Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1997, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997
FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997
27
Iþróttir
Heimsmetá
fjölskyldudegi HK?
Fjölskyldudagur HK verður
haldinn á félagssvæði HK,
Fagralundi í Fossvogsdal, á
morgun, laugardag, kl. 16-18. Á
dagskrá eru ýmsir leikir og
þrautir fyrir börn og foreldra og
meðai annars verður gerð tii-
raun til að setja heimsmet í stór-
fiskaleik. vs
Golf:
Tudor-opin kría
Þann 17. júní hélt Golfklúbbur
Ness Tudor-opna kríumótið. í
fyrsta sæti m/forgjöf varð Sverr-
ir Þór Sverrisson (NK) á 65 högg-
um, annar varð Guðmundur
Hjörleifsson (GK) á 66 höggum
og þriðji varð Heimir Sindrason
(NK) á 67 höggum. Án forgjafar
varð Ólafur Már Sigurðsson
(GK) í fyrsta sæti á 76 höggum,
Sævar Egilsson (NK) annar á 78
höggum og þriðja sætinu náði
Óskar Friðþjófsson á 79 höggum
eftir bráðabana við þrjá aðra
keppendur.
-ÖB
Frjálsar: „
Miönæturmót IR
í kvöld fer fram miðnæturmót
ÍR í frjálsum íþróttum á Laugar-
dalsvelli.
í karlaflokki verður keppt í
100 m, 400 m, 1500 m, 4x100 m
boðhlaupi, þrístökki, stangar-
stökki og kringlukasti.
í kvennaflokki verður keppt í
100 m, 400 m, 800 m, 4x100 m boð-
hlaupi, iangstökki, hástökki,
stangarstökki og spjótkasti og að
lokum er keppt í kringlukasti
sveina.
Keppni hefst kl. 20.30 og áætl-
að að henni ljúki um kl. 22.30
með grillveislu fyrir keppendur
og starfsmenn.
-ÖB
JJmótÁrmanns
Frjálsíþróttadeild Ármanns
hélt þann 15. júní sl. mót á Laug-
ardalsvelli til heiðurs Jóhanni
Jóhannessyni, heiðursfélaga Ár-
manns, og urðu helstu úrslit eft-
irfarandi:
100 m hlaup karla
Ólafur S. Traustason (Á).....11,20
Hörður Gunnarsson (Brelð) .. .11,23
Reynir Ólafsson (Á) ...........11,27
100 m hlaup kvenna
Guðrún Arnardóttir (Á) ......12,11
Guöný Eyþórsdóttir (ÍR)......12,24
Helga Halldórsdóttir (FH)......12,42
400 m hlaup karla
Bjöm Traustason (FH)...........50,61
Ingi Þór Hauksson (UMFA) . . .50,79
Jóhítnn H. Björnsson (HSK) . . .52,66
400 tn hlaup kvenna
Guðrún Amardóttir (Á) .........54,13
Helga Halldórsdóttir (FH)......56,44
Guöný Eyþórsdóttir (ÍR)........58,09
1500 m hlaup kvenna
Fríöa Rún Þóröard. (UMFA) . .4.51,54
Bryndis Emstdóttir (ÍR)....4.58,51
Eygerður I. Hafþórsd. (UMFA) 5.11,63
Þrístökk kvenna
Sigríður A. Guðjónsd. (HSK) . . .12,74
Guöbjörg Lilja Bragad. (ÍR)... .10,79
Herdís Kristinsdóttir (Breið). . .10,38
Kringlukast kvenna
Guðbjörg Viðarsdóttir (HSK) . .41,98
Hanna Lind Ólafsd. (UMSB) .. .38,28
Guðleif Harðardóttir (ÍR) ..37,24
Stangarstökk kvenna
Þórey Eliasdóttir (FH) ......3,20
3000 m hindrunarhlaup
Burkni Helgason (ÍR)......10.40,20
Pálmi Guðmundsson (UDN) .10.43,74
Stefán Á. Hafsteinsson (ÍR) .11.,01,60
Langstökk karla
Jón Oddsson (FH) ............6,80
Ólafur Traustason (FH) ......6,32
Rafn Árnason (UMFA)..........6,32
Stangarstökk karla
Tómas G. Gunnarss. (Á).......4,00
Freyr Ólafsson (HSK).........4,00
örvar Ólafsson (HSK) ........3,80
Kúluvarp karla
Ólafur Guðmundsson (HSK) .. .14,68
Jón Heiðarsson (USAH) ......11,60
-ÖB
^ Skylmingar með höggsverði:
Islenskir Norður-
Evrópumeistarar
- Ragnar Ingi vann mótaröðina
Um síðustu helgi fór fram f Kiel í
Þýskalandi síðasta mótið í mótaröð-
inni „Norður-Evrópubikarinn"
(Coupe du Norde) sem er keppni
með höggsverðum.
