Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1997, Side 60
í kv'óld
_
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Stóra fíkniefnamálið
Ekkert bólar
á ákæru
1 Ákæra í stóra fíkniefnamálinu
hefur enn ekki veriö gefin út. Fjór-
ir sitja í varöhaldi vegna málsins.
Það eru tveir Hollendingar, karl og
kona, og íslenskur karl og kona.
Hollenski maöurinn, sem talinn
er höfuðpaurinn í málinu, hefur
setið í varðhaldi síðan i desember.
Hollendingurinn er talinn bera
ábyrgð á innflutningi á 25 kílóum af
hassi, 3 kílóum af amfetamíni og
600 alsælutöflum á síðasta ári.
í byrjun nóvember kom bíll með
Norrænu til Seyðisfjarðar og er
talið sannað að hann hafi verið á
vegum Hollendingsins. Meirihluti
efnanna var í honum. Bílinn komst
í gegnum tollskoðun en hluti efn-
anna náðist síðar.
Hollendingurinn kom svo í flugi
til landsins 11. desember. Það var
fimmta ferð hans hingað frá í sept-
ember. Við leit fundust 10 kiló af
hassi í fórum hans og hollenskrar
konu sem var með honum. Þá leik-
ur grunur á að enn meira af fíkni-
efnum hafi verið flutt inn af þess-
um aðilum.
Maðm-inn og 6 til 7 aðilar, bæði
íslendingar og Hollendingar sem
taldir eru hafa átt hlut að máli, eiga
^yfir höfði sér þungar sakargiftir.-sf
Þrengt að
Norðmönnum
Sjávarútvegsráðuneytið hefur gef-
ið út reglugerð um loðnuveiðar í ís-
lenskri landhelgi. í þeim er þrengt
verulega að veiðum Norðmanna en
aðeins 30 skip fá að veiða frá 1. júlí
til 30. nóv. og 20 skip frá 1. des. til 15.
febrúar. 80 norsk skip hafa óskað eft-
ir því að fá að veiða frá 1. júlí.
Norsk skip verða auk þessa að
sæta mjög ströngum reglum um til-
kynningaskyldu við Landhelgisgæsl-
una og tilkynna sig með minnst 6
. tíma fyrirvara og mest 12 tíma fyrir-
^vara um áætlaðan tíma á ákveðna
athugunarstaði. í tilkynningunum
skal koma fram hver afli sé um borð.
Enn fremur skal tilkynna einu sinni
á sólarhring um afla og loks skal til-
kynna um lok veiða með sama að-
draganda og við upphaf veiða.-SÁ
„ EM í bridge:
Island í þriðja
sæti
íslenska landsliðið í opna flokkn-
um á EM í bridge á Ítalíu er í þriðja
sæti eftir stórsigur á Úkraínu 23-7 í
14. umferðinni í gærkvöldi. Staðan:
ítalia 298, Spánn 267, ísland 263,
1 '■Noregur 256 og Bretland 252,5. í 5.
umferð í kvennaflokki tapaði ísland
fyrir Svíþjóð 7-23.
Misnotkun parkódíns og skyldra verkjalyfja:
Fíklar sólgnir í lyfin
- segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi
„Við fáum mörg tilvik á hverju
ári. Þótt þeim hafi eitthvað fækkað
frá 1984 eru enn um 200 tilvik á
hverju ári, sem er mjög mikið,"
segir Þórarinn Tyrfingsson, yfir-
læknir á meðferðarstöð SÁÁ að
Vogi. „Flest tilvikanna sem varða
misnotkun lyfja eru tilvik þar sem
fólk er að misnota róandi ávanalyf
eða fólk er líkamlega háð neyslu
róandi lyfja. Oft helst misnotkun
lyfjanna í hendur við áfengis-
vandamál og ég mundi segja að svo
væri í meirihluta tilvika.
Að sögn Þórarins er misnotkun
parkódíns mjög algeng hjá fíklum
og vel þekkt vandamál. „Þetta lyf
er gjarnan notað í bland við önnur
lyf og algengt að sjúklingar grípi
til þess í hallæri." Þórarinn telur
æskilegt að ávanabindandi lyf séu
ekki seld í lausasölu og það sé ekki
til bóta ef þau eru að auki seld á
mjög hagstæöum kjörum. „Sú
lausn að gera lyf lyfseðilsskylt er
þó oft ekki nægileg. Við höfum fjöl-
mörg tilvik um misnotkim lyfseð-
ilsskyldra ávanalyfja eins og
diazepín-iyfja, valíums og skyldra
efha. í seinni tíð hefúr nokkrum
sinnum verið gripið til þess ráðs
að taka lyf alfarið út af lyfjaskrá
eða herða að læknum og takmarka
leyfi þeirra til að vísa á slík lyf.
