Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Side 22
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 22 fstæð sakamál ■ft Maðurinn með bijóstsykurinn „Flýtið ykkur. Eg var að drepa mann!“ Þessi orð sagði ungleg rödd í sím£mn, þegar varðstjóri á lög- reglustöð í Houston í Texas í Banda- ríkjunum svaraði árla dags í ágúst- mánuði. Ungi maðurinn sem hringdi kvaðst heita Wayne Henley og vera i húsi við Lamarstræti 2020. Lögreglubíll var þegar sendur á vettvang, en þegar hann kom að húsinu stóðu þrjú ungmenni fyrir framan það, tveir drengir og ein stúlka. Annar drengjanna rétti fram skammbyssu og sagðist hafa skotið vin sinn, Dean Corll. Lögreglumennirnir gengu inn í húsið og komu þar að líki sterk- byggðs manns á grúfu á gólfinu. Á bakinu og hnakkanum voru sex skotsár. Frásögn piltanna Ungu mennirnir tveir sem færðir voru á lögreglustöðina þennan morgun voru Elmer Wayne Henley, átján ára, og Timothy Kerley, fimmtán ára. Stúlkan hét Rhonda Williams og var hún jafnaldri Ker- leys. Saga þeirra var á þá leið að þau hefðu komið heim til Corlls klukk- an tvö um nóttina til að þefa af þynni. Þau sögðu Dean Corll, sem var þrjátíu og þriggja ára, hafa ver- ið homma. Hann heföi reiðst Henley þegar hann sá að hann kom ekki bara með vin sinn, heldur stúlku líka. Þegar þau þrjú hefðu „sniffað“ þar til þau misstu meðvitund hefði Corll bundið hendur þeirra og fæt- ur. Henley sagði að þegar hann hefði vaknað til meðvitundar hefði Corll staðið yfir sér með skammbyssu í hendinni og hótað að drepa sig. Sagðist hann hafa beðið hann að þyrma llfi sínu og hefði Corll þá sagst myndu gera það ef hann dæpi Timothy fyrir sig, en hann hefði Corll þá verið búinn að binda við planka sem hann hefði reist upp við vegg. Hefði verið greinilegt að hann hefði haft i hyggju að vinna honum tjón með hnífi. Stúlkan hefði nú ver- ið komin til meðvitundar, heyrt hvað til umræðu var og farið að æpa. Þegar Corll hefði svo snúið baki við sér sagðist Henley hafa gripið skammbyssuna og skotið hann í bakið. Vantrúaðir Lögreglumennirnir hlustuðu þög- ulir á frásögn Henleys. Er hann hafði sagt sína sögu sagðist Rhonda Williams geta staðfest síðasta hluta hennar. Timothy Kerley sagðist hins vegar ekki hafa verið með með- vitund og þvi ekki vitað hvað gerst hefði áður en Henley skaut Corll. Sagan þótti ótrúleg. Dean Corll hafði haft á sér orð fyrir að vera snyrtilegur og kyrrlátur maður. Hann var rafmagnsverkfræðingur og sagður stunda vinnu sína af sam- viskusemi. Þá lá ekkert fyrir um að hann væri hommi. Þvert á móti hafði hann þótt karlmannslegur og rannsókn á fortíð hans leiddi í ljós að hann hafði verið í hernum, þar sem hann hafði þótt standa sig vel þann tíma sem hann var í honum. í hverfmu sem Corll hafði búið hafð hann verið kallaður „maður- inn með brjóstsykurinn" en ástæð- an var sú að hann gekk oft um bros- andi og gaf bömum stóra poka af brjóstsykri, en þó án þess að gerast nærgöngull við þau. Af þessum ástæðum var því vart að undra þótt rannsóknarlögreglu- mennirnir sem komu að málinu Dean Corll. ættu í byrjun erfitt með að gera sér grein fyrir því að þeir væm komnir nærri því að leysa gátu sem þeir höfðu glímt við í nærri þrjú ár. Á þeim tíma höfðu nærri þrjátíu pilt- ar, á aldrinum frá þrettán til átján ára, horfið sporlaust í Houston. Margendurtekin saga Hvörfin höfðu orðið tilefni margra eftirgrennslana en þótt for- eldrum sumra drengjanna hefði ver- ið sagt að hafa ekki of miklar áhyggjur af því þeir hefðu að öllum líkindum strokið að heiman, hafði sá grunur þó grafið um sig meðal margra að fjöldamorðingi gengi laus. Elmer Wayne Henley hélt fast við skýringu sína á því sem gerst hefði á heimili Corlls nóttina umræddu, en það fór þó ekki fram hjá lögreglu- mönnunum að eftir því sem hann sagði oftar frá atburðunum gætti fleiri frávika frá upphaflegu sög- unni þótt ekki væru þau þó mikil. Vaxandi líkur þóttu því á því að annað hvort segði hann ekki satt eða leyndi hluta sannleikans. Loks féll Henley saman og sagði að hann og annar piltur, David Owen Brooks, hefðu undanfarin þrjú ár séð Dean Corll fyrir piltum. Corll hefði misþyrmt mörgum þeirra og myrt suma. Henley sagðist ekki viss um hve marga Corll hefði myrt, en þeir væru þó ekki færri en þrjátíu og einn. Þegar lögreglan handtók Brooks staðfesti hann að hafa, ásamt Henley, útvegað Corll drengi og hefði hann greitt þeim 50 dali fyrir hvem. Auk þess hefði hann gefið þeim Henley bíl. Líkfundirnir Yngstu drengjunum sem lokkaðir voru til Corlls var boðinn brjóstsyk- ur, en