Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Side 29
JJV LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997 29 „Það er mikil uppsveifla í ís- lensku leiklistarlífi og íslensk leik- hús hafa verið að fá viðurkenn- ingu erlendis. Það er fullt af góðum leikurum og mikið um að vera hjá íslensku leikarastéttinni," segir Þór Tulini- us sem er nýkominn heim eftir eins og hálfs árs dvöl í París. Fékk styrk „Ég bjó í Lyon í Frakklandi frá 10-15 ára aldri og tala því góða frönsku. Eftir að ég kláraði Leiklistar- skóla Islands fyrir um 11 árum fékk ég styrk frá franska ríkinu og dvaldist eitt ár í Frakklandi. Þar kynntist ég leikstjóranum Mario Gonzalez frá Guatemala og höfum við haldið sambandi sið- I frönsku leikriti Fyrir tæpum tveimur árum bauð Gonzalez mér hlutverk í grímuleikriti sem hann var að fara að setja upp og ég ákvað að láta slag standa og hélt til Parísar. Gonzalez er sérhæfður í grímu- leikhúshefð svo að hann kann vel til verka og gott er að vinna með honum. Leikritið gekk mjög vél og við ferðuðumst með það um allt Frakkland. Það var sama hvar við komum, við gerðum alls staðar stormandi lukku og sýningargestir kútveltust af hlátri. í fjársjóðsleit Mér bauðst einnig að leika i franskri kvikmynd sem íjallar um Evrópumenn sem fara í íjársjóðs- leit til Kenía. Myndin er nokkurs konar leikin heimildarmynd og ekki beinlinis í Hollywoodstíl. Við dvöldumst í Kenía i 45 daga við töku myndarinnar og var það mikið ævintýri. Við ferðuðumst um í óbyggðum þar sem maður gat átt von á fílum, tígrisdýrum og öðrum frumskógardýrum út úr hverju skúmaskoti. Myndinni er enn ekki lokið og vonast ég til að geta farið bráðlega aftur til Kenía, lokið við gerð hennar og fund- ið „fjársjóðinn". Það er gömul þjóð- saga sem segir að þennan „fjársjóð" sé að finna í Kenía og við teljum okkur hafa sterkar vís- bendingar um það að við séum kom- in á slóð hans. Við verðum því að fara aftur út og halda leitinni áfram.“ Leikari og leikstjóri Þór hefur víða komið við söguna í íslensku leiklistarlífi bæði sem leikari og leikstjóri. Meðal verka sem Þór hefur leik- ið í eru Rómeó og Júlía, Fló á skinni, M. Butterfly og Höll sumar- landsins. Þór leikstýrði fyrst í atvinnu- leikhópnum Þíbylju en upp úr því fór hann að leikstýra í at- vinnuleikhúsum. „Það er mjög ólíkt að leika og leikstýra en hvort tveggja mjög skemmtilegt. Ég hef einnig verið að dunda mér við að skrifa og hver veit nema einhvern tímann verði til kvikmynd." Nóg fram undan Það er víst óhætt að fullyrða að Þór verð- ur ekki verkefna- laus næstu misserin. „Ég var að enda við að leika í þremur sjónvarps- þáttum eftir Guðrúnu Þór Tulinius er nýkominn heim eftir eins og hálfs árs dvöl í París. Helgadóttur sem verða sýndir í sjónvarpinu nú í haust. Það verður nóg að gera í leikstjórabransanum næsta vetur og er ég meðal annars að fara að setja upp nýtt íslenskt leikrit eftir Hallgrím Helgason. Hallgrímur ólst upp í leikhúsinu, enda sonur Helga Skúlasonar og Helgu Bachmann, og hér hefur hann sett saman bráðskemmtilegt leikrit um ungt fólk á tímamótum. 1 haust er ég að leikstýra leikrit- inu Fat Man in Skirts, (Feitir menn i pilsum) sem verður sett upp í Borgarleikhúsinu. Stykkið er frá árinu 1988 og er Bandaríkjamaður- inn Nicky Silver höfundur verks- ins. Leikritið er léttgeggjað og fjall- ar meðal annars um mannát og það að lifa af í heiminum í dag.“ Annan fótinn heima Spennandi verkefni bíða Þórs Tulinius og er hann óþreyjufúllur að koma þeim í verk. En hvað svo? „Ég býst við að starfa eitthvað erlendis í framtíð- inni en vera þó alltaf með annan fótinn hér heima. Það er ofboðs- lega gott og hressandi að dveljast um skeið í útlöndum, kynnast nýju fólki og öðrum og ólíkum hugsun- arhætti. En það er að sama skapi notalegt að koma heim aftur, jafn- vel þrátt fyrir rigninguna og rok- ið.“ Eins og þjóð veit þá skildi Fran Drescher úr framhaldsþáttunum Fóstran (the Nanny) við eiginmann sinn, Pter Marc Jacobson, á dögun- um. Siðan þá hafa þær sögur gengið fjöflum hærra að þau væru að þvi komin að taka saman á ný. Þau hafa komið fram opinberlega saman og látið falla hlýleg orð í garð hvort annars. Nú virðist hins vegar allt vera endanlega búið þeirra í milli. Jacobson verður nefnilega í New York í vetur á meðan Drescher verður eftir í Los Angeles. Heimild- armenn segja að þegar þetta gerist fari Fran að hugsa sér til hreyfings og líta eftir nýju karlfangi. Vorferð í vetrargöllum OV, Stykkishólmi:____________________ Brakkarnir á „Spító“, leikskólan- um í Stykkishólmi, kalla ekki allt ömmu sína. Þau fóru galvösk i sína árlegu vorferð þrátt fyrir kulda og trekk og höfðu bara gaman af. Að þessu sinni var farið í Bjarnarhafn- arhvamm. Þar var grillað og leikið sér. Leikskólinn er rekinn i húsnæði St. Franciskureglunnar við hlið spít- alans og rak reglan hann lengi vel. 1982 hóf Stykkishólmsbær samstarf við systurnar um reksturinn. Nú hafa hins vegar orðið þau þáttaskil að bærinn hefur tekið reksturinn yfir frá og með 1. ágúst nk. Leikskól- inn verður samt áfram rekinn í hús- næði systranna. í vorferðinni naut systir Lovísa sín en hún hefur verið leikskólastjóri áratugum saman, en lætur af störfum 1. ágúst. -BB í Bjarnarhafnahvammi. DV-myndir Birgitta Systir Lovísa ásamt leikskóiabörnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.