Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 22
30 vísindi og tækni MANUDAGUR 17. MARS 1997 Lyf gagnast lítii við kverkaskít Særindi í hálsi og bólga í enn- isholum geta verið fjandanum leiðinlegri en það er vist lítið hægt að gera ann- að en að bíða eftir að einkenn- 'C V um in hverfi. Lyf gera lítið gagn. Svo segja Paul Little og félag- ar hans við D'w”'"ð:Unm háskólann í Southampton í grern í Breska læknablaðinu. Þeir fylgdu eftir 700 manns frá fjögurra ára aldri og upp úr sem höfðu leitað til læknis vegna særinda í hálsi. Litlu máli virt- ist skipta hvort fólk fékk lyf eður ei þar sem milli 30 og 37 prósent sjúklinganna jöfnuðu sig á þremur dögum, sama hvort þeir fengu lyf strax eða alls ekki. Og yfirleitt voru allir búnir að ná sér eftir fjóra til fimm daga. Magasárspilla bjargar lífi mæðra Lyf sem ætlað var að lækna magasár hentar sennilega vel til að stöðva blæðingar hjá konum eftir barnsburð og gæti því bjargað lífi allt að 250.000 kvenna á ári, að sögn bresks læknis. Lyfið var reynt á 250 konum í London og var árangurinn jafn góður og við notkun hefðbund- innar meðferðar þar sem lyfi er sprautað i konurnar. Spraut- ulyfmu, sem er mikið notað bæði í Evrópu og Norður-Amer- íku, fylgja oft aukaverkanir en ekki magasárspillunni. Þar við bætist að pilluna er hægt að nota miklu víðar í lönd- um þar sem heitt er í veðri. Samkvæmt tölum frá Alþjóða heilbrigðismálastofhuninni (WHO) deyja um 250.000 konur árlega af völdum blæðinga eftir barnsburð í löndum sem ekki hafa slíkt lyf. Einangrið sýnin frá Mars Afar litlar líkur eru á því að hugsanlegar líf- verur á reiki- stjömunni Mars líti út eins og þær sem sjá má í kvik- mynd Tims Burtons sem verið er að sýna í Reykjavík. Samt hefur nefnd vísindamanna í Bandaríkjunum ráðlagt að öll sýni sem tekin verða á Mars í framtíðinni verði einangruð við komuna til jarðar. Þá er lagt til að öll tæki sem komast i snert- ingu við sýnin verði annað hvort dauðhreinsuð eða skilin eftir úti í geimnum. Nefndarmenn viija hafa vaðið fyrir neðan sig ef svo vildi nú til að í sýnunum leyndust einhvers konar lífverar sem gætu valdið tjóni á jörðinni. Litið skyldi á sýnin sem hættuleg þar tÓ ann- að sannaðist. Reiknað er með að snemma á næstu öld verði komið með sýni frá Mars til jarðar. Fyrstu niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar í Kína: Sjálfskoðun á brjóstum gerir ekki tilætlað gagn Fyrstu niðurstöður lofa ekki góðu. Svo virðist nefnilega sem sjálfskoðanir kvenna á brjóstum sínum komi ekki í veg fyrir dauðsföll af völdum krabbameins, leiði ekki til þess að fleiri sjúk- dómstilfelli greinist eða þá að sjúkdómurinn greinist fyrr en ella. Þetta eru sem sé aðeins fyrstu niðurstöður úr umfangsmikilli rannsókn sem nær til nærri 300.000 kínverskra kvenna. Rann- sókninni verður haldið áfram í fimm ár til viðbótar og því kann annað að verða upp á teningnum eftir því sem konumar eldast. Til þessa virðist gagnið að svona sjálfskoðun hins vegar vera óverulegt og aðalhöfundur skýrsl- unnar segir niðurstöðumar hugs- anlega benda til þess að ekki sé viturlegt að verja miklu af