Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1997, Page 9
FIMMTUDAGUR 20. MARS 1997
Utlönd
9
Sendiherra Bandaríkjanna í Albaníu:
Hvattur til að gæta
silfurborðbúnaðar
Eg og Þú
flytur og heldur meiriháttar
rýmingarsölu í nokkra daga
til að rýma fýrir nýjum vöriim.
Þú mátt ekki missa afþessu.
Bandaríska utanríkisráðuneyt-
ið sendi sendiherra sínum í Al-
baníu, Marisu Lino, skeyti og
hvatti hana til þess að gæta þess
að siifurborðbúnaður sendiráðs-
ins glataðist ekki.
í skeytinu, sem lak til banda-
ríska dagblaðsins Washington
Post, sagði að sendiherrann ætti
að geyma silfrið í sendiherrabú-
staðnum eða skjalasafni sendi-
ráðsins. Ef loka þyrfti alveg
sendiráðinu ætti að flytja silfur-
borðbúnaðinn úr landi með per-
sónulegum eignum sendiherrans.
Talsmaður bandariska utanrík-
isráðuneytisins sagði í gær að fá-
ránlegt hefði verið að senda
svona skeyti þegar sendiherrann
hefði verið að reyna að bjarga
mannslífum. Undanfarna daga
hefur Marisa Lino haft umsjón
með brottflutningi hundraða
Bandaríkjamanna og annarra út-
lendinga með þyrlum Bandaríkja-
hers.
Skeytið um silfrið var imdirrit-
að af Madeleine Albright, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, en
talsmaður utanríkisráðuneytisins
tók það fram að öll skeyti sem
send væru sendiráðum erlendis
væru undirrituð af utanríkisráð-
herranum hvort sem hún hefði
séð þau eða ekki. Skeytið var sent
frá deild utanríkisráðuneytisins
sem sér um innréttingar og hús-
búnað sendiráða.
í gær reyndi lögregla að tryggja
öryggi á flugveflinum í Tirana,
Þýska ofurfyrirsætan Claudia Schiffer brá sér til Vínarborgar í gær til að aug-
lýsa splunkunýja verslanamiöstöð þar sem búðir fína fólksins eru í meiri-
hluta. Hér má sjá stúlkuna við mynd af sjálfri sér. simamynd Reuter
Netanyahu sakaður um að beita brögðum:
PLO hafnar tilboði
um lokasamninga
Frelsissamtök Palestínu (PLO)
hafa hafnað tilboði ísraelskra
sljómvalda um að bjarga friðarvið-
ræðunum sem eru í uppnámi
vegna framkvæmda við nýja byggð
gyðinga í arabíska hluta Jerúsal-
em, að sögn embættismanna.
ísraelskur heimildarmaður sagði
að Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, hefði lagt til að
deiluaðilar sneiddu hjá þremur fyr-
irhuguðum liðsflutningum ísrael-
skra hermanna frá Vesturbakkan-
um til að ganga frá lokasamningi
um frið á næstu þremur til sex
mánuðum, nærri tveimur árum
fyrr en áætlað er samkvæmt gild-
andi samninguro.
Netanyahu kom boði sínu til
Husseins Jórdaníukonungs sem
kom því svo áleiðis tfl PLO.
Embættismenn PLO staðfestu að
Netanyahu hefði lagt þetta til en
fordæmdu það sem tilraun til að
gera að engu bráðabirgða friðar-
samninginn sem nú er í gildi til að
komast hjá gagnrýni þjóða heims
vegna landnámsstefnu stjómar
sinnar.
„Þetta er nýtt bragð hjá Netany-
ahu til að beina athygli fólks frá
þeirri eyðileggingu friðarferlisins
sem ísraelskar jarðýtur era að
stunda á Jabal Abu Ghneim," sagði
Saeb Erekat, aðalsamningamaður
PLO, við Reuters-fréttastofuna.
ísraelskar jarðýtur hófu í vik-
unni landbrot á Jabal Abu Ghneim,
furuvaxinni hæð í austurhluta Jer-
úsalem sem ísraelski herinn hertók
árið 1967. Þjóðir heims hafa for-
dæmt framkvæmdimar og óttast er
að þær muni leiða til ofbeldis-
verka. Reuter
höfuðborg Albaníu, svo að hægt
yrði að koma á samgöngum við
umheiminn.
Formaður sendinefndar Evr-
ópusambandsins sagði í gær að
ekki yrði hægt að veita Albönum
aðstoð fyrr en komið hefði verið á
lögum og reglu. Bashkim Fino,
forsætisráðherra Albaníu, hvatti
til friðar svo hjálp bærist sem
fyrst. Stuttu eftir ræðu forsætis-
ráðherrans mátti sjá fjóra skrið-
dreka á aðalgötu höfúðborgarinn-
ar.
ítölsk yfirvöld hafa lýst yfir
neyðarástandi vegna flótta-
mannastraumsins frá Albaníu.
Talið er að yfir 10 þúsund Alban-
ar hafi flúið til Ítalíu á tæpri
viku. Reuter
Látið Lenín vera
á sínum stað
Örlög kommúnistaleiðtogans Vla-
dimírs Leníns verða rædd á rúss-
neska þinginu í dag þar sem komm-
únistar eru í meirihluta. Þingmenn
ætla að taka til umræðu ákall til Bor-
ísar Jeltsíns forseta um að fjarlægja
smurt lík byltingarforingjans ekki úr
grafhýsinu á Rauða torgi.
Kommúnistar fengu hland fyrir
hjartað í síðustu viku þegar Jeltsín
sagði að hugsanlega yrði efnt til þjóð-
aratkvæðagreiðslu um flutninginn.
Slíkt „skemmdarverk" ætla þing-
menn ekki að líða. Reuter
Jbig Og Pll
Laugavegi 66 Sími 551-2211
Frábært verð, aðeins
500, 990, 1.490 og 1.990.
Athugið, nýlegar vörur.
Grípið þetta einstaka tækifœri
sem býðst bara einu sinni
í nokkra daga.
Magnarí: 2x70w (RMS, 1kHz, ÓQj
Útvarp: FM/AM, 24 sföðvo minni
• Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B
• Hátalaran Tvískiptir 70w (DINj
Cfi PIONEER
The Art of Entertainment |
Velkomin(n) í
hljómtækjaverslun okkar
Reykjavfk: Byggt og Búiö. Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Kf. Borgfirflinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrfmsson, Grundarfiröi.
Ásubúö.Búðardal. Vestflrfllr: Geirseyrarbúöin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísafiröi. Norflurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga.Blönduósi.
Verslunin Hegri, Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri. Kf. Pingeyinga, Húsavík. Lónið, Þórshöfn. Austurland: Kf. Hóraðsbúa, Egilsstööum. Verslunin Vfk, Neskaupstað.
Kf. Stööfiröinga Stöövarfiröi og Breiðdalsvík. Kf. Fáskrúösfiöinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Djúpavogi og Hornafirði. Suflurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn.
Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
The Art of Entertainment
Kraftbassann nytir þu tíl hins ytrasta!
r) r) '■! pr
&U3-SS