Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Side 2
LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997 I>'V ★ * > ★ 2 ★ ★ ★ ★ Vitnaleiðslur í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum: Vitnaleiðslur vegna beiðni Sæv- ars Ciesielski um endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálanna fóru fram í Héraðsdómi Reykjavík- ur seinnipartinn i gær. Fjögur vitni áttu að mæta fyrir dómi en aðeins tvö þeirra mættu, þeir Hlynur Þór Magnússon, fyrr- verandi fangavörður, og Jón Bjarm- an, fyrrverandi fangaprestur. Konurnar tvær sem talið er að hafi síðastar séð Guðmund Einarsson á lífi á Strandgötu í Hafnarfirði mættu ekki til þinghaldsins. Ragnar Aðalsteinsson hrl. var talsmaður Sævars en Ragnar Hall settur saksóknari í málinu. Hlynur Þór hóf störf sem fanga- vörður í Síðumúlafangelsinu í febrúar 1976. Hann hafði unnið sem fangavörður í Hegningarhúsinu og var kunningi fangavarða í Síðu- múlafangelsi. Varð það úr að hann hóf störf þar. í dómsalnum Sveinn Friðrik Sveinsson Talsmaður Sævars spuröi vitnið fyrst hvort ástand og aðstæður í Síðumúlafangelsi hefðu verið með óvenjulegum hætti. Annar heimur „Já, þetta var eins og að koma inn í annan heim, miðað við Hegn- ingarhúsið. Andrúmsloftið þar var hlýlegt og manneskjulegt. Viðhorfið til fanga í Síðumúlafangelsinu var allt annað. Það var vélrænt og mannleg samskipti við fangana bönnuð, þ.e. ekki mátti ræða við þá. Við áttum ekki að tala við þá nema brýn nauðsyn krefði. Við áttum að vera svipbrigðalausir þegar við um- gengumst fangana, með húfu og hnepptan jakka og kylfu í hendi.“ Hlynur Þór telur loftiö hafa verið rafmagnaðra en ella í fangelsinu vegna tveggja hópa sem þar voru. Kallar hann þessa hópa fjórmenning- ana, þ.e. mennina kennda við Klúbb- inn, og ungmennin, en þar á hann við ungmennin sem voru sakfelld. Þá sagði hann einnig frá ferðum sem fangaverðir fóru með ung- mennin til að leita að líkum. Ekki hræddur viö sakborn- ingana „Fangaverðir fóru með sakborn- ingana að leita að líkum í hraunum úti um allar trissur. í einni slíkri ferð var ég hlekkjaður við Sævar með handjárnum og vorum við að þvælast lengi dags suður í hrauni. í annað skipti vorum við tveir með Guðmundur J. jarðsettur Útfór Guömundar J. Guð- mundssonar, fyrrverandi for- manns Dagsbrúnar og alþingis- manns, fer fram frá HaUgríms- kirkju á mánudag. Athöfnin hefst klukkan 13.30. Kristján Viðar að leita. Haim var alltaf allur af vilja gerður að reyna að finna eitthvað. Maðurinn sem var með okkur var hundrað metra í burtu. Ég stend niðri í gjótu og horfi upp á Kristján Viðar sem var ójám- aður og þá rennur upp fyrir mér ljós - að ég er ekki hræddur við hann.“ Að sögn vitnisins var fangavörð- um úthlutað því verkefni að vinna traust ungmennanna og fékk hann í sinn hlut aö vinna traust Erlu Bolla- dóttur, tala við hana og gera skýrsl- ur um samtölin. „Þetta fólst í því að fara með kaffi og bakkelsi og sitja og spjalla við viökomandi eftir síðustu göngu um fangelsið. Erla var óspör á að segja frá og spinna upp.“ Hlynur Þór segir Sævar ekki hafa fengið bækur, ritföng eða tóbak á vissum tímabilum meðan á gæslu- varðhaldinu stóð. Spurt var um tilgang þessa: „Ég lít svo á aö það hafi verið gert til að beygja manninn." Aðspurður um hvort beygja hefði átt Sævar til játninga sagðist hann telja að svo hefði verið. Allir trúöu aö þau væru sek „Allir trúðu að þau væru sek. Þetta átti að flýta fyrir málalokum. Sá andi var ríkjandi að tilgangurinn helgaði meðalið." Þá var spurt hvort Hlynur Þór vissi til þess að menn hefðu verið sviptir svefni og sagði hann að þaö hefði verið gert við Sævar. „Það var umtalað í fangelsinu aö þetta hefði verið gert áður en ég hóf störf. Þá var ég eitt sinn á nætur- vakt og vaktfélagi minn fór út og barði vegginn utan frá með steini til að vekja Sævar og hræða hann.“ Einnig hafði hann heyrt að ljós hefði verið kveikt í klefa Sævars áöur en hann hóf störf í fangelsinu. Þá sagði hann að menn hefðu rætt um hvemig hægt væri að nýta vatnshræðslu Sævars til að hræða hann og upp hefði komið sú hug- mynd aö í einni leitarferðinni yrði honum stjakað ofan í gjótu með vatni í og hann látinn synda. Einnig að Sævar hefði verið kaffærður og það hefði verið á almannavitorði en hann þó ekki séð það. Aðspuröur um hvort fótajámum hafi verið beitt á Sævar svaraöi hann játandi. „Ég sé hann fyrir mér höktandi fram á klósett í fótajámum. Þetta var ömurleg sjón og bara gert til að kvelja hann.