Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Síða 6
6 LAUGARDAUR 21. JÚNÍ 1997 ^tlöná " * -* stuttar fréttir Átök í Hebron Reiöir Palestínumenn vörp- uöu eldsprengjum og grjóti að ísraelskum hermönnum í Hebr- on í gær. 24 arabar særðust í átökunum. Gonzalez víkur Fyrrum forsætisráðherra Spánar, Felipe Gonza- lez kom stuðnings- mönnum sín- um á óvart i gær er hann tilkynnti að hann sæktist ekki eftir end- urkjöri sem leiðtogi Sósíalista- flokksins. Gonzalez gaf ekki til kynna hvem hann vildi sem eftirmann sinn. Reynir stjórnarmyndun Demirel Tyrklandsforseti fól í gær Mesut Yilmaz myndun nýrrar samsteypustjórnar. Yilmaz ætlar að ræða við flokksleiðtoga í næstu viku. Jeltsín hvetur til náms Borís Jeltsín Rússlandsfor- seti hvatti í gær unga Rússa til að leggja hart að sér við nám. Skortur væri á fólki til að stjórna Rússlandi á næstu öld. Gómaður vegna pítsu Ástriða fyrir pítsum varð þjófi á flótta að falli. Þjófurinn flúði frá Ítalíu eftir fangelsis- dóm. Hann var handtekinn á flugvelli í Róm er hann sneri heim til að fá sér pítsu. Pol Pot gripinn Fyrrum félagar skæruliða- leiðtogans Pols Pots í Kambod- íu kváðust í gær hafa gripið hann. Embættismenn efúðust um handtökuna. Balladur áhyggjufullur Fyrrum forsætisráðherra Frakklands, Edouard Balladur, segir fyrirhugaða eyðslu nýju stjómarinnar geta sett áætlanir um aðild aö myntbandalaginu í hættu. Kohl missir fylgi Vinsældir Helmuts Kohls, kanslara Þýska-lands, hafa dvínað enn frekar í þessum mán- uði, að því er skoðanakann- anir sýna. Hann nýtur aðeins stuðnings 30 prósenta kjósenda. Uppboð á bílum Borís Nemtsov, aöstoðarfor- sætisráöherra Rússlands hélt í gær uppboð á erlendum bílum stjórnvalda. Reuter Þýski mark- aðurinn sterkur Hlutabréfamarkaðir báöum meg- in Atlantshafsins tóku við sér á fimmtudag þegar nýjar tölur um at- vinnuleysi í Bandaríkjunum og al- þjóðaverslun komu út. Atvinnuleysi hækkaði örlítið og dró þar með úr verðbólgumerkjum. Um leið bámst fregnir af þvi að viðskiptahalli væri minni en búist var við vegna meiri framleiðni en búist var við. Wall Street tók kipp um morgun- inn en lækkaði aftur yfir daginn og endaði í 7777 sem er rétt undir meti. Sömu tölur ýttu undir bjartsýni á öðrum mörkuðum en líkt og í Bandaríkjunum sigu þeir eftir því sem á leiö. Þýski markaðurinn sýndi styrkleikamerki þegar í ljós kom að almenn bjartsýni var meiri í efnahagslífinu en búist var við. -vix Taska Thatcher sveiflast á ný Handtaska Margaret Thatcher er komin í fulla sveiflu á ný, að mati stjórnmálafræðinga. Kjör Williams Hagues í embætti leiðtoga íhalds- flokksins í Bretlandi er talið mikill sigur fyrir Thatcher sem stjórnaði Bretlandi með jámhnefa í 11 ár áð- ur en henni var ýtt til hliðar í flokknum 1990. Hague er ungur maður og víst þykir að hann leiti ráða hjá Thatcher. í gær kom hægri hönd Thatcher Hague til bjargar. Hinn nýkjömi leiðtogi breska íhaldsflokksins til- kynnti að hann hefði valið Cecil Parkinson sem næstráðanda í flokknum. Parkinson, sem er 65 ára, er reyndar þekktastur fyrir að hafa gert ritara sinn bamshafandi 1983. Það leiddi til þess að hann varð að segja af sér stuttu eftir að Thatcher hafði unnið yfirburðasigur í kosn- ingum. Það var Parkinson sem stjórnaði kosningabaráttunni eftir Falklandseyjastríðið. Hann lýsti því yfir í gær að hann hefði ekki hugsað sér að snúa aftur í aðalhringiðu stjórnmálanna. Hague hafði hins vegar farið þess á leit við hann fyrir tveimur árum að snúa aftur. Parkinson á nú sæti í lá- varðadeildinni. Helsta verkefni Parkinsons verður endurskipulagn- ing íhaldsflokksins og nýsköpun. Því hafði verið spáð að Parkinson yrði framtíðarforsætisráðherra en kynlífshneykslið frá 1983 kom í veg fyrir það. Stjómmálaskýrendur telja að stuðningur Thatcher við Hague geti orðið tvíeggjað vopn. Stuðningurinn geti gert marga fylgjendur Clarkes, fyrram fjármálaráðherra, fráhverfa. Lögregla í Peking ræöir viö mótmælendur viö aöalstöðvar Kommúnistaflokksins í borginni. Um 200 Pekingbúar voru aö mótmæla húsnæöisstefnu stjórnvalda og neyddi lögregla þá til aö hafa sig á brott. Sfmamynd Reuter. Hungursneyð