Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 8
Þetta sérðu ekki á hverjum degi... enda er verðið hlægilegt! Yfir 60 nýjar vörutegundir Allt heimsþekkt merki! SIEMENS - AEG - GRUNDIG - BRAUN - SAMSUNG PANASONIC - JVC - PHILIPS - SONY - VESTFROST ‘ I 8 MÁNUDAGUR17. MARS 1997 BOMRG JARÐVEGSÞJÖPPUR Ýmsar stærðir, bensín eða dísil. Gæði á góðu verði. Skútuvogi 12A, s. 581 2530 Stuttar fréttir x>v ( Skæruliðar vegnir Öryggissveitir í Alsír drápu að ► minnsta kosti 53 skæruliða bók- stafstrúaðra múslíma í tveimur hernaöaraðgerðum um helgina, bæði í höfuðborginni Algeirsborg og í Relizane héraði í vesturhluta landsins. Full yfirráð Uppreisnarmenn í Saír náðu Kisangani, þriðju stærstu borg landsins, á sitt vald um helgina og fognuðu íbúarnir þeim sem frels- ishetjum. Boesak snýr heim Suður-afríski klerkurinn Allan Boesak sneri aftur heim í gær eft- ir tveggja ára dvöl í Banda- ríkjunum og sagðist ekki hræddur við að svara ásökun- um um að hann hefði dregið sér fé frá framlög- um danskra hjálparstofnana til fátækra á tím- um stjómar kynþáttaðskilnaðar- sinna. Boesak var vel fagnað við heimkomuna. Hið opinbera til bjargar Héraðsstjórinn í Gdansk í Pól- landi hefur boðist til að taka yfir eignir gjaldþrota skipasmíða- stöðvar þar sem verkalýðshreyf- ingin Samstaða varð til ef ríkis- stjórnin tekur á sig skuldir stöðv- arinnar. írar vilja Hume John Hume, sáttasemjari á Norður-írlandi, fékk flest atkvæði í skoðanakönnun þar sem írskir kjósendur voru spurðir hvern þeir vildu fá á forsetastól þegar Mary Robinson fer frá. Næstum jafnt Stuðningsmenn og andstæðing- ar Jacques Chiracs Frakklands- forseta og hægristjómar hans era næst- um því jafn margir. í nýrri skoðanakönn- un sögðust 41 prósent að- spurðra styðja stjómina en 43 vora henni and- vig. Tyrkir róaðir Utanríkisráðherrar ESB full- vissuðu tyrknesk stjómvöld í gær um að land þeirra gæti einhvem tíma uppfyllt inngönguskilyrði í sambandið. Skotið i Berlín Þrír týndu lífi og tveir særðust í skotbardaga á götum Berlínar í gærkvöldi. Rosenberg gagnlítil Fýrram starfsmaður sovésku leyniþjónustunnar KGB segir að Rosenberg-hjónin, sem Banda- ríkjamenn tóku af lífi fyrir njósn- ir, hafi ekki veitt neinar gagnleg- ar upplýsingar um kjamorku- sprengjuna. Zinnemann látinn Kvikmyndaleikstjórinn Fred Zinnemann, sem gerði sígildar myndir á borð við High Noon, lést úr hjartaslagi í Lundúnum á fóstudag, 79 ára að aldri. Rekinn af fundi Rússneski hershöfðinginn Alex- ander Lebed, sem gerir sér vonir um að verða næsti forseti Rússlands, lét reka mann einn sem söng fyrir hann andgyð- inglegan söng af fundi flokks síns um helgina. Seidi mannakjöt Rússneskur morðingi sem seldi kjötið af fómarlömbum sínum hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi. Reuter Wðe ruminsstahúsiv/ð,^ VERIÐ VELKOMIN í VERSLUN OKKAR 29" PHILIPS sjónvarpstæki með 70W heima- bíomagnara og 5 hátölurum. Super black Line flatur skjár með Comb-filter. Nicam stereo. Allar aðgerðir á skjá, valmynda ■__t: _ ti á íslandi Stærsta heimilis-og raftækjaverslunarkeðja í Evrópu - AN N O 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 Full búð af hágæða heimilis og raftækjum á verði sem þig grunaði ekki að væri til! Útlönd RflFTfEKlPERZLUN ÍSLflNDS EE Clinton og Jeltsín undirbúa ferð til Helsinki: Leiðtogafundinum frestað um einn Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Borís