Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Page 5
I>V LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ1997
%étths
Grensásvegur 1
• Sími 563 3050 • Bréfasími 568 7 1 1 5 • http://www.ejs.is • sa
@ ejs. is
AST
com'puter
Húsavík:
Varasöm
innsigling
DV, Akureyri:
„Þetta mun kosta tugi milljóna
króna en það er stefnt að því að
vinna þetta í sumar því ástandið í
höfninni er alls ekki gott,“ segir
Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsa-
vik, um ástandið i höfninni þar í
hæ. Innsiglingin í höfninni er of
grunn og er t.d. ekki langt síðan tog-
ara tók niðri í miðri innsiglingunni.
Einar segir að vandinn sé tvenns
konar. Annars vegar sé um að ræða
innsiglinguna í hafnarkjaftinum
sjálfum en þar er klöpp sem þarf að
sprengja til þess að dýpka innsigl-
ingarrennuna og er þetta nokkuð
mikil framkvæmd. Stór flutninga-
skip, sem koma til Húsavíkur, þurfa
að sæta lagi til að komast þar inn og
menn þurfa að fara með mikilli var-
úð.
Hins vegar sé um að ræða að mik-
ill sandburður sé inn í höfnina
sjálfa en það hafi valdið mönnum
erfiðleikum og þar þarf að dýpka
með dælingum. „Það er ekki siður
mikilvægt að við ætlum að setja
grjótvörn á norðurgarð hafnarinnar
en mikil ókyrrð hefur verið við við-
leguna við þann garð og eins í suð-
urhöfninni. Þetta telja menn að
hægt sé að laga með því að setja öfl-
ugan brimbrjót á norðurgarðinn,"
segir Einar Njálsson. -gk
RAÐGREIÐSLUR
Samningur Fiskiðjusamlags Húsavíkur og Jökuls á Raufarhöfn:
Styrkír atvinnulífið
- segir Gunnlaugur M. Júlíusson sveitarstjóri
Leiðrétting:
Opnað um síð-
ustu helgi
Opnun á sýningu Bjarna Sigur-
björnssonar sem sagt var frá í Fjör-
kálfinum í gær var um síðustu helgi
en ekki í dag eins og misritað var í
textanum. Sýningin heitir „Erting
inn við beinið" óg er sjötta einka-
sýning Bjarna. Hún verður opin
miðvikudaga til sunnudaga frá kl.
15-18 og stendur til 29. júní.
AST eykur enn forskotið
Búðu þig undir nýja byltingu - ofurhraða og hljóðláta -
sem færir vinnuumhverfi þitt inn á nýjar brautir
og mætir framtíðarkröfum í hugbúnaði.
Nýja AST forystutölvan er hljóðlátari, hraðarrog tæknilega fullkomnari
en flestir bjuggust við auk þess sem hún er hagkvæmari í rekstri.
AST forystutölvurnar vinna við hlið eigenda sinna í enn ríkari mæli en áður
- þær eru tölvurnar sem menn treysta ár eftir ár eftir ár eftir ár.
DV, Akureyri:
„Það má segja að ávinningur
okkar af þessu sé þríþættur. Við för-
um að veiða og vinna allan okkar
kvóta, við sköpum Jökli markviss-
ari stefnu og styrkjum um leið at-
vinnulífið á Raufarhöfn verulega,"
segir Gunnlaugur M. Júlíusson,
sveitarstjóri á Raufarhöfn, en Jök-
ull hf. og Fiskiðjusamlag Húsavíkur
hafa haft skipti á eignum. Fiskiðju-
samlagið keypti rækjuverksmiðjuna
Geflu á Kópaskeri af Jökli en Jökull
keypti rækjufrystitogarann Júlíus
Havsteen og rækjubátinn Kristey af
Fiskiðjusamlaginu. Þá hefur Jökull
einnig keypt rækjufrystitogarann
Brim SU.
Jökull hf. er í meirihlutaeigu
Raufarhafnarhrepps og segir Gunn-
laugur Júlíusson sveitarstjóri að
fyrirtækið eigi vel á fjórða þúsund
tonn af kvóta í þorskigildum. „Við
höfum leigt hluta af þeim kvóta
undanfarið á meðan við höfum ver-
iö í fjárfestingum og erum með Arn-
arnúp, sem er nótaskip, á sUdar- og
loðnuveiðum og hann veröur á
rækju í sumar. Það var kominn timi
fyrir okkur að fá nýtt skip sem mun
hafa næg verkefni," segir Gunn-
laugur.
Rækjuverksmiðjan Gefla verður
áfram starfrækt á Kópaskeri og var
skrifað undir 5 ára starfsyfirlýsingu
þess efnis. Þar er framleidd svoköll-
uð einfryst rækja sem kemur sér vel
fyrir Fiskiðjusamlag Húsavíkur
sem framleiðir mestmegnis það sem
kallað er tvífryst rækja.
Gunnlaugur segir að með kaup-
um á skipunum sé skipastóll Rauf-
arhafnarbúa orðinn góður. „Þetta er
stórt skref fyrir okkur. Nú erum við
með um 4.600 tonna kvóta, tvö stór
rækjufrystiskip, tog- og nótaskip og
erum að gera klárt fyrir 150 tonna
loðnufrystingu á sólarhring. Allar
þessar breytingar efla fyrirtækið og
gera stefnu þess markvissari," segir
Gunnlaugur. -gk
Haföu samband við sölumenn okkar
• Inlrl iirgjöiv.ir
• Inslmil nn
• Hljóðeinarijiraður (lisktir
uj; i'instakl(‘;;a liljóöl.il villa
• Minna en 10 dli
• Nýjusln l’C I Inlcl rásirnar l iO I X
• Ullra DMA- i i sluðniiigur
• ril2KH Syndirmious
liursl l’ipcliiu' skyndiminni
• SDKAM liáliraða ininni, OOns
• Univcrsal Scrial Bus (2 lcngi)
• Grafísk hág.cili (2-0 Mlt S(,KAM)
• Nl X honiHin
'