Ragnar Ingi Sigurðsson hafnaði í
ellefta sæti á þessu móti en þar sem
hann hafði náð stórgóðum árangri á
flestum mótum síðasta vetrar var
hann að loknu þessu móti langstiga-
hæstur allra keppenda í „Norður-
Evrópubikarnum" og hlaut því titil-
inn Norður-Evrópubikarmeistari.
Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur
skylmingamaður vinnur mótaröð
sem þessa. Þriðji í samanlögðum ár-
angri varð Kári Freyr Björnsson eft-
ir ágætan árangur sl. vetur en hann
lenti í fjórtánda sæti í Kiel.
Stúlkurnar gerðu vel
Stúlkurnar, sem voru á skylming-
amótinu, stóðu sig enn betur en
strákarnir. Helga Magnúsdóttir
sigraði glæsilega í keppni kvenna
og Sigrún Erna Geirsdóttir náði
þriðja sætinu. Þar sem þær höfðu
báðar staðið sig mjög vel á mótum
sl. vetur voru þær jafnar og efstar í
samanlögðu fyrir mótið svo í lokin
varð það Helga Magnúsdóttir sem
hampaði titlinum Norður-Evr-
ópubikarmeistari kvenna en Sigrún
varð í öðru sæti í samanlögðu.
-ÖB
Nágrannaslagur í 1. deild karla:
Þórsarar höfðu betur
gegn Dalvíkingum
Dy Dalvík
Það var hart barist á Dalvíkur-
velli þegar heimamenn tóku á móti
nágrönnum sínum í Þór frá Akur-
eyri í 1. deildinni í gærkvöldi. Dal-
víkingar voru enn án sigurs í deild-
inni og Þórsarar höfðu aðeins unn-
ið einn leik en bættu nú einum við
þar sem þeir höfðu betur í þessum
leik og sigruðu, 2-3.
Bynjar Óttarsson kom gestunum
yfir á 13. mín. en aðeins þremur
mínútum síðar jafnaði gamli refur-
inn Jón Þórir Jónsson fyrir heima-
menn. Á 45. og 64. mín gerði Árni
Þór Ámason, besti maður vallarins,
út um leikinn með tveimur mörkum
fyrir Þórsara en Grétar Steindórs-
son náði þó að minnka muninn á 76.
mínútu en þrátt fyrir góða baráttu
urðu heimamenn að láta í minni
pokann.
-HIÁ
Makaay til
United?
DV, Akranesi
Manchester United hefur að
undanfornu leitað sér að góðum
leikmönnum til aö styrkja hóp
sinn fyir átökin næsta tímabil en
að sögn Martins Edwards, stjóm-
arformanns United, hefur félagið
boðið í leikmenn fyrir um 50
milljónir punda undanfarið en
alls staðar fengið neitun. Liðið
leitar bæði að vamarmanni og
framherja og hefur nú í sigtjnu
hollenska framherjann Roy
Makaay, sem er 22 ára ganíall,
og leikur með Vitesse Arnheim í
hollensku 1. deildinni. Ferguson
er sagður hafa mikið álit á þess-
um strák og verður ákvörðun
tekin um kaupin eftir tíu daga
þegar Ferguson kemur aftur til
starfa úr fríi.
