Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 DV dagur í lífí _ÍL-íw:__________ Dagur í lífi Víðis Reynissonar, talsmanns Everestfaranna: Þvílíkir iaxlar! „Ég vaknaði tæplega 7 að morgni 20. maí eftir svefiilitla nótt og átti langan „dag í lífi“ fram undan. Strákamir höföu lagt af stað á Everest kvöldið áður og orð- ið að snúa við eftir 2 tíma göngu. Stressið var að ná tökum á mér. Skyldi nótt í 8.000 metrum verða of erfið og þeir verða að fara niður? Skyldi veðrið vera slæmt? Svona liðu fyrstu mínútumar. Ég náði loks í Hörð í gmnnbúðum og hann sagði að strákamir hefðu náð að sofa eitthvað, væra úti á rölti og stefndu á aðra tilraun um kvöldið ef veður leyfði. Ég skutlaði kon- unni í vinrnma og stráknum á leik- skólann. Síðan lá leiðin niður á Snorrabraut þar sem „klifurvakt- in“ hafði aðstöðu. Sváfu yfir sig Morgunninn leið við að svara tölvupósti, miðla nýjustu upplýs- ingum til fjölmiðla og að afla upp- lýsinga um veður og veðurútlit i kringum Everest. Er það ekki makalaust þetta Intemet. Þar kemst maöur inn á erlendar veður- stofur og getur fengið veðurspá fyrir hinminhátt fjall langt úti í heimi. Veðurspá fyrir þotur reynd- ist nákvæmust. Síminn hringdi svo til látlaust; ættingjar, vinir og áhugasamir ís- lendingar vildu fá nýjustu fréttir. Tíminn frá 16-17 leið ótrúlega hægt, ekkert heyrðist frá strákun- um uppi í fjalli og Hörður sagði í gríni að þeir hlytu að hafa sofið yfir sig en ekki fannst okkur það líklegt þar sem flestir sofa lítið eða ekkert í þessari hæð. Rétt eftir kl. 17 kom kallið. Þeir höfðu þá sofið lengur en þeir ætluðu eftir allt saman. Islenskt hæðarmet Þrátt fyrir vont veður, 10 vind- stig og 40° frost, var ákveðið að leggja í hann á ný. Babu sagði að veðrið myndi skána og hver treyst- ir ekki manni sem er aö fara í 7. sinn á toppinn? Ekkert heyrðist frá strákunum fyrr en kl. 20.15, þá vora þeir komnir í 8.250 metra hæð. Fyrsta takmarkinu vsir náð, nýtt, íslenskt hæðarmet. Um kl. 23 vora þeir í 8.600 metr- um og sögðu að þetta væri mjög erfítt. Það tók verulega á taugam- ar að bíða eftir upplýsingum en menn hafa víst um eitthvað annað að hugsa en að spjalla í talstöð þeg- ar klifrað er í yfir 8.000 metram og veðri eins og áður var lýst. Um þetta leyti fór veðrið að skána. Vindinn lægði og skyggnið batn- aði. Um það bil 70 manns voru á vaktinni á þessum tíma og mikil stemning. þeir væru komnir af stað aftur og vel gengi. Um kl. 6 sást til þeirra frá 4. búðum. Þeir voru þá rétt neðan við Hillary-þrepið og fóru hratt yfir. Kl. 6.30 köll- Tíminn orðinn nOUITIUr VíðirReynissonvaríbeinusambandivi&Everestnóttinaörlagaríkuþegartindinumvarnáð. DV-mynd S Hálfri klukkustund eftir mið- nætti voru þeir komnir í 8.750 metra hæö. Spennan varð æ meiri. Um kl. 2 sagði Bjöm að þeir yrðu að bíða á Suðurtindi meðan Babu sneri við til að ná í súrefni sem átti að bíða þar. Ekki var talið óhætt að halda áfram fyrr en súr- efnið sem nota átti á niðurleiðinni væri komið þangað. Þetta er kannski allt í lagi hugs- aði maður. Þeir hvíla sig þarna smástund og halda svo áfram. Þeg- ar þeir höfðu beðið í rúma 2 tíma var svartsýnin farin að grafa um sig. Tíminn var orðinn naumur og veðrið farið að versna aftur. Um kl. 4.15 tilkynntu strákamir að uðu þeir í Hörð og sögðu að allir væru komnir yfir þrepið og siðasta brekkan væri fram undan. Hún er um 300 metra löng og hækkunin um 40 metrar. Fyrstir upp Það var svo laust eftir kl. 7 að Björn kallaði: „Reykur Hörður, Reykur Björn tilkynnir að við komumst ekki hærra.“ Toppnum var náð. Það sem fáir höfðu trúað hafði gerst. Þeir komust allir á toppinn og voru fyrstir í heilan mánuð til að komast upp, þvílíkir jaxlar. Nú var það eftir sem kannski er erfiðast, að komast niöur. Niður- leiðin er hættuleg því að þá hafa menn ekki sömu einbeitingu og á uppleiðinni. Þreytan leggst á menn og það er alltaf erfitt að ganga nið- ur brattar brekkur. Það var mikill léttir þegar Hörð- ur tengdi okkur við strákana þeg- ar þeir voru komnir í efstu búðir og við gátum spjallað aðeins við þá. Þama hélt ég að dagurinn væri búinn enda klukkan að ganga þrjú. Því var ekki að heilsa. Fjöl- miðlarnir vildu fá viðtöl, bæði við mig og eiginkonur strákanna. Þetta gekk allt vel og þá var bara að koma sér heim, fara í sturtu og reyna að ná þreytukrumpunum af andlitinu áður en ég mætti til Jóns Ársæls í síðasta viðtal dags- ins. Það var ekki laust við að sú hugsun leitaði á mig, fyrst ég væri þreyttur eftir langa vöku inni og niðri við sjávarmál: Hvernig ætli strákarnir séu eftir lengri vöku, tvær nætur í yfir 8.000 metrum og að hafa klifið hæsta fjall í heimi í 10 vindstigum og 40 stiga frosti? Það var þreyttur pabbi sem reyndi að útskýra fyrir 4 ára syni sínum hvað væri merkilegt við þetta Everest áður en þeir sofnuð báðir og tæplega 40 stunda „degi“ í lífi mínu var lokið.“ Finnur þú fimm breytingar? 413 Hvernig dettur þér í hug, elskan mín, að segja að ég hafi fengiö mér of mikiö ne&an í því? Nafn: Heimili: Vinningshafar fyrir fjögurhundruðustu og elleftu getraun reyndust vera: Þorbjörg Friðriksdóttir, Jónas Elíasson, Hólagötu 4, Safamýri 11, 245 Sandgerði. 108 Reykjavík. Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum veriö breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél frá Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti 3.995 kr. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli- brisúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningarnir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 413 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.