Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Qupperneq 8
wmmmmmmm (sielkerinn LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 Guðrún Þóra Hjaltadóttir næringarfræðingur: Rækjupönnukökur Ferskur lax í forréttinn - beint úr ,Ég vann áöur í veislum úti í bæ og þá var þetta mjög vinsælt. Ég hef oft verið beðin um uppskriftina að þessum pönnukök- um og ákvað því að slá til úr þvi að ég fékk tæki- færi til aö birta hana opinberlaga," segir Guðrún Þóra Hjaltadóttir, næringarfræðing- ur og sælkeri DV þessa vikuna. Guðrún Þóra býður upp á rækjupönnukökur fyrir 4-6. Guðrún Þóra hefur starfað sem kennari og hefur matreitt á hótelum úti á landi á sumrin. Hún tekur að sér veislur í heimahúsum og íslend- ingar muna eflaust eftir henni frá því að hún var hjá Eiríki Jónssyni á Bylgjunni fyrir nokkrum árum. „Útlendingar eru sérlega hrifnir pönnukökum og ég gríp hvert tæk- ifæri til þess að bjóða þeim upp á þær. Ég nota þetta mikið þegar ég fæ gesti á kvöldin," segir Guðrún Þóra Hjaltadóttir sem gefur lesend- um uppskrift að rækjupönnukök- um. Uppskriftin fer hér á eftir. Pönnu- Guðrún Þóra KflKlir Hjaltadóttir segir IVUIVUI rækjupönnu- 5 dl hveiti kökurnar afar vinsælar. 11 mjólk DV-mynd 1 tsk. lyftiduft Sigrún Lovísa 4 msk. smjör 4 egg Setjið þurrefnin í skál. Hrærið mjólkinni smám saman út í og síð- an eggjunum. Bræðið smjörið og bætið út í. Bakið á pönnu- kökupönnu. Nú er laxveiði víða hafin og því tilvalið að birta hér eina uppskrift að léttum og ferskum forrétti sem tekur enga stund að matbúa. Upp- skriftin miðast við tvo. 200 g glænýr lax 10 salatblöð salt og pipar safl úr Ví Jafningur 90 g smjör 90 g hveiti 1 dós grænn aspas 400 g rækjur 2 súputen., Hon. nautakr. 200 g rifinn ostur paprika Bræðið smjörið í potti, bætið hveitinu út i feitina, jafnið vel sam- an. Hrærið mjólkinni smám saman út í. Látið suðuna alltaf koma upp á milli. Setjið aspasinn út í ásamt rækjunum. Setjið 2 msk. af jafningi í hverja pönnuköku, rúliið pönnukökunum þétt saman, setjið í eldfast mót og stráið rifna ostinum yfir. Bakið við 200° C i 20-30 mín. Berið fram með bræddu smjöri. -sv Pönnukökur með beikoni Hér er tilvalinn rétt- ur í morgunmat eða há- degi að hætti Banda- ríkjamanna. Uppskrift- in miðast við sex ein- staklinga. 300 g hveiti 1 tsk. salt 1 msk. sykur 2 tsk. lyftiduft 2 egg 4 dl mjólk 2 msk. smjör matarolía Sigtið hveiti, salt, sykur og lyfti- duft í skál og blandið. Hrærið eggin saman við mjólk- ina og setjið út í deigið. Bræðið smjör og hrærið saman við. Setjið olíu á pönnu og steikið kök- urnar í ca. 114 mínútu á hvorri hlið eða þar til þær eru orðnar þykkar og ljósbrúnar. Passið bara að deigiö renni ekki saman á pönnunni. Viðmið er að 3-4 msk. af deigi fari í hverja köku. Haldið kökunum heitum í ofni á meðan steikingin klárast. Að þvi loknu skal smyrja þær með smjöri eða sírópi og bera fram með þurrsteiktu beikoni. Kaloríur eru þónokkrar í þessum rétti en prófið endilega. Þetta er meiri háttar gott saman. matgæðingur vikunnar r Asbjörn Sigfússon læknir: Marineringin er aðalmálið - ekki nota skyrhræring eða hamsatólg, segir matgæðingurinn „Ég veit ekki hvaðan uppskriftin er komin. Kveikjan er grillað svínarif sem ég keypti mér í ein- hverju skyndibitatjaldi á Grá- bræðratorginu í Kaupmannahöfn fyr- ir u.