Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 17. MARS 1997 9 PV__________________________________________Útlönd Evrópuríki heita stuðningi við enduruppbyggingu Albaníu: Italir hvetja Albani til að sitja heima Framleiðum brettakanta. sólskyggni og boddíhluti á flestar gerðir jeppa, einnig boddíhlutí á vörubíla og van-bfla. Sársmíði og viðgerðir. ALLT PLAST & (D Kænuvogi 17 • Sími 588 6740 Átök brutust út í albönsku hafn- arborginni Durres í gær þegar ör- væntingarfullir óbreyttir borgarar reyndu aö flýja land á sama tíma og bandarískir landgönguliðar komu sér fyrir á ströndinni til að flytja er- lenda sendimenn á brott. Þrjú þúsund Albanir komu sam- an á aðaltorgi höfuðborgarinnar Tirana og kröfðust friðar í landinu. Samkoman var haldin að undirlagi stjómvalda sem em að reyna að koma aftur á lögum og reglu. Utanríkisráðherrar Evrópusam- bandsins samþykktu á fundi sínum í Hollandi að senda hernaðar- og löggæsluráðgjafa til Albaníu en þeir sögðu að ekki yrði gripið til hem- aðaraðgerða til að stöðva ofbeldið í landinu. Sali Berisha Albaníuforseti, sem hefur sætt stöðugt meiri gagnrýni frá því þúsundir Albana misstu al- eigu sína þegar vafasamir fjárfest- ingasjóðir fóra á hausinn, hunsaði áfram kröfur uppreisnarmanna í suðurhluta landsins um að hann segði af sér. Orðrómur um afsögn forsetans fór á kreik á laugardag en hann var borinn til baka. ítölsk stjómvöld lýstu því yfir í gær að ríki Evrópu væru staðráðin í að leggja sitt af mörkinn til endur- uppbyggingar Albaníu og til að stöðva straum flóttamanna þaðan. „Lausnin felst ekki í að flýja held- ur í enduruppbyggingu Albaníu. Evrópuríki munu sjá til þess að það verði mögulegt," sagði Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, við Verkamenn hjá Renault-bílaverksmiöjunum í Belgíu bera kross þar sem á stendur fjöldi þeirra starfa sem glatast viö lokun verksmiðju nærri Brussel. Tugþúsundir manna fóru um götur Brussel í gær til aö mótmæla vaxandi at- vinnuleysi og óöryggi á vinnumarkaöi. Slmamynd Reuter Ihaldsflokkurinn langt á eftir: Major tekur áskorun Blairs um kappræður John Major, forsætisráðherra Bretlands, hefur tekið áskorun Tonys Blairs, leiðtoga Verkamanna- flokksins, um að mæta til sjónvarps- kappræðna fyrir þingkosningamar í vor. Major og fhaldsflokkur hans njóta mun minni hylli meðal kjós- enda, samkvæmt skoðanakönnun- um. Bresk dagblöð sögðu um helgina að Major muni hugsanlega tilkynna kosningadaginn í dag og hefur 1. maí verið nefndur í því sambandi. „Það ættu að vera að minnsta kosti tvennar sjónvarpskappræð- ur,“ sagði Brian Mawhiimey, for- maður íhaldsflokksins, í viðtali við breska sjónvarpið BBC. „Við viljum að þær verði kappræður milli for- sætisráðherraefna og við vildum gjaman að þeir yrðu spurðir spjör- unum úr.“ Margir líta á það sem örþrifaráð hjá Major aö faílast á kappræður við Blair þar sem Verkamanna- flokkurinn hefur nú um 25 pró- sentustiga forskot á íhaldsflokkinn. Litlu flokkamir lýstu þegar yfir andstöðu sinni við þessi áform. Frjálslyndir demókratar, þriðji stærsti flokkurinn, sögðu að kapp- ræður þar sem leiðtogi þeirra fengi ekki aö vera með væm brot á hlut- leysisreglum sem útvarps- og sjón- varpsstöðvar verða að fylgja I kosn- ingabaráttu. Þeir, ásamt velskum og skoskum þjóðemissinnum, sögðust mundu höfða mál ef þeirra sjónarmið fengju ekki að koma fram. „Við höfum þegar leitað lögfræði- legs álits á þessu,“ sagði Charles Kennedy, þingmaður frjálslyndra demókrata. í skoðanakönnun í Sunday Times í gær fékk Verkamannaflokkurinn 52 prósenta stuðning, íhaldsflokkur- inn 27 prósent og frjálslyndir demó- kratar þrettán prósent. Reuter fréttamenn þegar hann kom í skyndiheimsókn til hafnarborgar- innar Brindisi. Þúsundir óttasleginna Albana hafa flúið yfir Adríahafið í síðustu viku. ítalska strandgæslan bjargaði 858 flóttamönnum úr strönduðu skipi í gær. Reuter staðgreiðslu- og greiðslu- kortaafsláttur og stighœkkandl smáa*&**** bir+ingarafsláttur .j& S59 NSX-V210 fermingartilboð kr. NSX-V700 fermingartilboð kr. 45*900 ( ,V. Armóía 38 • Símí 553,1133 H':9Í2-\991' 3 diska geislaspilari Super T-bassi Tengi fyrir auka bassahátalara Tvöfalt segulband Stafrænt útvarp m/32 stöðva minni 20+20W RMS magnari Tónjafnari m/Rock-Popp-Jazz Fjarstýring Hljómmikil og falleg tæki ,\3 diska geislaspilari f Super T-bassi Tengi fyrir auka bassahátalara Tvöfalt segulband Stafrænt útvarp m/32 stöðva minni Fullkomið Karaokekerfi Tvö hljóðnematengi 40+40W RMS surround magnari Tónjafnari m/Rock-Popp-Classic Segulvarðir hátalarar Fjarstýring ( ' S i ! I ( ( Á C RADIOBÆR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.