-DVÓ
Gaaltil
Barcelona
DV, Akranesi
Bobby Robson mun yfírgefa
lið Barcelona nú í mánuðinum
og mun Lois Van der Gaal, sem
þjálfað hefur Ajax I Hollandi,
taka við liðinu.
„Ég fer frá liðinu með Robson
þann 30. júní nk. þrátt fyrir að
Barcelona hafi orðið Evrópubik-
armeistari, náð sæti í meistara-
deildinni á næsta tímabili og
ennþá eigum við möguleika á að
verða spænskir bikarmeistarar,"
sagði aðstoðarmaður Robsons
hjá Barcelona, súr í bragði.
Matthaus til Herthu?
Þýsku blöðin greindu frá því í
gær að Hertha Berlin, lið Eyjólfs
Sverrissonar, væri að reyna að
fá Lothar Matthaus í sínar raðir.
-DVÓ
DRAUMAUÐ-FELAGASIf
NAFN ÞÁTTTAKANDA________________________
NAFN LIÐS________________NÚMER LIÐS_____
SEL LEIKMANN:
NÚMER__NAFN____________________VERÐ_____
KAUPI LEIKMANN:
NÚMER__NAFN____________________VERÐ_____
SENT TIL: DV - ÍÞRÓTTADEILD/DRAUMALIÐ, ÞVERHOLT 11 105 REYKJAVÍK
Stórleikur í Ólafsfiröi á morgun:
„Við ætlum að hafa
gaman af þessu “
- Arnar Grétarsson líklega ekki meö
Það verður sEumkaliaður stórleik-
ur sem fer fram í Ólafsfirði á morg-
un kl. 14.00 þegar Leiftursmenn
taka á móti þýska stórliðinu
Hamburger SV í Inter-Toto keppn-
inni, Evrópukeppni félagsliða. Það
er alveg ljóst að það verður við
ramman reip að draga hjá Ólafsfírð-
ingum í þessum leik enda þýska lið-
ið með glæsta sögu að baki og einn
af stærstu klúbbum Evrópu. Margt
frægra manna hefur spilað og spilar
með liðinu og má þar nefna Kevin
Keagan en þegar hann lék með lið-
inu í byrjun níunda áratugarins
varð liðið meðal annars Evrópu-
meistari.
„Algjört ævintýri"
„Við lítum á þetta bara sem al-
gjört ævintýri og ætlum að hafa
gaman af þessu. Það er mikil stemn-
ing í bænum og við ætlum svo sann-
arlega að gera eitthvað úr þessu,
koma upp karneval-stemningu í
kringum þetta,“ sagði Þorsteinn
Þorvaldsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Leifturs, við DV í
gærkvöldi.
„Þetta lið er náttúrlega fyrrver-
andi Evrópumeistarar frá árinu
1983 og leikurinn verður sýndur
beint til Þýskalands. Þetta verður
því í fyrsta sinn sem sýnt verður
beint héðan, hvað þá til Þýskalands.
Við erum auðvitað spenntir og
reiknum svo sem ekki með miklu
en það vill þó oft fara þannig að þeg-
ar væntingarnar eru litlar þá geta
gerst óvæntir hlutir án þess að við
séum neitt að reikna með því.
Aðstæður okkai' hér á Ólafsfirði
eru örugglega ekki uppáhaldsað-
stæður þeirra enda þeir aðeins van-
ir því besta. Við vonumst til þess að
fá hingað um 1500 áhorfendur og ég
yrði mjög ánægður með það en til
gamans má geta þess að þegar þeir
spiluðu til úrslita í Evrópukeppn-
inni voru 80 þúsund áhorfendur á
leiknum," sagði Þorsteinn.
Arnar ekki meö?