þ.b. 25 árum. Fljótlega fór ég að þreifa mig áfram við að leita að sömu áhrifum," segir matgæðingur vik- unnar, Ásbjöm Sigfússon læknir. Ásbjöm segist hafa fengið hjálp og hugmyndir úr ýmsum matreiðslu- bókum sem hann les þegar hann er kominn upp í á kvöldin. Hann seg- ir mar- inering- arlöginn vera aðal- málið. Hann verði að kryddlegi sem kjöt- ið er penslað með meðan á steikingu stendur og síðan að sósu sem borin er fram með matnum. „Þetta er hálfgerð naglasúpa því að í hana þarf aðeins síróp og soju og síðan eins og í sögunni um naglasúp- una. Hafa skal það sem hendi er næst en hugsa ekki um það sem ekki fæst. Mér liggur við að segja að nota megi allt nema skyrhræring og hamsatólg." Eldunaraðferðin hentar einstak- lega vel á svínarif, svínahnakka og kjúklingaleggi og -vængi. Lamba- kótelettur og þunnar lambafram- hryggjarsneiðar eru líka gjaldgengar. Núna er það svínahnakki sem verður fyrir barðinu á sósunni. Uppskriftin er fyrir fjóra og í hana þarf 1 kg bein- lausan svínahnakka í litlum bitum (sneið skipt í þrennt) t.d. safi úr 1 appelsínu börkur af !4 appelsínu safi úr 1 sítrónu 2 tsk. svartur pipar 1 msk. af góðu sinnepi 2-3 pressaðir hvítlauksgeirar 3 cm stubbur af smátt saxaðri engi ferrót 2 msk. edik í þetta má líka t.d. prófa: 1-2 msk. tómatsósa skvetta Tabasco sósa ananassafi kurlaður ananas skvetta sesamolía skvetta af sérríi smátt saxaöur laukur Ef notaður er kjúklingur er gott að setja kúfaða msk. karrí Frábær í kart- öfluna Öllu blandað vel saman og hellt yfir kjötið. Þannig er þetta svo látið standa í ísskáp í 5 tii / 24 ' orðinn að hnausþykkri sósu. Áður en hún er orðin mjög þykk er hálfur bolli lagður til hliðar. Innihaldið er síðan notað til þess að pensla kjötið á meðan það er grillað. Kjötið er síðan grillað þar til það er orðið vel dökkt, án þess þó að kol- ast. Snúa þarf bitunum oft og pensla með sósunni. Borið fram með bökuð- um kartöflum (sósan er t.d. frábær í kartöfluna), grænu salati og t.d. grill- uðum púrrulauk sem pensla má með sömu sósu. Ásbjöm skorar á æskuvin sinn, Kristin J. Albertsson jarðfræðing, þann sem kynnti honum fyrst ind- verska matargerðarlist og Tabasco sósu, til þess að verða matgæðingur næstu viku. Marinering 2 dl síróp 114 dl sojasósa tíma. Þá er kjötið tekið upp úr og látið drjúpa vel af því. Lögurinn er siðan soðinn nið- ur í litlum potti þangað til hann er sitrónu kóriander difl y2 dl ólífuolía Skerið laxinn í þunnar sneiðar. Ferskur lax er miklu betri í þetta en frystur. Þrifið salatblöðin og þurrkið vel að því loknu. Skerið þau í strimla og leggið á fat. Setjið laxasneiðamar yfir og kryddið með salti og pipar eftir smekk. Hellið sítrónusafanum yfir ásamt kóríand- er-kryddi og dilli. Loks er að láta ólífuolíuna drjúpa yfir réttinn. Ber- ið fram með ristuðu brauði. Alsírskur lambapottráttur með íslensku ívafi Þeir borða líka lambakjöt í Alsír og fróðlegt verður að prófa íslenska lambið í þessum pottrétti, sem gild- ir fyrir tvo: 300 g lambalundir 75 g belgbaunir 1 laukur 4 tómatar (mega vera úr dós) 1-2 kúrbítar 100 g grænar baunir 2 bökunarkartöflur 2 msk. matarolía saöran-krydd 2 hvítlauksgeirar 1 lítri grænmetisseyði 1 poki steinselja sítrónupipar kóríander mynta vermicelli-pasta salt og pipar e. smekk Látið belgbaunirnar liggja í bleyti í 12 tíma. Skerið kjötið í litla bita og hakkið laukinn. Skerið tómatana í litla báta. Þerrið tómatana ef þið notið þá niður- soðna úr dós. Steikið kjötið í djúpri pönnu ásamt lauk og saffran. Bætið tómötunum út í ásamt pressuðum hvítlauk, smátt skorinni steinselju og sítrónupipar. Hellið næst grænmetis- seyði yfir og látið suð- una koma upp. Þerr- ið belg- baunimar og setjið á pönnuna. Látið þetta malla í klukku- tíma, hrærið reglulega. Næst er að skera niður kúrbíta og hráar kartöflur í litla teninga og setja saman við réttinn ásamt grænu baununum. Eldið í 20 mínút- ur í viöbót. Þá er að klippa niður vermicelli- pastalengjur og sjóða þær samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Að því loknu er þeim bætt út í ásamt kóríander- og myntu- kryddi. Bætið við salti og pipar eft- ir smekk. Berið fram með einhverju heimabökuðu grófu brauði. Hrísgrjón gætu einnig verið góð fyrir þá sem það vilja. Verði ykkur að góðu!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.