Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Side 30
38 LAUGARDAGUR 31. MAI 1997 ^ m iO | iá DUBAI - djásnið í Mið-Austurlöndum Aldrei hefur farið eins vel um mig í flug- vél og í nýju Boeing 777 frá Emirates á leið frá London. Allt það besta sem flugeldhús getur fram- leitt var borið fram af fjölþjóölegu liði stima- mjúkra flugfreyja og rennt niður með ár- gangsvínum frá hestu vínlöndum heimsins. Til að stytta sér stund- ir var gott úrval kvik- mynda og vel valin klassísk tónlist í heyrnartækjum. Silf- urfuglinn leið eins og töfrateppi inn á flug- brautina í Dubai og innan stundar var komið á eitt fegursta hótel heimsins. Ferða- langurinn skimar í kringum sig eftir sjálf- um Aladdín því að þetta er töfrum líkast, rétt eins og allt væri það undan hans riíjum runnið. Svona hótel hefur liann hvergi séð áður. Anddyrið er risastórt og nær upp gegnum allar hæðir - atríum- byggt og með gler- hvolfi efst, þar sem ör- mjó skeifulaga rönd mánans skín í gegn, rétt eins og symból þessa framandi veru- leika í heimi 1001 næt- ur. Inni í þessu risa- anddyri standa tignar- legir döðlupálmar við gangstígana, gos- brunnar glóa í ljósa- dýrðinni og lindir og fossar hjala við gest- inn sem starir berg- numinn og trúir vart eigin augum. Hér hefst nýr þáttur í ferðar- eynslu liðinna ára og hann er lengi í vafa um hvort þetta sé draumur eða veruleiki í nýrri mynd. „Vertu velkominn til okkar, kæri herra, má ég fylgja þér til herbergis?" Stúlkan í móttökunni heldur á umslagi með lyklinum og bréfi frá hótel- stjóranum. „Við tökum þessa lyftu, farangur þinn kemur strax með annarri," segir hún að bragði og hneigir sig. „Við erum búin að skrá þig, þú þarft ekkert annað en skrifa nafnið þitt,“ segir hún og opnar mér dyr að fagurlega búnu herbergi með tvískiptu baði, þremur símum, útvarpi, sjónvarpi og barskáp. Á litlu borði stendur skál með ávöxt- um og drykkjarvatni og bréfspjald með heillaósk- um frá stjóm hótelsins. Hér verður gott að búa og taka strax á sig náð- ir því að morgundagurinn er fullur fyrirheita. Gesturinn lítur gimdaraugum á þetta rúm af að minnsta kosti tvöfaldri breidd og er innan skamms horfinn inn i veröld svefnsins. Glæsilegar núfíma- byggingar í mi&borg Dubai - Verslunarráð- i& og Se&labankinn. Alþjóðlegur staður í þjóðbraut Morguninn eftir kemur Ilona að sækja mig. Hún er fersk útlits, eins og vorvindur, og gustar dálítið af henni, klædd eftir nýjustu tísku, stutt- klippt og ber enga blæju fyrir andlitinu, eins og flestar innfæddar. Líkt og gerist með starfsfólk i hótelþjónustunni er hún aðflutt, grísk í aðra ætt- ina en þýsk í hina, og talar flrnrn heimstungur reiprennandi. „Ég dvaldist hér um tíma fyrir nokkrum áram og langaði alltaf hingað aftur. Þegar mér bauðst þetta sölustjórastarf beið ég ekki boðanna. Mér finnst hvergi jafngott að búa,“ sagði Ilona á skoð- unarferð okkar um hótelið. „Saknarðu þá einskis frá Evrópu?“ spyr ég. „Nei, ekki eins og er, og ég fæ mörg tækifæri til að ferðast í þessu starfi." Hótelið er nýopnað og allt á fleygiferð, það er ver- ið að opna veitingastaðina hvem af öðrum. Þeir verða alls sex talsins og bjóða það besta I matar- gerð frægustu matþjóða heimsins. Hér verða viðmiðun á ferðalögum, hversu góðu sem maður kann að hafa kynnst áður. Ég er kominn hingað í boði ferðamálayfirvalda á ferðakaupstefnu til að sjá það nýjasta. Við Ilona fáum okkur léttan morgunverð og síð- an ekur hún mér á kaupstefnuna í ráð- stefnumiðstöð Dubai. Hún vippar sér létt inn í Porsche-sportbíl með blæju og það ískrar í hjólbörðunum þegar bíllinn þýtur af stað. Ég hafði fengið barmmerkið sent í pósti og við gengum beint inn þar sem Ilona kynnir mig fyrir forkólfum ferðaþjónust- unnar i Dubai og fleiri ríkjum Sameinuðu furstadæmanna við Persaflóann. Það leynir sér ekki að Dubai er í tísku hjá ferðamönnum. Þeir koma margir um lang- an veg tfl að kaupa vandaðasta varning heimsins tollfrjálsan, til að leika golf, sigla og lifa ljúfu lífi við aðstæður sem era óþekktar annars staðar í heiminum. Af furstadæmunum sjö er Dubai það næst- stærsta og miðstöð blómlegra viðskipta og hagsældar. íbúamir eru um 700 þúsund og búa við mikla almenna velmegun þar sem öll menntun er ókeypis, eins og heilbrigðis- þjónustan, en