Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 17
MANUDAGUR 17. MARS 1997 Norðurljós menning 17 Um næstu helgi kemur til landsins hópur útskriftarnema frá Old Vic-leiklistarskólanum í Bristol á Englandi og fer rakleiðis vestur á Tálknafjörð. Þar verða þau í rúmar tvær vikur við að æfa leikritið Norðurljós - eða Northern Lights - eftir Frederick Harrison, sem þau sýna síðan í Þjóðleikhúskjallaranum 10- 13. apríl. Höfundur samdi það fyrir Hull Truck Company í Hull eftir nokkurra vikna dvöl á Suðureyri við Súgandafjörð fyrir um það bil áratug síðan og það hefur verið sýnt hér á íslensku undir nafninu ísaðar gellur. Leikstjóri er Gunnar Sigurðs- son sem er að ljúka leikstjóra- námi. Hann sagði að verkið skipt- ist í marga þætti og fjallaði um er- lendar farandverkakonur á ís- landi. Fremur lýsti það persónu- legum vanda þeirra en milliþjóða- vandamálum, þó væri nokkuð komið inn á samskipti þeirra við Einsöngur í Miðgarði Sigurður Skagfjörð Steingríms- son barítónsöngvari heldur ein- söngstónleika í Miðgarði, Skaga- firði, á fimmtudagskvöldið kemur, 20. mars, kl. 21. Sigurður er fæddur og uppalinn í Varmahlíð og ætlar að halda sína fyrstu sjálfstæðu ein- söngstónleika á heimaslóðum. Sigurður hefur starfað sem söngvari síðan 1992, sungið mörg hlutverk við íslensku óperuna, haldið tónleika ásamt öðrum ein- söngvurum og sungið með Sinfóníu- hljómsveit íslands og ýmsum kór- um. Á efnisskránni í Miðgarði verða íslensk og erlend sönglög og við flygilinn verður Bjarni Þór Jón- atansson. Sigurður Skagfjörð Steingrímsson. Tiltekt í Nýlistasafninu í vikunni sem leið var óformlega opnuð sérstæð sýning í Nýlistasafn- inu við Vatnsstíg í Reykjavík. Lista- verkageymsla safnsins var rýmd og verkunum komið fyrir i öllu safn- inu. Þar með varð safnið umgerð utan um tiltektargerning - þrír fag- menn munu mæla og meta, mynda og skrá og spá í verkin. Sýningin verður opin þriðjudaga til fóstudaga (ekki um helgar) frá 2-6 til 26. mars. Svo verður öllu pakkað aftur inn og flutt í aðra geymslu. Að kvöldi fimmtudagsins 20. mars og miðvikudagsins 26. mars kl. 20 verða spjallkvöld í safninu þar sem valdir félagar munu ganga milli verka og leysa frá skjóðunni eftir því sem andinn blæs þeim í brjóst. Gestir og gangandi verða væntanlega einhvers vísari um til- urð og árur, anda og útgeislun til- fallandi verka, eins og segir í frétta- bréfi safnsins. Félagsmenn eru hvattir til að koma og leggja orð í belg - og kannski heilsa upp á verk sín svo aö þau gleymi þeim ekki... íslenska karlmenn. Atriðin eru tengd með tónlist og einnig er sungið í atriðunum sjálfum, og í stað þess að nota músíkina sem gert var ráð fyrir í upphafi mun „Mr. Bubbi Morthens", eins og segir í fréttatilkynningunni, koma til liðs við hópinn. Gunnar sagði að hópurinn hefði fengið talsverða fjölmiðlaat- hygli út af þessari íslandsferð, bæði vegna þess að í hópnum væri ein fræg stúlka, Pheobe, dóttir leikaranna Stephanie Beacham og John McEnery, en líka vegna þess að Island væri mikið I fréttum í Englandi þessi misserin. Fjórir sjónvarpsþættir hefðu verið sýndir undan- farið um ísland og margar greinar birst í blöðum, með- al annars ferðagreinar. Og nú er verið að skipuleggja dagsferðir til íslands frá Bristol. HYUNDAI vökvagrafa með ýtublaði 14,6 tonn. Frábært verö. Glæsilegt útlit ▼ Skútuvogi 12A, s. 581 2530 Mr. Bubbi Morthens syngur í sýningunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.