al- mannafé til að kenna konum sjálf- skoðun og reka áróður fyrir henni. „Þetta er ekki sérlega upp- örvandi sem stendur," segir David Thomas, faraldursfræðingur við Fred Hutchison krabbameins- rannsóknarstofnunina í Seattle í Bandaríkjunum. Skýrsla um rannsóknina birtist nýlega í riti bandaríska krabbameinsfélagsins. Thomas segist ekki vilja letja konur til að stunda brjóstasjálf- skoðun, einkum ef þær eru i mikl- um áhættuhópi. Þær eigi hins veg- ar ekki að treysta eingöngu á þess- ar sjálfskoðanir, heldur eigi þær einnig að fara í brjóstamyndatök- ur, sérstaklega eftir að þær kom- ast á sextugsaldurinn. Niðurstöður fyrri rannsókna á brjóstasjálfskoðun kvenna hafa verið á ýmsa lund og því höfðu lengi verið uppi óskir um að rann- sókn af þessu umfangi yrði gerð. Rannsóknin í Kína, sem hófst árið 1989, náði til meira en 267.000 kvenna, fæddra á árunum 1925 til 1958. Konurnar störfuðu í 520 vefnaðarverksmiðjmn í Shanghaí. Helmingi kvennanna var kennd sjálfskoðun en konurnar í saman- burðarhópnum fengu fræðslu um bakverki. Engin kvennanna fékk brjóstamyndatökur, enda á þessi þjóðfélagshópur alla jafna ekki kost á þeim. Rannsóknin leiddi í ljós að dauðsföll af völdum brjóstakrabba voru ekki færri hjá þeim konum sem fengu þjálfun i sjálfskoðun en hjá samanburðarhópnum. Ekki fundust heldur fleiri æxli hjá sjálf- skoðunarhópnum, né heldur fund- ust þau fyrr. Thomas segir að rannsóknir á brjóstamyndatökum sýni að ávinningur þeirra komi ekki í ljós fyrr en að nokkrum árum liðnum. Hann leggur því áherslu á að rannsókninni á kínversku konun- um verði haldið áfram í fimm ár enn til að fá endanleg svör. Cornelia Baines frá háskólan- um. í Toronto í Kanada tekur í sama streng i grein þar sem hún fer lofsamlegum orðum um rann- sóknina og hvemig að henni hafi verið staðið. „Það er mikilvægt að bíða eftir tíu ára lokaniðurstöðun- um,“ segir hún. Ástand skóglendis heimsins Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ |FA0) skýrði nýlega frá því að hægt hefði á eyðingu skógtendis í heiminum en búast mætti við að skógar héldu áfram að minnka næsta áratug vegna fjölgunar ibúa Náttúrulegir skógar í þróunarlöndunum, sem flestir eru hitabeltisskógar, minnkuöu um 13,7 milljónir hektara á ári milli 1990 og 1995, samanborið viö 15,5 milljónir hektara á ári milli 1980 og 1990 Astæður eyðingar skóglendis á hitabeltissvæðum ■ ruðningur vegna landbúnaðar ■ skógarhögg Miöbaugur' ■ Hitabeltisregnskógur Samanburður á skógtendi á árunum 1980 og 1990 Breytingamar eru prósenta af skóglendi hvers svæðis áriö 1980, nema í fyrrum Sovétrikjunum Þróuðu löndin REUTERS Ástralía, Asía, Japar 3 1.0 N-Amerika |"' 2.6 Evrópa ffií '•r ^i|§| Þróunarlöndin Rómanska Ameríka/Karibahaf Afrfka Þróunarlönd í Asíu og Eyjaálfu 2J Saír Indónesía Kína Bandar. Kanada Brasilfa Rússneska sambandsr. Source: State of the World’s Forests, FAO Furðuvængir út- dauðs furðudýrs Elsta skriðdýrið sem vitað er um að hafi getað flogið leið um loft- in blá á stórfurðulegum vængjum sem í voru tugir beina sem mynd- uöust beint undir hörundi þess, að því er fram kemur í ritinu Science. Skepna