Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Síða 22
*• 30
MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1997
Fréttir
DV
Víkurkirkja:
Vegleg gjöf
DV.Vík:
Hermann Guðjónsson og börn
hans, Gústav og Guðríður, færðu
Víkurkirkju 15. júní veglega gjöf til
minningar um eiginkonu Her-
manns, Laufeyju Helgadóttur, sem
var fædd og uppalin í Vík í Mýrdal.
Gjöfin er listaverk úr steindu gleri í
• alla glugga Víkurkirkju unnin af
Hrafnhildi Ágústsdóttur glerlista-
konu sem er búsett og starfar í New
York.
Við athöfnina predikaði dr. Sigur-
björn Einarsson biskup og afhenti
hann gjöfina fyrir hönd fjölskyld-
unnar. Við athöfnina þjónaði Har-
aldur M. Kristjánsson, sóknarprest-
ur í Vík, fyrir £dtari. Kór Víkur-
kirkju söng undir stjórn Önnu
Björnsdóttur og tónlistarfólk úr Vík
lék á hljóðfæri. Við athöfnina söng
einnig sænski drengjakórinn St.
Jakobs Grösskor undir stjórn Johns
Wilklund en hann er nú á ferð um
ísland. Vík var þriðji viðkomustað-
urinn á leið hans um landið.
Að sögn Haralds Kristjánssonar
er hér um að ræða eina merkustu
gjöf sem kirkjunni hefúr verið gef-
in. Hið nýja listaverk er enn ein
prýði kirkjunnar sem þegar státar
af fegurð margra listaverka.
„Víkurkirkja verður opin fólki að
deginum í allt sumar svo sem verið
hefur undanfarin ár og ef marka má
gestabók kirkjunnar koma margir í
hana í viku hverri," sagði Haraldur.
NH
Allt á fullu við framkvæmdir við Búrfellsvirkjun. DV-mynd Jón Ben.
Búrfellsvirkjun:
Afköst aukin
M DV, Hvolsvelli:
Miklar framkvæmdir hafa að
undanfórnu staðið yfir við inntaks-
mannvirki Búrfellsvirkjunar og auk
þess ýmislegt annað lagfært og lag-
að. ístak hefur unnið að lagfæringu
á aðrennslislögn og um 20 þúsund
rúmmetrar af vikri voru fjarlægðir
úr aðrennslisskurði. Verið er að
vinna að endurnýjun á ristum í
gangamunna.
Bjarnalón var tæmt og dýpk-
unarpramminn Trölli var síðan við
vinnu í botni lónsins. Lónið hefur
verið tæmt áður - 1984. Vélar Búr-
fellsvirkjunar hafa jafnframt verið
teknar upp og sett í þær ný vatns-
hjól. Það mun auka afköst virkjun-
arinnar til muna. -JB
*
■»
<,OÖkaupsveislur — Otisamkomur — skemmtanir—tónleikar—sýningar — kynningar og fl. og fi. og fl.
Hͧ@S|®l)dl - «®8§0
..og ýmsir fylgihlutir
Ekki treysta ó veðrið þegar
skipuleggja ó eftirminnílegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt fjald á
staðinn - það marg borgar sig.
Tjöld af öllum slœrðum frá 20 - 700m2.
Einnig: Borð, stólar, Ijaldgólf og
tjaldhitarar.
iJalíMíeta slkátta
..með skátum á heimavelli
sími 562 1390 • fax 552 6377
Frá afhendingu gjafaskjals. Frá vinstri Haraldur M. Kristjánsson sóknarprestur, Áslaug Vilhjálmsdóttir, formaður
sóknarnefndar, og listamaðurinn Hrafnhildur Ágústsdóttir. DV-mynd Njörður
ÓlafsQörður:
Aðalæð
endurnýjuð
DV, Ólafsfirði:
Framkvæmdir standa nú yfir við
endurnýjrm á aðalæð í dreifikerfi
Hitaveitu Ólafsfjarðar. Skipt hefur
verið um rör á 170 metra kafla frá
gatnamótum Ólafsvegar og Hafnar-
götu að gatnamótum Aðalgötu og
Vesturgötu.
Fýrsti áfangi þessarar fram-
kvæmdar hófst fyrir þremur árum.
Þá var aðalæð hitaveitunnar frá bor-
holunni í Laugarengi endumýjuð.
Gömlu rörin víkja fyrir nýjum 5
tomma asbeströrum. Þau gömlu
hafa þjónað bæjarbúum í 50 ár.
