Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Síða 30
30 ^lgarviðtalið LAUGARDAGUR 21. JUNI 1997 LAUGARDAGUR 21. JUNI 1997 &lgarviðtalið 43 Helgi Tómasson, ballettstjórnandi í San Francisco, í einkaviðtali við helgarblað DV: Dansflokkurinn er spegilmynd mín Helgi Tómasson, ballettstjórnandi í San Francisco, hefur hlotið fjöld- ann allan af verðlaunum fyrir afrek sín í listaheiminum. Hann hlaut silf- urverðlaunin í samkeppninni First International Ballet í Moskvu árið 1969 þegar Míkhaíl Baryshnikov hlaut gullverðlaunin. Honum voru veitt Isadora Duncan-verðlaunin fyr- ir frábæra uppsetningu San Francisco-ballettsins á Svanavatninu árið 1989. Árið 1991 var hann gerður að heiðursborgara Kaliforníu. Það sama ár hlaut hann verðlaunin Golden Plate sem veitt eru af Amer- ican Academy of Achievement. Þremur árum síðar heiðraði Amer- ican-Scandinavian Foundation hann með menningarverðlaunum sínum í New York. Hann var sæmdur heið- ursdoktorsnafnbót í mannvísindum við Dominican-háskólann í San Rafa- el í Kaliforníu fyrir framlag sitt til lista og menningar. En þau verðlaun sem hann metur mest eru íslenska fálkaorðan. Hann er hógvær en ákveðinn. Skrifstofa hans er prýdd heiðursskjölum og ljósmyndum af ferli hans. Helgi Tómasson hefur náð ótrúleg- um árangri með San Francisco-bal- lettinn síðan hann tók við flokknum árið 1985. Síðan þá hefur hann unnið jafnt og þétt að því að lyfta ballettin- um, virtum en áður tiltölulega óþekktum flokki, upp á alþjóðlegt svið. Erik Bidsted hjálpaði ur stjómandi, eftir honum. Robbins útvegaði Helga styrk svo að hann gæti lagt stund á dansnám við amer- íska ballettskólann í New York. Að námi loknu hóf Helgi atvinnumanns- feril sinn sem dansari með Joffrey- ballettinum og seinna með Harkness- ballettflokknum. Árið 1970 fór Helgi að dansa með New York- ballettinum sem einn af aðaldönsurunum. Þar átti hann eftir að verða einn af fræg- ustu ballettdönsurum síns tima. Fólk vill sjá eitthvað nýtt mer Ekki datt Helga í hug að dansinn yrði hans lifibrauð þegar hann var barn heima á íslandi að dansa. „Það var ekki fyrr en ég var sext- án ára og fór að fara til Kaupmanna- hafnar að dansa að ég ákvað að halda áfram í þessu,“ segir Helgi. Helgi segist ekki hafa átt sér nein- ar sérstakar fyrirmyndir í æsku. Hann segir aftur á móti að Erik Bid- sted, sem var með ballettskólann í Þjóðleikhúsinu ásamt konu sinni, Lísu, hafi hjálpað sér mikið. „Það var fyrir þeirra tilstilli að ég fór til Kaupmannahafnar," segir Helgi og heldur áfram: „Ég lærði af- skaplega mikið af honum áður en ég fór til Bandaríkjanna. Bidsted er hættur í ballettinum og býr á eyj- unni Menorka í Miðjarðarhafinu. Ég hef heimsótt hann þangað og við höf- um samband þeg- ar við getum,“ segir Helgi. Helgi hóf nám við Pantomime- leikhúsið í Kaupmanna- höfn sextán ára gamall en þar , tók Jerome Robbins, þekkt- Helgi hafnaði boðum um að taka við stjórn Konunglega ballettsins í Danmörku og ballettflokks óperunn- ar í París. í staðinn ákvað hann að taka við San Francisco-ballettflokkn- um sem var svo til óþekktur þá. „Ég hefði aldrei getað sett mark mitt á Konunglega ballettflokkinn á eins afgerandi hátt og ég hef getað gert hér,“ segir Helgi. „í Kaupmannahöfn voru helstu vandræðin vinnuaðferðir. Mér fannst að fleiri æfingartíma þyrfti á hverjum degi en verið hafði til þess að ná fram breytingum í