„Arnar Grétarsson fór út til
Grikklands í gærmorgun ásamt Sig-
urði, bróður sínum, til þess að
heimsækja AEK en við höfum ekk-
ert heyrt frá félaginu. Það er ekki
alveg ljóst á þessari stimdu hvort
hann verður með á morgun og lík-
legt að hann verði hvíldur fram á
miðvikudag þegar við fáum Skaga-
menn í heimsókn. Hins vegar fmnst
okkur þau vinnubrögð sem gríska
félagið hefur við haft í þessu máli
engan vegin hafa verið rétt og það
hefði nú verið eðlilegt að heyra eitt-
hvað frá þeim. Það hlýtur að koma í
kjölfar ferðar Arnars út en þetta er
nú ékki eins og á að vinna hlutina.
Arnar fór auðvitað með okkar sam-
þykki út en því er ekki að leyna að
við erum ekkert of sáttir við tíma-
setninguna, hún hefði mátt vera
betri.“
Það er einnig ljóst að Finnur
Kolbeinsson verður ekki heldur
með og kemur i raun ekki til með að
spila meira með Leiftursmönnum í
sumar þar sem komið hefur í ljós að
hann er með slitið krossband.
Vonbrigöi meö deildina
„Staða okkar nú í úrvalsdeildinni
er auðvitað ekki sú sama og við
höfðum vonast til í upphafi móts.
Hins vegar hefur heppnin ekkert
verið heldur að elta okkur og við
höfum verið að kasta unnum leikj-
um frá okkur. Svo höfum við nú að-
eins náð að spila einn heimaleik og
þvi fer fjarri að við hér á Ólafsfirði
séum eitthvað að missa móðinn.
Það er ekki nema einn þriðji búinn
af mótinu og þetta kemur,“ sagði
Þorsteinn í lokin.
Það er vonandi að Leiftursmönn-
um takist að stríða Þjóðverjunum
sem mæta til leiks með um 200
manna hóp sem eflaust á eftir að
eiga ógleymanlega dvöl hér á landi
þar sem þeir spila við aðstæður sem
eru þeim ansi framandi, þröngur
fjörður með snjó niður í miðjar hlíð-
ar.
-ÖB
Hræringar í körfuboltanum:
Kristinn til Danmerkur
- Keflvíkingar hafa misst tvo leikmenn
DV, Suðurnesjum:
Keflvíkingurinn og körfuknattleiks-
maðurinn Kristinn Friðriksson hefur
ákveðið að spila með úrvalsdeildarlið-
inu Odense BK i Danmörku næsta vet-
ur. Þetta er mikil blóðtaka fyrir Kefl-
víkinga sem unnu alla titla sem í boði
voru á síðasta keppnistímabili. Krist-
inn átti mjög gott tímabil og er ein
besta skytta landsins og því eiga Danir
eftir að fínna fyrir.
„Ég fer út í byrjun næsta mánaðar
og hlakka til að spila og æfa í Dan-
mörku,“ sagði Kristinn Friðriksson við
DV en hann hefur hug á aö stunda nám
og vinnu með körfuboltanum.
Valur Ingimundarson er þjálfari
Odense og hefur hann gert stórgóða
hluti sem þjálfari og leikmaður með
liðinu. Valur tók við liðinu í 2. deild
fyrir tveimur árum og hefur leitt það
beina leið upp í dönsku úrvalsdeildina
þar sem það leikur næsta vetur. Valur
skrifaði nýlega undir nýjan samning
við félagið en þess má til gamans geta
að Valur er giftur systur Kristins, Guð-
nýju Svövu.
Kristinn verður fjórði íslendingur-
inn sem leikur með liðinu því þar fyr-
ir eru einnig þeir Henning Hennings-
son og Pétur Vopni Sigurðsson.
Keflvíkingar hafa því misst tvo leik-
menn fyrir næstu leiktíð, Kristin og Al-
bert Óskarsson sem hyggur á nám í
Bandaríkjunum.
