Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Side 32
44
LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997 UV
%idge
Generali-EM í Montecatini 1997:
Island byrjar vel í opnum flokki
Þegar þetta er skrifað er íslenska
landsliðið í opnum flokki á Evrópu-
mótinu á Ítalíu í fjórða sæti en
kvennaliðið er varla byrjað.
Karlasveitin hefir unnið sjö leiki
og tapað þremur sem er prýðisgóð
frammistaða. Hins vegar hefir hún
ekki spilað við margar af svokölluð-
^ um „sterku þjóðum". Á hitt ber hins
vegar að líta að vart er hægt að tala
um „veikar þjóðir“ þegar spilað er á
svona sterku móti.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
%íák
Kvennasveitin byrjaði hins vegar
á því að tapa fyrir spánsku senjórít-
unum með 5-25 sem er harla lélegt.
Aðrar fréttir frá EM á Ítalíu eru
þær að þýsku bridgekonurnar Sab-
ine Auken og Daniela von Amim
urðu Evrópumeistarar í tvímenn-
ingi kvenna en þær höfðu titil að
verja frá 1995. Þetta er frábær ár-
angur og eru þær stöllur af mörgum
taldar eitt besta kvennapar í heim-
inum.
En lítum aðeins betur á árangur
karlasveitarinnar. Hún vann þrjá
fyrstu leikina gegn Þýskalandi með
18-12, Rússlandi 25-5 og Liechten-
stein 20-10. Síðan kom tveggja leikja
tap, gegn Portúgal 13-17 og Noregi,
illu heilli, 8-22. Noregur er með
geysisterkt lið og á áreiðanlega eftir
að gera það gott. Þá unnust þrír
leikir í röð, Austurríki 19-11, Lit-
háen 16-14 og Júgóslavía 24-6. Siðan
kom minnsta tap gegn sterku lands-
liði Breta, 14-16, þannig að það sem
af er er frammistaða karlalandsliðs-
ins þrælgóð. Það heflr hlotið 177
stig, eða að meðaltali 17,7 stig í leik.
En skoðum eitt spil frá leiknum
Leikurinn var sýningarleikur 8.
umferðar og þar sátu Jón Baldurs-
son og Sævar Þorbjörnsson n-s
gegn Júgóslövunum Parezanin og
Djuricic í a-v. Jón og Sævar tættu
sagnrýmið frá Júgóslövunum strax
í fyrsta spilinu :
A hinu borðinu sátu Þorlákur
Jónsson og Guðmundur Páll Arnar-
son a-v gegn Radisic og Slipcevic.
Guðmundur og Þorlákur luku slem-
murannsóknum sinum undir geimi,
enda lítt truflaðir af andstæðingun-
um:
við Júgóslavíu. V/N-S * 2 V 983 + 632 * ÁKG1076 Vestur Norður Austur Suður 1+ 3* dobl 5* 5+ pass 64 pass 64 pass 6» pass 64 Allir pass Vestur Norður Austur Suður 14 24 44 pass 44 pass 4»+ dobl 44 Állir pass Það voru 11 imnar til fslands sem
4 K109753 «4 107 -+ ÁKG9 * 3 N V A S 9 ADU84 * ÁG54 * 874 * 9 Sævar var kominn út á hálan ís en vestur átti eftir að segja frá spaðasexlitnum. Eftir það var voð- inn vís og slemman var vonlaus eft- ir að Jón hafði tekið á laufás. vann leikinn 24-6.
* 6 * KD62 * D105 * D8542
Stórmótið í Novgorod í Rússlandi:
Stefnir í úrslitaskák Kasparovs við Kramnik
Garrí Kasparov og Vladimir
Kramnik voru efstir og jafnir þegar
þrjár umferðir voru til loka stór-
meistaramótsins í Novgorod í Rúss-
landi. Á mótinu tefla sex valinkunn-
ir stórmeistarar tvöfalda umferð.
Fyrri skák Kasparovs og Kramniks
lauk með sigri Kramniks en í næst-
síðustu umferð mótsins, sem tefld
verður á morgun, sunnudag, eigast
þeir við öðru sinni og má búast við
að það verði úrslitaskák mótsins.
Eftir sjö umferðir var staðan
þessi:
1.-2. Garrí Kasparov og Vladimir
Kramnik 5 v.
3. Veselin Topalov 3,5 v.
4. Evgení Bareev 3 v.
5. Nigel Short 2,5 v.
6. Boris Gelfand 2 v.
Forráðamenn mótsins gera sitt til
þess að hvetja skákmeistarana til
þess að tefla djarft. Fari leikar svo
að tveir verði jafnir að vinningum
sker fiöldi vinningsskáka úr um
verðlaunasæti. Að þessu leyti stend-
ur Kasparov betur en Kramnik þar
sem hann hefur unnið íjórar skákir
en Kramnik aðeins þijár.
Umsjón
Jón L. Árnason
Margir biðu spenntir eftir því
hvort Kasparov myndi sýna gamla
takta á mótinu eða hvort hann væri
enn í sárum eftir ófarimar gegn
Dimmblá í New York. Svo virðist
sem Kasparov hafi tekist að endur-
heimta sjálfstraustið en hins vegar
hefur taflmennska hans ekki verið
sérlega sannfærandi, jafnvel þótt
hann sé efstur. Á hinn bóginn hefur
Kramnik teflt frábærlega vel á köfl-
um, ekki síst í skákinni við
Kasparov í 5. umferð sem hann lauk
meö laglegri leikfléttu.
Short tókst að vinna Gelfand í 7.
umferð og hífa sig upp úr neðsta
sætinu. Hann hefúr verið ófarsæfl,
eins og til að mynda í skákinni við
Kasparov, þar sem hann hafði
lengstum frambærilega franska
stöðu en gætti sín ekki á ráðabruggi
sniflingsins frá Bakú.
