Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Síða 50
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997
58 Ifaikmyndir
Stjörnubíó - Blóð og vín:
Nicholson í slæmum málum
Ed Harris, sem er á myndinni ásamt Clint Eastwood, leikur lögregluforingja sem hefur meö morömáliö aö gera og
grunar aö vitni sé aö moröinu.
Ofurvald
Anaconda er ein af þessum dálítið gölluðu myndum sem ná
samt að heilla með ákveðnum einfaldleik eða jaihvel ein-
feldni. Hópur fólks rýkur inn í frumskóga Brasiliu til að gera
heimildamynd um hálfgoðsögulegan ættbálk en lendir i stað-
inn í klónum á hálfgoðsögulegri slöngu sem étur þau eitt af
öðru. Þama er komin hin kíassíska staða venjulegs fólks sem lendir í óvæntum ævintýr-
um. Á leiðinni upp Amazonfljótið rekst hópurinn á örlaganom sína, slönguveiðarann
Paul Sarone (Jon Voight), sem breytir stefhu leiðangursins til að eltast við stærstu
slöngu í heimi. Myndin fór iila af stað og leið um tima fyrir slæman leik, auk þess sem
fyrsta slangan sem kom á skjáinn var áberandi til heimilis í sæberspeis. En þegar öllum
pirrandi kynningum var komið af tók Anacondan hressilegan kipp og hnykkir sér inn í
þennan flna frumskógarhasar með tiiheyrandi illmennum og óvættum. Persónuuppsetn-
ingin kom þægilega á óvart þar sem svarti aðstoðarmaðurinn (Ice Cube) - sem yfirleitt
hefur „fyrsta fómarlamb" skrifað á ennið - veröur hetjan, en hvíti mannfræðingurinn
(Eric Stoltz) - sem leit út fyrir að verða dæmigerður „prófessor verður óvænt hetja“ - er
sleginn út og sefur í gegnum öll ósköpin. Aðalhetjan er samt sjálf heimildaþáttaleikstýr-
an (Jennifer Lopez), sem tekur við stjóminni þegar prófessorinn dettur út, og er bara
ansi sannfærandi sem eitilhörð skutla sem iætur ekki nokkrar siöngur aftra sér. Jon
Voight á góða spretti en ofgerir sér á köfium með tilgerð og stælum sem ekki eiga heima
í mynd sem gerir út á ákveðinn einfaldleika. Tæknimálin vom eitthvað gruggug á köfl-
um en í heild vega kostimir upp á móti göllunum og útkoman er hressileg og skemmti-
leg mynd sem heldur áhorfandanum fóngnum (!) í þessar klassísku 90 mínútur.
PS: Takið eftir atriði fyrir miðju þegar eitt fómarlambið sést eins og upphleypt utan á
maga slönguimar, minnir dálítið á draugana í Frighteners... sætt.
Leikstjóri: Luis Llosa. Handrit: Hans Bauer and Jim Cash & Jack Epps, Jr. Framleið-
endur: Verna Harrah, Leonard Rabinowitz og Carole Little. Tónlist: Randy Edelman.
Aðalleikarar: Jennifer Lopez, lce Cube, Jon Voicht, Eric Stoltz.
Úlfhildur Dagsdóttir
Clint Eastwood bregst ekki aðdá-
endum sínum frekar en fyrri daginn
i sinni nýjustu kvikmynd Ofurvald
(Absolute Power), sem hann ekki að-
eins leikur aðalhlutverkið í, heldur
leikstýrir og framleiðir og er sýnd í
Háskólabiói, Sam- bíóunum og Borg-
arbíói, Akureyri. í myndinni sem
fengið hefur góðar viðtökur leikur
hann Luther Whitney, meistaraþjóf
sem á að baki glæsilegan feril í
greininni. Whitney hefur samt haft
kynni af fangelsum og hefur engan
hug á að fara þangað aftur. Hann
skipuleggur því sitt síðasta rán hjá
einum ríkasta manni Bandarikjanna
og á það að gerast meðan enginn er
heima hjá honum. Eiginkona auð-
kýfmgsins er óvænt heima þegar
Luther brýst inn í húsið og verður
hann vitni að ástarleik sem endar
með því að eiginkonunni er banað.
Tilraun er gerð til að hylma yfir
glæpinn, en þeir sem það gera vita
ekki að það var vitni aö morðinu.
Clint Eastwood sem í mörg ár
hefur starfað jafnhliða sem leikari
og leikstjóri hefur ávallt mörg hand-
rit undir höndiun sem hann getur
valið úr og um Absolute Power seg-
ir hann að honum hafi verið sent
handritið til yfirlestrar og ekki
þurft nema einn lestur til að sann-
færast um að þetta væri kjörið fyrir
hann, en handritshöfundur er Willi-
am Goldman, einhver þekktasti og
besti handritshöfúndur í Hollywood.
Á hami að baki handrit að myndum
á borð við Butch Cassidy and the
Sundance Kid, All the President’s
Men, Marathon Man, Heat, Misery
og Chaplin.
Um persónuna Luther Whitney
segir Clint Eastwood: „Luther Whit-
ney er náungi sem er að reyna
koma lífi sínu í fastan jarðveg.
