Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Page 12
LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997 T>'\Jr " Ný listaverk í Víkurkirkju eftir Rabbý sem búsett er í New York: Trúin hjálpaði mér að finna myndefni í gluggana DV, Vík:___________________________ Glerlistakonan Hrafnhildur Ágústsdóttir eða „Rabbý“ gerði tólf gluggalistaverk í Víkurkirkju en þau voru vígð þann 15. júní. Lista- verkin voru gefin í minningu Lauf- eyjar Helgadóttur af eftirlifandi eig- inmanni hennar og bömum. „Tilefni þess að ég hóf hönnun og gerð þessara glugga var að skóla- systir mín úr Hjúkrunarskóla Is- lands og maður hennar, Gústaf Her- mannsson, komu í heimsókn til okkar hjóna í New York fyrir fimm árum. Þau skoðuðu vinnustofu mína og forvitnuðust um störf min, en um það bil einu ári síðar hringdi Gústaf í mig vestur og bar upp þá ósk að ég tæki að mér hönnun og gerð glugga í kirkjuna í Vík. Hann sagði það ósk sína, föður síns og systur sinnar að gerðir yrðu steind- ir gluggar í kirkjuna í Vík,“ sagði Rabbý í samtali við DV. „Það var mér mjög kært að vinna við þetta verkefni, þó að það hafi verið erfitt, sérstaklega í byrjun þegar ég var að vinna að teikning- unum og koma hugtökunum í mynd. í svona glermyndum er erlend bóksjá Metsölukiljur ••••••#•••••##♦ Bretland Skáldsögur: 1. Meave Blnchy: Evenlng Class. 2. Joanna Trollope: Next of Kin. 3. Roddy Doyle: The Woman Who Walked into Doors. 4. Danlelle Steel: Mallce. 5. Jackie Collins: Vendetta. 6. John Grlsham: Runaway Jury. 7. John le Carré: The Talor of Panama. 8. Terry Pratchett: Feet of Clay. 9. Michael Ondaatje: The Engllsh Patlent. 10. Ben Elton: Popcorn. Rlt almenns eðlls: 1. Blll Bryson: Notes from a Small Island. 2. Frank McCourt: Angela's Ashes. 3. Paul Wllson: A Llttle Book of Calm. 4. Nick Hornby: Fever Pltch. 5. John Gray: Men are from Mars, Women are from Venus. 6. The Art Book. 7. Richard E. Grant. With Nalls. 8. Redmond O’Hanion: Congo Journey. 9. Grlff Rhys Jones rltstjórl: The Natlon's Favourlte Poems. 10. Laurle Lee: Clder with Rosei. Innbundnar skáldsögur: 1. Bernard Cornwell: Sharp’e Tlger. 2. John Grlsham: The Partner. 3. Arundhatl Roy: The God of Small Thlngs. 4. Wiibur Smlth: Birds of Prey. 5. Edward Rutherfurd: London: The Novel. Innbundln rit almenns eölis: 1. Michael Drosnln: The Bible Code. 2. Paul Brltton: The Jlgsaw Man. 3. Jean-Dominique Bauby: The Divlng-Bell and the Butterfly. 4. Slmon Slngh: Fermat's Last Theorem. 5. J. Russell & P. Murphy: Jack Russell Unleashed. (Byggt á The Sunday Tlmes) mmmaÉmm venjulega fyrst og fremst mikilvægt að hafa góðar teikningar. Næst eru litirnir í verkinu, en það rekur lest- ina, það sem þú vilt tjá. En hjá mér var boðskapurinn mikilvægastur," segir Rabbý. Munnblásið antikgler Þegar ég hitti sóknamefndina í Vík fyrst ræddi ég hvernig verkin ættu að verða. Hún lagði áherslu á að verkin yrðu ekki dökk svo að þau myndu ekki gera kirkjuna dimma, það hentaði mér vel þar sem ég vinn mest með litlaust gler með mismunandi áferð. Það gler sem ég nota er munnblásið antik- gler og eru um þrír fjórðu hlutar af hverjum glugga úr litlausu gleri með mismunandi áferð en hinn hlutinn