Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Side 18
18 MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1997 Vítamín gætu dregið úr hjarta- sjúkdómum Rannsókn, sem gerð var á nærri 1600 manns í níu Evr- ópulöndum, bendir til að vítamínblanda með fólín- sýru, kóbalamíni, sem er hluti B-12 vitamíns, og pýridoxíni, sem tilheyrir hópi B-6 vítamína, geti dregið úr hættunni á hjartasjúkdóm- um. í skýrslu frá Adelaide sjúkrahúsinu í Dyflinni á ír- landi segir að frekari rann- sókna sé þörf. Við rannsóknina kom í ljós að mikið magn af amínó- sýrunni hómócystíni í blóð- inu geti bent til aukinnar hættu á hjartasjúkdómum. Vísindamennirnir telja rétt að kanna hvort ráðlagður dagskammtur £if vitamínum, sem hafa áhrif á umrædda amínósýru, sé nægur. Þrumuveður getur valdið asmakdstum Breskir læknar segja að mikið þrumuveður geti vald- ið asmaköstum og vísa til af- leiðinga slíks veðurlags á Englandi suðaustanverðu árið 1994. Asmaköst voru þá fjórum sinnum fleiri en venjulega. Læknarnir skoðuðu skýrsl- ur yfir símhringingar til læknavaktarinnar á meðan þrumuveðrið gekk yfir og báru saman við hringingar kvöld eitt í vikunni á undan. „Þetta var umtalsverður asmafaraldur, ekki spurn- ing,“ segir Katherine Vena- bles, læknir við hjartastofn- unina í Lundúnum. Hún segir að þrumuveðrið geti haft áhrif á magn gras- frjókorna í andrúmsloftinu, enda gekk veðrið yfir skömmu eftir að grasfrjó- komamagnið var hvað mest. Vitað er að þrumuveður brýtur frjókornin upp í smærri einingar sem valda alvarlegri asmaviðbrögðum. Ormar og sníkjudýr í múmíunum Egyptar hinir fornu voru plagaðir af alls kyns ormum og öðrum sníkjudýrum í lif- anda lífl. Múmíurnar af þeim benda þó til að nútímasjúk- dómar eins og krabbamein, sárasótt eða berklar, hafi ekki gert þeim lífið leitt. Vísindamenn beittu röntgenmyndum og nýjustu tölvutækni til að rannsaka fjögur þúsund ára gamlar eg- ypskar múmíur. Þeir fundu m.a. bakteríu sem veldur ákveöinni tegund matareitr- unar og sníkjudýrið sem veld- ur malaríu. Tvær múmíanna að minnsta kosti voru með kals- íumútfellingar í þvagblöðr- unni. Það bendir til að Egypt- ar þessir hafi verið smitaðir af sníkjudýrsormi sem veldur blóðögðuveiki. r túdpSjís' _j Sfigife | —j - VJJJjJiJj Alij t .... Nýjar upplýsin Besti vin Hundurinn sem heimilisdýr er miklu eldra fyrirbæri en hingað til hefur verið álitið. Hugsanlega má rekja tryggð hans við manninn allt að eitt hundrað þúsund ár aftur í tímann. Á þeim tima hafði maður- inn sjálfur meira að segja ekki enn holað sér niður á einn stað heldur lifði flökkulífi. Fomleifar benda til að hundar hafi orðið að húsdýrum um svipað leyti og mannfólkið tók upp fast að- setur og hóf að rækta landið, hugs- anlega fyrir um fjórtán þúsund árum. í nýlegu hefti tímaritsins Science er hins vegar sagt frá nýrri erfða- greiningu á hundum og úlfúm. Sú greining bendir til að þróunin, sem leiddi til þess að hundurinn varð besti vinur mannsins, hafi byrjað fyrir sextíu til eitt hundrað þúsund árum. „Hundarnir komu fram á sjónar- sviðið löngu fyrir myndun landbún- aðarsamfélaga fyrir um það bil tíu til fjórtán þúsund árum. Uppruna þeirra má rekja alla leið aftur til þess tíma þegar maðurinn veiddi og safnaði sér til matar,“ segir í yfir- lýsingu sem Robert Wayne, líffræð- ingur við Kaliforníuháskóla í Los i | Angeles, sendi frá sér. Wayne og samstarfsmenn hans komust að þessari niðurstöðu með þvi að rannsaka erfðaefnið DNA úr 140 hundum af 67 tegundum, allt frá sankti bemharðshundum til kjöltu- rakka. Vísindamennirnir rannsökuöu einnig DNA erfðaefni úr 162 úlfum frá fjölmörgum löndum, svo og DNA úr sjakölum og amerískum sléttu- úlfum. Rannsóknirnar leiddu í Ijós ótrú- lega mikla fjölbreytni DNA, miklu meiri en ætla mætti ef hundar, eins og þeir eru nú, hefðu þróast fyrir um fjórtán þúsund árum. Mismunandi raðir DNA benda til að tegundin kunni að hafa þróast miklu fyrr en haldið var, segja vís- indamennimir í grein sinni. „Miðað við þá