Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Qupperneq 37
Ævintýri við hvert fótmál frá Djúpavogi DV, Djúpavogi: Beruíjöröur er einn af syðstu Austfjörðunum. Við hann stendur kauptúnið Djúpivogur, rúmlega 400 ára verslunarstaður. Þar búa tæp- lega 500 manns. Byggðin á Djúpa- vogi er dreifð inn á milli hæða og fallegra kletta sem eru eitt af sér- kennum staðarins. í klettunum er talið að búi mikið af álfum og óneit- anlega hafa íbúamir á Djúpavogi alltaf borið virðingu fyrir tilvist álf- anna og gengið gætilega um híbýli þeirra. Hér um slóðir kallast kletta- rimamir kambar. Má líta margt skemmtilegt í klettunum ef athyglin og ímyndunaraflið em látin ráða ferðinni. Er það vel þess virði fyrir ferðamenn að fá sér gönguferð um þorpið og njóta einstakrar náttúm- fegurðar í þessum ævintýraheimi. Til dæmis er hægt að fá sér siglingu með Víkingaskipinu við Borgar- gerðiskamb. Síðan er vel þess virði að hlýða á söng álf- anna í Rakkaberg- inu, tignarlegu álfakirkjunni við tjaldstæðið við Hermannastekka, og svo mætti lengi telja. verðum Hamarsfirði, er Djáknadys. í þjóðsögmn er sagt að djákninn og presturinn hafi hist þar og tekið tal saman. Gerðust þeir dmkknir og að lokum saupsáttir. Lauk rimmunni með því að báðir féllu, hvor fyrir hendi annars. Sést dys þeirra vel frá þjóðveginum, um það bil miðja vegu milli bæjarins Hamars og Strýtu. Segir sagan að vegfarendur eigi að kasta þrem steinum í hrúguna til að firra sig óhöppum. Á sjávarklöppunum út af Djúpa- vogi stendur hlaðin varða, um 2 m á hæð. Er hún nefnd Bóndavarða. Ekki er vitað um uppruna hennar. Sumir telja hana leiðarmerki fyrir skip til hafnar en aðrir að þar hafi varðmenn haft aðsetur eftir Tyrkjaránið 1627 til að fylgjast með ferðum skipa. En ránsmenn léku þá verslunarstaðinn á Djúpavogi mjög illa. Langabúð er elsta hús á Djúpa- Píramídalag- aður tindur- inn Hér má sjá landstind. Búlandstindur, formfagur, jökuls- orfinn píramídi, gnæfir tignarlegur yfir Djúpavogi, 1069 m hár. Efsti hluti fjallsins er píramídi hvaðan sem á hann er litið. Við hlið hans, í um 700 m hæð, er klettahjalli sem heitir Goðaborg. Til er sögn um að goðum hafi verið steypt þar fram af til forna. Sunnan undir Bú- landstindi er Búlandsdalur. Teigarhom, hús Weyvadts kaup- manns, var byggt á árunum 1880-82. Þar bjó eftir hann dóttir hans, Nikoline Wayvadt, fyrsti lærði kvenljósmyndarinn á íslandi. Er það hús nú í eigu Þjóðminjasafnsins og er verið að gera það upp. Þekkt- ast er Teigarhom þó sem fundar- staður geislasteina eða zeólíta. Svæðið er nú friðlýst og þarf að hafa samráð við landeigendur um alla umferð þar. Á Teigarhorni eru steinar til sýnis og sölu. hafa náð vinsældum innlendra og erlendra ferðamanna vegna óspilltr- ar náttúrufegurðar, fjölskrúðugs fuglalífs og vegna þess leyndardóms- fulla ævintýraljóma sem hvílir yfir sögu eyjarinnar fyrr og síðar. I sum- ar verður sami háttur hafður á og áður. Lagt verður af stað frá smá- bátahöfninni á Djúpavogi kl. 13 og siglt með m/b Gísla í Papey. Sigling- in tekur um það bil 45 mínútur hvora leið. Boðið er upp á skoðunar- ferð um eyna í fylgd leiðsögumanns og tekur ferðin alls um 4-5 klst. Far- gjöld eru þau sömu og í fyrra, 2500 kr. fyrir fullorðna, 1000 kr. fyrir böm á aldrinum 7-14 ára og ókeyp- is fyrir böm, yngri en sjö ára. í boði em ókeypis tjaldstæði á eynni fyrir allt að 20 manna hópa sem vildu dvelja þar næhu-langt. Þessar ferðir era farnar utan venjulegs áætlunar- tíma og þarf að panta þær með stutt- um fyrirvara. Góður níu holu golfvöllur er 12 km sunn- an við Djúpa- vog, á Hamri í Hamarsfirði, og fyrir þá sem vilja dvelja um hríð við þá iþrótt og jafn- vel silungs- veiði er hægt að fá leigt hús á Hamri en einnig er tjald- stæði í boði. höfnina í Djúpavogi. I baksýn glittir í vogi. Hún mun í núverandi mynd hafa verið byggð um 1850. Elsta virðingargjörð sem fundist hefur er frá 1758. í Löngubúð hefur nú verið komið fyrir safrii Rikarðs Jónssonar myndhöggvara frá Strýtu og ráð- herrastofu Eysteins Jónssonar, fyrr- verandi ráðherra, frá