Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Síða 6
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 DV
. utlönd
Franskir kommúnistar setja skilyrði fyrir stjórnarþátttöku:
Brestir komnir í
vinstrifylkinguna
stuttar fréttir
Ekki dauðarefsing
Saksóknari í máli meints
moröingja sonar sjónvarpsleikar-
ans Bills Cosbys sagði i gær aö
ekki yrði krafist dauðarefsingar
yfir sakbomingnum.
Waigel víkur ekki
Theo Waigel, fjármálaráðherra
Þýskalands, sem
sætir harðri
gagnrýni vegna
áforma um að
endurmeta gull-
og gjaldeyris-
forða þýska
seðlabankans,
sagðist í viðtali í gær ekki sjá
neina ástæðu til afsagnar. Bank-
inn hafnar endurmatinu en leitað
er að málamiðlun.
Knúið á dyr NATO
Áhugariki um inngöngu í
NATO reyndu hvað þau gátu að
tala máli sínu á ráðherrafundi
bandalagsins í Portúgal í gær.
Delors ráðgjafi
Jacques Delors, fyrrum forseti
framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, mun sennOega
gegna hlutverki ráðgjafa Lionels
Jospins, leiðtoga franskra sósí-
alista, ef vinstriflokkamir sigra í
síðari umferð konsinganna í
Frakklandi á morgun.
Konur dá tækniundrin
Útivinnandi konur í Banda-
ríkjunum taka öllum tækninýj-
ungum fagnandi og líta á þær
sem bandamann, segir í niður-
stöðum nýrrar könnunar.
íhugar einræktunarbann
Framkvæmdastjórn ESB ihug-
ar nú hvort banna beri formlega
að einrækta menn.
Herforingjar dæmdir
Fjórir fyrrum hershöfðingjar í
her Austur-Þýskalands voru í
gær fundnir sekir um að hafa
stuðlað að manndrápum með því
aö fyrirskipa landamæravörðum
að skjóta þá sem reyndu að flýja
vestur yfir.
Einlægur friðarvilji
Nelson Mandela, forseti Suður-
Afríku, sagði í
gær að sendi-
nefndir and-
stæðra fylkinga
á Norður-ír-
landi, sem em í
heimsókn hjá
honum, vildu
einlæglega koma á friði heima
fyrir.
Kafbátur sekkur
Rússneskur kjarnorkukafbátur
frá áttunda áratugnum, sem var
tekinn úr notkun fyrir fjómm
árum, sökk við Petropavlovsk á
Kamtsjatka í gær.
í kviðdóm
Kviðdómur í Bandaríkjunum
hefur nú fengið mál meints
sprengjumanns í Oklahoma til
meðferðar. Reuter
Hlutabréfamarkaður:
Hækkun milli
vikna
FTSE-visitalan hefur hækkað ör-
lítið á milli vikna en örlítil lækkun
varð þó á flmmtudaginn vegna deilu
Bonnstjórnarinnar og þýska seðla-
bankans um EMU. Frönsku kosn-
ingamar höfðu einnig sitt að segja.
Útkoman varö þó heldur betri en út-
lit var fyrir í fýrstu vegna áhrifa frá
bandaríska verðbréfamarkaðnum.
Nokkur uppgangur virðist vera á
hlutabréfamörkuðum heimsins um
þessar mundir, a.m.k. er hækkun á
milli vikna í Wall Street, London,
Franfurt, Tokyo og Hong Kong. Tonn-
ið af sykri kostar nú 270,8 dollara
tonnið. Kafflð hefúr hækkað og fæst
tonnið af kafflnu nú á 2006 dollara.
Verð á bensíni er heldur lægra en
í síðustu viku og sömu sögu má
segja um hráolíuna. Reuter
Leiötogar franskra sósíalista og
kommúnista fóru saman um eitt af
úthverfum Parísar í gær, á síðasta
degi kosningabaráttunnar fyrir síð-
ari umferð þingkosninganna á
sunnudag, þrátt fyrir að brestir séu
komnir í samfylkinguna gegn
stjómarflokkunum.
Fréttamenn fylgdu þeim Lionel
Jospin og Robert Hue hvert fótmál á
göngu þeirra um Le Blanc Mesnil
hverfið. Hue dró þar enga dul á að
skiptar skoðanir væm innan vinst-
risamfylkingarinnar. Leiðtogarnir
ræddust síðan við undir fjögur
augu.
„Það er útilokað að imynda sér að
vinstriflokkamir hrindi ekki fljót-
lega i framkvæmd ýmsum vinstri
Diana prinsessa veitti talsmanni
sínum ofanígjöf í gær og rak hann
síðan fyrir að hafa skýrt bresku
dagblaði frá því að hún væri fokreið
út í Tiggy Legge-Bourke, fyrrum
bamapíu sona sinna.
Díana greip til þessa ráðs eftir að
starfsfólk hennar rannsakaði upp á
eigin spýtur hver hefði lekið í æsi-
blaðið Sun.
„Prinsessan uppgötvaði að Sun
úrræðum," sagði Hue í viðtali við
franska sjónvarpsstöð.
Hann sagði frá skilyrðunum sem
kommúnistar setja við þátttöku i
ríkisstjórn undir forustu sósíalista.
þar nefndi hann launahækkanir og
nýja skatta á fjármagnstekjur, eitur
í beinum stjórnarflokkanna sem
hafa í sívaxandi mæli snúið kosn-
ingabaráttu sinni upp í vamaðarorð
gegn ríkisstjómarþátttöku komm-
únista.
