Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Qupperneq 55
LAUGARDAGUR 21: JÚNÍ' 1997
★★★
Háskólabíó - Undirdjúp íslands:
Glöggt er gests augað
Það er stundum sagt
að það þurfi utanaðkom-
andi aðila til að sjá sumt
það stórkostlegasta sem
íslensk náttúra býður
upp á. Þetta á við að
mörgu leyti um finnska
leikstjórann og kafarann
Marko Röhr sem hefur
ásamt liði sínu náð ein-
stökum myndskeiðum
úr náttúru íslands í
mynd sinni, Undirdjúp
íslands, myndskeiðum sem Islendingar, sem fást við heimildarmynda-
gerð, hafa ekki fangað áður. Ástæðan fyrir sérkennum myndarinnar
er fyrst og fremst sú að stór hluti myndarinnar er tekinn neðansjáv-
ar og néðanvatns. En einnig eru tökur yfir sjávarmáli einstaklega vel
af af hendi leystar og áhrifamiklar. Ef undirdjúpin virka köld þá virk-
ar náttura íslands einnig köld í myndskeiðum Röhrs en um leið stór-
fengleg, hefur þau áhrif á hug manns að ósjálfrátt hugsar maður að
það sé i raun ekki fyrir hvem sem er að ferðast um þessi svæði.
Markö Röhr hefur sagt að sjórinn hafi átt hug hans og hjarta frá því
honum var sagt að uppruni lífsins væri í sjónum. Það má útfæra Und-
irdjúp íslands yfír á leit hans að uppruna lífsins. Þessi áhugi hans á
lífrikinu neðansjávar birtist meðal annars í þeirri, að manni finnst,
brjálæðislegu köfun undir yfirborð Geysis þar sem vatnið er 90° C
heitt. Þar fannst ekki neitt líf svo ekki var staldrað lengi þar. Heldur
lengur var staldrað við tökur á stórum horgarísjaka sem hafði rekið
inn á fjörð. Þar skapaði myndavélin ýmsar kynjamyndir sem og að
sýna höfrunga að leik. Svona mætti lengi telja. Hugmyndaflugið er
mikið hjá Röhr þegar kemur að kvikmyndatökum neðansjávar.
Undirdjúp íslands er vönduð og áhrifamikil heimildarmynd. Hún
undirstrikar það að við búum í einstöku landi þar sem ís og vatn mæt-
ast á áhrifamikinn hátt. Þá undirstrikar Björk sérstöðu okkar í söng
sínum á Vísum Vatnsenda-Rósu, vel þegnu innskoti frá annars frekar
leiðinlegri tónlist þar sem talsvert er um ofnotkun hljóðgervla. Nátt-
úrleg hljóð, sem gefa myndinni ákveðinn styrk, eru mun betur heppn-
uð. Og fyrst verið er að sýna Undirdjúp íslands í bíói, sem er gott
framtak, þá hefði mátt setja íslenskt tal við myndina.
Framleiðendur: íslenska kvikmyndasamsteypan og Marko Röhr Prod-
uctions. Leikstjóri: Marko Röhr. Kvikmyndtaka Jyrki Arnikari. Tónlist
og hljóðhönnun Kikeno Filmsound. Vísur Vatnsenda-Rósu fluttar af
Björk. Hilmar Karlsson.
★★
Stjörnubíó - Kung Fu-kappinn í Beverly Hills:
Feitlaginn, seinheppinn klaufi
Feitir gamanleikarar
hafa ávallt skipað mikil-
vægan sess í Hollywood.
Frá gullaldarárunum
má nefna Roscoe Fatty
Arbuckle (1887-1933), Oli-
ver Hardy (1892-1957) og
Lou Costello (1906-1959)
og nú í seinni tið hinn
stórskemmtilega John
Candy (1950-1994). Chris
Farley má kalla arftaka
Candys þótt leikstíll
þeirra sé í engu líkur. Líkt og hjá Fatty Arbunckle eru vinsældir Far-
leys að miklu tengdar ótrúlegum liðleika þessa íturvaxna leikara sem
í Beverly Hills Ninja leikur mörg áhættuatriðin sjálfur. Myndin var
lengi í vinnslu og margir leikarar voru orðaðir við aðalhlutverkið, s.s.
Chevy Chase, Eddie Murphy og John Candy. í ljósi þessa er Farley gott
val, því hann hefur sérhæft sig í líkamlegum gamanleik og hefur vaxt-
arlag sem er kómískt í samhengi myndarinnar.
