Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997 5 Fréttir Erfiðlega gengur að eiga við síldina DV, Akureyri: Veiðamar úr norsk-íslenska síldarstofninum hafa gengið afar misjafnlega síðan þær hófust 3. maí sl. Þó hafa komið „góð skot“ af og til en staðið stutt yfir og síldin yfir- leitt verið erfið viðureignar. Fyrir um viku voru skipin helst að fá afla um 300 mílur norðaustur frá Seyðisfirði en þar var þröng á þingi og erfitt fyrir skipin að at- hafna sig, bæði vegna mikilla þrengsla og eins var sildin dreifð og var djúpt. Nú fyrrihluta vikunn- ar kom „gott skot“ mun sunnar eða inni í færeysku lögsögunni og fengu mörg skip þar ágætisafla. Talið er að nálægt 80 þúsund tonn af síld hafi veiðst af 333 þúsund tonna kvóta íslendinga úr norsk-íslenska stofnunum. Eftir erfiða byrjun hefur veiði glæðst síðustu sólarhringa. Myndin var tekin á síldarmiðunum. DV-mynd Þorsteinn G. Kr. Unglingur tryllt- ist í ofskynjun DV, Suðurnesjum: „Fjölmörg dæmi eru um að LSD- neytendur hafi endað á geðsjúkra- húsum. Þeir hafa talið sig geta flog- ið og reynt slíkt og einnig hafa þeir rifið úr sér tennur,“ sagði Elías Kristjánsson, tollfulltrúi fikniefna- deildar Tollgæslunnar á Keflavíkur- flugvelli, i samtali við DV. Lögreglan í Keflavík stöðvaði ný- lega LSD-veislu í Keflavik. Sprauta varð ungling eftir að hann trylltist af neyslu ofskynjunarlyfsins LSD. Elías segir að líkja megi neyslu LSD við rússneska rúllettu. Talsvert er um neyslu hérlendis þrátt fyrir að efnið hafi valdið því að líf fjölda manna hafi breyst til varanlegrar bölvrmar í breyttum lífsháttum. „LSD er unnið úr sveppum úr náttúrunni og getur valdið sálræn- um ávana. Til eru 6000 tegundir sveppa. Þar af eru um 2% sem hafa skynvilluverkunina. LSD á markaði hérlendis er að mestu smyglað frá Mið- Evrópu, venjulegast í formi vökva. Sölumenn efnisins hér hafa oft verið staðnir að því að fullyrða um skaðleysi þess. Efnið sé nýtt af- brigði og áhættan hverfandi. Samkvæmt könnunum eru börn og unglingar stærsti neysluhópur- inn. Efnið er að mestu markaðssett síað í pappírsarkir og hægt að koma 2400 skömmtum fyrir á einni A-4 örk með teiknimyndum. Aldrei hef- ur verið til nema eitt form af LSD og það er stórhættulegt heilsu manna. Fíkniefnin fara ekki í manngreinarálit. Þau leita ekki eft- ir stöðu eða stétt manna. Verum því öll á verði gegn bölinu til vemdar heilbrigðu lífi,“ sagði Elías. -ÆMK Heldur virðist hafa dregið úr afla þar síðustu tvo sólarhringa og sagði Eggert Þorfinnsson, skip- stjóri á Oddeyrinni EA, í gær að skipin hefðu verið að fá 300 tonn á sólarhring og þaðan af minna. Odd- eyrin var á leið á miðin í gær og sagði Eggert að stefnan væri tekin nyrst á færeysku lögsöguna. Nákvæmar upplýsingar um heildarveiði þann tæpa hálfa mán- uð sem veiðamar hafa staðið yfir liggja ekki fyrir en menn áætla að búið sé að veiða 75-80 þúsrrnd tonn af þeim 333 þúsund tonnum sem komu í hlut íslendinga við skipt- ingu á veiðinni úr norsk-íslenska stofninum. -gk Hágæða vogir á góðu verði með eða án prentara. Vogir í kassaborð fyrir versl- anir með eða án koðalesara. Hafnarfjorður - Garðabær Dalshrauni 11 - Hafnarfirði Reykjavik - Kopavogur Dalbraut 1 - Reykjavík | i í— •I L 1 i 1 Komdu og sœktu Lattu senda þér heim Fjölskyldutilboð 16 pizza m/2 aleggsteg 890 kr. 18" pizza m/3 áleggsteg. 12" hvítlauksbrauð eða margarita, hvítlauksolía og 2 l kók. 1.790 kr. 16“ pizza m/3 áteggsteg. 1.200 kr. 18" pizza m/2 áleggsteg. 990 kr. Ef keyptar eru tvœr pizzur þá fœrðu 200 kr. í afslátt. (Gildir eingöngu ef sótt er.) Sama DIi iJKU Heimsmeistarakeppni í handbolta Heimsmeistaraafsláttur á Samurai Japanski veitingastaðurinn Samurai sýnir stuðning við ísienska landsliðið í handboita með sérstökum keppnisafslætti í tilefni af HM í handbolta í Japan dagana 17. maí til 2. júní. Notum tækifærið og kynnumst japanskri matargerðarlist á eina japanska veitingastaðnum á íslandi sem eingöngu framreiðir japanska rétti. Megi íslensku víkingarnir sigra í heimalandi japanskra samúræja! Veitingastaðurinn mm í Ingólfsstræti, beint á móti íslensku óperunni, sími 551-7776.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.