Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997
Fréttir
^ Páll Arason, fyrrum ferðafrömuður, heitir Reðurstofu íslands framlagi:
Anafnar safninu kyn-
færin eftir sinn dag
- Pétur Pétursson, læknir á Akureyri, mun sjá um hina læknisfræðilegu hlið
Páll Arason, 82ja ára, fyrrum
ferðafrömuður hér heima og erlend-
is, hefur ánafnaö Hinu íslenska
reðasafhi i Reykjavík kynfæri sín
að sér látnum. Pétur Pétursson,
læknir á Akureyri, hefur undirrit-
að skjal þar sem fram kemur að
hann muni framkvæma þær tækni-
legu og læknisfræðilegu aðgerðir
sem til þarf þegar Páll verður allur.
Páll og vottar hafa undirritað skjöl-
in.
Gangi þetta eftir mun reðursafn
Sigurðar Hjartarsonar, kennara í
Reykjavík, hafa að geyma mannslim
- safnið hefur til þessa einungis haft
getnaðarlimi sjávarspendýra og
annarra spendýra.
í öðru tveggja skjala, sem hafa
verið undirrituð vegna þessa, kem-
ur m.a. fram að reðurstofustjóri ís-
lands gjöri kunnugt að tillögu orðu-
nefndar rannsóknastofhunar í reð-
urfræði að Páll Arason sé útnefndur
ofurgildur heiðurslimur vegna
ómetanlegs framlags hans til vænt-
anlegrar eflingar hans á safninu.
Þegar DV heimsótti Pál á einbýli
hans að Bug í Hörgárdal í gær
kvaðst hann hafa verið ansi spræk-
ur þegar Pétur læknir færði fram-
angreinda ánefningu
upphaflega í tal við
hann:
„Ég dró ekkert úr
því og samþykkti það
síðan,“ sagði Páll.
Hann segir að í raun
eigi fáir ef einhverjir
tilkall til sín - þess
vegna hafi hann
áhyggjulaust getað
samþykkt tillögu Pét-
urs læknis.
Páll er einbúi og
hefur á síðasta rúmum
áratug gróðursett 5
þúsund trjáplöntur í
landi sínu sem tilheyr-
ir Þúfnavöllum þar
sem stórbóndinn Guð-
mundur Guðmunds-
son, afi hans, rak þrjú
býli á sínum tíma.
í einkalandi Páls
Páll er einbúi í Hörg-
árdal og sérstakt
snyrtimenni. Hann
ræktar tré og gefur
eldissilungum rækj-
ur. DV-mynd BG
eru margar tjamir þar sem hann
gefur eldissilungum sínum rækjur á
hverjum degi. Harm slátrar þeim
ekki en leyfir gestum að veiða tvo
fiska hveijum.
Páll er sérstaklega gestris-
inn maður. Miðað við aldur
er hann mjög em og hefur
góða heym og sjón. Hann er
snyrtimenni og á marga
mismunandi alklæðnaði. í
ævisögu hans, sem kom út
árið 1983, segir að Páll hafi
verið þekktur kjarkmaður
en jafnframt gleðimaður.
Páll segir að sér haldist vel
á peningum. Hann notast að-
eins við sólarorku fyrir ]jós
og sjónvarp en ísskápurinn
hans er lítill vatnsbrunnur
skammt frá íbúðarhúsinu.
Páll var fyrsti íslendingur-
inn til að fara Sprengisands-
leið á rútu. Ferðafrömuður-
inn fyrrverandi fæddist á
Akureyri og ólst upp þar og
í Hörgárdal. Hann flutti síð-
an suður og varð landskunn-
ur fyrir rútuferðir sínar með
íslendinga til Evrópu að
ógleymdum ferðum um ís-
land. Páll segir að lífsregla sín hafi
verið að vinna í þágu íslensku þjóð-
arinnar - af því hafi öll störf hans og
gjörðir helgast. -Ótt
Siguröur Hjartarson, reöurstofustjóri íslands,
á safni sínu sem Páll hefur ánafnaö ákveðinn
líkamshluta sinn. DV-mynd JAK
Auömaðurinn Mohamed A1 Fayed, eigandi Harrod’s-verslunarinnar:
Var á íslandi í síðustu viku
- kom á tveimur einkaþotum meö Qölskylduna, þjóna og lífverði
Mohamed Al Fayed, eigandi Harrod’s í London og veröandi tengdafaðir
Díönu prinsessu af Wales, dvaldi hér á landi í síöustu viku ásamt fjölskyldu
sinni. Hér á myndinni fagnar hann áfangasigri í málaferlum gegn bresku rík-
isstjórninni sem neitar honum um ríkisborgararétt. Mynd Reuter
„Mohamed A1 Fayed er einstak-
lega viðfeldinn maður. Ég hitti
hann og ræddi við hann stutta
stund meðan hann dvaldi hjá okkur
á Hótel Sögu í síðustu viku,“ sagði
Jónas Hvannberg, hótelstjóri Hótel
Sögu, í samtali við DV.