Farley er hvíti bardagamaðurinn Haru sem samkvæmt goðsögum
átti að verða mestur allra ninja. Slíkt er þó fjarri hinu sanna því Haru
vex upp í feitlaginn, seinheppinn klaufa sem nær ekki einu sinni und-
irstöðum bardagalistarinnar. Þegar ung og glæsilega kona biður Haru
að hjálpa sér heldur hann frá Japan til Hollywood þar sem hann þarf
að takast á við gengi peningafalsara. Honum til hjálpar kemur hinn
ósýnilegi bróðir hans, ninjameistarinn Gobei sem leikinn er af Robin
Shue (Jackie Chan vildi ekki hlutverkið).
Beverly Hills Ninja endurtekur sama brandarann mörg hundruð
sinnum og því ættu þeir sem ekki hafa gaman af aulahúmor Farleys
í lengstu lög að forðast myndina. Mér leiddist þó aldrei, enda hef ég
gaman af Farley og er viss um að hann getur meira en síðustu þrjár
myiidir gefa til kynna (hinar tvær eru Tommy Boy og Black Sheep).
Skemmtilegustu senur myndarinnar gerast í fatafeOukúbb og á
japönsku veitingahúsi. I þeirri fyrri tekur Farley þátt í dansinum og
vísar þar í ógleymanlegt atriði úr Saturday Night Live þar sem hann
keppti við Patrick Swayze um pláss í Chippendaleshópnum.
Með breytingum á handriti og betri leikstjóm hefði myndin orðið
mun betri. Dennis Dugan er þó ekki líklegur til stórræða, því síðasta
mynd hans, Happy Gilmore, var ekki upp á marga fiska.
Leikstjóri: Dennis Dugan.
Leikarar: Chris Farley, Robin Shue, Chris Rock og Nicollette Sheridan.
Guðni Elísson.
Menn í svörtu
til að bjarga jörðinni
- fyrir óþverra himingeimsins
húsum höfuðborgarinnar,
júlí. Af þessum
tveimur er Men in
Black talin mun
vænlegri kost-
ur. Á prufu-
sýning-
Enn sem komið er hefur húsum höfuðborgarinnar, eða 4.
engin af stóru sumar-
myndunum komist með
tæmar þar sem The Lost
World: Jurassic Park hef-
ur hælana í aðsókn í
Bandaríkjunum. Eftir að
ljóst er að frumsýningu á
kvikmynd James
Camerons, Titan
ic, verður frestað
fram til jóla era
það aðeins t
tvær kvik-
myndir sem
taldar eru
eiga að geta
náð ein-
hverri að-
sókn sem er í
líkingu við þá
aðsókn sem The
Lost World hefur
fengið. Era það Bat-
man og Robin, sem
frumsýnd verður í
Bandaríkjunum um
næstu helgi, og
Men in Black, sem
framsýnd verður í
byrjun júlí og verður
hún framsýnd nán-
ast á sama tíma
tíma hér á landi í Tommy Lee Jones og Will Smith leika bjargvætti
flestum kvikmynda- Men in Black.
sja
um hafa viðtökur verið mjög góðar,
öfugt við það sem gerst hefur með
Batman og Robin.
í Men in Black leika Tommy Lee
Jones og Will Smith meðlimi í
leyniþjónustu sem eng-
inn í alheiminum
um.
Þeir eiga að
um að eyða
öllu óæskilegu lífi
sem berst til jarðar-
innar. Leikstjóri mynd-
arinnar er Barry Sonnenfield
sem síðast gerði Get Shorty
. en áður hafði hann leikstýrt
Addams Family myndimum
tveimur. Ef það skyldi nú
gerast að Men in Black
fengi aðsókn sem væri
eitthvað í líkingu við þá
aðsókn sem The Lost
World hefur fengið væri
Steven Spielberg síðasti mað-
ur til að harma það því hann
er einn af framleiðendum
myndarinnar og starfar við
hana á sama hátt og The
Twister sem var næstvin-
sælasta kvikmynd í heim-
jarðarinnar í inum á síðasta ári.
-HK
að gjöf!
,
í sumarleik Shellstöðvanna geta allir krakkar eignost fjórar hljóðsnældur
með skemmtilegu efni eftir Gunna og Felix. Nóðu þér í þótttökuseðil ó
næstu Shellstöð eða í Ferðabók Gunna og Felix og byrjaðu að safna skeljum.
Það fæst ein skel við hverja ófyllingu ó Shellstöðvunum og þegar
skeljarnar eru orðnar f jórar, færðu hljóðsnældu að gjöf.
Ferðabók Gunna og Felix fylgir öllum kössum af Hl-C
sem keyptir eru ó Shellstöðvunum.
Matvara - sórvara
50 frikortspunktar
fyrirhverjar JOOOkr.
Shellstöðvarnar
Úegn tramvmm t þesiom ósKntUv-
>«(•>■ t*x4 Þu **u wntek *t OV 1«Jog