Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Blaðsíða 33
JLlV LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1997 trimm « Fjölbreytni og tilbreyt- ing er nauðsynleg - annars kemur stöðnun og leiði í kjölfarið AA lilauiw.éftiluií fyrír Reykjavíkur maraþon 1997 Vika 3 23. til 29. júní 10 km 21 km 42 km Mánudagur 6 km rólega 8 km rólega 10 km rólega Þriðjudagur Hraðaleikur Hraðaleikur Hraðaleikur Miðvikudagur Hvíld 8 km rólega 8 km rólega Fimmtudagur 10 km vaxandi 12 km vaxandi 14 km vaxandi Föstudagur Hvíld eða Hvíld eða Hvíld eða 6 km rólega 8 km rólega 8 km rólega Laugardagur 20 mín.rólega 20 mín.rólega 20 mín.rólega og hraðaæfing og hraðaæfing og hraðaæfing Sunnudagur 10-14 km rólega 10-16 km rólega 14-22 km rólega Hraöaleikur: Hlaupa rólega í 10 mínútur, síöan til skiptis hraöar í 3 mínútur og rólegt skokk í 3 mínútur, endurtekiö 4 sinnum, rólega í 10 mínútur í lokin (Hraöari kaflarnir séu á 10 km keppnishraöa eöa hraöar). Heildartími um 40 mínútur. Vaxandi: Byrja rólega en auka hraðann eftir u.þ.b. 10 mínútur og halda góöum hraða. Hraöaæfing: 12x100 m meö 100 m rólegu skokki á milli. Hraðinn sé talsvert meiri en langhlaupshraöi en . . alls ekki sprettur á fullri ferö. ||l > Fræðst um menningu og sögu Skotlands Þjálfunin verður þegar líkaminn svarar áreitinu sem æfingin veitir. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir þessu. Ef æfingin er alltaf eins kem- ur að því eftir ákveðinn tíma að lík- aminn hættir að svara áreitinu á sama hátt. Hann hættir að bæta við getuna. Þeir sem alltaf hlaupa sama hringinn á sama hraða ná framfór- um í byrjun. Síðan kemur yfirleitt alltaf stöðnun og jafnvel leiði í kjöl- farið. Umsjón Ólafur Geirsson Koma má í veg fyrir þetta með því að hafa æfingarnar fjölbreyttar. Auk þess er það í sjálfu sér mikil hvatning að takast á við nýjar æf- ingar og nýjar hlaupaleiðir. Þess vegna er upplagt að fara öðru Fram- - undan... 28. júnl Skúlaskeið hefst kl. 14.00 í Viðey við Reykjavík. Vegalengd um 3 km. Fjöl- skylduhlaup án tímatöku. All- ir sem ljúka hlaupinu fá ver- eðlaunapening. Upplýsingar á skrifetofu Reykjavikur mara- j: þons í síma 588 3399. 28. júní Mývatnsmaraþon hefst kl. 12.00 við Skútustaði. Vegalangdir: 3 km, 10 km, hálfmaraþon og maraþon með tímatöku. Flokkaskipting bæði kyn: 12 ára og yngri, 13 - 17 ára (3 km), 17 ára og yngri (10 km), 16 -39 ára (hálfmara- þon), 18 - 39 ára (10 km og | maraþon), 40 - 49 ára, 50 ára I og eldri konur, 50 -59 ára, 60 ára og eldri. Sveitakeppni: Opinn flokkur í sveitakeppni fyrir 3 - 5 í sveit, nema í 3 km. uppl’syingar í símum 464 | 4177, 464 4189 og 464 4181. 29. júni Suðurnesjamaraþon hefst kl. 14.00 við íþróttavöll- inn í Keflavík við Hringbraut. Vegalengdir: 3,5 km skemtiskokk án tímatöku, 10 km og 25 km meö tímatöku. Flokkaskipting ákveðin siðar. Upplýsingar hjá íþrótta- og Ungmennafélagi Keflavíkur í síma 421 3044 og hjá Rúnari Helgasyni í síma 421 2006. 29. júni Egilsstaðamaraþon hefst kl. 12.00 við söluskála ESSO. Vegalengdir: 4 km, 10 km og háifmaraþon með tíma- töku. Flokkaskipting hálf- maraþon bæði kyn: 16 39 ára, 40 49 ára, 50 -59 ára og 60 ára og eldri. Allir sem ljúka hlaupunum fá verðlaunapen- ing. Fyrstu þrír í hverjum I flokki hljóta verðlauna. Upp- | lýsingar á skrifstofu U’IA í sima 471 1353. Gunnar Páll. Miðnæturhlaup á Jónsmessu er að verða eitt vinsælasta almenn- ingshlaupið á höfuðborgarsvæðinu, enda ekki á hverjum degi sem fólki gefst kostur á að spretta úr spori í keppni á þessum tíma sólarhrings- ins ásamt hundruðum annarra. Vit- að er að töluverður hópur kemur gagngert í hlaupið viðs vegar af landinu. Einnig hafa erlendir hlauparar verið með á hverju ári og mun einnig verða svo nú en hlaup- ið verður á mánudaginn kemur, 23. júní. Hlaupið er frá sundlaugunum í Laugardal og um dalinn. Þykir mörgum mikið til koma að hlaupa á miðnætti en í nærri björtu eins og hér er á þessum tima árs. hverju á nýjar slóðir og hlaupa þar eða fara í krefjandi útivistarferðir eða