Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Page 18
18 LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997 I>"V gur í lífi Dagur í lífi Ragnheiðar Hanson: Svefnlausar nætur við undir- búning Sting-tónleikanna Dagurinn hófst með látum eins og svo margir aðrir dagar undan- farið, þ.e. með símtölum. Það fyrsta frá yfirtæknimanni Stings vegna skjáa sem á að setja upp í Höllinni fyrir tónleikana 25.6. Þetta finnst mér vera ansi spenn- andi, þetta er i fyrsta sinn sem þetta er gert á íslandi og tryggir að allir sjái vel. Eftir þetta talaði ég við sviðsstjórann okkar sem sagði mér að sviðið hefði verið hækkað, sem eru líka gleðifréttir, því það er flókið mál og erfitt vegna tækni- græja í lofti. Eftir nokkur símtöl í viðbót og reddingar fór ég með fjögurra ára gamla dóttur mína, sem kann nú öll lögin af „Mercury Falling" með Sting, í Grænuborg og spjallaði smástund við yndis- legu stúlkurnar þar. Siðan var það hádegisverðarfundur með Dísu Anderiman og Ingvari Þórðarsyni, samstarfsmönnum mínum í Tin. Það þarf að ganga frá ótrúlega mörgum smáatriðum í sambandi við eina tónleika, miklu fleiri en fólk gerir sér grein fyrir. Til dæm- is þurfum við að panta erlendis frá sérstök ljós og teppi í búningsher- bergi Stings, hann stundar alltaf jóga í tvo tíma fyrir tónleika, og þetta þurfti að vera nákvæmlega eins og hann vill hafa þetta. En eft- ir miklar umræður, sérstaklega um fragtvélina sem kemur með allt hans hafurtask, fór ég upp í vinnu til aö svara og skrifa símbréf og tók mér langan tíma í að ganga frá flugi fyrir hópinn, 27 manns. Það hefur verið síbreytileg en siðustu fréttir eru þær að hann komi með einkaflugvél sinni boð til mín frá Mike Garson, hljómborðsleikara Davids Bowie, sem við hittum í fyrra á tónleikrm- um og höfum mikið samband við. Hann er á tónleikaferð með Bowie og ég fékk að heyra allar nýjustu fréttirnar þegar ég hringdi í hann til baka i Amsterdam. Allir með- limir í hljómsveitinni eru frábært fólk en Mike er alveg einstakur öðlingur. Og dóttir mín nýtur góðs af þessum nánu kynnum og fær oft pakka frá þeim senda úr hinum ýmsu heimshomum. Dökkir baugar Nú var klukkan orðin 2.30 og enn átti ég mörg verkefni eftir. Ég kláraði að skrifa símbréf fyrir morgundaginn og fór á Netið til að leita mér að nýjum upplýsingum við undirspil „Fields of Gold“, Sting auðvitað, sem mér finnst vera alveg yndisleg plata. Ég skreið í rúmið um klukkan 5, las yfir upplýsingar sem ég fékk send- ar í dag og slökkti svo Ijósið. Ég þarf að vakna eftir tvo tíma til að hitta hótelstjórann á hóteli Stings til að skoða herbergin og ganga frá þeim málum svo lítið verður um svefn í nótt. Reyndar eru það orðn- ar ansi margar nætur svona, baug- amir undir augunum era talsvert dökkir og stórir, en þetta er gaman og þess virði að standa í þessu. Það var kominn tími til að íslendingar fengju að sjá topplistamenn í sínu heimalandi og vonandi gefa þessar finu viðtökur tilefni til að fram- hald verði á góðum tónleikum hér á landi. ásamt eiginkonu og umboðsmönn- um en tækniliðiö kemur fyrr á eig- in vegum. Vonandi stendur þetta, tíminn er stuttur fyrir of margar breytingar í viðbót. Öndunum gefið Um fimmleytið sótti ég dóttur mína í leikskólann og þar sem þetta var fallegur dagur gaf ég mér tíma í að fara með hana niður á Tjöm að gefa öndunum. Við notum oft virkan dag í þetta þar sem end- urnar eru alltaf saddar um helgar og líta ekki við okkur, en í dag var okkur tekið fagnandi og dóttirinn alsæl með einn ís þar að auki. Eftir heimkomuna fór ég að svara tölvupóstinum mínum sem er orðið ansi mikið verk þessa dag- ana. Eftir kvöldmatinn ætlaði ég að reyna að horfa á „Quadroph- enia“ með Sting, reyndar ein af mínum uppáhaldsmyndum, ég keypti eintak í síðustu viku í London, það var verið að endurút- gefa spóluna og mikið húllumhæ í kringum það, en síminn hringdi of oft, langmest út af tónleikimum, svo ég gaf það upp á bátinn, horfi á það við betra tækifæri, líklega eftir tónleikana. Til að taka mér smáhvíld skrapp ég með Dísu á Kaffibarinn en auðvitað endaði það með umræðum um fram- kvæmdir á þessu öllu saman og lít- ið um rabb okkar á milli. Þegar ég kom heim um eittleytið voru skila- Ragnheiöur Hanson hefur í mörgu aö snúast viö skipulagningu á tónieikum Stings. DV-mynd E.ÓI. Einu get ég þó hrósaö mér af, herra. Ég er mjög nákvæmur. Nafn: Heimili: Vinningshafar fyrir fjögur hundruðustu og fjórtándu getraun reyndust vera: Anita Erlendsdóttir, Stórageröi 12, 108 Reykjavík. Hólmfríöur Jensdóttir, Unnarsbraut 28, 170 Seltjarnarnes. Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafhi þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöth sigurvegar- anna. r KAUMAR i 1. verðlaun: Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél frá Radíóbæ, Armúla 38, að verðmæti 3.995 kr. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli- brísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fhnm breytingar? 415 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.