Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1997, Side 52
60 kvikmyndir
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997
hún kremur þíg,
hún gleypir þig.
PÚ STENDUR Á ÖNDINNI.
DIGITAL
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 9.
Sýnd kl. 3 og 5.
UNDIR FÖLSKU FLAGGI
Sýnd kl. 7. B.i. 14 ára.
GULLBRÁ
OG BIRNIRNIR ÞRÍR
Sýnd kl. 3.
Sími 551 9000
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
B.i. 16 ára.
JIM
LIAR
Ekki svara í simann! Ekki opna
útidyrnar! Reyndu ekki að fela þig!
Óbærileg spenna og húmor sem fær
hárin til að rísa.
Sýnd 4.40, 6.50, 9 og 11.15 í THX.
Bönnuö innan 16 ára.
Sýnd kl. 6.45 og 11.20.
Sýnd kl. 3, 6 og 9.
LIAR
Sýnd kl.
3,5,7,9 og 11
BLÓÐ & VÍN
Frábær spennumynd.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.í. 16 ára.
Sími 551 6500
ANACONDA
Laugavegi 94
Háspennutryllirinn ANACONDA
gerði allt sjóöandi vitlaust í
Bandaríkjunum í siðastliðnum
mánuði og var toppmyndin í
samfleytt þrjár vikur.
Ice Cube, Jennifer Lopez og Jon
Voight þurfa á stáltaugum að
halda til að berjast við ókind
Amazonfljótsins.
Hefur þú stáltaugar til aö sjá
ANACONDA?
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára.
FOOLS RUSH IN
Sýnd kl. 11.
AMY OG
VILLIGÆSIRNAR
I HX
DIGITAL
Z-MUtSrmS
lijJJtó i' U
Veislan mikla irkici.
Sælkeramynd i tveimur merkingum þess orðs, bæöi fyrir unnendur italskrar
matargerðar og ekki síður fyrir unnendur kvikmynda. Leikararnir Stanley Tucci
og Campbell Scott sýna með sinni fyrstu kvikmynd sem þeir leikstýra að mikið er
i þá spunnið. Leikarar allir góðir, sérstaklega skin af þeim leikgleöin í matarveisl-
unni. -HK
Scream ickick
Ein alflottasta og skemmtilegasta hryllingsmynd sem komið hefur fram lengi og
sýnir vel þá möguleika sem búa i hrollvekjimni. Craven sýnir fullkomna þekkingu
og næmi á hrollvekjuna og tekst að skapa úr þessum kunnuglegu formúlum
hressandi og hrellandi hryllingsmynd. -ÚD
Crash ★★*★
Crash hlýtur að teljast meö áhugaverðari myndum þessa árs. Cronenberg er sér-
fræðingur i að ná fram truflandi fegurð þar sem síst skyldi, svo sem í árekstrar-
senunum og i samviskulausri könnun á örum og áverkum. Músikin er mögnuð og
á ríkan þátt í að skapa það andrúmsloft sem gerir þessa mynd að einstaklega hug-
vekjandi upplifun. -ÚD
Kolya irkki.
Hlý, vel leikin og mannleg kvikmynd sem blandast stjómmálaástandinu í
Tékkóslóvakíu stuttu áður en landið slapp úr jámgreipum sovéska hrammsins.
Leikur drengsins Andrej Chalimon í titilhlutverkinu er einstakur og á hann taug-
ar áhorfenda frá því hann birtist fyrst í myndinni. -HK
Englendingurinn irkirk
Stórbrotin, epísk kvikmynd sem minnir um margt á best heppnuðu stórmyndir
fyrri tíma. Anthony Mingella á hrós skilið bæði fyrir innihaldsríkt handrit og leik-
stjóm þar sem skiptingar í tima eru mjög vel útfærðar. Útgeislun leikaranna er
mikil. -HK
Undrið kirki.
