Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Qupperneq 11
DV LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997 11 Kristileg herðatré Það er örugglega óþægilegt að lokast inni í lyftu. Þetta eru litlir klefar og loftlausir. Þeir eru ágæt- ir til síns brúks, upp og niður, aö því gefnu að dyrnar opnist og lok- ist með eðlilegum hætti. Stundum heyrist af fólki sem hefur lokast inni í lyftu en bjargast eftir nokkra stund. Þetta eru dæmi- gerðar fréttir sem fara inn um annað eyrað og út um hitt. Það mat átti þó ekki við þunga- vigtarmennina sem lokuðust í lyftu á Biskupsstofu fyrr í vik- unni. Sú samsetning var með hreinum ólíkindum. Fyrir fram hefði engum getað dottið í hug að þessi staða gæti komið upp. í lyft- unni voru forseti íslands, forsæt- isráðherra, forseti Alþingis, for- seti Hæstaréttar og biskupsritari. Þarna voru sem sagt saman komnir í fermetra stórri lyftu all- ir handhafar forsetavalds. Auðvitað á ekki að spauga með svona tilvik en það má þó leyfa sér það fyrst allt fór vel og stór- mennið slapp úr prísundinni. Sé tekið mið af samsetningu hópsins í lyftunni má segja að eina stil- brotið sé biskupsritari. Þetta er þó sagt með fuilri virðingu fyrir þeim ágæta manni. Miðað við standardinn á hinum hefði biskup átt að vera þama sjálfur. Lyfta fyrir englakroppa Lyftan á Biskupsstofu er gerð fyrir fimm menn. Hinir valdam- iklu menn fóru því eftir reglum hvað það snertir. Sé smáa letrið lesið má hins vegar sjá að hún ber ekki nema 375 kíló. Það þýðir að hver maður má ekki vera nema 75 kiló. Karlmaður sem er aðeins 75 kíló er óttaleg písl. Því var ekki von að þessi elíta samfélagsins varaði sig. í hópnum eru vel haldnir menn, virðulegir um sig miðja og engir veifiskatar. Það tók um 20 mínútur að ná Ólafi Ragnari, Davíð, Ólafi G., Haraldi hæstaréttarforseta og Baldri biskups út úr lyftunni. Vasklegast gengu fram í þeirri björgun Edda Möller, fram- kvæmdastjóri Skálholtsúgáfunn- ar, forsetabílstjórinn og Júlíus Hafstein. Júlíus er íþróttamaður góður og stýrði áður Ólympíu- nefnd íslands og undirbjó Smá- þjóðaleikana. Hann og Edda gripu því kristileg herðatré á biskups- stofu. Þau munu breiðari en ver- aldleg herðatré. Þeim tókst að gera glufu inn í lyftuna og hleypa að lofti. Bók um Þorlák helga var og stungið á milli. Fylgdi ferskur andvari hinum helga manni. Sumir höfðu nokkrar áhyggjur af því í fyrra að stirt yrði á milli þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar forseta og Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra. Eftir þessa sameig- inlegu reynslu þeirra félaga þarf engar áhyggjur að hafa. Samskipt- in eru náin. Ónafngreindar heimildir Hvað fer mönnum á milli sem bíða innilokaðir i lyftu í 20 mín- útur? Ekki neinum venjulegum mönnum heldur æðstu mönnum þjóðarinnar. Ekki liggur fyrir ná- kvæm skráning á því þótt at- vinnuskrifari biskups hafi verið á staðnum. Hann var auðvitað óvið- búinn og því ekki með skriffæri á sér. Auk þess var bumba við bumbu í örsmáum lyftuklefanum og því önugt að athafna sig. Þar sem margir komu að björguninni má þó púsla saman því sem þarna gerðist og talið er að eftirfarandi frásögn af atburðarásinni sé ekki fjarri lagi. Sé svo ekki er ein- göngu við ónafngreinda heimild- armenn að sakast: Hver ber ábyrgðina? „Hver andskotinn er að gerast, Jónas Haraldsson ætlar lyftuhelvítið ekki að opn- ast?