-ÆMK
Um helgina
Föstudagur 20. júní
1. deild karla:
kl. 20 00 .........KA - Víkingur
kl. 20 00 ........ÍR - Þróttur, R.
kl. 20 00 . . . . Breiðablik - Reynir, S.
3. deild karla:
kl. 20.00 .....Smástund - Haukar
kl. 20.00 ....KSÁÁ - Víkingur, Ó.
kl. 20.00 ...........GG - Grótta
kl. 20.00 ...........Magni - KS
kl. 20.00 . . . Leiknir, F. - Neisti, D.
Laugardagur 21. júní
1. deild karla:
kl. 14.00............FH - Fylkir
2. deild karla:
kl. 14.00.......Völsungur - KVA
kl. 14.00 .....Leiknir, R. - Viðir
kl. 14.00.....Þróttur, N. - Rjölnir
kl. 14.00............Ægir - Sindri
3. deild karla:
kl. 14.00 .... Framherjar - Haukar
kl. 14.00......Snæfell - Njarðvík
kl. 14.00 ............HVÍ - Emir
Sunnudagur 22. júní
Úrvalsdeild karla:
kl. 20.00 .............ÍA - Valur
kl. 20.00 .............tBV - KR
kl. 20.00 ....Fram - Skallagrímur
kl. 20.00 ...Stjarnan - Grindavik
Miðnæturhlaup
á Jónsmessu
- hlaupið í fimmta sinn
Hið árlega miðnæturhlaup á Jóns-
messu fer fram í fimmta sinn mánudag-
inn 23. júní næstkomandi kl. 23.00.
Vegalengdir eru tvær; 10 km með tíma-
töku og flokkaskiptingu þar sem keppt
er í eftirtöldum flokkum: 18 ára og
yngri, 19-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og
60 ára og eldri og síðan er keppt í 3 km
skemmtiskokki án tímatöku og flokka-
skiptingar.
Hlaupiö um Laugardalinn
Hlaupið er um Laugardalinn frá
sundlaugimum þar sem skráning fer
fram þann 23. júní og eru hlauparar
beðnir um að mæta tímanlega til skrán-
ingar. Einnig fer forskráning fram á
skrifstofu Reykjavíkurmaraþons. Þátt-
tökugjald er kr. 800 og kr. 600 fýrir
yngri en 12 ára. Innifalið í gjaldinu er
verðlaunapeningur, bolur, svaladi-ykk-
ir og útdráttarverðlaun. Eftir hlaup er
öllum þátttakendum boðið í sund sem
ávallt hefur þótt vinsælt meðal kepp-
enda.
Töluveröur fjöldi útlendinga
Hlauparar hafa komið gagngert í
hlaupið viðs vegar af landinu og einnig
hefur ávallt verið töluverður fjöldi út-
lendinga sem tekur þátt í hlaupinu á
hverju ári. Þeim hefur þótt mikið til
koma þar sem varla bregður birtu á
þessum tíma árs.
Þetta bráðskemmtilega hlaup er til-
valið fyrir þá sem stefha að þátttöku í
Reykjavíkurmaraþoninu eins og reynd-
ar alla þá hlaupara og skemmtiskokk-
ara sem gaman hafa af því að keppa við
aðra eða skokka sér til heilsubótar.
Óvenjuleg hótun
Manuel Ruiz de Lopera, eig-
andi knattspyrnuliðsins Real
Betis á Spáni, hótaði að reka
þjálfara liðsins, Lorenzo Serra
Ferrer, í gær nema hann skrifaði
undir samkomulag þess efnis að
hann myndi ekki ganga í raðir
Barcelona fyrir næsta tímabil.
Þessir afarkostir eru settir ein-
ungis níu dögum áður en liðin
mætast í úrslitum spænsku bik-
arkeppninnar en það verður
stærsti leikur Betis í 20 ár.