Áströlsk kvikmynd sem lýsir á áhrifamikinn hátt falli og endurkomu píanósnill-
ings, sem brotnar undan álaginu og eyðir mörgum árum á geðsjúkrahúsi. Leikur
er mjög góður en enginn er betri en Geofrey Rush sem er einkar sannfærandi í
túlkun sinni á manni sem er algjört flak tilfinningalega. -HK
Anaconda kirk
Anaconda er ein af þessum gölluðu myndum sem ná að heilla með
ákveðnum einfaldleik eða jafnvel einfeldni. í heild vega kostimir upp á
móti göllunum og útkoman er hressileg og skemmtileg mynd sem heldur
áhorfandanum föngnum í þessar klassísku 90 mínútur. -úd
Háðung ★★★
Það sem byrjar sem ósköp venjuleg búningamynd með uppskrúfuðum frönskum
aðli snýst fljótt upp í stórskemmtilega skopádeilu þar sem engum er hlíft. Snilldar-
lega skrifað handrit ásamt sérlega skemmtilegum persónum gefur myndinni létt
yfirbragð. -HK
Lokauppgjörið
Skörp og raunsæ lýsing á tveimur ólíkum bræðrum og uppgjöri þeirra á milli.
Umhverfið skiptir miklu máli í myndinni sem bæði er spennandi og dramatísk.
Tim Roth sýnir snilldarleik. -HK
Evita ★★★
Ópera Andrews Lloyds Webbers nýtim sin vel í meðförum Alans Parkers, hvort
sem það eru fámenn söngatriði eða stór kóratriði og hin glæsilega tónlist og útsjón-
arsamir textar eru í frábærum flutningi leikhóps sem i fyrstu hefði mátt ætla að
ætti lítið sameiginlegt. -HK
Umsátrið
Mr. Reliable er ágætis afþreying sem kemur skemmtilega á óvart, sérstaklega
þegar á líður og handritshöfundum tekst að hefja sig upp fyrir banvænan Krókó-
díla Dundee húmorinn. Ég mæli meö henni. -GE
Þrettán metra slanga í
regnskógum Amazon
Anaconda hefur verið ein ailra vin-
sælasta kvikmyndin í Bandarikjunum á
síöustu vikum. Er hún ein þeirra fáu
kvikmynda sem óvænt slá í gegn, gera
það að verkum að aðrir fyllast bjartsýni.
Engin stórstjama leikur i myndinni,
aðalstjarna myndarinnar er þrettán
metra kyrkislanga, anaconda, sem er hin
fullkomna drápsvél. Hún laðast að heit-
um líkama, ræðst á fómarlamb sitt af
miklum krafti, kremur þar til öll bein
eru brotin og gleypir síðan i heilu lagi.
Ekki geðsleg lýsing. Við þetta óargadýr
verður leiðangur, sem er að gera heim-
ildarkvikmynd um regnskóga Amazon,
að glima. Leiðangurinn hittir fyrir dular-
fuDan og ógnvekjandi mann, Paul Saro-
ne, sem hefur strandað báti sínum. Sá
hefur lifað i fmmskóginum í mörg ár og
þegar leiðangurinn villist býðst hann til
að fara með hann á rétta leið. Þaö sem
leiðangursmenn ekki vita er að Sarone
er i leit að stóru slöngu sem innfæddir
tala um og leiðir hann leiðangurinn á
þær slóðir sem slangan á að vera.
í helstu hlutverkum eru Jon Voight,
Jennifer Lopez, Ice Cube, Eric Stoltz, og
Jonathan Hyde. Leikstjóri er Luis Llosa.
Anaconda-slangan er stærsta
kyrkislanga veraldar. Sú stærsta sem
veiðst hefur var tæpir tólf metrar á
lengd. Það er samt talið að enn stærri
anacondur séu til og sögusagnir á
Amazon-svæðinu eru um að þrjátíu
metra langar slöngur séu til. Það er
kvendýrið sem nær mun meiri stærð
heldur en karldýrið. Anaconda er meðal
elstu dýrategimda sem nú lifa á jörðinni.
Talið er að þær hafi á einhverju tíma-
skeiöi verið landdýr, eftir að hafa verið í
vatni, en svo aftur skriöið í vatnið þar
sem þær voru of hægfara til að lifa af
harða baráttu á landi. í vatni geta þær
fariö hratt yfir. Slöngurnar eru dýraætur
og ráðast á állt sem lifandi er og skiptir
stærð engu máli. Þvi hefur verið lýst að
það sé eins og að kreista tannkremstúbu
þegar þær byija að murka lífið úr fómar-
lambinu.
Leikstjórinn Lulis Llosa var blaða-
maður, kvikmyndagagnrýnandi og heim-
ildamyndagerðarmaður áður en hann
tók til við að leikstýra fyrir þann fræga
B-myndakóng Roger Corman. Llosa vann
sig upp úr B-myndunum þegar hann
gerði The Specialist með Sylvester
Stállone og Sharon Stone. -HK