Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Qupperneq 50
62 LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997 Jósafat J. Líndal Jósafat J. Líndal, fyrrverandi sparisjóðsstjóri, Sunnubraut 34, Kópavogi, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Jósafat er fæddur á Holtsstöðum i Engihlíðarhreppi, í Austur-Húna- vatnssýslu. Hann varð gagnfræðing- ur frá Akureyri 1931, lauk prófi frá verslunarskólanum Köbmands- skolen í Kaupmannahöfn 1935, stundaði framhaldsnám við Versl- unarháskólann í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan 1938. Á námsárum sínum í Kaup- mannahöfn starfaði Jósafat hjá Centralanstalten for Revision en hóf störf hjá Skeljungi hf. á íslandi er hann sneri heim árið 1938 og starf- aði þar sem aðalbókari og skrifstofu- stjóri til 1967. Jósafat var forstöðu- maður Sjúkrasamlags Kópavogs um langt skeið, einn af stofnendum Sparisjóðs Kópavogs 1954 og lengi stjórnarformaður sjóðsins og spari- sjóðsstjóri 1967-84. Hann sat einnig í verslunardómi í Kópavogi í mörg ár og hafði umsjón með eft- irlaunasjóði Skeljungs um áratugaskeið. Jósafat sat í hrepps- nefnd og síðar bæjar- stjórn Kópavogs fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1952-60, stóð að tillögu um að Kópavogur yrði gerður að kaupsstað, sat í safnaðamefnd Kópavogs- kirkju frá 1952 og var m.a. safnaðarfulltrúi og gjaldkeri kirkjunnar og vann að byggingu kirkju í Kópavogi sem var vígð 1962. Jósa- fat er einnig í Frimúrarareglunni Mími og hefur gegnt embættum þar, í Lionsklúbbi Reykjavíkur og Rot- aryklúbbi Kópavogs. Fjölskylda Jósafat kvæntist 17.7. 1938 Kathrine Elisabetu Áslaugu Líndal, f. 8.9. 1913, d. 11.10. 1993, á Suðurey í Færeyjum, húsfreyju og skrifstofu- manni. Foreldrar hennar voru Jó- hann Anton Öster skipstjóri í Fær- eyjum og kona hans Sunneva Kathrine Öst- er húsfreyja. Börn Jósafats og eig- inkonu hans eru Erla Guðríður Katrín Lín- dal, f. 10.6. 1939, hár- greiðslumeistari og sjúkraliði, gift Gylfa Ásmundssyni sálfræð- ingi og eiga þau fjögur börn; Jóhanna Zoéga, f. 6.12. 1942, rannsókn- armaður á rannsókn- arstofu Landspítaians, gift Tómasi Helga Einari Zoega framkvæmdastjóra og eiga þau þrjú börn; Kristín Líndal, f. 29.10. 1945, kennari, var gift Þórarni Bjarka Guðmundssyni bankamanni en þau skildu. Þau eiga tvær dætur saman; Jónatan Ásgeir Líndal, f. 7.12. 1952, kerfisfræðingur, kvæntur Helgu Guðrúnu Þorbergsdóttur og eiga þau þrjú börn saman en Helga Guð- rún á einnig þrjú börn af fyrra hjónabandi. Alsystir Jósafats var Margrét Jón- atansdóttir, f. 2.9. 1917, d. 11.3. 1991, búsett í Hafnarfirði. Hálfsystkini Jósafats, samfeðra, eru Haraldur Holti Líndal, f. 20.11. 1939, bóndi á Holtastöðum; Kristín Hjördís Líndal, f. 26.6.1941, hjúkrun- arfræðingur í Keflavík. Foreldrar Jósafats voru Jónatan Jósafatsson Líndal, f. 26.6. 