blasir við 5 milljónum í N-Kóreu Hætta er á að yfir fimm milljónir Norður-Kóreumanna svelti til bana á næstu mánuðum fái þeir ekki matvælasendingar. Starfsmaður Al- þjóða Rauða krossins greindi frá þessu í gær. Á meðan Norður-Kóreumenn lifa á grasrótum og berki bíða 15 þús- und tonn af maís, sem Suður-Kóreu- menn gáfu, i Dandong í Kína vegna skorts á jámbrautarvögnum. „Við teljum að ástand yfir fimm milljóna manna sé svo slæmt að þeir deyi innan skamms fái þeir ekki matvæli og lyf núna,” sagði fulltrúi Rauða krossins. Birgðageymslur í Norður-Kóreu eru nú orðnar tómar, að sögn full- trúans. „Fólk lifir á grasrótum og berki. Ég hef séð það á hundruðum staða. Ég tel að fjöldi fólks hafi lát- ist undanfama mánuði. Sjálfur sá ég böm á munaðarleysingjahælum og á barnaheimilum sem ég tel víst að séu ekki á lífi núna.” íbúar Norður-Kóreu era um 23 milljónir. Þeir þurfa um 475 þúsund tonn af matvælum á mánuði. Að- eins helmingur þess hefur verið fá- anlegur síðan í nóvember síðast- liðnum. „Ástand allrar þjóðarinnar er slæmt. Þeir sem eru verst haldn- ir eru á iðnaðarsvæðunum,” segir Rauða krossfulltrúinn. Heilbrigðiskerfið er að hrani komið og ætlar Rauði krossinn að senda lyf og búnað. Vonast samtökin til að aðildarríki verði rausnarleg og leggi sitt af mörkum til að hjálp berist. New York 8000 pow jones 7500; Kauphallir og vöruverð erlendis 1 London 4800 FT-SE100 4600 4400 4200 4000 3800 M 4653,7 A M J Kaffi 3000 2500 & 2000 _A lbUU F&r! 1815 */t M A M J j Frankfurt 3749,27 M A M J Tokyo 21000: Nlkkel jp 20000 19000 18000 y y 170000 16000 20507,85 0 M ” A M J : Bensín 95 okt. 1500 1450 1400 1350 1300 1250 1200 1150 Hang Seng 14506,49 I 1 I Clinton ætlar ekki að sniðganga Walt Disney Þó að Bill Clinton Bnndaríkja- forseti sé baptisti ætlar hann ekki að sniðganga Walt Disney- fyrirtækið. Söfnuður baptista í Suð- urríkjum Bandaríkj- anna hefur bannfært fyr- irtækið og dóttm-fyrir- tæki þess. Segja baptistamir það hampa samkynhneigðum á kostnað gamalla gilda. Baptist- um gramdist þegar Walt Disney- fyrirtækið bauð sambýlisfólki samkynhneigðra starfsmanna sinna aðgang að sjúkratrygging- um. Auk þess var hommum og lesbíum leyft að halda sérstaka daga í skemmtigörðum fyrirtæk- isins. Kostnaður vegna offitu hækkar stöðugt í Svíþjóð Kostnaður vegna offitu er 5 til 7 prósent af heildarkostnaðinum vegna sjúkdóma í Svíþjóð. Þetta er niðurstaða könnunar læknis við Sahlgrenska sjúkrahúsiö í Gautaborg. Læknirinn bendir einnig á að 7 til 10 prósent af heildarkostnaðinum af veikinda- dögum og ellilaunum fyrir tím- ann séu vegna offitu. í könnuninni í Gautaborg kom einnig fram að þeir sjúklingar sem höfðu gengist undir aðgerð . til að láta fjarlægja fitu urðu ( sjaldnar veikir en áður. Benazir Bliutto vill enga tertu á afmælis- daginn Benazir Bhutto, stjórnarand- stööuleiðtogi í Pakistan, hefur beðið flokk sinn, Þjóðarflokkinn í Pakistan, að halda ekki upp á afmæli hennar. Bhutto, sem verður 44 ára í dag, hefur átt við erflðleika að stríða á síðastliðnu ári. Lögreglan skaut bróður hennar Murtaza til bana í Karachi í september í fyrra. For- seti Pakistans, Farooq Leghari, rak Bhutto úr embætti forsætis- ráöherra 5. nóvember síðastlið- inn vegna meintrar spillingar og óstjómar. í kjölfar brottrekstur- ( ins vora haldnar kosningar í febrúar og beið Þjóðarflokkur- inn ósigur. Eiginmaður Bhutto, Asif Ali Zardari, hefur verið í fangelsi frá því að hún var rekin úr embætti. Er hann grunaður j um aðild að morðinu á bróöur Bhutto. Zardari er einnig sakað- ur um spillingu. Hann neitar öll- um sakargiftum. Paul Watson laus úr fangelsi Paul Watson, leiðtogi Sea Shepherdsam-takanna, var lát- inn laus úr fangelsi í Hollandi í gær eftir átta- tíu daga fanga- vist. Watson tilkynnti er hann var kom- inn út að hann ætlaði að fara til Þýsklands. Þar hyggst hann stíga um borð í skip sitt til þess að hala áfram mótmælaaðgerðum gegn hvalveiðum. Watson var hand- tekinn í Hollandi í apríl síðast- liðnum eftir að norska lögreglan hafði lýst eftir honum vegna hryðjuverka. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.