Áætlaður kostnaður við þennan
lokaáfanga er 2,2 miiljónir króna. Þá
verður skipt um jarðveg og steypt
ný gangstétt sem í verður hitalögn.
Framkvæmdir á gatnamótum Aðalgötu og Vesturgötu. DV-mynd Helgi
Blómainnkaup:
Ekki miklar tískusveiflur
DV, Aknreyri:
„Það er árvisst að á þessum tíma
er mjög mikið að gera hjá okkur,
fólk er önnum kafið við að snyrta og
gera huggulegt í görðum sínum og
kemur hingað til að kaupa garð-
plöntur, matjurtaplöntur, tré og
runna,“ segir Eiríkur Hreiðarsson,
garðyrkjubóndi á Grísará í Eyja-
fjarðarsveit, skammt frá Hrafnagili.
„Salan undanfarið er miklu líf-
legri en í fyrra þrátt fyrir að ekki
hafi vorað sérstaklega vel hér i
Eyjafirði og að samkeppni í þessari
atvinnugrein hafi aukist mjög mik-
ið. Það má því segja að mikil sala
nú sé „stílbrot" því venjan er sú að
slæmum vorum fylgir minni sala,“
segir Eirikur.
Hann segir að á Grisará sé hægt að
kaupa nánast allt sem til þarf til að
gera garða fólks fallega, blóm, tré,
runna og jafnvel tilbúin ker með
blómum sem eru vinsæl meðal þeirra
sem hafa lítinn tíma til að fást við
plöntun sjálft. „Það er ekki hægt að
tala um miklar tískusveiflur í þessu,
en þó er eitt blóm sem nú er ákaflega
vinsælt. Það er skjaldflétta sem til
þessa hefur verið nánast algjört
aukaatriði í minni ræktun en er nú
skyndilega orðið mjög vinsælt, sann-
kallað tískublóm i dag, sem blómstr-
ar rauðu og gulu og ilmar sérstaklega
vel,“ segir Eiríkur. -gk
Mikið að gera á sumrin
- segja hjónin í Steinhólaskála
DV, Akureyri:
„Við erum með opið hér allan
ársins hring, á sumrin er að vísu
miklu meira að gera en á veturna
reynum við að þjónusta sveitafólk-
ið hér í kring t.d. með bensínsölu
og öðru sem til fellur," segja hjón-
in Kristjana Kristjánsdóttir og Jón
Albertsson sem reka Steinhóla-
skála í Eyjafjarðarsveit sem er í
um 35 km fjarlægð frá Akureyri.
Þar hefur verið rekin sölu- og veit-
ingaþjónusta síðan 1975 en þau
hjónin tóku við af foreldrum Krist-
jönu árið 1990.
Kristjana segir að á sumrin sé
mjög vinsælt hjá Akureyringum og
ferðafólki að skreppa í ökuferð um
sveitir Eyjafjarðarsveitar, en hægt
er að velja um nokkrar mislangar
ökuleiðir í hringakstri um sveit-
ina. „Fólk skreppur t.d. mikið inn
í Leyningshóla og kemur hér við í
leiðinni og fær sér kaffi, en við get-
um tekið hér á móti um 50 manns
í sæti. Við erum hér með venjuleg-
ar kaffiveitingar og einnig hefð-
bundna sjoppusölu.
-gk
Hrísey:
Ferðamannastraumur
DV, Akureyri:
„Þetta er á uppleið aftur eftir
þrjú ár i nokkurri niðursveiflu,"
segir Smári Thorarensen, varaodd-
viti I Hrísey og skipstjóri á Hríseyj-
arferjunni Sævari, en ferðamanna-
straumurinn er nú hafinn til eyj-
unnar.
Smári segir að metflutningar á
fólki til eyjunnar hafi verið árið
1992 en þá voru flutt þangað yfir 50
þúsund manns. Síðan tóku við þrjú
ár þar sem farþegum fækkaði og
voru fæstir um 45 þúsund. „Við
sáum batamerki í fyrra og i ár er
töluverð aukning frá því sem þá
var,“ segir Smári.
Vinsældir þess að sigla með ferj-
unni frá Árskógssandi út í eyju og
dvelja þar nokkra tíma hafa aukist
mjög undanfarin ár. Ferjan fer 9
ferðir á dag milli lands og eyjar og í
júlí stendur til að fjölga ferðunum
þannig að farið verði á klukku-
stundarfresti frá Árskógssandi.
-gk