1879, d. 6.11.1971, kaupfélagsstjóri á Blöndu- ósi og síðar bóndi og hreppsstjóri á Holtastöðum, og fyrri kona hans, Guðríður Sigurðardóttir Líndal, f. 5.12. 1878, d. 11.6. 1932, forstöðukona Kvennaskólans á Blönduósi og síðar húsfreyja á Holtastöðum. Ætt Jónatan var sonur Jósafats Jón- atanssonar, bónda i Gröf í Víðidal og á Holtastöðum, hreppstjóra og al- þingismanns, og Gróu Kristínar Jónsdóttur frá Vindhælishreppi í Austur-Húnavatnssýslu. Guðríður var dóttir Jakohs Sig- urðar Jónssonar, bónda og hrepp- stjóra á Lækjarmóti, og konu hans Margrétar Eiríksdóttur frá Kolla- firði í Kjalameshreppi. Jósafat J. Líndal. Þórir Hvanndal Ólafsson Þórir Hvanndal Ólafs- son, löggiltur endur- skoðandi, Hamragerði 7, Akureyri, er fertugur i dag. Starfsferill Þórir er fæddur í Hnífsdal og alinn upp í Rauðumýri við ísafjarð- ardjúp. Hann lauk landsprófi frá Héraðs- skólanum á Laugar- vatni, stúdentsprófl frá son- Menntaskólanum á Laugarvatni 1977, útskrifaðist sem viðskiptafræð- ingur frá Háskóla íslands 1988 og varð löggiltur endur- skoðandi 1989. Þórir vann ýmis störf til sjós og lands á náms- árum sínum, vann sem viðskiptafræðingur hjá Borgarendurskoðun hluta árs 1984, sem end- urskoðandi hjá Endur- skoðunarmiðstöðinni hf., N. Manscher, nú Coopers og Lybrand ehf. í Reykjavík 1984-89 og á Akureyri 1989-92 er hann varð meðeig- andi í fyrirtækinu. Þórir er félagi í Rotaryklúbbi Akureyrar og verðandi varaforseti hans, félagi í Karlakómum Geysi á Akureyri og situr í stjórn kórsins. Fjölskylda Þórir hóf sambúð árið 1982 með Margréti Kjartansdóttur, f. 27.4. 1960, starsmanni á lögfræðiskrif- stofu. Foreldrar hennar em Kjartan Jónsson, lögfræðingur og bóndi, sem nú er látinn og Þorbjörg Péturs- dóttir húsfreyja. Börn Þóris og Margrétar eru Sal- vör, f. 6.8. 1985; Ólafur, f. 28.5. 1993. Systkini Þóris em Halldór Ingi, f. 5.5. 1955, bifreiðarstjóri á Akranesi; Guðbjöm Ingólfur, f. 29.4. 1956, bif- reiðarstjóri í Mosfellsbæ; Trausti Hvannberg, f. 27.9. 1959, rafmagns- verkfræðingur hjá Rarik í Stykkis- hólmi; Atli Árdal, f. 20.5. 1962, verk- stjóri á Hólmavík; Auður Helga, f. 19.12. 1963, hjúkrunarfræðingur á ísafirði; Ágúst Heimir, f. 28.1. 1967, viðskiptafræðingur á Eskifirði. Foreldrar Þóris eru Ólafur Ás- grimur Þórðarson, f. 24.4. 1924, fyrr- verandi bóndi á Rauðumýri við ísa- fjarðardjúp en nú búsettur í Reykja- vík, og Jóna Elísabet Ingólfsdóttir, f. 1.8. 