Hrauni. Áætl- að er að opna Löngubúð almenningi í byrjun júlí. Mun þar einnig verða starfrækt kaffihús, auk þess sem minjagripir verða boðnir til sölu. Framtíð falleg Dys og varða Rétt sunnan við Djúpavog, í utan- Leyndardómar Papeyjar Siðastliðin tvö sumur hafa Papeyjarferðir ehf. haldiö uppi dag- legum ferðum með ferðafólk frá Djúpavogi út í Papey. Ferðir þessar píramídalagaöan Bú- Eftir goðan göngutúr um þetta fallega, litla sjávarpláss, góðan hring á golf- vellinum, eða jaínvel ferð í Papeyna, er enginn svikinn af því að koma við á fallega gamla hótelinu okkar, sem var byggt á árunum 1905-1906, njóta dýrindis málsverðar við kerta- ljós og rómantík og spá í ævintýri næsta dags, hvort sem er á bamum í kjallaranum eða á efri hæðinni. Hótel Framtíð sérhæfir sig í sjávar- réttum úr glænýju hráefni, auk þess sem margt annað er boðið á einstak- lega glæsilegum sérréttamatseðli. Ekki era það álfamir sem skapa þetta einstaka, afslappaða og nota- lega andrúmsloft sem er í þessu húsi. Einhverjir aðrir sjá um það. En það er sannarlega þess virði að setjast niður og spá í framtíðina á Framtíðinni á Djúpavogi. -HEB Islendingar til Víetnams 7. september næstkomandi verður í fyrsta skipti í sögunni farið í skipulagða ferð á vegum íslenskrar ferðaskrifstofu með íslendinga til Víetnams. Unnur Guðjónsdóttir er konan á bak við þetta uppátæki en hún rek- ur ein síns liðs Ferðaskrifstofu Unn- ar. Þetta verður í 14. skiptið sem Unnur fer með hóp íslendinga til fjarlægra landa en hún hefur áður farið með hópa til Kína, Ástralíu, Brasilíu og fleiri landa. Blaðamaður DV heimsótti Unni Guðjónsdóttur á heimili föður henn- ar í Reykjahlíð þar sem hún dvelst í nokkrar vikur til að skipuleggja Víetnamförina. „Ég skipulegg allar ferðirnar sjálf og hingað til hefur allt gengiö eins og í sögu, enginn hefur veikst eða verið rændur. Ég hef verið að fara með í kringum tíu manna hópa og ég tel að með því að fara með svona fáa geti ég gefið fólki virkilega möguleika á því að njóta ferðarinn- ar og kynnast landi og þjóð.“ Á leið til Víetnams 7.-28. september fer Unnur í fyrsta skipti með ferðahóp til Ví- etnams. „Ég hef aldrei komið til Víetnams en hef lesið mér mikið til um landið og veit að það þykir mjög fallegt og hefur upp á margt að bjóða.“ Ferðin kostar alls 265.000 kr. og innifalið í því verði era flugmiðar, gisting í tveggja manna herbergjum á góðum hótelum, víetnamskur leiðsögumað- ur, skattar, skipulögð dagskrá á hverjum degi og fararstjóm Unnar Guðjónsdóttur. „Við ferðumst suður eftir endi- löngu landinu og skoðum það sem markvert er að sjá. Mér finnst skipta miklu máli að fólkið fái til- finningu fyrir landinu og þjóðinni sjálfri og ég hef til dæmis oft fengið að fara með hópinn minn í heim- sókn inn á venjulegt heimili í við- komandi landi.“ Unnur hefur búiö í Svíþjóð síðan 1963. Hún er ballettkennari að mennt og starfaði meðal annars sem ballettmeistari Þjóðleikhússins 1973. I Svíþjóð dansaöi hún lengi vel með sænska ríkisdansflokknum en stofn- aði svo eigin dansflokk. Hún semur balletta fyrir sænska sjónvarpið og einnig hefur hún samið balletta fyr- ir íslendinga. Eftir að móðir hennar lést 1991 hefur hún verið með annan fótinn á Islandi og 1992 fór hún með sinn fyrsta ferðahóp til Kína. í Svíþjóð hefur hún haldið fjölda fyrirlestra < um þau lönd sem hún hefur komið til og meðal annars hefur hún hald- ið marga fyrirlestra um ísland. Nýtur lífsins „Það að ferðast opnar augu manns fyrir svo mörgu. Ég hef kynnst öðrum þjóðum, siðum þeirra og menningu og það hjálpar mér að skilja betur umhverfi mitt og lífs- speki mannanna. Ég tek lífinu með ró og nýt líðandi stundar. Ég hef gaman af því sem ég er að gera og það er þaö sem skiptir máli.“ Þeir sem vilja fá nánari upplýs- ingar um Ferðaklúbb Unnar geta hringt í síma 551-2596. -me Unnur í búningi Dalí-ættbálksins sem býr nálægt landamærum Kína og Víetnams. N U ER KOMIN TIÐIN TIL AT HEIMSÖKJA FÖROYAR ! 11.700 » 25.350, Fjðldí cnnora MnxköguMka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.