með lituðu gleri. Ég hef not- að sex gerðir af litlausu gleri, ann- ars er einn meginlitur ráðandi í hverjum glugga," sagði Hrafnhild- ur. Hún segir að við vinnu sína hafi hún gætt þess að upprunalegt útlit kirkjunnar héldi sér að utan og inn- an. Hrafnhildur segist vera trúuð og að hún hafi lengi haft mikinn áhuga á að lesa og kynna sér trúmál. Hrafnhildur hefur starfað mikið síðastliðin 20 ár við sóknarkirkju sína í New York og segir trúna hafa hjálpað sér að finna myndefni í þessa glugga. Hrafnhildur hefur búið í New York í 26 ár ásamt eiginmanni sín- um, Kristjáni Tómasi Ragnarssyni lækni og prófessor í endurhæfingar- lækningum, og er hann viða kunn- ur fyrir störf sín á því sviði og eiga þau fjórar dætur. „Þótt við höfum búið í New York í 26 ár, þá eru taugar okkar Krist- jáns til íslands mjög sterkar. Það var mér þess vegna mjög ljúft að fá þetta verkefni," sagði Hrafnhildur. Hún segir að það hefði verið erfitt fyrir sig að búa i Bandaríkjunum ef hún hefði ekki getað komist heim að minnsta kosti tvisvar á ári. „Að búa erlendis og koma heim til íslands fær mig til að skynja ís- lenska náttúru mun betur. Það er gamall amerískur málsháttur sem segir: „Þú getur tekið stúlkuna úr landinu, en ekki landið úr stúlkunni", það sannast kannski í mér,“ sagði Hrafnhildur. -NH ,,„ÞÚ getur tekið stúlkuna úr landinu, en ekki landið úr stúlkunni", það sannast kannski í mér,“ sagði Hrafnhildur. Metsöluhöfundur Tyrkja Orhan Pamuk á skrifstofu sinni í Istanbul. Það er sjaldgæft að tyrkneskir rithöfundar veki verulega athygli með skáldverkum sin- um. Yasar Kemal varð þó kunnur víða um lönd fyrir anatólískar sögur sinar en þeirra kunnust er vafalaust skáldsagan um Memed sem m.a. hefur komiö út í ís- lenskri þýðingu. En nú hefur Orhan Pamuk slegið honum við með skáldsögum sem eru metsölubækur í heima- landinu, þar sem bók- lestur er reyndar ekki almennur, og hafa um leið áunnið sér verulegt álit erlendis, en verk hans hafa verið þýdd á fimmtán tungumál. Tyrkir eiga í sífelldu reiptogi milli austurs og vesturs, fortíðar og nú- tíðar. Kemal Ataturk reif þjóðina út úr forneskju og reyndi að endur- skapa hana að vestrænni fyrir- mynd. En átök milli þessara ólíku heima eru enn í fullum gangi og skýra að verulegu leyti tilvistar- kreppu Tyrkja. Týndi sár í bókum Orhan Pamuk á ættir að rekja til þess hluta borgarastéttar landsins sem hlotið hefur menntun sam- kvæmt vestrænum gildum. Afi hans í fóðurætt var verkfræðingur sem græddi stórfé á lagningu járnbrauta um landið. Hann eignaðist tvo syni sem fóru út í fasteignabrask. „Á 10-15 árum tókst þeim að eyða fjár- munum afa míns. Það er ekkert eft- ir,“ sagði Pamuk í nýlegu blaöavið- tali. Orhan og bróðir hans, Sevket, voru báðir menntaðir í einkaskólan- um Robert College þar sem kennsla fer fram á ensku. Sevket fór í hag- fræði og kennir nú þá grein við Bosporus háskólann. Orhan hóf nám í húsagerðarlist. En hann hætti námi í miðjum klíðum. Einn skólabróðir hans orðaði það svo að þá hefði losnað skrúfa í hausnum á honum. „Þegar ég varð 22 ára lokaði ég mig inni í svefnherbergi mínu og var þar í átta ár,“ segir hann sjálfur í áðumefndu viðtali. „Ég var ein- fari, skrítinn. Fólk sagði: Ó, hann er misheppnaður. Einu sinni á þriggja Umsjón Elías Snæland Jónsson ára fresti opnaði móðir mín dymar og sagði: Þú ættir kannski að reyna við læknaskóla? Þess í stað reif ég myndir af Tolstoy og Dostojevskí út úr bók og hengdi þær á vegginn hjá mér.