Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1997, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997
Neytendur
DV
Verðkönnun Neytendasamtakanna og verkalýðsfélaganna:
Verðmunur milli
landsbyggöar og
lágvöruverðs-
verslana minnkar
DV, Akureyri:
„Það er ljóst að lægsta verð í stór-
mörkuðunum hefur hækkað, þeir
hafa sprungið á limminu en það hef-
ur líka gerst að verslanimar með
hæsta verðið hafa lækkað verð sitt.
Það er því ekki eins mikill munur á
lágvömverðsverslunum og verslun-
um á landsbyggðinni og var í könn-
uninni í nóvember á siðasta ári,“
segir Vilhjálmur Ingi Ámason, for-
maður Neytendafélags Akureyrar
og nágrennis, um verðkönnun Neyt-
endasamtakanna og verkalýðsfélag-
anna sem er nýlokið. Könnunin
náði til 128 vörutegunda í 54 mat-
vöruverslunum um allt land.
Við samanburð könnunarinnar
og þeirrar sem gerð var í nóvember
kemur í ljós að lægsta verð vöra
sem yfirleitt er að finna í lágvöm-
verðsverslun eða stórmörkuðum
hefur að jafnaði hækkað um 5,2%
en á sama tíma hefur hæsta verð,
Neytendasamtökin og verkalýðsfélögin gerðu verðkönnun á 127 vörutegundum í 53 verslunum um allt land.
Færsla af debetreikningi tafðist í þrjá mánuði:
sem yfirleitt er að fmna í verslun-
um á landsbyggðinni, lækkað um
2,5%. En vegna þess hversu margar
verslanirir aðrar en þær ódýrustu
hafa lækkað verðið lækkar sameig-
inlegt meðalverð allra vöruflokka
um 1,1%.
Bónus í Holtagörðum er með
lægsta vöruverðið þótt verðið þar
hafi hækkað örlítið gagnvart öðrum
verslunum. Vöruverð í KEA-Nettó á
Akureyri er 7% hærra en í Bónusi
en síðan koma Kaskó í Reykjanes-
bæ 9% yfir Bónus og Fjarðarkaup í
Hafnarfírði 15% yfir Bónus. Vil-
hjálmur Ingi segir það meðal athygl-
isverðustu niðurstaðna könnunar-
inar hvað Kaskó og Fjarðarkaup
hafa lækkað vömverð sitt gagnvart
Bónusi.
Þá geta ísflrðingar vel við unað
en með tilkomu Samkaupa til ísa-
fjarðar geta íbúar þar nú verslað á
stórmarkaðsverði og munar um
20% á verði Samkaupa þar nú og á
Vöruvali á ísafirði í könnuninni í
nóvember.
Á Norðurlandi ber KEA-Nettó
sem fyrr höfuð og herðar yfir aðrar
verslanir. Þar hafa þó ýmsir gert vel
síðan í nóvemberkönnuninni, s.s.
verslunin í Ásbyrgi en þar hefur
vöruverð lækkað um 20% milli
kannana.
Ef litið er á einstaka vöruflokka
kemur í ljós sláandi munur á hæsta
verði og því lægsta. Óskemmdar
gullauga kartöflur voru t.d. ódýrast-
ar 29 krónur en dýrastar 160 krónur
og munar þar 452%. Gróft salt var
ódýrast á 22 krónur en dýrast 78
krónur og þar munar 255%. Á eld-
húspappír munaði 241% á hæsta og
lægsta verði, á gulrófum munaði
202%, á Campell’s aspassúpu mun-
aði 193%, á klósettpappír munaði
180% og á 29 vörutegundum af þeim
128 vörutegundum sem teknar voru
í könnunina var munur á hæsta og
lægsta verði yfir 100%. -gk
Fólk verður að
fylgjast vel með
reikningum sínum
DV, Akureyri:
„Fólk þarf greinilega að gæta vel
að og fylgjast vel með hvernig
færslur þess á debetkortum skila
sér því nú höfum við hæöi dæmi
um það að færslur skili sér ekki
fyrr en mánuðum eftir að úttekt
hefur farið fram og eins hitt að út-
tektir séu margfærðar," segir Vil-
hjálmur Ingi Árnason, formaður
Neytendafélags Akureyrar og ná-
grennis.