Hann verður vitni að morði og
verður þegar á líður sá sem grunur
beinist að. Þetta skeður á meðan
hann á yfir höfði sér rannsókn
vegna innbrots og er að vonast eftir
því að hann nái betra sambandi við
dóttur sína, en það vill svo til að
hún er saksóknari."
Vinnur hratt og vel
Fáir leikarar hafa náð
jafn langt bæði sem leik-
ari og leikstjóri og Clint
Eastwood. Hann
hóf snemma á
sínum leik-
ferli að leik-
stýra og byrjaði
með glæsibrag með
magnaðri sakamála-
mynd, Play Misty For
Me, sem gerð var 1971.
Það var ljóst að Clint
Eastwood hafði
næmt auga fyrir
möguleikum
kvik-
myndavélarinnar og var sögumaður
góður. Á þeim tuttugu og fimm
árum sem hann hefur leikstýrt hef-
ur hann fengið orð fyrir að vera
fljótur að vinna og engin kvik-
mynda hans hefur farið yfir áætlað-
an kostnað. Eastwood hefúr leikið í
öllum sínum kvikmyndum að
tveimur undanskildum, Breezy, sem
var með Wiiliam Holden í aðalhlut-
verki og Bird, sem fjallaði um ævi
saxófónleikarans Charlie Parker.
Sýndi Forest Whitaker eftirminni-
legan leik í hlutverki djasssniilings-
ins.
Frægasta kvikmynd Eastwoods er
Unforgiven, en fyrir hann fékk
hann óskarsverðlaun sem besti leik-
stjóri. Af öðrum gæðamyndum sem
hann hefur ieikstýrt má nefna High
Plains Drifter, The Outlaw Josey
Wales, The Gauntlet, Bronco Billy,
Pale Rider, White Hunter, Black He-
art, Sudden Impackt og The Bridges
of Madison County.
Clint Eastwood er mikill áhuga-
maður um djass og leikur sjálfur á
píanó. Á hann það til að fara upp á
svið í klúbbum og
taka nokkra létta
: sveiflutóna og þyk-
ir hann bara
nokkuð glúrinn á
hljóðfærið. Ann-
* ars er til geisla-
plata með leik
Eastwoods
þar
HÁsl sem
aðdá-
endur hans
geta sannfærst
um ágæti hans
á þessu sviði. -HK
Clint Eastwood
í hlutverki
meistaraþjófsins
Luthers Whitneys.
Jack Nicholson hefur á löngum leikferli náð einstakri
tækni viö túlkun á mönnum sem eru ekki allir sem þeir
sýnast. Honum nægir að setja upp sitt sérstaka smáglott og
öll tiltrú áhorfandans á manninum er horfin út í veöur og
vind. Oftast hefúr honum með þessari leiktækni tekist að
skapa eftirminnlegar persónur, en sú er ekki raunin f Blóð
og vín (Blood and Wine), þar sem hann leikur vinkaup-
manninn Alex Gates, sem er með ailt niður um sig, hvort
sem er í einkalífinu eða i viðskiptum. Síðasta haldreipi
hans er að stela milljón dollara hálsfesti af einum við-
skiptavini sínum og koma i verð. Til þess fær hann aðstoð
hjá atvinnuglæpamanninum Victor Spansky, ógeðfelldum
rudda sem Michael Caine leikur - annar leikari sem hefur oft farist vel að leika undir-
fórula náunga en nær sér ekki á strik frekar en Nicholson. Þeir félagar sækja þó ekki
gull í greipar viðskiptavinarins, þótt ránið sjálft takist með ágætum, og kemur þar til
tvöfeldni Alex í einkalifinu.
Söguþráðurinn sem Blóð og vin er spunnin utan um er nokkuð glúrinn, ekkert frum-
legur en býður upp á ýmsa möguleika. En það er eins og leikstjórinn Bob Rafelson
hafi farið öfúgum megin fram úr rúminu á hverjum degi og gerir sig sekan um mistök
sem jafnreyndur leikstjóri og hann ætti ekki að láta sjá eftir sig. Liggja mistökin aðal-
lega í persónum myndarinnar sem eru afar ósannfærandi og litt spennandi. Þá beitir
Rafelson nærmyndatökum í óhófi sem enn frekar eykur ótrúverðugleika persónanna.
Eitt að lokum sem sérstaklega er ætlað þeim sem eiga golfsett: Varist að hafa golfkylf-
umar inni á heimilinu því það má nota þær til annars en að spila golf.
Leikstjóri: Bob Rafelson. Handrit: Nick Villiers og Alison Cross. Kvikmyndataka:
Newton Thomas Sigel. Tónlist: Michael Lorenc. Aðalleikarar: Jack Nicholson,
Stephen Dorff, Michael Caine, Judy Davis og Jennifer Lopez. Hilmar Karlsson
Stjörnubíó/Bíóhöllin - Anaconda:
Étandi orma
Dómar um myndína
Amy Oð villiðæsirnar:
UDhjá DV: iii
..myndin er falleg og
...eru þaö ánægjulegu
stundirnar sem sitja eft-
AS hjá Mbl: i-i i
„Amy og villigæsirnar er
fjölskyldumynd sem
óhætt er aö mæla meö.
Hún fær áhorfandann til
aö trúa á ótrúleg ævin-
týri og snertir barnið í
okkur öllurn."
ízýnri uiii bríffína
kluídcan 7 on !í