dansílokkn- um og til þess að skapa ný verkefni. Það voru líka þessir háu skattar af laununum sem settu strik í reikning- inn. Mér fannst ég geta afkastað miklu meiru hér. í San Francisco var mér boðið upp á miklu meira frelsi til þess að gera tilraunir og semja mina eigin dansa. Það hefði ég aldrei getað gert í Kaupmannahöfn eða í París. Ég hafði einnig dansað í Bandaríkjunum í íjölda ára og sá að hér var mikill efniviður." Kynntust í dansinum Helgi býr í San Francisco ásamt konu sinni, Marlene. Þau kynntust þegar þau dönsuðu bæði með Jof- frey-ballettflokknum í New York. Þau eiga tvo syni, Kristin, 30 ára, og Erik, 25 ára. Að sögn Helga hætti Marlene að dansa einu og hálfu ári eftir að Krist- inn fæddist en er enn viðloðandi bal- lettinn þó hún starfi ekki beinlínis við hann sjálf. „Marlene hjálpar mér mikið. Hún var sjálf mjög góður dansari svo að hún þekkir hvernig þetta gengur fyr- ir sig. Það er mjög gott að fá álit hennar því það hjálpar manni að sjá hlútina frá öðru sjónarhorni. Við erum ekki alltaf sammála en hún kann sitt fag og ég treysti henni vel,“ segir Helgi. Helgi þótti snemma efnilegur og hann fór til Danmerkur aöeins sextán ára gamall. Synirnir hafa engan áhuga á bailett r Helgi Tómasson býr í San Francisco meö konu sinni, Marlene, sem hann kynntist þegar þau voru bæöi dansa meö Joffrey-ballettflokknum. Meö þeim á myndinni er Erik sonur þeirra. Synir Helga hafa aldrei haft nokkurn áhuga á ballett. Þeir fóru aldrei í danstíma þegar þeir voru litlir. „Þeir höfðu eng- an áhuga á ball- ett. Og mér var í raun al- veg sama. Við reynd- um aldrei að koma þeim í dans- tíma af því við viss- aö um að það þýddi ekki neitt. Við styðjum þá, sama hvað þeir taka sér fyrir hendur. Þeir kynntust þessu frá ungaaldri og sáu strax hvað ballett er í raun erfið og tímafrek listgrein. Þeir fengu náttúrlega að kíkja á bak við tjöldin svo þeir gerðu sér snemma grein fyrir því að þetta er gífurleg vinna. Einnig hefur það lík- lega haft eitthvað að segja að faðir þeirra er heimsþekktur í þessu fagi. Það er eflaust erfitt að standa undir þeirri pressu sem því fylgir," segir Helgi. Synir Helga hafa báðir alist alfar- ið upp í Bandaríkjunum. Tengsl þeirra við ísland voru sterkari þegar þeir voru yngri að árum. Töpuðu íslenskunni „Þeir höfðu báðir mjög gaman af því að koma heim þegar þeir voru smástrákar og seinna sem unglingar. Ég á stóra fjölskyldu heima og þeim fannst gaman að hitta hana. ísland var mjög spennandi fyrir þá af því að þetta var svo ólíkt því sem þeir þekktu. Við fórum meira heim þegar strákarnir voru yngri. Þá gátu þeir gert sig skiljanlega og skildu mestallt sem sagt var við þá. Þegar þeir urðu eldri gafst minni tími til að fara heim. Þeir voru uppteknir við há- skólanám svo að þeir töpuðu niður því litla sem þeir kunnu I íslensku," segir Helgi. Báðir strákarnir útskrifuðust úr Pasadena Arts Center College i Suð- ur-Kaliforníu, Erik í kvikmyndun en Kristinn í hönnun. Erik er að reyna að sanna sig í kvikmyndaheiminum. Þar þarf mikla peninga til þess að komast áfram og gera það sem fólk Þau verðlaun sem Helgi metur mest eru íslenska fálkaoröan, þrátt fyrir silf- urverðlaunin í samkeppninni First International Ballet í Moskvu áriö 1969, Isadora Duncan-verölaunin, Golden Plate-verölaunin og menning- arverölaun American-Scandinavian Foundation. Hann var sæmdur heið- ursdoktorsnafnbót