“ þrumaði forsætisráðherra. „Ógn eru að heyra orðbragðiö," sagði biskupsritari. „Við getum ekki leyft okkur að blóta á Bisk- upsstofu. Við megum ekki gleyma því að við vorum að koma af fundi kristnitökunefndar." „Mér er nokkuð sama hvað nefndin heitir eða hvar við erum staddir. Ég hef aldrei verið fyrir nefndastörf. Ég vil taka mínar ákvarðanir einn og óstuddur,“ sagði ráðherrann. „Haraldur,“ hélt Davíð áfram, „er þetta ekki mál dómstólanna? Eiga þeir sem bera ábyrgð á þess- ari lyftu ekki að vera á bak við lás og slá?“ „Allir eiga rétt á sanngjarnri málsmeðferð,“ stundi forseti Hæstaréttar í augljósri andnauð. Hann er heldur lægri vexti en aðr- ir lyftufélagar og því þrýsti vel að honum. „Við getum ekki skotið fyrst og spurt svo,“ bætti hæsta- réttarforsetinn við. Herra forseti „Eigum við ekki að biðja?“ spurði biskupsritari. „Bænin veit- ir svör.“ Valdsmennirnir svöruðu engu en rifu þess harkalegar í lyftuhurðina. „Vilt þú ekki hringja bjöllunni, Ólafur Garðar, það er þitt starf?“ sagði forsætisráðherra og beindi máli sínu til forseta Alþingis. „Mér þætti viðkunnanlegra að vera ávarpaður herra forseti," sagði þingforsetinn um leið og hann teygði sig eftir öryggisbjöllu lyftunnar. „Ég veit ekki betur en ég sé for- setinn," sagði Ólafur Ragnar sem lagði nú orð í belg. „Það eru nú fleiri forsetar hér,“ sagði Harald- ur Henrysson, „ef menn vilja fara í einhvem samjöfnuð." Pundið þungt „Hvemig í ósköpunum stendur á þessu?“ hélt forseti Hæstaréttar áfram. „Ég er ekki hávaxinn mað- ur né þungur. Þetta er því ekki mér að kenna." „Ekki mér held- ur,“ greip forseti íslands inn í. „Ég fer út að skokka á hverjum morgni. Ég held mér grönnum og spengilegum. Við hjónin erum samtaka í líkamsþjálfuninni. Guð- rún Katrín styður framtak mitt heils hugar.“ „Það þýðir ekkert aö horfa á mig, herra forseti,“ sagði Davíð Oddsson og beindi máli sínu til forseta íslands. Alþingisforsetinn leit snúðugt undan. „Ég hef verið í rnegrun að undanfornu," sagði Davíð. „Kílóin hafa beinlínis fok- ið af mér. Það kann að vera að ég hafi verið orðinn of þungur en nú samsvara ég mér vel. Það er fjarri lagi að ég ætli mér að verða í lag- inu eins og kollega Kohl í Þýska- landi.“ „Ég tek ekki einn á mig þessa ábyrgð," sagði þingforseti. „Mér sýnist ekki síður þungt í ykkur pundið." Hann hringdi bjöllunni á ný og skrjáf heyrðist fyrir utan. Von á Neyðarlínunni „Ert þetta þú, Júlli?“ hrópaði forsætisráðherra. Örlítil rifa myndaðist og herðatrésendi skaust inn. „Já,“ svaraði Július Hafstein, „hún Edda Möller er héma líka.“ „Ég hringdi í Neyðar- línuna," hrópaði Edda. „Þeir eru að senda tækjabíl." „Guð minn góður,“ stirndi for- seti íslands og allt handhafavald embættisins í senn. „Við endum sem jólaþáttur, „Næn, vonn, vonn“. Þeir skera utan af okkur lyftuna." „Leggið ekki nafn guðs við hé- góma,“ sagði biskupsritari og minnti menn enn á hvar þeir væru staddir. „Ég heimta aðskilnað ríkis og kirkju eftir þetta ævintýri," sagði forsætisráðherra. „Þetta má ekki endurtaka sig. Þú sérð um það á haustþinginu," sagði Davíð og beindi máli sínu til Ólafs G. „Það ættu ekki að verða vandræði með uppáskrift forseta íslands." „Við höldum næsta fund á Bessastöðum," sagði forseti ís- lands. „Þar em þessi lyftukríli ekki að þvælast fyrir okkur. Við Guðrún Katrín bjóðum. Taktu Tanna með,“ sagði forsetinn við Davíð. „Hundurinn hefur gott af frelsinu á Álftanesinu." Lyftuhurðin small upp í sama mund og her slökkviliðsmanna þusti að, búinn alvæpni. Handhaf- amir og ritarinn voru fljótir út. „í húsi mínu era margar vistar- verur,“ sagði biskup. Hann hafði beðiö utan lyftunnar meðan á ósköpunum stóð. „Þær mættu að skaðlausu vera færri og stærri,“ sagði handhafa- valdið sameinað um leið og ítrek- að var að næsti fundur kristni- tökunefndar yrði haldinn á Bessa- stöðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.