þeim eldri áfengi eða fikni- efni. Brooks viðurkenndi að hann hefði vitað að nokkrir drengjanna hefðu verið myrtir, en hann sagðist aldrei hafa tekið þátt í neinum morðanna. Það hefði Henley aftur á móti gert, samkvæmt skipun Corlls. Segja má að nú hafi hárin verið farin að rísa á höfðum rannsóknar- lögreglumannanna, því frásögn drengjanna var allt annað en hugn- anleg. Og þann 9. ágúst 1973 fór El- mer Wayne Henley með hópi lög- reglumanna að bátahúsi við litla höfn í suðvesturhluta Houston. Hann sagði að Corll hefði haft það á leigu um árabil og þar hefði hann grafið mörg líkanna en morðin hefði hann framið heima hjá sér. Bátahúsið stóð eitt sér og nú var farið að grafa upp gólfið. Ekki hafði uppgröfturinn staðið lengi þegar í Ijós kom poki og nokkru neðar fannst svo annar. Er dagur var að kvöldi kominn höfðu sautján lík fundist. En leitin var ekki á enda. Daginn eftir fóru þeir Henley og Brooks með lög- reglumönnum að Raybum-vatni, þar sem þeir bentu á enn einn greftrun- arstaðinn. Þar fundust fjögur lik. Og á ströndinni við High-eyju fundust sex til viðbótar. Alls höfðu þá fundist tuttugu og sjö lik. Fréttin um líkfundina vakti mikla athygli. Hún leiddi til þess að fleiri vitni fóru að gefa sig fram. Piltar sem Corrll hafði greitt fyrir kynmök, en siðan leyft að fara, komu nú á fund lögreglunnar. Fram kom að í nokkrum tilvikum hafði hann bundið þá við planka og látið sem hann ætlaði að vinna þeim tjón, en svo hefði hann sleppt þeim og aðeins sagst hafa ætlað að hræða þá. Fyrstu fimm morðin mun Corll hafa fram einn. Eftir það voru þeir Henley og Brooks viðstaddir en Corll lét þá taka þátt í morðunum með sér til að tryggja þögn þeirra. Náði ekki tökum á lífinu Dean Corll fæddist á aðfangadags- kvöld 1939 í Indiana-ríki. Foreldrar hans skildu þegar hann var þriggja ára og ásamt yngri bróður sínum, Stanley, ólst hann upp hjá móður sinni sem dekraði við hann. Hann varð feiminn, ekki beint sterklegur að sjá og varð oft fyrir aðkasti í skólanum. Móðirin reyndi að bæta hag sinn með því að fara að búa til brjóstsyk- ur, og loks tókst henni að koma á fót lítilli brjóstsykursgerð. Corll vann hjá móður sinni en gekk í fram- haldsskóla og fór síðar í háskóla. Hann átti fáa ef nokkra vini, og löngum reyndi hann að kaupa sér vinsældir hjá skólafélögunum með því að gefa þeim brjóstsykur. í há- skóla átti hann sínar bestu stundir. Hann var góður tónlistarmaður og lék á básúnu í stórri hljósmveit. í skólanum kynntist hann nokkrum stúlkum en tókst aldrei að stofna til varanlegra kynna. Fannst sumum sem hann hefði ekki tekið út fullan þroska. Þegar Corll hætti í skóla gekk hann í herinn. Þar þótti hann standa sig vel en var sendur heim eftir tíu mánuði þar eð í ljós kom að hann var með smávægilegan hjarta- galla. En það mun hafa verið í hem- um sem hann gerði sér Ijóst að hann var hommi. Þegar Corll hafði framið tuttugu og sjö morð mun sálarlíf hans hafa verið í upplausn. Þá var svo komið Henley og Brooks. að hann krafðist þess af Henley og Brooks að þeir færðu sér „dreng á dag“ og er ljóst að þá hefur hann verið búinn að missa alla stjórn á drápsæðinu. Og þar kom að Henley gerði sér ljóst að það væri ekki langt í að hann yrði fórnardýr Corlls. Þess vegna skaut hann hann til bana að morgni 7. ágúst. Meðsektardómar Rannsókn málsins var umfangs- mikil, eins og eðlilegt er þegar um svo mörg morð er að ræða. Síðasti hluti hennar beindist að því að upp- lýsa samsekt þeirra Henleys og Brooks. Að lokum þótti ljóst að Henley hefði tekið þátt í að minnsta kosti sex morðanna, en Brooks í einu af um það bil átján sem hann hafði orðið vitni að. í rétti skýrði Henley frá sjálfum morðunum en fékkst ekki til að lýsa misþyrmingunum sem voru undan- fari þeirra. Eins var því farið um Brooks. Kviðdómendur, sem og aðrir sem viðstaddir voru réttarhöldin, hlust- uðu þögulir á það sem fram kom. Litlum vörnum varð við komið fyr- ir hönd sakborninganna, og kvið- dómendur voru ekki í vafa um að það sem fram kom kallaði á sektar- yfirlýsingu. Dómarinn dæmdi Elmer Wayne Henley í einn þyngsta dóm sem sög- ur fara af, eða í alls 594 ára fangelsi fyrir þátt sinn í morðunum sex. Hann var hins vegar ekki dæmdur fyrir morðið á Dean Corll, þar sem kviðdómendur komust að þeirri niðurstöðu að þar hefði verið um að ræða „réttlætanlegt dráp“. David Brooks fékk lífstíðardóm fyrir sinn þátt. Henley (í hringnum) í skólahljómsveitinni. Dean Corll í æsku, til vinstri, með móöur sinni og bróöur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.