Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Side 40
•3
Vinningstölur laugardaginn
K 2
28
Fjöldi
Vinningar vinninga Vinningóupphœð
I' S “ts 2.202.020
1. 4 at sA ® 2 248.830
3-4 0ts 114 7.530
4-3 ats 3.498 570
21
'm
HeíldarvinningAupphœð
7.753.980
> FRÉTTASKOTIÐ
DC f—j Li-J SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
= 0 Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
s: LTD <a: oo 3 1— LO 1—
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ1997
Reylgavík
og Kjalarnes
, sameinast
Samþykkt var í kosningum á
laugardaginn að sameina Reykja-
vík og Kjalarnes. Kjörsókn á Kjal-
arnesi var um 85 prósent og sam-
þykktu tveir þriðju þeirra samein-
ingu. Hins vegar var kjörsókn í
Reykjavík um 10 prósent og sam-
þykktu níu af hverjum tíu samein-
inguna.
Kjalnesingar munu á næsta ári
kjósa í borgarstjórnarkosningun-
um. Aftur á móti mun Kjalames til-
heyra Reykjaneskjördæmi þar til í
næstu alþingiskosningum.
-S.dór
Veðurá
Faxaflóasvæði
næstu viku
- samkv. tölum frá Veöurstofu íslands -
Hitastig- á 12 tíma blli
14 c°
l/indhraöi
12stlg
10
4
ssv
VNV NV
NV NV
2—ana-nnv
mán. þri. miö. fim. fös.
Úrkoma - a 12 tíma bili
18 mm
16
14
12
10
8
6
mán. þri. miö. fim
fös. |
ssssawsístwfrsssS
HEITIR 30RGIN
ÞÁ KJALARNES-
3YGGÐ?
Verkfall hafið á sjúkrahúsinu á Húsavík:
Neyðarástand
- sjúklingar sendir heim - reynt að sinna frumþörfum
Á miðnætti siðastliðnu hófst
verkfall hjá ófaglærðu verkafólki
á Sjúkrahúsi Húsavíkur og heil-
sugæslustöðinni. Alls leggja 65
manns niður vinnu. Það er fólk í
ræstingum, eldhúsi, þvottahúsi og
fólk í umönnun langlegusjúklinga.
„Það ríkir vissulega neyðará-
stand hjá okkur og við getum
ekki meira gert en reynt að sinna
frumþörfum. Hér verða engar
innlagnir, ekki einu sinni sæng-
urkvenna. Aðeins slysavarðstofa
veröur opin. Þá hafa allir sjúk-
lingar, sem mögulegt er að fari af
sjúkrahúsinu, verið sendir heim.
Síöan ætlum við að sameina þær
tvær deildir sem hér eru i eina.
Lögum samkvæmt mega ekki
líða nema tveir sólarhringar án
þess að ræst sé. Við erum búin að
sækja um undanþágu vegna þess
og ég trúi ekki öðru en að hún fá-
ist,“ sagði Ema Óladóttir, hjúkr-
unarfræðingur á Sjúkrahúsi
Húsavíkur, í samtali við DV í
gær.
Aðalsteinn Baldursson, formað-
ur Verkalýðsfélags Húsavíkur,
sagði að slitnað hefði upp úr
samningum hjá sáttasemjara fyrir
helgi. Ríkissáttasemjari teldi ekki
ástæðu til að boða til sáttafundar
eins og staðan í deilunni væri nú.
„Við emm búin að vera í við-
ræðum við ríkið frá áramótum.
Samkomulag liggur fyrir um
launaliðinn á sömu nótum og
menn hafa verið að semja um í
vor. Það sem samningar stranda á
er að ríkið er ekki til viðtals um
að opna á starfsmenntun fyrir
okkar fólk. Við getum ekki unað
þessu vegna þess að hinir ýmsu
faghópar em með slík ákvæði
inni í sínum samningum. Öll
starfsmenntun hækkar fólk í
launum. Eins er deilt um upphafs-
gildistíma samningsins. Þeir
bjóða okkur samning frá 1. júní.
Rétt áður hafði okkur verið boð-
inn samningur frá 1. maí. Þeir
breyttu því með einu pennastriki
á fostudag í síðustu viku,“ sagði
Aðalsteinn.