Auðmaðurinn Mohamed A1
Fayed, eigandi Harrod’s-verslunar-
innar í London og verðandi tengda-
faðir Díönu prinsessu af Wales,
dvaldi á Hótel Sögu 2. til 5. ágúst
síðastliðinn.
Jónas sagði að þess hefði verið
óskað að fjölmiölum yrði ekki sagt
frá því að A1 Fayed dveldi hér á
landi. Við það heföi að sjálfsögðu
verið staðið. Herbergjapönfimin var
ekki á réttum nöfnum. Þau komu
ekki í ljós fyrr en hópur skráði sig
inn á hótelið. A1 Fayed kom hingað
með fjölskyldu og fylgdarlið á
tveimur einkaþotum og þótti önnur
þeirra sérlega glæsileg.
„Ég er ánægður með hvað starfs-
fólk Sögu stóð saman um að halda
dvöl hans leyndri fyrir fjölmiðlum,“
sagði Jónas.
A1 Fayed og fjölskylda var bara í
fríi hér á landi og notaði tímann til
að skoða sig um. Meðal annars fór
hópurinn í ferðir um Suðurlandið
og upp á Langjökul. Jónas sagðist
halda að unnusti Díönu prinsessu
hefði ekki verið með fjölskyldu
sinni hér.
A1 Fayed fjölskyldan er með rík-
ustu fjölskyldum heims og á sem
fyrr segir meðal annars hina frægu
verslun, Harrod’s í London. A1
Fayed nafnið hefur verið mjög í
heimspressunni að undanförnu
vegna þess að sonurinn, Dodi A1
Fayed, er nýjasta ástin í lífi Díönu
prinsessu.
Mohamd A1 Fayed er fæddur í Eg-
yptalandi og hafa hann og bróðir
hans, Ali, átt i löngu stríði við bresk
yfirvöld sem hafa neitað þeim um
ríkisborgararétt í Englandi. í nóv-
ember 1996 unnu þeir bræður eina
orrustu fyrir breskum dómstóli
gegn bresku ríkisstjórninni í þessu
máli.
Fyrir þá sem hafa áhuga á ensku
knattspymunni var A1 Fayed á dög-
unum að kaupa hið fomfræga knatt-
spymufélag, Fulham í London, og
hyggst hefja það aftur til vegs og
virðingar meðal þeirra bestu. -S.dór
Stuttar fréttir
Skáld látið
Hannes Sigfússon skáld í
Reykjavík er látinn. Ein
þekktasta ljóðabók hans er
Dymbilvika, en meðal skáld-
sagna má nefna Strandið sem
kom út 1955. Hannes var auk
þess afkastamikill þýðandi bók-
menntaverka.
Forsetaheimsókn
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, og frú Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir hafa þegið boð
Karls Gústafs XVI. um að koma
í opinbera heimsókn til Sviþjóð-
ar 21.-23. október 1997.
Ormaskrekkur
Mynd um hringorma í fiski
var sýnd í gær í þýsku sjón-
varpi. Óttast er að hún skelfi
Þjóðverja svo að þeir þori ekki
að borða fisk og óttinn spilli
Þýskalandsmarkaði fyrir ís-
lenskan fisk. Stöð 2 sagði frá.
Reiði
íbúar við Grettisgötu em reið-
ir borgaryfirvöldum fyrir að
leyfa stórbyggingar í fullbyggðu
hverfi, þvert ofan í vilja íbú-
anna. Stöð 2 sagði frá.
Gangaverðir launahærri
Gangaverðir í grunnskólum
hafa um fjórðungi hærri mánaö-
arlaun en kennarar með fuU
réttindi. Reyndur skólastjóri
segir við Stöð 2 að aldrei hafi
verið erfiðara en nú að ráða rétt-
indakennara til skólanna.
VSÍ breytist
Hugmyndir eru uppi innan
VSÍ að breyta sambandinu
þannig að það verði uppbyggt af
fjórum ámóta stórum aðildar-
samtökum atvinnugreina, í stað
átta misstórra sambanda eins og
nú er. Morgunblaðið segir frá.
-SÁ
Jóruselið í gær:
Eldsupptök ókunn
Eldur kom upp í einbýlishúsi nokkuð lengi áður en hans varð
við Jórusel í gærmorgun. Þegar vart. Ekkert liggur fyrir um elds-
slökkviliðið kom á vettvang log- upptök. -sv
aði mikill eldur í risi
hússins. Þar urðu mikl-
ar skemmdir og er
hæðin talin ónýt. Mildi
þykir að hemja tókst
eldinn áður en honum
tókst að breiðast út á
neðri hæðina. Hún
slapp að öðru leyti en
því að reykur og vatn
ollu einhverjum
skemmdum. Húsráð-
endur höfðu farið að
heiman um morguninn
og sýndist mönnum Eldurinn haföi kraumað lengi þegar hans varð
sem eldurinn hefði ver- vart og er rjshæöin talin ónýt. Ekkert er vitaö
iö búinn að krauma Um eldsupptök. DV-mynd S