Hvítt: Garrl Kasparov
Svart: Nigel Short
Frönsk vöm.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5
c5 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 Dc7 7. Dg4
f5 8. Dg3 cxd4 9. cxd4 Re7 10. Bd2
0-0 11. Bd3 b6 12. Re2 Ba6 13. Rf4
Dd7 14. h4 Bxd3 15. Dxd3 Rbc6
16. Hh3 Hac8 17. Hg3 Hf7 18. h5
Rd8 19. c3 Hf8 20. Kfl Hc4 21.
Kgl Rf7 22. a4 Hfc8 23. Dbl Rc6
24. Ddl Re7 25. h6 g6 26. Dh5
Hxa4!? 27. Hxa4 Dxa4 28. Rxe6
Dc2?
Betra er fyrst 28. - Hc6! til að
hrekja riddarann burt. Taflið er þá
tvísýnt eftir 29. Rf4 og áfram t.d. 29.
- Kh8!? 30. Dh4 g5 31. Hxg5 Ddl+ 32.
Kh2 Dxd2 33. e6 o.s.frv.
29. Dh4 f4 30. Bxf4 Rf5
31. Hxg6!
- og Short kaus að gefast upp. Eft-
ir 31. - hxg6 32. h7+ Kh8 33. Df6+
Kxh7,34. Dxf7+ Kh8 35. Dxg6 er
svartur varnarlaus gagnvart marg-
vislegum hótunum hvíts.
Hvítt: Vladimir Kramnik
Svart: Garrí Kasparov
Kóngsindversk vörn.
1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4.
e4 d6 5. d4 0-0 6. Be2 e5 7. 0-0 Rc6
8. d5 Re7 9. b4 Rh5 10. Hel Rf4
11. Bfl a5 12. bxa5 Hxa5 13. Rd2
c5 14. a4 Ha6 15. Ha3 g5 16. g3
Rh3+ 17. Bxh3 Bxh3 18. Dh5 Dd7
19. Dxg5 h6 20. De3 f5 21. De2 f4
22. Rb5 Kh7
Ætla mætti að svartur hefði
nokkur sóknarfæri í skiptum fyrir
peðið en næsta þátt skákarinnar
teflir Kramnik sérlega vel.
23. gxf4! exf4 24. Khl Bg4 25.
Rf3! Rg6 26. Hgl Bxf3+ 27. Dxf3
Re5 28. Dh5 Df7 29. Dh3 Rxc4 30.
Hf3! Be5
Ef Kasparov þiggur riddarafóm-
ina mátar hvítur fallega með (31. -
Dxc7) 32. Dxh6+! Kxh6 33. Hh3 mát.
32. Bxf4!
- og nú gafst Kasparov upp. Eftir
32. - Bxf4 33. Re6 er hann vamar-
laus. T.d. 33. - Hg8 34. Hxg8 Dxg8 35.
Df5+ Kh8 36. Df6+ Kh7 37. Rf8+ og
öflu er lokið.
Minningarmót um
Guðmund Arnlaugsson
Síðastliðinn mánudag stóð Skák-
samband íslands fyrir hraðskák-
móti til minningar um Guðmund
Arnlaugsson, rektor Menntaskólans
við Hamrahlíð, sem fram fór I hátíð-
arsal skólans. Á mótinu tefldu sext-
án sterkir skákmenn, þar á meðal
allmargir fyrrverandi nemendur og
kennarar skólans. Tefldar voru
hraðskákir, með 5 mínútum á mann
á skákina.
Leikar fóru svo að Helgi Ólafsson
stóð einn uppi sem sigurvegari,
hlaut 12,5 vinninga úr 15 skákum.
Jóhann Hjartarson og Þröstur Þór-
hallsson deildu 2. sæti með 12 v.,
Hannes Hlífar Stefánsson fékk 10,5
v, Jón L. Ámason 9,5 v., Jón Viktor
Gunnarsson 8,5 v., Helgi Áss Grét-
arsson 8, Jón G. Viðarsson 7,5, Frið-
rik Ólafsson, Karl Þorsteins, Magn-
ús Örn Úlfarsson og Margeir Péturs-
son 6,5, Ingvar Ásmundsson 6,
Ágúst S. Karlsson 4,5, Halldór G.
Einarsson 2 og Stefán Briem 1 v.
Umgjörð mótsins var öll hin
glæsilegasta. Hamrahlíðarkórinn
söng undir stjórn Þorgerðar Ingólfs-
dóttur. Ágúst S. Karlsson, forseti
Skáksambandsins, flutti stutt ávarp
og fráfarandi forseti SÍ, Guðmundur
G. Þórarinsson, minntist Guðmund-
ar Arnlaugssonar sem og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sem
setti síðan mótið með því að leika
fyrsta leikinn í skák Friðriks Ólafs-
sonar við Margeir Pétursson.
Skilafrestur smáauglýsinga
er fyrir kl. 22 kvölaið fyrir
birtingu.
Ath. Smáauglýsing I
Helgarblað DV verður þó að
berast okkur fyrir kl. 17 á
föstudag.
Smáauglýsingar
rs^i
550 5000
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl. 9-22
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Tekið er á móti
smáauglýsingum
til kl. 22 til birtingar
nœsta dag
Ath.
Smáauglýsing í
Helgarblað DV
þarf þó að berast
okkurfyrir kl. 17
á föstudag
aWmil iihim,
'hs,
v
Smáauglýsingar
Ei
550 5000
Askrifendur fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
Smáauglýsingar
550 5000
15% staögreiöslu-
og greiðslukortaafsláttur aW mill/ hlmi^
og stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáaugiýsingar
550 5000