í gær var haldinn fundur með
starfsfólki sjúkrahússins og því
kynnt staða mála. Síðan stóð til að
þeir Aðalsteinn Baldursson og
Friðfinnur Hermannsson, forstjóri
sjúkrahússins, ættu með sér fund
seint í gærkvöld en Friðfinnur var
utanbæjar í gær. -S.dór
Framarar unnu mikilvægan sigur á liði Skallagríms í úrvalsdeild karla ■ knattspyrnu í gærkvöldi og á myndinni hér
aö ofan geysist Þorbjörn Atli Sveinsson með knöttinn í átt að marki Borgnesinga. Fjórir leikir fóru fram í deildinni
um helgina og bar helst til tíðinda að KR-ingar náðu að sigra Eyjamenn í Eyjum þrátt fyrir að þrjá lykilmenn vantaöi
■ liö þeirra. Skagamenn nálgast toppinn eftir nauman sigur á Val á heimavelli og Grindvíkingar unnu nauman útisigur
á Stjörnunni í Garðabæ. Frá leikjunum fjórum er greint á iþróttasíðum á bls. 21-28. DV-mynd Brynjar Gauti
Veðrið á morgun:
Bjart
vestanlands
Á þriðjudag er gert ráð fyrir
norðaustan golu eða kalda. Veður
verður bjart vestanlands en skýj-
að að mestu annars staðar. Búast
má við súld við norður- og austur-
ströndina. Hiti verður á bilinu 6
til 14 stig og hlýjast suðvestan-
lands.
Veðrið í dag er á bls. 44.
Drukknaði
í Ölfusá
Sautján ára piltur féll í Ölfusá og
drukknaði aðfaranótt sunnudags.
Björgunarsveit og lögregla var nær-
stödd og fleiri sveitir voru einnig
kallaðar út. Eftir klukkutíma fannst
pilturinn látinn í ánni. í gær var
byrjað að yflrheyra vitni sem voru á
dansleik um kvöldið í kjallara Vöru-
húss KA. Ekki er unnt að greina frá
nafni piltsins að svo stöddu.
Annar piltur lenti einnig í ánni
sömu nótt en hann var dreginn upp
úr ómeiddur. -em
Fikniefnasam-
koma stöðvuð
Lögreglan i Reykjavík réðst inn á
fíkniefnasamkomu á laugardags-
morgun. Þrír voru handteknir af
þeim níu sem á staðnum voru. Sam-
koman átti sér stað í kjallara iðnað-
arhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan gerði upptæk fíkniefni og
áhöld til fíkniefnaneyslu. -em
Barinn á dansleik
Ungur maður var laminn illa á
Eskifirði aðfaranótt laugardags.
Hann var staddur á unglingadans-
leik þegar tveir menn veittust að
honum og veittu honum slæma
áverka. Maðurinn er brotinn í and-
liti og rifjum. Mennirnir tveir hafa
verið handteknir og telst málið upp-
lýst. Þeir voru allir ölvaðir þegar at-
burðurinn átti sér stað. -em
Bílvelta í
Borgarfirði
Bílvelta varð í Borgarfirði um helg-
ina. í bílnum var einn maður og 4 ára
drengur. Bílstjórinn slasaðist töluvert
og var fluttur á Sjúkrahús Reykjavík-
ur til aðhlynningar. Drengurinn slas-
aðist ekki. Bifreiðin sem var af gerð-
inni Hyndai er ónýt. -em
EM í bridge:
Evrópumeistarar
ítala gjörsigraðir
íslensku spilararnir í opna
flokknum á EM í bridge á Ítalíu
gjörsigruðu Evrópumeistara Itala,
24- 6, í sextándu umferð á laugardag.
Þetta er fyrsta stóra tapið hjá ítöl-
um á mótinu en þeir eru langefstir.
Hins vegar tapaði Island 10-20 fyr-
ir írum og 12-18 fyrir Finnum á
laugardag. I gær vann ísland Belgíu
25- 0 en tapaði fyrir Svíum 13-17.
Staðan eftir nítján umferðir: Ital-
ía 370.5, Noregur 350, Island 347,
Frakkland 347 og Pólland 345 en
þátttökuþjóðir eru þrjátíu og sex. I
kvennaflokki er ísland í 20. sæti af
24 þjóðum. h.sím.
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll
- hannaður fyrir íslenskar aðstæður
CR-V Sjálfskiptur með tveimur
loftpúðum kostar frá 2.270.000,-
E)
HONDA
S: 568 9900
9
Í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i