“ „Lyfjagjafir til fanganna vom með ólíkindum. Þeir fengu einhver geðlyf, róandi, svefnlyf og allan fiandann. Krisfján Viðar var eins og svefngengill, leit út eins og Frankenstein. Það var mikill mun- ur á fóngunum á lyfjum enda voru þetta þvílíkir hrossaskammtar. Lyfm vom svo mulin til þess að fangar gætu ekki stungið þeim und- ir tunguna og tekið þau út úr sér seinna." Hlynur Þór taldi ekki vafa á að lyfjunum hefði verið þvingað ofan í fangana: „Þeir réðu engu um þetta.“ Aðspurður um hvers vegna hann hefði ekki borið vitni í „harðræðis- rannsókninni" sagðist hann hafa búist viö að verða fyrir mótbyr í starfi ef hann hefði gagnrýnt með- ferð á fongum. Loks var hann spurður: „Skynjað- irðu það þannig að rannsóknar- mennimir efuðust ekki um að sak- bomingamir væm sekir?“ „Já, ég skynjaði það þannig." Botna ekki í þessu Ragnar Hall, settur saksóknari, spurði síðan vitnið. Hann lagði áherslu á að það kæmi fram að mest hafði Hlynur Þór heyrt af harðræði en ekki orðið vitni nema að litlum hluta þess sjálfur og ekki komið fram í harðræðisrannsókninni. Þá spurði hann hvort Hlynur Þór heföi sótt um yfirmannsstöðu. „Þetta var letistarf, ég sótti aldrei um stöðu yfirmanns og skammaöist mín fyrir að vinna í fangelsinu. Þetta var vel borgað, þess vegna var ég svona lengi þama.“ Þá lagði saksóknari fram bréf með undirskrift vitnisins til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, dagsett 6. ágúst 1980, þar sem það sótti um stöðu yfirmanns. Þessu svaraði vitniö: „Ég botna ekkert í þessu.“ Játningar dregnar til baka Seinna vitnið var séra Jón Bjarm- an, fyrrverandi fangaprestur. Hann taldi að eitthvað hefði átt sér stað í fangelsinu sem menn hefðu ekki viljað að hann kæmist að. Hann hafði haft aðgang að dag- bók fangelsisins en var skyndilega meinaður aðgangur að henni. „í þessu máli náði ég ekki tali af skjólstæðingum mínum, sem ég kalla svo, um margra mánaða skeið.“ „Mér var tjáð að þeir óskuðu ekki nærvera minnar en þegar ég loksins fékk að hitta þá spurðu þeir hvers vegna ég hefði ekki komið fyrr.“ Tók hann fram að þetta ætti að- eins við um ungmennin. Þau kvört- uðu við hann um að þeim væri haldið í óvissu, þeim haldið vak- andi, vakinn ótti hjá þeim og komið inn til þeirra á öllum tímum sólar- hringsins. Hann sagði Sævar hafa veriö færðan til sín í hand- og fótajámum í viðtal og hefðu það verið agaviður- i lög. Tryggvi kvartaði einnig um 1 slæma meðferð, að sögn séra Jóns, að klefi hans hefði verið barinn að utan og honum haldið vakandi. Að- I spurður um hvort játningar hefðu verið þvingaðar fram sagði hann: „Sævar sagði eitt sinn að hann hefði ! játað og tekið svo játninguna til baka næsta dag, en þá var ekki tek- ið mark á því.“ í annað skipti sagði hann Sævar hafa sagt: „Ég tek alltaf til baka játningamar næsta dag.“ Stuttar fréttir Rjúpan í meðallagi Rjúpnastofninn er í meðal- lagi og er vaxandi samkvæmt hálfsárslegri rannsókn Nátt- úrufræðistofnunar sem birt var í gær. Nýr sjávarútvegsrisi I í gær var undirritað sam- komulag um sameiningu Þor- 5 móðs ramma - Sæbergs hf. og I Magnúsar Gamalíelssonar hf. og er hlutur síðamefnda fyrir- tækisins 14,6% i hinu samein- | aða fyrirtæki. Hið nýsameinaða fyrirtæki rekur útgerð og fisk- vinnslu á Siglufirði og Ólafs- firði. Nýtt flutningafyrirtæki Tvö flutningafyrirtæki á Húsavík, Aöalsteinn Sigur- geirsson hf. og Skipaafgreiðsla Húsavíkur ehf., Eimskip og Fiskiðjusamlag Húsavíkur hafa stofnað landflutningafyrirtæki. Það ræður m.a. yfir 12 kæli- og frystibílum og verður með dag- legar ferðir milli Norðurlands eystra og Reykjavíkur. Yfirgefa Stóra-Kropp ( Jón Kjartansson, bóndi að I Stóra-Kroppi í Reykholtsdal, og fjölskylda hans hafa ákveðið að flytja búferlum af jörö sinni. Ástæöan era hinar harðvítugu deilur sl. 3 ár um nýjan veg um Reykholtsdal og alvarlegar per- sónulegar árásir sem fiölskyld- an hefur mátt þola í tengslum við þær, ofríki og ofbeldi, að því segir í frétt frá Jóni Kjart- anssyni. -SÁ Ragnar Aðalsteinsson, talsmaöur Sævars Ciesielski (t.v.), og Ragnar Hall, sérstakur saksóknari vegna málsins, bera saman bækur sínar. DV-mynd JAK Hlynur Þór Magnússon, fyrrverandi fangavöröur í Sfðumúlafangelsinu, var annaö tveggja vitna sem mætti fyrir rétti. DV-mynd JAK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.