fjallgöngur. Hröð ganga eða skokk upp Esjuna eða annað í þeim dúr kemur þá í staðinn fyrir lengstu æfingu vikunnar. Þess verður að- eins að gæta að fara ekki í þannig ferðir nærri mikilvægri keppni. í göngu eða skokki upp og niður fjall- lendi fá menn oft harðsperrur og strengi þótt séu í góðri þjálfun. Þetta líður þó frá á nokkrum dög- um. Þeir sem leggja það í vana sinn að fara alltaf sömu leiðina á æfingu ættu skilyrðislaust að finna sér fleiri leiðir og fara öðru hvoru á nýj- ar slóðir. Skógarstígarnir í Heið- mörk fyrir þá sem búa á höfuðborg- arsvæðinu og i Kjamaskógi við Ak- ureyri eru góð dæmi um staði sem eru ný upplifun fyrir þá sem alltaf hafa hlaupið á gangstéttum og mal- bikuðum götum. Hlaupnar eru tvær vegalengdir, 10 km með timatöku og 3 km skemmtiskokk án tímatöku. Flokka- skipting í 10 km er 18 ára og yngri, 19-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára og eldri. Hlaupadaginn 23. júní er skráning í sundlaugunum en einnig fer fram skráning á mánudag á skrifstofu Reykjavíkurmaraþons í Laugardalnum. Þátttökugjald er 800 krónur og 600 krónur fyrir 12 ára og yngri. Innifalið í gjaldinu eru verð- launapeningar, bolur, svaladrykkur og útdráttarverðlaun. Eftir hlaup er öllum þátttakendum boðið i sund. Samkvæmt reynslu frá fyrri hlaup- um er ráðlegt fyrir þátttakendur að mæta tímanlega til skráningar. Menning, matur, saga, náttúru- fegurð og útivist. Allt þetta kemur við sögu í gönguferð um Skotland sem farin verður 2. október nk. Gengið verður ásamt vönum og kunnugum fararstjórum um skosku hálöndin, héruð eins og Loch Lom- ond og Trossachs, sem rómuð eru fyrir náttúrufegurð og sögulegar minjar á hverju strái. Hvern dag verður gengið í nokkra klukkutíma, eða frá fjórum til átta, en þó þannig að öllum hæfi. Þessi ferð, sem er á vegum Úr- vals- Útsýnar, er ætluð fólki sem áður hefur tekið þátt í göngu á fjöll. Fararstjórar verða þau Árný Helga- dóttir og Kjartan Trausti Sigurðs- son. Fyrri hluta ferðarinnar verður búið í Stirling, háskólabæ í skosku Mikilvægt er að borða hollan og næringarefnaríkan mat til þess að starfsgetan sé í góðu lagi. Þeir sem stunda reglulega líkamshreyfingu fmna fljótt fyrir aukinni löngun í kolvetnisríka fæðu, enda er sú fæða aðalbrennsluefni líkamans. Sem dæmi um góða kolvetnigjafa má nefna brauð, hrísgrjón, pasta, kom- blöndur, kartölfur og ávexti. Þó svo aukin áhersla sé lögð á kolvetnis- ríka fæðu er rétt að hafa í huga að eggjahvítrík fæða svo sem fiskur, hálöndunum, þar sem gengið verð- ur um. Á fimmta degi verður síðan komið til Edinborgar og þar bæði gengið um borgina og nágrenni. Skoðaðar verða merkar byggingar, auk þess sem kostur gefst á að stunda menningarlífið, veitinga- staði og annað það sem boðið er upp á. Þátttakendum gefet sem sagt kost- ur á að blanda saman líkamsrækt, útivist, menningu og skemmtun. Hver dagur mun heljast á upphitun- ræfingum og að lokinni göngu verða teygjuæfingar sem koma í veg fyrir óeðlilegar harðsperrur og strengi. Ferðin í heild mun kosta 59 þúsund krónur en búið er á þriggja og fjögurra stjörnu hótelum. kjöt og mjólkurafurðir, er sérstak- lega mikilvæg fyrir uppbyggingu og endumýjun vöðva. #Byrjendur verða fljótt varir við aukna matarlyst. Þeir sem eiga við þyngdarvandamál að stíða ættu að forðast það að auka matarneysluna. Annars er til lítils barist. Æskilegt er að máltíðir séu reglulegar og að morgunverðurinn sé góður. Hann er undirstaða dagsins. (úr Skokkar- anum handbók) Aö loknu miönæturhlaupinu er öllum þátttakendum boöiö aö bregöa sér í laugina og heitu pottana í Laugardalslauginni. Myndin er tekin aö loknu hlaupinu í fyrra. Óshlíöarhlaupið er í dag. Þarna spretta ungir Vestfiröingar úr spori í hlaupinu í fyrra. VOLVO S40 DAQAPi TJL SjÍBPi JU - siziiiu þlc/J Styrktaraðili Reykjavíkurmaraþons Miðnætur- hlaup á Jónsmessu Matur og líkamsrækt - byrjendur vari sig á aukinni matarlyst er styrktaraðili Reykjavíkurmaraþons ■r ÆBSr JtófTtR ^izuia
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.