skattar nær engir. Margt er um útlendinga og sumar starfs- greinar nær eingöngu mannaðar innfluttu vinnuafli, t.d. frá Indlandi, Malasíu og Fil- ippseyjum. Frá öndverðu mætast andstæð- ur í Dubai. Hirðingjar úr eyðimörkinni áttu skipti við fiskibændur og perlukafara á ströndinni og kaupmenn úr borginni og Kríkfjörður, sem skiptir Dubai í tvennt, hef- ur frá örófi alda verið bakgrannur viðskipta milli fomra menningarþjóða Mesópótamíu og þjóðanna i dölum Indlands. Viðskiptaveldi Á stuttum tíma hefur forneskjulegt þjóðfé- lag þróast í viðskiptaveldi á heimsvísu þar sem olíuauðurinn var notaður af skynsemi og fyrirhyggju til að byggja upp einstakt nú- tímaþjóðfelag með háþróuðu skipulagi þar sem allir lifa saman í sátt og samlyndi. Full- komið trúfrelsi ríkir í þessu í þessu múslímska samfélagi og kristnir menn eiga sínar kirkjur, mótmælendur og kaþólskir. Nú loksins skilst mér hvað mér hefur skjátl- ast með því að alhæfa um arabalöndin. Hér Golf er mikiö stundað í Dubai eins og a&rar útiíþróttir. Golfhúsið minnir á stíl óperuhússins í Sydney. Á Jumeira-ströndinni rís hvert glæsihótelið viö annaö þar sem New Chicago Beach Resort ber af ö&rum. snilldarkokkar frá Mið-Austurlöndum, Kína, Jap- an, Taílandi, Frakklandi og Ítalíu. Svo er stutt í helstu stórmarkaðina og ekta austurlenska souks með gulli, skartgripum og austurlenskum tepp- um. Hátískan í bland við fornar hefðir Óneitanlega er hótelið A1 Bustan í Dubai ný hittir maður fyrir eitthvert kurteisasta og gest- risnasta fólk sem um getur, yfirlætislaust en yfir- vegað og sjálfu sér samkvæmt, langt umfram það, sem almennt getur talist á Vesturlöndum. Festa og reglusemi blasir alls staðar við, enda era viðurlög hörð og glæpir og ofbeldi því nær óþekkt fyrirbæri. Ferðamaðurinn finnur alls staðar til þægilegrar öryggiskenndar, ólíkt því að ganga um Austurstræti Reykjavíkur á helgar- kvöldi. Dubaibúar sýna erlendum gestum full- komna tillitssemi hvað snertir hætti þeirra og klæðnað. Óvíða sjást aðrar eins glæsikerrar á götunum en efnahagsástand hvers lands blasir fyrst við gestinum í bflaflotanum. Trjáprýdd og blómum skrýdd breiðstræti setja svip á þessa framúrstefnuborg svo að nálægð eyðimerkurinn- ar gleymist. En glæstur byggingarstíllinn verður samt eftirminnflegastur, þetta ótrúlega sambland austrænna áhrifa við formsköpun Vesturlanda og samspil nýrra og gamalla forma í einhverju upp- höfnu samræmi sem fangar og gleður augað. -IGbr. Flugleiðum breytt Flugfélagið Cathay Pacific, sem aðsetur hefur I Hong Kong, | hefur breytt nokkrum flugleið- um sínum og tekur lengri tíma I að fljúga á milli áfangastaðanna | eftir breytingamar. Flugleiðun- um var breytt þannig að þotur fyrirtækisins munu aldrei eiga meira en einnar klukkustundar I flug til alþjóðlegs flugvallar (í stað 100 mínútna áður). Ástæð- an fyrir þessum breytingum era bilanir sem komið hafa upp í hreyflum á Airbus-þotum fé- lagsins og er þetta viðleitni fé- lagsins til að halda allri áhættu í lágmarki. Vandræði Verkfoll starfsmanna á und- anfömum vikum hjá flugfélag- inu Air France hafa valdið miklum truflunum á starfsemi félagsins. Aflýsa hefur þurft frá þriðjungi og allt upp í helmingi flugs hjá félaginu. Lítið þokar í samkomulagsátt hjá deiluaðil- um. Raflost Nefnd á Bandaríkjaþingi lagði til í síðustu viku að öll bandarísk flugfélög yrðu skyld- uð til að vera með raflostsbún- að sem hægt er að beita á far- þega sem láta ekki að stjóm. Nokkur flugfélög heims hafa þegar tekið upp þá reglu að hafa tækin um borð í vélum sínum, meðal annars Virgin Atlantic í Bretlandi og Qantas í Ástralíu. Næturlokanir Stjórnvöld í Afríkuríkinu Mósambík ihuga að loka alþjóð- lega flugvellinum sínum við bæinn Maputo á næturnar. Ástæðuna má rekja til þess að óprúttnir þjófar hafa verið iðn- ir við að stela brautarljósum að næturlagi og yfirvöldum hefúr ekkert gengið að hafa hendur í hári þeirra. g Hiti og mengun íbúum og dvalargestum í | Aþenu í Grikklandi er ráðlagt að halda sig innandyra þessa dagana vegna hitabylgju og I hægviðris sem magnað hefur mengun í borginni. Aþena er ein mengaðasta borg Evrópu og þetta vandamál kemur upp 1 margsinnis á hverju einasta sumri. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.