-ÖB
Kynningardagur ÍF og SÍL:
Siglingar fyrir hreyfihamlaða
- kjörið tækifæri fyrir fatlaða á öllum aldri
Þann 11. júní sl. stóðu íþróttasam-
band fatlaðra og Siglingasamband
íslands fyrir kynningu á siglingum
fyrir hreyfihamlaða. Aðeins skráðir
þátttakendur fengu að vera með og
alls tóku 16 hreyfíhamlaðir einstak-
lingar þátt í siglingunni sem hófst í
Reykjavíkurhöfn. Mikil ánægja var
með þessa tilraun sem fyrst og
fremst var gerð til þess að vekja at-
hygli á möguleikum hreyfíhamlaðs
fólks á að stunda þessa íþróttagrein
en hún var sýningargrein á ólymp-
íuleikum fatlaöra í Atlanta árið
1996.
Námskeiö í siglingum
íframhaldi á þessu samstarfi ÍF
og SÍL er fyrirhugað að fari fram
námskeið í siglingum þar sem fatl-
aðir verða hvattir til að taka þátt
hvort sem um er að ræða sérnám:
skeið fyrir þá eða gert er ráð fyrir
ákveðnum fjölda fatlaðra á hefð-
bundin námskeið.
Samböndin munu hvetja alla að-
ila innan sinna vébanda til að taka
höndum saman enda um skemmti-
lega íþróttagrein að ræða þar sem
aðgengi hamlar ekki för. Nokkrir
fatlaðir einstaklingar hafa tekið
þátt í siglingum á liðnum árum en
ÍF og SÍL hafa mikinn áhuga á að
þessi íþróttagrein verði opin þess-
um hópi fólks í auknum mæli. Til
þess að svo verði þurfa allir aðilar,
sem koma að málefnum fatlaðra á
einn eða annan hátt, að vera sam-
stilltir og er engin ástæða til að ætla
annað en að svo verði.
Nýjar íþróttagreinar
íþróttasamband Fatlaðra hefur á
síðustu árum kynnt nýjar íþrótta-
greinar í samvinnu við sérsambönd
innan ÍSÍ, s.s. hjólastólakörfubolta,
hjólastólatennis, hestaíþróttir fatl-
aðra, skauta- og skíðaíþróttir fatl-
aðra og aðrar greinar sem margar
hafa í dag náð vinsældum meðal
fatlaðra. Nú bætist enn ein íþrótta-
greinin við svo að allir ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
-ÖB
Hluti hópsins sem tók þátt í kynningardegi Fl og SÍL.
Bibercic á æfmgu
hjá Fylki
Mihaljo Bibercic, sem hætti
nýlega að leika með Breiðabliki í
1. deildinni, var með Fylkis-
mönnum á æfingu í gærkvöldi.
„Hann hringdi bara í mig og
spurði hvort hann mætti ekki
æfa með okkur til að halda sér í
formi og það var alveg sjálfsagt.
Málin hafa ekkert verið rædd
frekar," sagði Atli Eðvaldsson,
þjálfari Fylkis, við DV.
-ÖB
Varaö viö Ronaldo
Eitt víðlesnasta rómversk-kaþ-
ólska vikublaðið á Ítalíu hefur
nú varaö landa sína við knatt-
spyrnusnillingnum Ronaldo og
hugsanlegri komu hans til Ítalíu.
Blaðið segir Ronaldo vera tákn
um hið óhóflega peningabruðl
sem komið sé í knattspyrnuna
og kallar blaðið það ungæðings-
legan frjálslyndissjúkdóm sem
herjar á knattspyrnuna.
-ÖB
íþróttir
EHGLAHD |
David Platt verður líklega næsti
framkvæmdastjóri hjá Sout-
hampton. Platt, sem veriö hefur á
mála hjá Arsenal síðustu leiktímabil,
hefur fengið boð um samning til
fimm ára sem knattspymustjóri
„Dýrðlinganna" frá Southampton og
mun hann faera honum ríflega 170
millj. ísl. króna í aðra hönd.