erfðafræðilegu fjöl- breytni sem við fundum getum við reiknað út hversu langan tíma það hefði átt að taka ef stökkbreytingar einar væm drifkrafturinn að baki þessu ferli,“ segir Wayne. „Útreikn- ingar leiða getum að því að fyrsti hundurinn sem húsdýr sé eitt hundrað þúsund ára gamall eða eldri." Rannsóknin sýndi einnig fram á að úlfar kunni að vera náskyldustu ættingjar hundanna, fremur en sjakalar eða sléttuúifar. Flestir nútímategundir hunda urðu til fyrir nokkur hundruð árum fyrir tilstilli nútímaræktunarað- ferða. þessa að koma í veg fyr- ir umræður um hvemig taka eigi á vandanum með því að láta þær snúast um hvort eitt- hvert vandamál sé fyrir hendi,“ skrifar Gelbspan. Virtir vísindamenn hafa sagt að gróður- húsaáhrifín, sem mynd- ast vegna of mikils koltvíildis í andrúms- lofti jarðar, gætu leitt til afdrifaríkra loftslags- breytinga um heim all- an. Gelbspan heldur því fram að gróðurhúsaá- hrifin hafi þegar valdið miklum náttúruhamfor- um, svo sem flóðum, fleiri og öflugri fellibylj- um og betri lífsskilyrð- um fyrir alls kyns skor- Olíufyrirtæki í blekkingar- leik um gróðurhúsaáhrif Risafyrirtæki, sem vinna olíu, gas og kol úr jörðu, hafa notað auð sinn til að halda á lofti rannsóknum and- ófsmanna í heimi vísindanna sem draga í efa tilvist svokallaðra gróð- urhúsaáhrifa eða hættuna sem af þeim stafar. Þetta kemur fram í nýrri bók, The Heat Is on, eftir bandariska blaðamanninn Ross Gelbspan. Höfundurinn segir að fyrirtæki í jarðefnaeldsneytisiðnaðinum hafi varið milljónum dollara til að tefja fyrir pólitiskum aðgerðum sem gætu skaðað iðnaöinn og til að telja almenningi trú um að óttinn við gróðurhúsaáhrifin sé ekki á rökum reistur. Hann segir að fyrirtækin reyni einnig að láta líta svo út sem aukið magn koltvíildis í andrúms- loftinu leiði til meiri uppskeru og aukningar skóglendis. „Þessum rúmlega tíu andófs- mönnum, sem eru á öndverðum meiði við 2500 helstu ioftsslagssér- fræöinga heimsins, hefur tekist til dýr og pöddur sem bera hættulega smitsjúkdóma. Hann segir að engu að síður haldi fyrirtæki í jarðefnaeldsneytisiðnað- inum uppi linnulausum áróðri og veiti villandi upplýsingar til að tefja fyrir aðgerðum. Oliufélögin eru sökuö um aö tefja fyrir aðgerðum til aö draga úr losun svokallaöra gróöurhúsalofttegunda. Ekki svo galið af hundunum að sleikja sárin Hundar eru ekki svo galnir þegar þeir sleikja sár sín. Efnafræðin hef- ur nú sannað það. Nigel Benjamin, lyfjafræðingur við sjúkrahús heilags Bart- holomews í Lundúnum, segir að köfnunarefnisoxíð, sem vitað er að hefur græðandi eiginleika, myndist þegar munnvatn kemst í snertingu við hörundið. Benjamin og félagar hans töldu fjórtán sjálfboðaliða, alla mennska, á að sleikja á sér hendumar hátt og lágt. Við skoðun reyndist síðan hafa orðið mikil aukning á köfnunarefn- isoxíði á höndum fólksins. „Við leiðum að því getum að köfnunarefhisoxið sem myndast af völdum munnvatnsnítrits á hörund- inu eigi þátt í bakteríudrepandi áhrifum þess að sleikja sár sín,“ segja vísindamennimir í grein í læknablaðinu Lancet. Horft á árekstur tveggja sprengistjarna Stjarnvísindamenn hafa nú í fyrsta sinn orðið vitni að árekstri tveggja sprengistjama í fjarlægri stjömuþoku. Og að sjálfsögðu sáu þeir fyrirbærið með aðstoð Hubble geimsjónaukans góða. Áreksturinn varð í 17 milljón ljós- ára fjarlægð frá jörðu og að sögn Williams Blairs frá Johns Hopkins háskólanum er útlit fyrir að hann vari í um 1200 ár. í skýrslu sem Blair flutti á þingi bandarískra stjörnufræðinga nýlega segir að fastastjömurnar tvær hafl sennilega fæðst og dáið saman og sprungið með um 20 þúsund ára millibili. Þegar stór stjama spring- ur og myndar við það sprengistimi, þeytir hún frá sér gasi og gijóti í all- ar áttir með 36 milljón km hraða á klukkustund. Höggbylgjan frá sprengingunni þjappar gasinu saman í þétta skel. Þegar skeljar sprengistirnanna skella saman verður úr gífurleg ljósasýning.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.