Mið- og hægriflokkarnir sem sitja
í stjórn binda nú allar vonir sínar
við tvo menn, þá Philippe Séguin
þingforseta og Alain Madelin, fýrr-
um fjármálaráðherra. Sá fyrrnefndi
er félagshyggjumaður en hinn
frjálshyggjumaður. Séguin tók við
hafði farið rétt með ummæli opin-
bera embættismannsins um Tiggy
Legge-Bourke en orð hans endur-
spegluðu aftur á móti ekki skoðanir
prinsessunnar," sagði í sameigin-
legri yfirlýsingu blaðsins og lög-
fræðinga.
Æsiblaðið hafði skýrt frá því að
Díana væri reið út í barnfóstruna
fyrir að heimsækja Vilhjálm, fjórtán
ára son hennar og Karls ríkisarfa, á
forustu kosningabaráttu stjómar-
flokkanna eftir að Alain Juppé for-
sætisráðherra tók á sig alla sök á
óförum hægrimanna í fyrri umferð
kosninganna.
Maðurinn sem talinn er geta ráð-
ið úrslitum um hvemig kosningarn-
ar fara á morgun, Jean-Marie Le
Pen, leiðtogi hægriöfgamanna, stóð
í ströngu í gær. Þegar Le Pen var á
kosningaferðalagi um eitt úthverfa
Parísar til stuðnings dóttur sinni,
lenti hann í ryskingum við and-
stæðinga sína, sem köstuðu m.a. í
hann eggjum og grjóti. Tveir meidd-
ust í átökunum. Le Pen viðurkenndi
að hafa hrint frá sér en þvertók fyr-
ir að hafa barið einn né neinn.
Reuter
foreldradegi í einkaskólanum Eton
þar sem pilturinn stundar nám.
Bæði Karl og Díana héldu sig
heima þar sem þau óttuðust að nær-
vera þeirra mundi vekja svo mikla
athygli fjölmiðla að það skemmdi
fyrir öðram nemendum og foreldr-
um þeirra.
Díana á að hafa sagt að barnfóstr-
an hefði gert sig að fífli opinberlega.
Reuter
Vesturveldin
vilja fá stríðs-
glæpamennina
Vesturveldin leggja nú hart að
stjórnvöldum í Bosníu að koma
friðarferlinu af stað á ný og
draga ákærða
stríðsglæpa-
menn fyrir
dómstólana.
Robin Cook, ut-
anríkisráð-
herra Bret-
lands, sagði á
utanríkisráðherrafundi NATO í
gær að refsiaðgerðum yrði beitt
gegn öllum þeim sem ættu sam-
vinnu við eða skytu skjólshúsi
yfir stríðsglæpamenn.
Forfaðir nú-
tímamanns og
neanderdals-
manna fundinn
Steingerðar leifar drengs, með
ótrúlega nútímalegt andlit en
kjálka eins og neanderdalsmað-
urinn, sem fimdust í kalksteins-
helli á Spáni, em af nýrri gerð
manna sem sennilega er forfaðir
bæði nútímamanna og neander-
dalsmannsins. Steingervingarn-
ir, sem em 780 þúsund ára gaml-
ir, fundust við uppgröft á árun-
um 1994 til 1996.
„Við teljum þetta vera nýja
tegund sem við köllum Homo an-
tecessor," sagði José Maria
Bermudez de Castro sem starfar
við náttúravísindasafhið í Ma-
dríd.
Drengurinn fannst í hópi sex
mannvera sem voru mjög áþekk-
ar nútímamanninum á hæö og
með svipaða beinastærð. Verk-
færi sem fundust þar nærri
benda til að mannverur þessar
hafi haft töluvert vit í kollinum.
Sunnudags-
fundur um
laxadeilu Nor-
egs og ESB
Framkvæmdastjóm Evrópu-
sambandsins (ESB) kemur sam-
an annað kvöld til að reyna að
leysa hatramma deilu við Norð-
menn um innflutning á norskum
eldislaxi. Sunnudagsfundir
framkvæmdastjórnarinnar eru
afar fátíðir.
Ekki tókust sættir í fram-
kvæmdastjórninni á fimmtudag
um tiflögu Leons Brittans, sem
fer með viðskiptamálin. Þar var
faflið frá refsitollinn á norskan
eldislax á mörkuðum ESB og um
leið komið í veg fyrir illdeUur
við norsk stjórnvöld.
„Þetta er orðið hitamál," sagði
einn fulltrúi í framkvæmda-
stjóminni í gær.
Heimildarmenn telja að fram-
kvæmdastjómin muni að lokum
fallast á tillögu Brittans þar sem
flest aðildarlöndin séu henni
fylgjandi.
Spánar-
prinsessa gift-
ist í Barcelona
Cristina Spánarprinsessa,
yngsta dóttir Jóhanns Karls
Spánarkóngs og Sofflu drottning-
ar, hefur ákveð-
ið að ganga að
eiga handbolta-
kappann Inaki
Urdangarin í
hinni mikil-
fenglegu got-
nesku dóm-
kirkju í Barcelona. Brúðkaupið
verður haldið í október.
Að kirkjuathöfninni lokinni
veröur boðið til málsverðar í
Pedralbeshöllinni sem þykir
afar glæsileg.
Hjónaleysin staifa bæði og
búa í Barcelona og því þótti ekki
nema eðlilegt að brúðkaupið
yrði haldið þar. Reuter
Djöflar þessir, kenndir við Yare, dönsuöu sem vitlausir væru á götum bæjarins San Francisco de Yare í Venesúela á
fimmtudag þegar dagur líkama Krists var haldinn hátíölegur. Bæjarbúar eru þekktir fyrir túlkun sína á baráttu góös
og ills á 40. degi eftir páska. Símamynd Reuter
Díana prinsessa rak talsmann
sinn fyrir leka í slúðurblað