þessi er talin hafa lifað fyrir um 250 milijónum ára. Hún var fyrst auðkennd í steingervingi sem fannst í Þýskalandi árið 1910. Ekki var þetta fugl og vængir hennar voru öðruvísi en vængir allra annarra vængjaðra dýra, núlifandi eða útdauðra. Furðudýr þetta ber ffæðiheitið coelurosouravus iaekeli. Hans-Dieter Sús, einn höfunda greinarinnar um dýrið, segir að í öllum öðrum dýrum sem fljúga njóti vængimir stuðnings frá beinagrindinni. Ekki hjá um- ræddri skepnu. Vængir fúgla og leðurblaka þró- uðust úr ff amfótum sem fengu meö því annað hlutverk. Hjá fúrðudýr- inu mynduðust vængjabeinin í húð þess og voru ekki tengd beina- grindinni. Hugmynd þessi þótti svo lang- sótt þegar steingervingurinn fannst á sínum tíma að vísinda- mennimir fjarlægðu vængjabeinin þar sem þeir töldu að þau hlytu að vera úr uggum fiska sem lágu ofan á skriðdýrinu. Menn áttuðu sig ekki á hinu rétta fyrr en árið 1978. Námumaðurinn sem fann dýrið hafði hins vegar rétt fyrir sér þeg- ar hann nefadi það „skriðdýrið fljúgandi". r , --------------------------------- --------- PI Lækkun líkamshita eykur verulega ons sem verið Sli ■ batalíkur eftir alvarlegan heilaskaða Þeir sem verða fyrir alvarlegum heilaskaða vakna fyrr úr dáinu ef líkami þeirra er kældur mikið nið- ur fljótlega eftir að áverkinn hlýst. Þetta kemur fram í grein lækna við læknamiðstöð Pittsburgh- há- skóla sem birtist í tímaritinu New England Joumal of Medicine. Læknarnir völdu 82 sjúklinga með höfuðáverka og var ákveðið af handahófi hverjir þeirra skyldu fá venjulega meðferð og hverjir yrðu kældir niður í 32,2 gráða líkams- hita. Þeim líkamshita var síðan haldið óbreyttum i einn sólar- hring. Kælingin hófst sex klukku- stundum eftir slysið. Einu ári síðar reyndust 62 pró- sent sjúklinganna, sem höfðu verið kældir niður, sjá um sig sjálf en aðeins 38 prósent þeirra sem fengu hefðbundna meðferð sem felst í því að draga úr bólgum i heilanum. Kælimeðferðin gagnaðist best þeim sjúklingum sem ekki voru á dýpsta stigi dauöadás. Niðurstöður læknanna í Pitts- burgh, þeirra Donalds Marions og félaga, staðfesta það sem haldið var fram þegar árið 1943, nefnilega að ofkæling virðist vernda heilann á meðan hann er að reyna að ná sér eftir alvarlegan áverka. Kæl- ingin degur úr þrýstingi á heilann. Mörgum spurningum um tækni þessa er hins vegar ósvarað, eins og hversu lengi mætti kæla lík- amann og hversu mikið og hve langur tími mætti líða frá því áverkinn hlaust áður en kæling yrði að hefjast svo hún yrði ekki gagnslaus. Nýja rannsóknin reynir að svara nokkrum þessara spum- inga. Sjúklingamir voru kældir niöur þar til líkamshiti þeirra varð 32,2 gráður en ofkæling hefst þegar hann er kominn í 35 gráður. Kæl- ingunni var síðan haldið í sólar- hring en það tók svo tólf klukku- stundir að hita líkamann aftur upp í eðlilegt hitastig, eða 37 gráður. Öllum sjúkiingunum voru gefin lyf tii að koma í veg fyrir skjálfta. Marion og félagar hans komust að því að ofkælingin hafði engin áhrif hjá þeim sjúklingum sem voru í hvað dýpstu dauðadái þegar meðferðin hófst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.