Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Page 21
JLXV" LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997 éiðtalið ekki á tónleikaferðalögum. Þá fer ég út að ganga, sem tónlist og æfi mig ásamt því að gefa út plötur. Líf mitt er ekkert öðruvísi en þeirra sem ekki eru frægir,“ segir Sting. „Ég ætla að semja tónlist þar til ég er orðinn of gamall og ruglaður til þess að gera það. Það eru til tón- listarmenn sem hafa staðið á sviði sextugir eða sjötugir,“ segir Sting sem er ekkert á því að hætta. Hann segist ekki sjá eftir miklu í lífinu og ef hann ætti að lifa lífinu upp á nýtt myndi hann fara sömu Sting segist lifa frekar rólegu lífi. Auk þess að leika skák og stunda jóga af kappi hefur hann mjög gam- an af því að lesa góðar bækur. „Síðasta bókin sem ég las heitir Smilla lesið í snjóinn eftir danska höfundinn Peter Hoeg. Það var mjög góð bók að mínu mati. Ég hef gaman af góðum sögum en hef aldrei lesið neitt eftir islenskan höf- und. Ég kaupi mér kannski ein- hverja kilju þegar ég kem til ís- lands,“ segir Sting. Sting ásamt íslenska hestinum. Honum var boðiö á hestbak en hann hefur ekki tíma og vill eiga það inni þar til síöar. leið. „Ég er á réttri hillu i lífinu. Ég hef alltaf fylgt mínum draumum og reynt að láta þá rætast. Þegar ég var yngri lét ég ekkert standa í vegi fyr- ir frama mínum. Ef ég mætti spóla til baka myndi ég helst óska þess að hafa verið betri við fólk sem var í kringum mig. Ég myndi ekki endur- taka hvað ég var árásargjam og grimmur þegar ég var yngri maður. Ég hef mýkst mikið með árunum. Núna er ég mjúkur maður og eigin- lega alger kisulóra. Ef það er eitt- hvað sem ég vildi breyta þá er það framkoma mín við fólk,“ segir Sting. „Það sem gerir mig hamingju- samastan í lifinu er fjölskylda min. Einnig er ég ánægður á meðan ég get skrifað tónlist. Ég er auk þess mjög hamingjusamur með hljóm- sveitina mína. Bjargar regnskógum Sting hefur ávallt verið talsvert pólitískur og gagnrýninn á ferli sín- um. Hann hefur auk þess til dæmis hjálpað til við aö bjarga brasilísk- um regnskógum. Einnig styður hann heils hugar Amnesty Intem- ational. Sumar stjömur skína skært á ferlinum en ekki í einkalífinu. Svo er ekki um Sting. Einnig hefur hann varið milljónum dollara til friðarmála, umhverfismála og fleira. Kvikmyndaferill hans hefur geng- ið upp og ofan. Frammistaða hans í kvikmyndunum Treacle og Qua- drophenia hefur verið lofuð svo dæmi séu tekin. Aðdáendur Stings geta hlakkað til að berja kappann augum í höll- inni á miðvikudag. -em Anna Halldórsdóttir söngkona hitar upp fyrir Sting: Ég var alsæl því Sting er mitt goð Anna Halldórsdóttir, söngkonan frækna frá Akranesi, hefur verið valin til þess að hita upp fyrir tón- leika Stings. Hann valdi hana úr stóram hópi íslenskra listamanna. Sting fékk send myndbönd og geisla- diska og leist langbest á Önnu. Hon- um fannst fylgja henni viss fersk- leiki. „Ég sat og beið eftir að diskurinn minn var sendur út. Ég vonaði auð- vitað að ég yrði valin. Ég varð ótrú- lega glöð. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því þegar ég frétti af því að ég hefði verið valin. Ég var alsæl þar sem Sting er mitt gamla goð,“ segir Anna. Anna segist ávallt hafa haldið mikið upp á tónlist Stings. Hún hlustaði mikið á The Police á sínum tíma og fylgdist einnig vel með sóló- ferli Stings. Anna á sér mörg eftir- lætislög með Sting og byrjar að telja upp en á síðan erfitt að gera upp á milli. Þetta er óneitanlega gott tæki- færi fyrir Önnu þar sem hún er ekki mjög þekkt söngkona. Hún gaf út plötuna Villtir morgnar fýrir jólin í fyrra og vakti sú plata mikla at- hygli. Anna fer varlega í að fullyrða um hvað þetta þýöi fyrir tónlistar- feril hennar. Heiður og viðurkenning „Þetta vekur óneitanlega athygli á mér sem tónlistarmanni. Ég veit ekki hvort þetta hefur áhrif á tón- listarferil minn. Það á eftir að koma í ljós. Þetta er fyrst og fremst mjög ánægjulegt fyrir mig og mikill heið- inr og viðurkenning," segir Anna. Anna starfar sem þjónn á Þremur Frökkum. Hún byrjaði fyrir stuttu að æfa með hljómsveitinni sinni sem heitir eins og er ekki neitt. Hún hélt tónleika í vor í Loftkastalanum. Einnig hélt hún litla tónleika á Gauki á Stöng. „Það kom sér vel að ég var komin í góða þjálfun með hljómsveitinni minni eftir tónleikana. Það er alltaf svolítil vinna að æfa upp pró- gramm," segir Anna. í framtíðinni dreymir Önnu um að geta lifað af tónlistinni. Henni finnst heimurinn stór og ógnvekj- andi. Samt gerir hún sér grein fýrir því að hún verður að vera þekkt til þess að fólk kaupi tónlistina. Sviðsljósið ekki hollt „Ég veit ekki hvort sviðsljósið er neitt hollt eða gott fyrir manneskj- una. Ég get imyndað mér að þetta sé enginn dans á rósum. Ég sé frægð ekki fyrir mér í neinum dýrðar- ljóma. Mikilvægast og skemmtileg- ast fmnst mér að geta lifað á tónlist- inni,“ segir Anna. Anna er Skagamanneskja í húð og hár og heldur auðvitað með ÍA. Hún segist þó ekki fara á völlinn. Faðir hennar, Halldór Fr. Jónsson, var þjálfari yngri deildanna í mörg ár. Hún segist einhvern veginn hafa fengið nógu stóran skammt af bolta- tali þá. -em Anna Halldórsdóttir hlakkar mikiö til þess aö hita upp fyrir Sting. Það leynir sér ekki þegar planta hefur fengið MOLTU, lífræna jarðvegsbætinn frá SORPU. MOLTA er rík af helstu næringarefnum plantna, hefur góða loftunar- og vatnsheldniseiginleika og lífgar ófrjóan jarðveg við. Reynslan sýnir að MOLTA hentar vel í beð, við útplöntun, í trjárækt, í matjurtagarðinn og sáningu. = MOLTA fæst á endurvinnslustöðvum og í Gufunesi. u = Þú stuðlar að endurvinnslu og náttúruvernd með því að skila garðaúrgangi í næstu endurvinnslustöð. Mundu að hafa trjágreinar aðgreindar frá öðrum garðaúrgangi. SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs MOLTA - lifandi dæmi um kosti endurvinnslu Gufunesi, sími 567 66 77

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.