Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Síða 23
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 fféttir 23 Heimsmeistaramótið í handknattleik í Kumamoto í Japan: Miklir snillingar Geir Sveinsson og Róbert Julían Duranona fagna góðum árangri á HM í Japan. Báðir hafa þeir leikiö vel á HM og ísiendingar allir geta verið stoltir af landsliði okkar í handknattleik og ekki í fyrsta skipti. DV-mynd ÞÖK íslenska landsliðið 1 handknatt- leik hefur, þegar þetta er skrifað, ekki lokið leik sinum gegn liði Eg- ypta um 5.-6. sætið á HM i Japan. Hvemig sem sá leikur hefur farið má ljóst vera að árangur landsliðs- ins á HM er frábær. í einu orði sagt stórkostlegur. Og það er margt sem gerir þátttöku íslendinga merkilega á þessu heimsmeistaramóti. Undirbúningur liðsins fyrir mót- ið var í meðallagi langur. Flestir þjálfarar hefðu viljað fá lengri tíma með sinu liði fyrir stórmót sem HM en á því var ekki kostur að þessu sinni. í stað þess að kvarta og kveina sagði Þorbjörn Jensson að þetta væri tíminn og þetta yrði bara að duga. Æfingaleikirnir yrðu fáir fyr- ir mótið en því yrði bara að taka og reyna að gera gott úr hlutunum. Það hefur Þorbimi og landsliðinu öllu svo sannarlega tekist. Árangur- inn er framar vonum og annað- hvort sá besti frá upphafi, hafi ís- lenska liðið sigrað það egypska í morgun, eða jafn hinum besta fram að þessu. En hvað er það sem er öðmvísi nú en oft áður? Síðast náðu íslend- ingar 6. sætinu á HM í Sviss árið 1986. íslenska liðið var þá undir stjóm Bogdans Kowalczyks og mik- ið vatn hefur til sjávar runnið sið- an. Leikgleðin innan landsliðshóps- ins er ótrúleg. Það hafa allir mikið yndi af því sem þeir eru að gera og samstaðan og samheldnin er ein- stök. Ljóst er að léttara er yfir mannskapnum nú undir stjóm Þor- bjöms en verið hefur. Allt hefur þetta mikið að segja enda ekki hægt að píska handknattleiksmenn áfram með jámaga til lengdar frekar en aðra. Baráttuandinn er ódrepandi. Oft hefur það gerst að íslenskt landslið hefur gefist upp þegar á móti hefur Innlent fréttaljós á laugardegi Stefán Kristjánsson blásið en því var ekki að heilsa í Kumamoto. Þegar illa gekk var spýtt í lófana og allt gefið sem til var. Leikurinn gegn Ungverjum hefur verið gagnrýndur af mörgum og vissulega hafa okkar menn leikið betur á ferlinum. Þrátt fyrir að ná ekki að sýna ailar sínar bestu hlið- ar tapaðist leikurinn aðeins með einu marki sem segir mér ekkert annað en að ísland á í dag betra landslið en Ungverjar. Það þarf hins vegar að sanna í landsleikjum og sérstaklega á stórmótum. Það var þó gert nokkuð erfitt fyrir íslenska liðið. í fyrsta lagi höfðu allar lukku- dísirnar með tölu misst af leiknum og vora víðs fjarri. Heppni var ekki til í þessum leik. Dómaramir frá Frakklandi voru okkar mönnum mjög erfiðir og hægt að telja alvar- legustu mistök þeirra til nokkurra marka. Þetta eru vitanlega stór at- riði en samt sem áður tapaðist leik- urinn ekki nema með einu marki. En hvemig í fjandanum stendur á því að á hverju stórmótinu á fætur öðru eru okkar menn hundeltir af hlutdrægum dómuram frá Frakk- landi? Eru menn búnir að gleyma leik íslendinga og Vestur Þjóðverja í B-keppninni í Frakklandi 1989? IHF-mafían hafði þá komið sínum skilaboðum áleiðis og undir lok leiksins voru leikmenn okkar tíndir af leikvelli hver af öðrum. Snilli okkar manna varð hins vegar hlut- drægninni og sóðaskapnum yfir- sterkari og frönsku dómurunum varð ekki að ósk sinni. Sigur fyrir Þorbjörn Jensson Að öllum ólöstuðum á Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari mest hrós skilið fyrir frammistöðuna á HM. Undir hans stjórn hefur íslenska liðið tekið stakkaskiptum. Liðið hefur náð 5.-6. sæti á HM sem er ár- angur sem engin önnur boltaíþrótt getur státað af. Reyndar er svo óra- langt í næstu greinar, þvi miður, að þeir sem þær stunda sjá ekki hand- boltasnillingana okkar í kíki. Mest reyndi á Þorbjöm Jensson eftir tapið gegn Ungverjum. Þá gekkst Þorbjörn undir erfítt próf. Gat hann komið okkar liði aftur í gang fyrir leikinn gegn Spáni? Svar- ið vita allir og þáttur Þorbjöms í sigrinum á Spánverjum var stærri en margir gerðu sér grein fyrir. Þeg- ar rífa þarf menn upp eftir sorgleg úrslit er það fyrst og fremst verk þjálfarans. Menn sáu síðan hvernig þjálfara Spánverja gekk að leysa prófið. Við getum verið stolt af Þor- birni ekki síður en leikmönnunum. Baráttan ber hann áfram en þó ekki ofurliði. Hann á allt traust leik- manna. Innáskiptingar hans eru snjallar, til dæmis þegar hann smellti Guðmundi í markið gegn Norðmönnum, og hann virðist hafa sérstaklega gott auga fyrir leiknum. Árangur hans með hin og þessi lið í gegnum tíðina sannar hversu snjall hann er og sem betur fer gekk HSÍ frá nýjum samningi við hann fyrir HM. í tengslum við HM má ekki gleyma því að Þorbjörn og félagar fengu dygga aðstoð frá fjölmiðlum. Liðið fékk algjört næði á undirbún- ingstímanum þrátt fyrir misjafnt gengi á æfingamótum. Reyndir blaðamenn hafa hins vegar lært að úrslit í æflngaleikjum einhverjum vikum fyrir stórmót segja ekkert, nákvæmlega ekkert. Töpuðum við ekki fyrir Spánverjum skömmu fyr- ir HM með níu marka mun? Heimsmeistaramótið í Kumamoto verður lengi í minnum haft. Þó ekki væri nema vegna síðari hálfleiksins gegn Spánverjum sem var einhver mesta flugeldasýning sem íslenskir íþróttamenn hafa boðið upp á. Eftir niðurstöðuna á HM þurfa allir landsmenn að taka höndum saman, ráðamenn sem aðrir, og styrkja HSÍ, koma sambandinu úr óþolandi skuldafeni. Forysta sambandsins og landsliðsmennimir hafa sýnt að þessir aðilar eiga það svo sannar- lega skilið. -SK * Komdumeð þ mynd af hús~ inu þínu, og víð sýnum þér mis- munandí litasam setningar í nýju tölvuforrítí. Opid til 21 öll kvöld Metré - Normaim ma.lirnmváA 4„ sðmi S53 Jííl JT JL H wm ; tpY u m pL Éjjk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.