Arsene Wenger, framkvæmda-
stjóri Arsenal, hefur gefið Platt grænt
ljós um að færa sig um set enda vand-
séð hvað hann hyggist gera með Platt
í sinu liði á næstu leiktíö þar sem
hann hefur keypt fimm nýja leik-
menn til liðsins á síðustu dögum.
Everton er á fullu þessa dagana að
leita sér að nýjum knattspymustjóra
og gerast nú hlutimir hratt á Goodi-
son Park. Síðustu daga hefur Andy
Gray verið orðaður við starfið en nú
er talið líklegt aö málin taki enn á ný
aðra stefnu eftir að ljóst varð að
Bobby Robson, fyrrverandi lands-
liðseinvaldur þeirra Englendinga,
muni hætta hjá Barcelona nú um
mánaðamótin.
Stoke hefur boðið framherja sínum,
Mike Sheron, tveggja ára fram-
lengingu á samningi sínum meö von
um að það verði til þess aö hann yfir-
gefi ekki félagið en bæði Birmingham
og QPR hafa sýnt honum áhuga.
„Ég er ánægður og þakklátur fyrir
það að Stoke vilji hafa mig áfram en
ég hef beðið þá um smá umhugsunar-
frest,“ sagði Sheron sem gerði 24
mörk fyrir Stoke á síðustu leiktíð.
Sheffield Wednesday ætlar að
reyna að næla i Tékkann Karel Po-
borsky hjá Manchester United.
Wednesday varð undir fyrir United
þegar félögin bitust um kappann í
fyrrasumar en þeir ætla nú að reyna
aftur þar sem Poborsky hefur átt
erfitt með að vinna sér fast sæti í liö-
i meistaranna frá Manchester.
Þeir sem halda utan um pen-
ingapyngjuna hjá Newcastle Á
United hafa sagt hingað og ekki
lengra vegna fyrirhugaöra kaupa fé-
lagsins á enska landsliðsmanninum
Paul Ince. Þeim finnst engin glóra
í þvi að eyða svona miklum pening-
um í leikmann sem orðinn er þrítug-
ur að aldri.
Peter Beardsley hefur afþakkað
tilboð frá nýliðunum i úrvalsdeild-
inni, Bolton Wanderes, um að
leika með liðinu á næstu leiktíð. Be-
ardsley, sem orðinn er 36 ára gamall,
ætlar frekar að berjast fyrir tilveru-
rétti sínum á St. Jame s Park.
Hinn 27 ára gamli Svíi, Thomas
Brolin, er nú aftur á leið til Leeds
eftir að hafa verið hjá Parma á Ítalíu
síðustu sex mánuöina. Hann mun
gangast undir læknisskoöun eftir
helgina þar sem mun koma í ljós ^
hvort hann teljist gjaldgengur í liðið.
Brolin sagði það áríðandi fyrir sig að
komast aftur í alvörubolta til að
sanna að hann sé enn einn af þeim
bestu.
Paul Merson hefur skrifaö undir
nýjan þriggja ára samning viö
Arsenal. „Ég hef oft fengið tækifæri
til að fara annaö en Arsenal er eins
og mín önnur fjölskylda og héðan vil
ég ekki fara,“ sagði Merson.
-ÖB
Úrslit í
gærkvöldi
1. deild karla
Dalvík - Þór, Ak................2-3
2. deild karla
HK - Selfoss....................1-1
(ívar Jónsson - Sævar Gíslason)
3. deild karla
ÍH - Hamar .....................4-1
(Halldór Gíslason 2, Amfinnur Jóns-
son 1, Hlynur Björnsson 1 - Guð-
mundur Baldursson)
Léttir - Ármann ................3-1
(Engilbert Friðfinnsson 2, Sævar
Daviðsson 1 - Magnús Jónsson)
Bnmi - Afturelding .............0-1
(Jón Ottósson)
Tindastóll - Hvöt ...............1-0
(Davíð Rúnarsson)
Reynir, Hn. - Bolungarvík ......1-4
Neisti, H. - Nökkvi ............4-0