1937, húsmóðir. Þórir tekur á móti gestum á af- mælisdaginn á Aksjón-Café, Hafnar- stræti 98, Akureyri, milli kl. 17 og 19.30. Þórir Hvanndal Ólafs- Ingigerður Karlsdóttir Ingigerður Karlsdóttir húsmóðir, Ægisíðu 74, Reykjavík, er sjötug í dag. Ingigerður er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún stundaði nám við Húsmæðraskóla Reykjavikur en fór svo til Svíþjóðar þar sem hún stundaði nám við Karlsskoga praktiska Lároverk. Hún kom heim frá Svíþjóð 1948 og hóf þá störf hjá Loftleiðum hf. og starfaði þar þar til flugvélin Geysir lenti á Bárðar- bungu árið 1950. Þar slasaðist Ingi- gerður mikið og hefur átt við van- heilsu að stríða síðan. Ingigerður var einn af stofnend- um Svalanna, félags eldri og starf- andi flugfreyja, sem hafa gefið tals- vert fé til uppbyggingar bamaspít- ala og til þjálfunar barna með sér- þarfir. Ingigerður er einnig félagi í Innerwheelklúbbi Rotaryhreyfing- arinnar og Kvenfélaginu Hringn- um. Fjölskylda Ingigerður giftist 21.2.1951 Hjalta Pálssyni, f. 1.11. 1922, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga, ættuð- um frá Hólum í Hjaltadal. Foreldr- ar hans voru Guðrún Hannesdóttir og Páll Zóphóníasson, ráðunautur, búnaðarmálastjóri, alþingismaður og skólastjóri á Hólum. Börn Ingigerðar og Hjalta eru Karl Óskar, f. 25.11. 1951, verslunar- maður hjá Olís, kvænt- ur Kristínu Ólafsdóttur. Þau eru búsett á Sel- tjarnarnesi og eiga þrjár dætur; Guðrún Þóra, f. 26.11. 1954, næringarráð- gjafi í Reykjavík, var gift Óla Houe. Þau eiga tvö börn saman; Páll Hjalti, f. 7.8. 1959, arki- tekt, í sambúð með Steinunni Sigurðardótt- ur fatahönnuði. Þau eru búsett í Reykjavík og eiga einn son. Bræður Ingigerðar eru Valdi- mar, f. 8.2. 1929, stýri- maður í Reykjavík; Karl, f. 26.12. 1935, vél- stjóri hjá Hitaveitu Reykjavíkur; Jón Þór, f. 18.4. 1942, verktaki í Reykjavík. Foreldrar Ingigerðar voru Karl Óskar Jónsson, skip- stjóri í Reykjavík, og Þóra Ágústsdóttir hús- móðir. Á afmælisdaginn dvelja Ingigerður og Hjalti í sumarbústað sínum sem heitir Lund- arhólmi og er í Lundarreykjadal og taka þau á móti gestmn þar seinni part afmælisdagsins. Gísli Gunnarsson Gísli Gunnarsson verkstjóri, Bárustíg 4, Sauðárkróki, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Gísli er fæddur í Miðhúsum í Blönduhlíð. Hann hóf störf aðeins tíu ára gamall hjá Vegagerð ríkisins og starfaði þar óslitið í fimmtíu og fimm ár við ýmis störf, s.s. sem verkamaður, bílstjóri, vélamaður og síðast og lengst sem verkstjóri. Hann var nýlega heiðraður af Vega- gerðinni fyrir langa og dygga þjón- ustu i hennar þágu. Fjölskylda Eiginkona Gísla er Fjóla Sveins- dóttir, f. 28.8. 1932 í Bjólu í Blöndu- hlíð. Hún er dóttir hjónanna Sveins Nikodemussonar, sjómanns og hafn- sögumanns á Sauðárkróki, og Pálmeyjar Haraldsdóttur. Börn Gísla og Fjólu eru Sigríður Gunnfríður, f. 25.11. 1949, húsmóðir á Sauðárkróki. Eiginmaður hennar er Björn Ottóson múrar£uneistari; Sveinn Nikodemus, f. 24.7. 1951, sjó- maður á Selfossi, kvæntur Jóninu Þorvaldsdóttur frá Blönduósi; Pál- mey Helga, f. 3.11.1954, lyfjatæknir í Reykjavík, gift Rúnari Ingólfssyni dúklagningameistara; Haraldur Ás- geir, f. 28.1. 