Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Page 36
48 LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997 * 'J nterrail- I ágúst 1995 fóru MH-ingarnir Orri Páll Jóhannsson og Björn Thors á Interrail-ferð um Evrópu. Þeir flugu með Lufthansa gegnum Frankfurt til Parísar þar sem þeir dvöldust nokkra daga í íbúð Hall- gríms Helgasonar. Frá París fóru þeir til frönsku Rivierunnar, Món- akkó og loks til Italíu. Þeir ferðuð- ust mikið um Ítalíu og heimsóttu m.a. Feneyjar og hina gullfallegu Flórens. Frá Ítalíu tóku þeir ferju til Grikklands og flugu svo frá Aþenu gegnum Frankfurt heim á leið. Stoppa lengur á hverj- um stað Þeir Orri og Björn voru í stórum dráttum búnir að ákveða leiðina sem þeir ætluðu að fara fyrir fram og Orri segist mæla með því að Interrail-farar skipuleggi ferð sína að því leyti sem það er hægt. Orri ráðleggur fólki einnig að stoppa lengur á hverjum stað þar sem að sí- felldur þeytingur sé lýjandi og erfiður. Þeir félagar gistu alla ferðina á far- fuglaheimilum og segir Orri að það sé ágætt en þó séu heimilin mjög mis- munandi. „Það er þreytandi til lengdar að sofa í herbergi með ókunnu fólki og þurfa stöðugt að vera að passa upp á dótið sitt. En mað- ur hittir fullt af öðrum Interrail-för- um á farfuglaheim- ilunum og einnig er þetta tiltölulega ódýr gisting." Fall er farar- heill Það er óhætt að full- yrða að þeir félagar hafi ekki farið var- hluta af vandræðum í ferðinni. Strax í byrjun ferðarinnar týndi Björn Interrail-kortinu sínu og þurfti á endanum að kaupa nýtt kort til að geta haldið ferðinni áfram. Eftir vikudvöl í París hittu strák- amir fyrstu íslendingana, í næturlest á leið út úr París. Eins og íslending- um er von og vísa þegar þeir hitta samlanda sína í útlöndum réðu strák- amir sér ekki fyrir kæti og upphófst mikið fagnaðarhóf. Er Orri Páll vakn- aði um morguninn var bæði veski hans og samferðamaður horfið. Orri Páll fann samferðamanninn sem bet- ur fer aftur en veskið sá hann ekki meir. Þurftu að spara „Við lifðum aðallega á McDonalds og Burger King og uppgötvuðum allt of seint að það er ekkert dýrara að kaupa sér almennilegan mat,“ segir Orri. „Við sáum eftir því að hafa ekki borðað meira af þeim mat sem er einkennandi fyrir hvert land og minna af þessu skyndibitarusli." í Feneyjum uppgötvuðu þeir fé- lagar að þeir voru búnir að eyða alltof miklum peningum og þá þurftu þeir að fara að spara. Orri segist hafa eytt samtals um 250.000 kr. í ferðinni sem stóð i fimm vikur, en hann verslaði töluvert og segir að vel hefði verið hægt að komast af með 160-170.000 kr. • Orri segir að ferðin hafi verið erf- ið en lærdómsrík. „Maður er undir spennu allan tímann og það gengur virkilega á forðann. Einnig reynir verulega á vináttuna og mikilvægt er að læra aö treysta sjálfum sér og samferðamanni sínum til að leysa úr þeim erfiðleikum sem upp kunna að koma. Við vorum bara 16 ára þegar við fórum og það er of ungt. Orri Páll segir aö þeir hafi veriö of ungir til aö fara í Interrail-ferð. Hér í dag - hvar á morgun? Ferðaskrifstofa stúdenta hefur selt Interrail-lestakort í 16 ár en kortin hafa verið seld hér á landi í 30 ár. Kortin hafa notið mikilla vin- sælda og hér á landi seljast um 250-300 kort á ári. Interrail-kort eru fyrir fólk undir 26 ára aldri og veita þau mikla og ódýra möguleika á að ferðast um Evrópu. Evrópu er skipt í sjö ferðasvæði og er hægt að velja um kaup á korti sem gildir fyrir eitt svæði, tvö eða alla Evrópu (þ.e. til 26 evrópskra landa, auk Marokkó). Hvert viltu fara? Með Interrail-korti ertu algjörlega sjálfs þíns herra. Þú getur stokkið upp í hvaða Interrail-lest sem er á því svæði sem