Fyrir skömmu var sagt frá því í
DV að maður, sem verslaði við
bensínsöluna Orkuna, varð fyrir
því að 2.467 króna bensínúttekt
hans var færð fjórum sinnum á
reikning mannsins. Vilhjálmur
Ingi segist hafa undir höndum
dæmi um að maður, sem keypti
bensin fyrir ákveðna upphæð, varð
fyrir því að færslan af reikningi
hans kom ekki fyrr en þremur
mánuðum síðar og gerði það að
verkum að maðurinn fór í óheimil-
an yfirdrátt á reikningi sínum.
„Við sjáum að þessar rafrænu
færslur geta brugðist, þetta er ekki
skothelt kerfi og fólk verður bara
að vera á varðbergi og fylgjast vel
með færslum á debetreikningum
sínum,“ segir Vilhjálmur Ingi. -gk
Verðstuðull verslana
- meðaltal 100 -
O 20 40 60 80 ÍOO 120
Bónus, Holtagöröum
KEA Nettó
KASKO, Reykjanesbæ
Fjaröarkaup, Hafnarfiröi
Skagfiröingabúö
Samkaup, Reykjanesbæ
KEA, Hrísalundi
Samkaup, Hafnarfiröi
Hagkaup, Akureyri
10- 11, Engihjalla
KÞ Þingey, Húsavík
Hagkaup, Kringlunni
Samkaup, ísafiröi
Hagkaup, Reykjanesbæ
Kjar-Val, Selfossi
Nóatún JL-húsi, Hringbraut
Kaupgaröur, Mjódd
Valberg, Ólafsfiröi
KÁ, Hellu
KÁ, Hvolsvelli
KÁ, Strandvegi, Vestmannaeyjum
KÁ, Goöahrauni, Vestmannaeyjum
KÁ, Selfossi
KS, Varmahlíö
KÞ Matbær, Húsavík
Kaupfélag Héraösbúa, Egilsstööum
Vöruval, ísafiröi
KEA, Ólafsfiröi
Kjörbúöin Kaupangi
Hlíöarkaup, Sauöárkróki
11- 11, Þverbrekku, Kópavogi
Vísir, Blönduósi
Vöruval, Vestmannaeyjum
KEA, Byggöavegi
KEA, Dalvík
KÞ, Mývatni
Urö, Raufarhöfn
Hagabúöin, Hjaröarhaga
KASK, Höfn
Verslunin Nesjum, Hornafiröi
K.H., Blönduósi
Breiöholtskjör, Arnarbakka
Lóniö, Þórshöfn
Lykill, Fellabæ, Egilsstööum
10-10, Höfn
Bakki, Kópaskeri
Verslunin Ásbyrgi
Matvörubúöin, Sauöárkróki
Kaupfélag Steingrímsfjaröar
Kaupfélag Súöavíkur
Búöin okkar, Suöureyri
Hornabær, Hornafiröi
Félagskaup, Flateyri
76,40
81,60
83,10
88,00
92,
92
93
93
93
93
93
10
90
50
,50
,60
60
70
93,90
93,90
94,20
95,60
96,30
96,40
96,40
97
97,90
98,00
98,00
98,20
98,50
98.80
99.80
99,90
100,20
100,40
100,60
1 101,60
102,20
103,00
103,90
104,50
104,50
1
*
j
...—, .. i
i
105,30
105,50
106,20
106,70
106,80
107,80
107,90
108,70
109,80
110,00
111,30
112,10
112,10
112,20
112,60
113,50
114,80
Líftryggingar í Danmörku:
Hærri iðgjöld til
þeirra sem reykja
Dönsku neyt-
endasamtökin
hafa samþykkt
að líftrygginga-
félögum þar í
landi sé heimilt
að krefjast
hærri iðgjalda
hjá þeim sem
reykja. Þetta er
alger stefnu-
breyting hjá
neytendasam-
tökunum þvi í
fýrra lýstu þau
yfir því að slík
mismununum
væri ólögleg.
Viðhorfsbreyt-
ing neytendasamtakanna er sögð
vera í takt við almenna andstöðu
gegn reykingum í samfélaginu.
Þegar hafa tvö líftryggingafélög í
Danmörku rið-
ið á vaðiö með
tverrns konar
gjaldskrá til
reyklausra og
þeirra sem
reykja. Fleiri
eru að sigla í
kjölfarið, segir
í frétt í Politi-
ken.
Að sögn
Hjalta Pálsson-
ar, lögfræðings
Neytendasam-
takanna, hefur
slíkt mál ekki
borist á borð
íslensku neyt-
endasamtakanna. Hvort þessi
stefnubreyting í Danmörku hefði
eitthvað að segja hér á landi vildi
hann ekki tjá sig um. -jáhj