Jeltsín Rússlandsforseti hafa ákveðið að fresta fyrirhuguðum fundi sínum í Helsinki um einn dag til að gefa Clinton meiri tíma til að jafna sig eftir uppskurð á hné að því er David Johnson, talsmaður Clint- ons, skýrði frá í gær. Fundurinn mun hefjast á fimmtudag en ekki miðvikudag og standa í tvo daga. Þeir Clinton og Jeltsín munu ræða stækkun Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) til austurs, svo og dag vegna önnur málefni. Jeltsín ítrekaði í viðtali við finnska blaðið Helsingin Sanomat að hann væri andvígur stækkun NATO þar sem hún væri brot á skuldbindingum Vestur- landa. Jeltsín sagði í viðtalinu að stjóm- völd í Moskvu gætu ekki ráðið því hvort NATO yrði stækkað til aust- urs en hann sagðist vona að í sum- ar næðist samkomulag um nánari tengsl. Hann sagði að slíkur samn- ingur yrði að vera lagalega bind- meiðsla andi. Vesturlönd vilja hins vegar ekki jafnformlegt samkomulag svo þau þurfl ekki að leita staðfestingar þjóðþinga sinna á því. Clinton kom aftur heim í Hvíta húsið í gær eftir tæplega tveggja sól- arhringa vist á sjúkrahúsi þar sem gert var að slitnu liðbandi í öðru hné hans. Clinton meiddi sig þegar hann var í heimsókn hjá ástralska kylfingnum Greg Norman fyrir helgi. Reuter ísraelar hvika ekki frá byggingaráformum í arabahluta Jerúsalem: Jarðýtuvinnan hefst síðar í þessari viku Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, átti fund með Hussein Jórdanlukonungi og ræddi við Yasser Arafat, leiðtoga Palest- ínumanna, í síma í gær en ítrekaði jafnframt að hafist yrði handa við umdeildar byggingarframkvæmdir í arabíska hluta Jerúsalem. Á fundi sem Netanyahu og Jórd- aníukonungur héldu með frétta- mönnum í gærkvöldi var ísraelski forsætisráðherrann spurður að því hvort jarðýturnar yrðu sendar á byggingarsvæðið eftir einn eða tvo daga. Netanyahu svaraði því til að jarðýtuvinnan hæflst í þessari viku, eins og hann hefði áður sagt. „Ákvörðun okkar hefur ekki ver- ið breytt. Vinir geta, eins og ég sagði, verið sammála og stundum verið ósammála. Við skiljum áhyggjur Palestínumanna og ann- arra. En við höfum tekið ákvörðun okkar,“ sagði Netanyahu. Netanyahu og Hussein konungur, sem ræddust við í rúmar tvær klukkustundir á skrifstofu forsætis- ráðherrans, sögðu að þeir hefði hringt í Yasser Arafat, sem hefur tvisvar sinnum neitað að taka á móti sendimönnum ísraelskra Hussein Jórdaníukonungur og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra ísraels, brostu breitt þegar þeir hittust í gær en ekki varð nein breyting á afstöðu ísraelsmanna til byggingaráforma í arabíska hluta Jerúsalem. Símamynd Reuter stjórnvalda á síðustu tíu dögum. Netanyahu sagðist vona að með samtalinu við Arafat hefði verið lagður nýr grunnur að frekari við- ræðum við Palestínumenn. Staðfest var að verið væri að reyna að koma á fundi leiðtoganna tveggja. Hussein Jórdaníukonungur flaug til ísraels í gær til að hugga fjöl- skyldur sjö skólastúlkna sem jórdanskur hermaður skaut til bana á landamærum ríkjanna í síðustu viku og til aö draga úr spennunni í samskiptunum við Israel eftir harð- ort bréf sem hann sendi Netanyahu í síðustu viku. í bréfinu tók konungur undir áhyggjur leiðtoga Palestínumanna um að blóðbað kynni að hljótast af ef ísraelar létu ekki af byggingará- formum sinum. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.