“ Árið 1982 gerðist tvennt sem breytti verulega högum hans. Hann gekk í hjónaband; kona hans, Aylin, er sagnfræðingur. Og hann fékk fyrstu skáldsögu sína gefna út. Hún nefnist á ensku „Cevdet Bey and His Sons“ og hlaut mjög góðar við- tökur í Tyrklandi. Síðan kom hver bók- in af annarri, þar á meðal ættarsagan „The Silent House" og „The White Castle" sem gerist við lok sautjándu aldar. Leit að nýju lífi Nýjasta skáldsagan, sem varð strax við út- gáfu metsölubók í Tyrklandi, nefnist á ensku „The New Life“ og fjallar um ungan námsmann sem gjörbreytist við að lesa einhverja bók, sem þó er aldrei nefnd á nafn, og fer að leita að því nýja lífi sem hún boð- ar honum með því að ferðast um af- skekkt Qallahéruð Tyrklands. Pamuk er enn sem fyrr á kafi í bókum. Hann kveðst loka sig inni á skrifstofu sinni í ellefu tima á hverj- um sólarhring til að skrifa - eink- um um átök milli einstaklinga: keppni þeirra, afbrýðisemi, yfir- ráðaþörf og hefndarþorsta. Sumir gagnrýnendur hafa reyndar fundið að því að sögur hans beri of mikinn keim af lestri. Einn þeirra orðaði það svo að hann fengi frekar inn- blástur úr bókmenntunum en sjálfu lífinu. En hann lætur hins vegar lífið ekki fram hjá sér fara. Þótt hann gefi lítið fyrir samkvæmislíf tekur hann virkan þátt í þjóðmálaum- ræðu dagsins, ekki síst baráttunni fyrir auknum mannréttindum allra þegnanna, þar á meðal Kúrda. Fjöl- miðlar landsins leita gjarnan álits hans á pólitískum viðburðum og hann lætur það hressilega í ljósi. Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: |!|l. Danlelle Steel: Mallce. 2. V.C. Andrews: Heart Song. 3. Mary Hlggins Clark: Moonllght Becomes You. 4. Julle Garwood: One Pink Rose. 5. Michael Crlchton: The Lost World. 6. Sheri Reynolds: The Rapture of Canaan. 7. John Darnton: Neanderthal 8. John Grisham: The Runaway Jury. 9. Nora Roberts: Montana Sky. 10. John Saul: The Blackstone Chronicles: Parts 1-5. 11. John Sandford: Sudden Prey. 12. Terry McMlllan: How Stella Got Her Groove Back. 13. Wally Lamb: She’s Come Undone. 14. Ursula Hegl: Stones From the River. 15. Ellzabeth George: In the Presence of the Enemy. Rlt almenns eðlís: 1. Maya Angelou: The Heart of a Woman. 2. Andrew Weil: Spontaneous Heallng. 3. James McBride: The Color of Water. 4. Jon Krakauer: Into the Wlld. 5. Jonathan Harr: A Civil Action. 6. Mary Plpher: Revlving Ophella. 7. Laura Schlessinger: How Could You Do That?! 8. Stephen E. Ambrose: Undaunted Courage. 9. Carmen R. Berry & T. Traeder: Glrlfrlends. 10. Kathleen Norris: The Cloister Walk 11. D. Rodman & T. Keown: Bad As I Wanna Be. Í12. Thomas Cahill: How the Irish Saved Civilization. 13. Scott Adams: The Dilbert Prlnciple. 14. Danaiel Jonah Goldhagen: Hitler’s Willing Executioners. 15. Mary Plpher: The Shelter of Each Other (Byggt á New York Times Book Review)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.