í mannvísindum viö Dominican-háskólann í San Rafael í Kaliforníu fyrir framlag sitt til lista og menningar. DV mynd GÁ langar til. „Það þarf að sanna sig til þess að fá fjármagn en vandinn er sá að erf- itt er að fá tækifæri til þess að öðlast þessa reynslu. Kristinn býr hins veg- ar í Múnchen í Þýskalandi og starfar sem bílateiknari fyrir BMW- verk- smiðjurnar þar,“ segir Helgi. Þyldum ekki skammdegið og kuldann þá fremsta í heiminum í svokölluð- um nútímadönsum og í þeim klass- ísku séu þeir einnig með þeim allra bestu. „Allir dansflokkar vilja komast til New York og spreyta sig þar. Góð ummæli í New York gefa það til kynna að menn hafi þá hæfileika sem þarf til þess að komast alla leið á toppinn. New York er hægt og síg- andi að verða miðjan í dansheim- Marlene hefur alltaf haft gaman af að koma heim og hitta fíölskyldu Helga. Hann efast þó um að hún gæti hugsað sér að setjast að á íslandi. „Marlene myndi eflaust ekki geta þolað íslenska veturinn og skammdegið, ætli ég myndi þola það sjálfur? Maður hefur verið í burtu svo lengi, segir Helgi. Helgi segir að öll íjöl- skylda hans hafi mjög mikið að gera og sam- bandið mætti gjarna vera meira. „Ég kem nokkuð reglulega við heima þegar ég á leið til e9 heföj~^~~ Evrópu en stoppa °"W sen? Var .,ö - vanalega stutt. e9,r He/g/ Pe9ar Það er helst að Guð- jón bróðir komi hingað og heim- sæki okkur,“ segir Helgi og er ég spyr hann nánar um bróður hans bætir hann við: „Við Guðjón Ingi Hauksson erum hálfbræður. Hann er giftur konu frá Seattle, af íslenskum ættum, og þeg- ar þau eiga leið þangað koma þau oft við hér en þau búa heima," segir Helgi. Yfir í aðra sálma í San Francisco eru listir mjög vinsælar og Helgi segir fólk styðja þær dyggilega. Það er mikilvægt að nægilegir peningar séu fyrir hendi til þess að skapa ný verk- efni og þeir eru til staðar í borginni. -«5iSi Fremstir í heim- inum „Það sem ég er búinn að afreka hér í San Francisco hefði ég aldrei getað í Dan- mörku eða í Frakklandi." Aðspurður um hvar honum finnist Bandaríkjamenn standa í ballettheiminum um þessar mundir segir Helgi JP mum, segir Helgi. Hann segir dansinn vera smám saman að breytast. Það verði æ meira um nútímadansa. Þá vilji fólk fyrst og fremst sjá. „Svanavatnið og Þyrnirós eru auð- vitað alltaf vinsæl verk. Fólk vill líka sjá eitthvað nýtt, ekki bara gömlu klassísku ballettana. Margir af sköp- urum þessara nútímadansa eru Banda- ríkjamenn," segir Helgi. Erfitt fjárhags- lega Dansflokk- urinn hefur verið í hús- næðisvand- ræðum síðasta hálfa annað árið. Mjög erf- iðlega hef- -M ao reka D,anm°rku, —*5S55t ur gengið að ráða fram úr því, að sögn Helga. Óperuhúsið hefur verið I endurbyggingu frá því í janúar 1996 og á meðan hefur flokkurinn þurft að sýna í þremur minni leikhúsum á San Francisco-svæðinu. „Við höfum ekki getað dansað alla stóru ballettana sem við erum með. Einnig hefur þetta verið gífurlega erfitt fjárhagslega. Það koma auðvit- að minni peningar í kassann þegar við erum að sýna í leikhúsi sem tek- ur 700 manns í sæti en þegar við er- um að sýna í óperu- húsinu sem tekur um það bil 3.200 manns í sæti,“ segir Helgi. Ein af aðal- dönsurum flokksins, Elizabeth Loscavio, hefur ákveðið að yfírgefa flokkinn. Helgi var spurður hvort það mundi hafa neikvæð áhrif á framtíð- ina: „Ég hef engar áhyggjur af því. Það verða engin vandræði að fá nýja