1958, bifreiðarstjóri í Reykjavik. Barnabörn Gísla og Fíólu eru orð- in fjórtán. Foreldrar Gísla voru Gunnar Gíslason, bóndi á Ábæ í Austurdal og síðar á Sólborgarhóli í Kræk- lingahlíð, og kona hans, Sigríður Guðmundsdóttir. Gunnar var einnig kunnur hagyrðingur. Ætt Gunnar á Ábæ var sonur Gísla Þorfinnsonar, bónda í Miðhúsum í Blönduhlíð, og konu hans, Guðrún- ar Jónsdóttur. Gísli var sonur Þor- finns, vinnumanns á Holtastöðum í Langadal, Hallssonar, bónda á Skúfsstöðum í Hjaltadal, Jónssonar, bónda og hreppstjóra á Bjamastöð- um í Kolbeinsdal, Jónssonar, fjórð- ungslæknis í Viðvík í Viðvíkursveit, Til hamingju með afmæ ið 21. júní 90 ára Stefanía Þorsteinsdóttir, Hjallaseli 55, Reykjavík. Helga Jóhannsdóttir, Furugerði 1, Reykjavík. 85 ára Sveinn Pálsson, Blönduhlið 7, Reykjavík. Elna Ólafsson, Dalbraut 18, Reykjavík. Daníel Pálmason, Gnúpufelli, Eyjafjarðarsveit. Hann verður að heiman á af- mælisdaginn. 70 ára Sigtryggur Guðmundsson, Hjaltabakka 22, Reykjavík. Jón Ármann Héðinsson, Birkigrund 59, Kópavogi. 60 ára Rannveig Karlsdóttir, Hríseyjargötu 16, Akureyri. Ámundi Gunnar Ólafsson, Hjallalandi 3, Reykjavík. 50 ára Jónina Valdemarsdóttir, Freyvangi 4, Hellu. Kristján Hólmgeirsson, Brekkuhlíð 10, Hafnarfirði. Sigríðxu- M. Sigurðardóttir, Jakaseli 22, Reykjavík. Guðrún Óskarsdóttir, Stóragerði 15, Hvolsvelli. Guðmundur Ásgeirsson, Funafold 47, Reykjavík. Sigfríð Vigfúsdóttir, Grundargerði 3c, Akureyri. Sigurður Hafsteinsson, Suðurhólum 22, Reykjavík. Kolbrún Bergmann Magn- úsdóttir, Birkihlíð 38, Reykjavík. Signý Sigurhansdóttir. Hafnargötu 54, Keflavík. 40 ára Aðalheiður Karlsdóttir, Álftalandi 1, Reykjavík. Andrés Guðni Andrésson, Fagrahvammi, Mosfellshæ. Guðrún Hrönn Einarsdótt- ir, Selbraut 70, Seltjamarnesi. Birna Þóra Gunnarsdóttir, Garðabraut 45, Akranesi. Gunnhildur E. Ingimars- dóttir, Jaðri, Borgarhafnarhreppi. Helga Sif Jónsdóttir, Eyjaholti 11, Garði. Gimnar Kristinn Guð- mundsson, Raufarseli 5, Reykjavík. Magnea Ragnars Árnadótt- ir, Flúðaseli 74, Reykjavík. Helga Sigurðardóttir, Áslandi 12, Mosfellsbæ. Guðrún Haraldsdóttir Grundargarði 4, Húsavik. Elsa Þorfinna Dýrfjörð, Arnarsmára 12, Kópavogi. Péturssonar. Guðrún var dóttir Jóns Bjömssonar, bónda í Miðhúsum, og konu hans, Þrúðar Jónsdóttur skáld- konu. Sigríður á Ábæ var dóttir Guð- mundar Jónssonar, bónda á Illuga- stöðum í Flókadal, og konu hans, Salbjargar Jónsdóttur. Guðmimdur var sonur Jóns Sigurðssonar, bónda á Hálsi í Flókadal, og konu hans, Sigurbjargar Sigurðardóttur. Sal- björg var dóttir Jóns bónda á Sjö- undastöðum í Flókadal, Jónssonar, bónda á Sléttu í Fljótum, Erlends- sonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.