Interrail-kortið gild- ir, og farið hvert sem hugurinn girnist. Með Interrail-kortinu færð þú pláss á öðru farrými en hægt er að borga aukagjald til að fá pláss í svefnklefa. Hvað kostar? Tiltölulega ódýrt er að ferðast með Interrail-korti og t.d. kostar kort sem gildir á þrjú svæði í einn mánuð 25.200 kr. Heildarkostnaðurinn fer auðvitað eftir því, hversu ódýrt flug- Evrópu er skipt f sjö feröasvæöi og er hægt aö velja um aö kaupa kort sem gilda á einu, tveimur, þremur eöa öllum svæöunum. Svæöi G er vinsælasta Interrail-svæöiö. „Interrail-ferja“ gengur frá Ítalíu til Grikklands og er þá upplagt aö nota tækifæriö og skoöa hina fornu menningarborg Aþenu. Birni Thors þótti FLórens vera falleg borg, Foreldrar okkar reyndu fá okkur til að fresta ferðinni um eitt ár en engu tauti var við okkur komið.“ Ekki týna Interrail-kort- inu Orri segir að það skipti miklu máli fyrir Interrail-fara að eiga far- fuglaskírteini. Einnig ráðleggur hann öllum að passa vel upp á Interrail- kortið sitt, taka ekki leigu- bíla í París og síðast en ekki síst að gera góðan stans í hinni fögru borg, Flórens. -me far Interrail-farinn fær, hvar er gist og síðast en ekki síst eyðslusemi hvers og eins. Ef gert er ráð fyrir að keypt sé þriggja svæöa kort sem gild- ir í mánuð, flogið með ódýru far- gjaldi til Parísar (22.020 kr. m. flug- vsk.), um 2000 kr. fari í mat á dag og 1500 kr. í gistingu er heildarkostn- aður ferðarinnar um 137.000 kr. Hvar er hægt að gista? Þægilegasti, öruggasti og jafn- framt dýrasti kosturinn er að gista á hótelum. Fáir Interrail-farar nota þó þennan kost. Farfuglaheimili er ódýr kostur sem margir nota. Menn verða þá að fylgja vissum húsreglum og sætta sig við að gista í herbergi með öðru ókunnugu fólki. Ódýrt er að búa í t.d. skólum sem eru viða leigðir út á sumrin fyrir ferðamenn. Einnig er ódýrt að tjalda á tjaldsvæðum en það er þó erfitt að sofa heilan mánuð í tjaldi. Hvað á að taka með? Á Interrail-ferðalagi neyðast menn til að bera allan farangur sinn á bakinu og er því mikilvægt að reyna að taka með sér eins lítinn farangur og menn komast af með. Aldrei of seint Þeir sem eru 26 ára og eldri eiga þess kost að kaupa tvær gerðir af In- terrail-kortum sem gilda þá annars vegar í 15 daga á kr 22.200 eða mán- aðarkort á kr 28.700. Þeir sem hafa farið Interrail-ferð segja að það sé lífsreynsla sem þeir gleymi aldrei og þrátt fyrir að ferð- in geti verið erfið á köflum sé hún fyllilega þess virði. -me fntðrnallonai Student ídontity dÉs Kiartan Biami rxnsy mMm I RiöttKnjTssetr i:1- 8amf**nnKtíarNé» I 09.07.76-5769 lœlædicÆstenBkiB' MFmraskóiim L H«ykjavfk &'i Ul>l N'i Skírteini til að ferðast ISIC-skírteinið er alþjóðlegt skírteini og eitt útbreiddasta námsmannaskír- teini í heimi. Skírteinið veitir námsmönnum á öllum aldri að- gang að margvíslegum afsláttar- kjörum innanlands og utan og einnig veitir það ákveðnum ald- urshópi nemenda réttindi til að ferðast á sérstökum náms- mannafargjöldum. G025-skírteinið er ætlað öllu ungu fólki á aldrinum 12-25 ára, hvort sem það er í námi eður ei. Skírtein- ið veitir afsláttarkjör hjá um 500 fyrirtækjum á íslandi, svo og rétt til að ferðast á Kilroy- | fargjöldum og ýmsum öðrum sérfargjöldum. Farfuglaskíiteinið er ómissandi öllum þeim sem ætla að ferðast með Interrail- lestunum. Farfuglaskirteini Bandalags islenskra farfugla veitir aðgang að ódýrasta gisti- máta sem völ er á í flestum heimshlutum og hjá Ferðaskrif- stofu stúdenta er hægt að fá góðar upplýsingar um ódýra farfuglagistingu í flestum lönd- um Evrópu. Ferðaskrifstofa stúdenta hef- ur skírteinin til sölu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.