Sem dæmi um þetta má nefna það
að skorður voru settar á heimildir
lækna til að vísa á amfetamín og
róandi ávanalyf. Skammtar af
þessum lyfjum eru nú einungis af-
greiddir innan sjúkrahúsa." Þórar-
inn viðurkennir aö ýmsir ókostir
fylgi því að takmarka aðgang
manna að lyfjum. „Hin hliðin á
þessu máli er sú að fjöldi fólks þarf
á þessum lyfjum að halda og er
ekki að misnota þau á neinn hátt.
Það getur haft í fór með sér marg-
víslegt óhagræði fyrir það ef lækn-
ar fá ekki lengur að vísa á lyfin.“
Þórarinn telur of litla umræðu
hafa verið um misnotkun lyfja og
að þau mál hafi lengi legið í þagn-
argildi. „Ég fagna því að þetta mál
skuli vera tekið fyrir. Þetta er einn
af þessum hlutum sem lítið hefur
verið talað um.“ -kbb
Forsetahjónin sjást hér halda úr hlaöi á Bessastööum í gærmorgun í opinbera heimsókn sína til Dalasýslu. í ræöu
sem Ólafur Ragnar hélt í Dalabúö í Búöardal í gærkvöldi kom fram aö íslendingar og Vestur- íslendingar ætluöu aö
hefja samvinnu um uppbyggingu Eiríksstaöa, fæöingarstaðar Leifs heppna Eiríkssonar. Tilgangur væri aö standa
vörö um landafundi Leifs og stuöla aö því að Eiríksstaðir verði áfangastaður sem flestra gesta sem sækja ísland
heim. Ef íslendingar ætli sér aö aö auka tekjur í ferðamannaþjónustunni, sem væri helsta vaxtargrein hagkerfis
heimsins, yröi aö sinna fjárfestingu í aöbúnaöi og aöstööu á sögustööum, sagöi forsetinn í Dalabúð.
Hásteinn ÁR 8:
Kæra afturkölluð
Kæra Landhelgisgæslu íslands
vegna meintra ólöglegra togveiða
humarbátsins Hásteinn ÁR 8 var
afturkölluð í gær. Rannsókn hefur
verið hætt og vakt sem var við skip-
ið verið aflétt og er þvi frjáls för.
-sf
íkveikja viö
Sóltún
Vinnuskúr við Sóltún í Reykja-
vík brann á fimmta tímanum í gær.
Slökkvilið kom á staðinn og slökkti
eldinn. Vitni sem höfðu samband
við DV sögðu háværa sprengingu
hafa orðið í brunanum.
Lögregla telur fullvíst að um
íkveikju hafi verið að ræða.-sf
Guðmundar- og
Geirfinnsmálið:
Vitnaleiöslur
Tveir menn báru vitni í þing-
haldi vegna beiðni um endurupp-
töku Guðmundar- og Geirfinnsmál-
anna í gær. Þetta voru þeir Hlynur
Þór Magnússon, fyrrverandi fanga-
vörður, og Jón Bjarman, fyrrver-
andi fangaprestur.
í vitnisburði þeirra komu fram
fullyrðingar um harðræði innan
veggja Siðumúlafangelsis og að
Sævar Ciesielski og Erla Bolladóttir
hafi játað hverju sem var og jafnvel
spunnið upp frásagnir.
Sjá nánar í dómssalnum á bls. 2.
-sf
L O K I
Veður á sunnudag og
mánudag:
Hæg
breytileg
átteða
hafgola
Hæg breytileg átt verður á
morgun og mánudag. Víða
verður léttskýjað og hiti 10 til
17 stig að deginum, hlýjast í
innsveitum.
12
i4^: i4
10
13c
) ð14
(3
(3
14
3
13
13°
14
m
m
ii
m
m
Veðrið sunnudag og mánudag
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll
- hannaður fyrir (slenskar aðstæður
CR-V Sjálfskiptur með tveimur
loftpúðum kostar frá 2.270.000,-
HJ
HONDA
S: 568 9900