans að smíða skattalög sem tækju tilliti til efnahags og aðstæðna einstaklingsins.“ Guðmundur Jóhannsson í Mbl. 14. mars. Bras í bankamálum „Er stofnun nýs hlutafélagabanka, Fjárfestinga- banka, til þess fallin að einfalda og draga úr kostn- aði við bankakerfið? Mun hið efnahagslega lýðræði aukast við þessi umskipti? ... Það skyldi þó aldrei vera, að allt þetta bras, allur þessi umbúnaður ríkis- stjórnarinnar í bankamálunum miði ekki að því að einfalda kerfiö og gera það skilvirkara, heldur stefni í þveröfuga átt: nefnilega búa til nýja bankastjóra- stóla fyrir ráðherra í þessari ríkisstjóm sem vilja úr argaþrasinu og komast i þægileg sæti?“ Guömundur Ámi Stefánsson í Alþbl. 14. mars. Launin hjá Pósli og síma „Þegar gerðir voru ráðningarsamningar við yfir- menn Pósts og síma, þá var byggt á gagnkvæmum trúnaði um innihald þeirra. Samkvæmt þvi er það ekki hægt fyrir annan aðilann að rjúfa þann trúnað ... Við höfum t.d. ekki upplýst samgönguráðherra um launakjör í þessum ráðningarsamningum. Eig- andinn og stjómendur eiga fyrst og fremst að fylgj- ast með afkomu fyrirtækisins. Þá skiptir það vænt- anlega ekki máli í því samhengi hvort þessi starfs- maðurinn eða hinn sé með 10 þúsund krónum minna eða meira í laun á einhverju tímabili." Pétur Reimarsson í Degi- Tímanum 14. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.