Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Side 11
J-
U'V' LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997
sviðsljós
Þótt feðginin brosi á þessari mynd þá var löngum stirt á milli þeirra sökum
ástamála Stefaníu og brösótts einkalífs hennar. Stefanía er á lausu eftir aö
hún skildi viö síöasta manninn eftir aö hann sást á mynd meö berbrjósta
fyrirsætu. Símamynd Reuter
1982. Þá tók ég á móti þeim á Bessa-
stöðum. Síöan þá hef ég fylgst vel með
fjölskyldunni. Þegar við Albert hitt-
umst þá hittumst við sem ágætir vin-
ir,“ sagði Vigdís.
Hún sagði sorglegt til þess að vita
hve óhamingjan hefur dunið á þeim.
Fjölskyldan væri skiljanlega merkt af
því. Þeir feðgar hefðu hins vegar stað-
ið sig mjög vel í að halda uppi orðstír
Mónakós.
„Albert hefur staðist þessar raunir
með sóma. Hann er afskaplega vand-
aður og góður drengur. Hann er mjög
vel að sér um menningu íslands. Veit
vel að hverju hann gengur hér og er
góður gestur,“ sagöi Vigdís og saknaði
þess að fá ekki að hitta harrn í Reykja-
vík í næstu viku þar sem hún væri
stödd í Danmörku.
A Islandi 1982
Annar maður sem þekkir vel til
Mónakó-fjölskyldunnar er dr. Sturla
Friðriksson. Hann tók á móti henni
við heimsóknina 1982 og var leiðsögu-
maður hennar austur yfir fjali ásamt
konu sinni, Sigrúnu Laxdal. Mónakó-
fjölskyldan var þá að koma á skipi
sínu frá Svalbarða og víðar um norð-
urslóð.
„Ég átti sæti í svokallaðri Heim-
skautanefnd sem hafði aðsetur í
Mónakó undir vemdarvæng Rainiers
fúrsta. Formaður neöidarinnar, Louis
Rey, var
^ með í
for en hann skrifaði eitt sinn bók um
Grænland og heimskautarannsóknir
sem Sigrún kona mín þýddi. Vegna
þessa kunningsskapar meðal annars
vorum við beðin aö taka á móti
þeim,“ sagði Sturla við DV.
Byrjað var á móttöku á Bessastöð-
um þar sem Vigdís tók á móti fjöl-
skyldunni í kvöldverð. Daginn eftir
var farið með fjölskylduna í laxveiði i
Laxá í Kjós, Árbæjarsafnið var skoð-
að, farið austur á Þingvelli og að
Geysi og Gulifossi. Þá var máltíð, sem
Sigrún útbjó, snædd við helli á
Lyngdalsheiði. Sturla minnist þess
hvað Karólinu hafi þótt kartöflusalat
Sigrúnar gott og spurt móður sína,
Grace, af hverju þau fengju aldrei
svona heima!
Eftir heimsóknina hafa Sturla og
Sigrún haldið ágætu sambandi við
flölskylduna. Fá t.d. jólakort á hverju
ári frá þeim feðgum, Rainier og Al-
bert.
Aðspurður um Albert sagði Sturla
að hann væri „ákaflega geðþekkur og
hæverskur piltur". Þau Karólína
hefðu verið einstaklega þægileg í
heimsókninni.
„Albert var hressilegur og áhuga-
samur um allt sem þau fengu að skoða
og sjá. Sérstaklega fannst þeim gaman
að skoða Árbæjarsafhið og allt annað
þjóðlegt. Þau Karólína höfðu líka sér-
staklega gaman af hestunum sem þau
sáu,“ sagði Sturla. -bjb
11
Þrátt fyrir að íslendingar slái hvert bókunarmetið á fætur öðru
þessa dagana í ferðir til sólarstranda, þá eigum við þó enn
laus sæti í örfáar ferðir til Portúgals og Mallorca í sumar.
Bókunarstaða 31. maí
Portúgal
Mallorca
4. júní uppselt 4. júní uppselt/biðlisti
11. júní 6 sæti laus 11. júní uppselt
18. júní 9 sæti laus 18. júní uppselt/biðlisti
25. júní uppselt/biðlisti 25. júní uppselt/biðlisti
2. júlí 10 sæti laus 2. júlí 13 sæti laus
9. júlí uppselt . _9. júlí 9 sæti laus
16. júlí 17 sæti laus 16. júlí uppselt
30. júlí 16 sæti laus 30. júlí 23 sæti laus
6. ágúst 20 sæti laus 6. ágúst uppselt/biðlisti
13. ágúst uppselt/biðlisti 13. ágúst uppselt
^ 20. ágúst örfá sæti laus 20. ágúst uppselt
* laus sæti í aðrar ferðir
Ætlar
jjwUwvlUwlul I wll I I I I IV*'
rigningu um mest allt land
hiti 4-11 stig,
hlýjast austanlands“
ÆHRVAL-ÚTSÝN
Lágmúla 4: sítni 569 9300, grœnt númer: 800 6300,
Hafnarfirði: strni 565 2366; Keflavík: sími 421 1353,
Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: simi 462 5000
- og bjá umboðsmönnum um land allt.