dansara. Það er nóg af þeim. Ég mun sjá eftir henni á ákveðinn hátt. Ég samdi marga dansa fyrir hana en hún hefur kom- ist að þeirri niðurstöðu að hún þurfi að breyta til og það verða aðrir sem taka við. Loscavio er gífurlega góður dansari og ég held að það sé að miklu leyti mér að þakka,“ segir Helgi. Helga líkar vel að vera þar sem hann er. Hann segist ekki vilja breyta til þótt honum byðist eitthvað annað I Bandaríkjunum eða Evrópu. Hér hef ég meiri völd. Það er gott að vera hér í San Francisco. Það er stutt vel við bakið á listalífínu hér og það auðveldar margt. Það er hugsan- lega þess vegna að San Francisco- ballettinn er eini flokkurinn i Banda- ríkjunum, fyrir utan New York-ball- ettinn, sem er með mismunandi dag- skrá á hverju sýningarkvöldi. Þetta hefur auðveldað mér að setja mitt vörumerki á flokkinn. Það sem gerir þennan flokk frábrugðinn öðrum flokkum er hvemig ég þjálfa dansar- ana,“ segir Helgi. Að sögn Helga verður útkoman eins og hann hefur hugsað sér. Dans- aramir dansa eins og hann vill að þeir dansi og þeir hreyfa sig eftir tónlistinni eins og hann heyrir hana. „Það má eiginlega segja að flokkurinn sé spegil- mynd mín.“ EkRert að gera á Islandi Helgi segist hvergi sjá ísland í framtíð sinni. Hann býst ekki við að eiga eftir að flyfjast aft- ur heim. „Ég hef verið burtu svo lengi. Ég fór fyrst til Danmerkur sextán ára og var alfarinn átján ára. Starf mitt er þess eðlis og kunnátta mín er sú að ég þarf að vinna með þeim allra bestu. Þetta er það sem ég hef upp á að bjóða, að móta dans- flokk og skapa dansa. Ef ég flyttist aftur heim til íslands veit ég ekki hvað ég myndi geta gert þar,“ segir Helgi. Samvinna við íslenska dansflokk- inn hefur verið lítil. Helgi segist hafa áhuga á meiri samvinnu en tíminn hafi oft spilað þar inn í. „Á sínum tíma var talað um það hvort ég gæti samið verkefni fyrir hann en því miður gafst enginn tími til þess, þó svo að það hefði verið gaman. Fyrir nokkrum árum kom ég til íslands með dansara frá San Francisco á listahátíð. Það var mjög gaman og ég hefði áhuga á að gera það aftur.“ Ferðast með flokkinn Helgi hefur hug á því að ferðast um með dansflokkinn sinn. í október síðastliðnum fór hann til dæmis til Japans til að setja upp eitt af verkum sínum fyrir dansflokk í Tokyo. „Japanar eiga marga afskaplega góða dansara og ballett er orðinn þó nokkuð vinsæll þar, sem og aðrar evrópskar listgreinar. Þar af leiðandi koma margir dansflokkar þangað. Ég hefði gaman af því að gera San Francisco-flokkinn að alþjóðlegri flokki en hann nú er þegar. Til þess að það verði að raunveruleika þarf peninga, þetta er mjög kostnaðar- samt,“ segir Helgi og bætir við: „En við munum ferðast þó nokkuð í sum- ar, sem er óvenjulegt fyrir okkur. Ég er himinlifandi yfir því að við skul- um eiga möguleika á því.“ San Francisco-ballettinn mun meðal annars heimsækja Skotland í sumar og sýna á fimmtíu ára afmæli alþjóðlegu Edinborgarhátíðarinnar í ágúst. Hnotubrjóturinn markar þau mikilvægu tímamót er ballettinn mun komast aftur inn í óperuhúsið i tæka tíð fyrir sýningartímabil sem byrjar í desember á þessu ári. „Við höfum alltaf lagt mikið í opn- unarkvöldin okkar en í ár verður þetta alveg stórglæsilegt. Þetta verð- ur opnunarhátíð sem seint mun gleymast," segir Helgi. -GÁ Frá fyrstu árum Helga í ballettinum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.